Morgunblaðið - 05.08.1989, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 05.08.1989, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. ÁGÚST 1989 23 Minnkandi áhugi neyt- enda fyrir fersku kjöti LÍTIÐ verður um svokölluð sumarlömb í verslunum í ár þar sem áhugi neytenda virðist dræmur. Sumarlömb seldust illa á síðasta sumri, en þá var töluverðum fjölda sumarlamba slátrað og ferskt lambakjöt selt í verslunum. Jón Magnússon, sölustjóri hjá Af- urðadeild SÍS, segir að sumarslátrun verði engin á vegum Sambandsins í ár. „Við höfum slátrað á sumrin nokkur undanfarin ár. Það gekk ágætlega fyrstu árin, en síðan hefur smádregið úr sumarslátruninni. í fyrra var sáralítil eftirspurn. Verð- munurinn nam 25% á milli nýs og gamals kjöts sem var hreinlega of mikið fyrir neytendur. Það endaði með því að við frystum meirihlutann af sumarslátruðu lömbunum," segir Jón. Hann sagðist jafnve! efast um að boðið yrði upp á svokölluð pá- skalömb um næstu páska vegna tak- markaðs áhuga. Hinsvegar þyrfti að taka um það ákvörðun í haust þar sem hleypa þyfti til miklu fyrr en ella. Jón Gunnar Jónsson, framleiðslu- stjóri hjá Sláturfélagi Suðurlands, segist reikna með að sumaslátrun verði einhver á vegum SS og að hún heijist þá verslunarmannahelgi ef áhugi kaupmanna og bænda reynist nægur. Sláturfélagið hefur nú þegar fengið vilyrði fyrir eitt hundrað dilk- um. „Það er í raun of snemmt að spá um hvernig til tekst, en áhuginn af okkar hálfu er til staðar.“ Jón Gunnar sagði að bændur, sem Útflutningur hrossakjöts: Býst við að útflutningsbæt- ur verði með sama sniði - segir landbúnaðarráðherra STEINGRÍMUR J. Sigfusson, landbúnaðarráðherra, segist gera ráð fyrir að stuðningur við út- flutning hrossa og hrossakjöts geti áfram verið með svipuðu móti og verið hefur. Ráðherra tel- ur einnig eðlilegt að hið opinbera bæti við hlutafé til að styrkja rekstur Fínullar hf., sem vinnur úr ull af angórakanínum. þannig að byggt verði á innfluttu hráefni að miklu leyti, en mikilvægt sé að gefa íslenskum kanínubændum færi á að losna við framleiðslu sína. væru með of mikið af lömbum og ekki nægjanlegan fullvirðisrétt, sæju sér oft hag í því að láta slátra lömb- unum á meðan þau væru léttari. Þannig nýttu þeir að fullu sinn rétt og fengju auk þess heldur hærra verð fyrir sumarslátruð lömb heldur en fyrir haustslátrunina. Verðmunur- inn mætti hinsvegar ekki vera of mikill á frosnu og fersku kjöti því þá minnkaði áhugi neytenda eins og reyndar gerðist í fyrra. Nú væri ver- ið að selja dilkakjöt á tilboðsverði í verslunum á 365 og 383 krónur kg. Skráð heildsöluverð á fyrsta flokks dilkakjöti í júnímánuði var 293,90 krónur kg. Það verð þyrfti að hækka um 10% svo vel ætti að vera og þá ættu kaupmenn eftir að leggja smá- söluálagningu og 25% söluskatt ofan á verðið. Því væri ljóst að verðmunur yrði einhver á sumarlömbunum og frosna tilboðskjötinu. ;,Við höfum áhuga á að standa fyrir sumarslátrun í ár, en hún verður að ráðast af verð- um og áhuga neytenda á vörunni. Þetta er' samspil milli kaupmannsins, sem ekki vill hafa vöruna of dýra, og bóndans, sem ieggur lömbin sín ekki inn á hvaða verði sem er. I fyrra voru bændur viljugir til að leggja inn, en verslanirnar misstu áhugann fljótt þar sem lítil sala mun hafa verið í nýja kjötinu vegna of hás verðs,“ sagði Jón Gunnar. 15 myndir eftir Louisu Matthíasdóttur eru nú til sýnis og sölu í Gallerí Borg. Nýjar Louisu-mynd- ir í Gallerí Borg Listakonana Louisa Matt- híasdóttir er nú stödd hér á landi en hún er, eins og flestum er kunnugt, búsett í New York þar sem hún er fyrir löngu búin að vinna sér nafn og orðin þekkt fyrir sterkar landslags- myndir sínar frá íslandi. Nú hefur Gallerí Borg fengið til sölu 15 nýlegar olíumyndir eft- ir Louisu, flestar af hestum og kindum í landslagi en sú stærsta er falleg götumynd úr Reykjavík. Myndirnar hafa verið hengdar upp og verða til sýnis og sölu í Gallerí Borg næstu daga. (Fréttatilkynning) Landbúnaðarráðherra segir, að Félag hrossabænda hafi á undan- förnum árum fengið örlitla fjárhæð, í ár þijár til fjórar milljónir, til að standa að útflutningi. Þarna væri hins vegar í raun og veru ekki um að ræða eiginlegar útflutningsbætur, heldur væri um fasta upphæð að ræða. Hrossabændur hefðu skapað gjaldeyristekjur með þessum útflutn- ingi og sala þeirra á reiðhestum hefði verið góð landkynning. Segist ráð- herra gera ráð fyrir að stuðningur við þá geti orðið með svipuðu sniði og verið hafi. Landbúnaðarráðherra segir að engin ástæða sé til upphlaups vegna þess sem á sér nú stað í kanínurækt- inni. Keypt hafi verið til landsins verksmiðja ti! að vinna kanínuull og stofnað um hana hlutafélag. Vegna stofnkostnaðar þurfi nú að bæta við hlutafé. Afköst verksmiðjunnar séu meiri en þurfi til að vinna innlenda hráefnið í fyrirsjáanlegri framtíð, Byggðastofiiun; 20 millj. til fóðurstöðva BYGGÐASTOFNUN mun á næstu þremur mánuðum veita fóður- stöðvum 20 milljónir króna í styrki til að lækka megi verð á fóðri til loðdýrabænda og laxeldisfyrir- tækja. Stjórn Byggðarstofnunar ákvað einnig að fylgjast sérstak- lega með þeim fóðurstöðvum sem kunna að lenda í rekstrarerfiðleik- um á árinu, og lána nýjum rekstra- raðilum komi til gjaldþrota stöðv- anna. Var þetta gert að beiðni forsætisráðherra fyrir hönd ríkis- stjórnarinnar þess hljóðandi að Byggðastofnun tæki frekari þátt í tilraunum til að tryggja rekstur fóðurstöðvanna. I frétt frá stjórn stofnunarinnar segir, að stöðvunum verði greiddur styrkur á hvert framleitt og selt kílógramm, þannig að þær geti selt bændum og laxeldisfyrirtækjum fóð- ur á lægra verði. Guðmundur Malm- quist forstjóri Byggðastofnunnar sagði í samtali við Morgunblaðið að stjóm stofnunarinnar hefði ekki talið vænlegt að veita greininni bein lán að meira marki en gert hefur verið, í bili að minnsta kosti. „Við tókum því þá ákvörðun að bíta á jaxlinn og styrkja," sagði Guðmundur. FÁAHLEGT í 15 LITUM Fæst I málningar og byggingavörurerslunum um allt tauú

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.