Morgunblaðið - 05.08.1989, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 05.08.1989, Blaðsíða 2
2 í321 rál'.H < J II / (H/ i) J/ ■ !1 1/. ;[ T j MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. AGUST 1989 Enginn vafí á fiindi Viðeyjarklausturs: Minjar bera vott um íburðarmikið klaustur STÖÐUGT er unnið að fornleifauppgreftri í Viðey og margt merkilegra muna hefur fundist í sumar. Að sögn Margrétar Hallgrímsdóttur fornleifafræðings er enginn vafí á því að Viðeyj- arklaustur er fundið. Munir sem fundist hafa i sumar bera vott um íburð í klaustrinu, a.m.k. samanborið við lifhaðarhætti Islend- inga á miðöldum. Má þar nefha efnisbúta úr silki, klæðaprjón úr gulli og rúðugler. Einnig hafa komið í ljós hlutar úr 11 sáum, þar af sjö sem notaðir hafa verið á sama tíma. Sáir eru stór tréker- öld sem i voru geymd matvæli, svo sem skyr og mysa. „Nú er stór hluti klaustursins urinn úr þeim hafi gjarnan verið kominn í ljós og hefur það verið dæmigerður gangabær, með löng- um göngum og stofu og skála til hvorrar handar. Elsti veggurinn hefur að ölllum líkindum verið hlaðinn rétt fyrir vígslu klausturs- ins árið 1226,“ sagði Margrét Hallgrímsdóttir. „Upphaflega var skáli kiaustursins um 100 fer- metrar að flatarmáli en var síðan minnkaður. Yngsti hluti gólfskál- ans er frá því um 1500.“ Á þeim stað þar sem búr klaust- ursins var hafa komið í ljós hlutar úr 11 keröldum, þau elstu eru tæpir 2 metrar í þvermál. „Þetta er mikill fjöldi sáa,“ sagði Margr- ét. „Klaustrið var hið auðugasta á landinu og hér hefur eflaust verið gnótt matar. Fundist hafa sjö skyrsáir frá sama tíma.“ Margrét segir það óvenjulegt að finna keröldin sjálf. Oftast fínnist aðeins för eftir þau, þar sem við- endurnýttur. Margt hefur fundist við upp- gröftinn sem bendir til þess að hvergi hafi verið til sparað í klaustrinu. Um það vitna efnis- bútar úr silki, sem ekki er að finna í venjulegum bæjarstæðum frá sama tíma, einnig litaðir bútaV úr fatnaði og vattarsaumsbútar frá miðöldum. Auk þess má nefna skósóla úr leðri. I sumar hafa fundist heil rúðugier frá miðöld- um, ferköntuð og hringlaga, sem eru um 10 sm í þvermál. Margrét kveður vaxleifar sem fundist hafa á kertastjökum einnig merkilegar í ljósi þess að munkar voru þeir einu sem steyptu vaxkerti á mið- öldum. I sumar eru þrjú ár síðan fom- leifauppgröftur hófst í Viðey. Margrét Hallgrímsdóttir segir Ijóst að grafa þurfi í a.m.k. fimm sumur í viðbót eigi allt Viðeyjar- klaustur að finnast. Morgunblaðið/Árni Sæberg Fremst á myndinni sést o£an á tvo sái í búri Viðeyjarklausturs. Sárinn sem flær stendur er sá heillegasti sem íúndist hefúr við uppgröft í rústum klaustursins. Alls hafa ftmdist 11 sáir í rústum Viðeyjarklausturs til þessa. Reykjavík-Akureyri: Búiðað leggja slit- lag á 360 kílómetra í SUMAR hefúr verið lagt bundið slitlag á 32,5 kílómetra af þjóð- veginum milli Reykjavikur og Akureyrar. Slitlagið, sem lagt hefur verið í sumar, er ekki samfellt. Fjórir kíló- metrar í Hvaifirði, sjö í Svigna- skarði, fjórir í Sveinstungu, sex og hálfur í Víðihlíð, íjórir í Vatns- skarði, fjórir í Skagafirði og þrír í Hörgárdal. Þjóðvegurinn milli Reykjavíkur og Akureyrar er 432 kílómetrar. Þar af hefur verið iagt slitlag á um 360 kílómetra en eftir er að leggja á 70 kílómetra. Haldið verður áfram fram- kvæmdum við þjóðveginn næsta sumar. Allt að þrefalt verri heimt- ur í hafbeitinni en í fyrra Siávarkuldi og erfíð skilyrði í sjónum talin valda mestu um við stöðuna hjá öðrum og þá vitn- " eskju að árið í ár sé almennt slæmt komum við ekkert verr út en aðr- segir Júlíus. SLÆMAR heimtur hafa verið á eins árs hafbeitarlaxi, það sem af er þessu sumri. Allt að þrefalt minna af laxinum hefúr skilað sér í sumar en á sama tíma í fyrra. Jónas Jónasson tilraunastjóri hjá Laxeldisstöð ríkisins í Kollafirði segir að ástæður þess að hafbeitar- laxinn endurheimtist illa í ár séu einkum lágur sjávarhiti í vetur og erfið vaxtarskilyrði af þeim sökum. Hinsvegar hafi verið góðar endurheimtur af 2ja ára laxi og sé nú komið nokkuð meira af honum í Kollafjörð en í fyrra. Jónas segir að í fyrra hafí kom- ið um 20.000 eins árs laxar í Kolla- fjörð en nú sé aðeins komið brot af þeirri tölu. Auk þess sé laxinn smár. Hefur þetta komið mjög illa við reksturinn í ár enda um aðal- tekjulindina að ræða. Sveinbjöm Oddsson stöðvar- stjóri hjá Vogalaxi segir að endur- heimtur hjá þeim séu um þrefalt minni í ár en þeir bjuggust við. Að vísu séu nú komnir á land hjá þeim 28.000 laxar sem sé svipað og allt árið í fyrra. Miðað við seiða- sleppinguna í fyrra áttu þeir hins- vegar von á að fá 70-80.000 laxa. „Þetta lítur iila út en hins vegar hefur verið rætt um að laxinn sé almennt seinna á ferðinni í ár en i fyrra þannig að ástandið gæti Lætur af störfum veðurstofiistj óra STARF veðurstofustjóra hefúr verið auglýst laust til umsóknar. Hlynur Sigtryggsson veðurstofu- stjóri hefúr óskað lausnar frá störfúm frá 1. október en hann hófstörfhjá Veðurstofúnni 1946. „Ég hef nú engin ákveðin verk- efni í huga,“ segir Hlynur, „en það getur vel verið að eitthvað falli til á næstunni. Ég hef verið í þessu starfi í 26 ár og er að verða 68 ára gamall, kominn yfír venjulegan eft- irlaunaaldur. Þessi langi tími í starfínu og heilsufarsástæður valda því að ég hef beðist lausnar." Samkvæmt lögum um veðurstof- una frá 1985 er veðurstofustjóri skipaður til fímm ára í senn. Ekki eru til reglur um skilyrði sem um- sækjendur þurfa að uppfylla. Um- sóknarfrestur rennur út 25. ágúst en skipað verður í starfið frá 1. október. Hlynur Sigtryggsson nam veður- fræði við Kaliforníu- og Stokk- hólmsháskóla. Á undan honum batnað,“ segir Sveinbjöm. „Ljósi punkturinn í þessu er að tveggja ára lax hefur skilað sér nokkuð betur nú en í fyrra. Um 2% meir af honum hefur komið á land nú.“ í máli Sveinbjöms kemur fram að þeir eins árs laxar sem endur- heimtst hafa séu nær eingöngu hængar. Það þýði að þeir eigi von á miklu magni af tveggja ára laxi á næsta sumri því jafnmiklu af hrygnum hafí verið sleppt og hængum. Hrygnurnar þurfi betri sjávarskilyrði en hængar til að þroskast og því muni þær senni- lega ekki skila sér í ár. Hann seg- ir að rekstur stöðvarinnar muni alveg standa þetta af sér enda öll- um framkvæmdum við stöðina lok- ið. Júlíus Kristinsson fram- kvæmdastjóri Silfurlax, sem er ein af nýrri hafbeitarstöðvunum, segir að heimtur hjá þeim hafi verið mun dræmari í ár en þeir áttu von á eða allt að helmingi minni. Nú eru eitthvað á fimmta þúsund laxar komnir á land hjá þeim. „Miðað ír, Skuttogar- innOturtil Hornaflarðar ÞRÍR aðilar á Höfú í Hornafirði; bæjarfélagið, Kaupfélag Austur Skaftfellinga og Verkalýðsfélagið Jökull hafa fest kaup á skuttogar- anum Otri frá Hafiiarfirði. Verður hann afhentur sínum nýju eigend- um um næstu mánaðamót og fer þá þegar á veiðar. Hermann Hansson kaupfélags- stjóri á Höfn sagði í samtali við Morgunblaðið í gær, að á næstunni yrði stofnað hlutafélag um togarann. Mun hann stunda botnfiskveiðar og ianda á Höfn í Hornafírði. Það var Sjólastöðin hf í Hafnarfirði sem seldi umræddum aðilum skipið, en það var smíðað í Vigo á Spáni árið 1974. Hefur Hafnarfjörður alla tíð verið heimahöfn skipsins. Það er 451 tonn á stærð og 47,5 metrar á lengd. Netalagnir í sjó: Ný reglugerð vegna aukinnar laxveiði Landbúnaðarráðuneytið hefúr sett nýja reglugerð um netaveiði á göngusilungi í sjó og kemur hún í kjölfarið á auknu eftirliti haf- beitarstöðva, veiðiréttareigenda fallvatna og leigutaka þeirra með netaveiðum í sjó. í sumar hefur mikill fjöldi mála komið upp þar sem ólögleg net í sjó hafa verið kærð til viðkomandi lögregluyfirvalda. Mikil brögð hafa verið að því að laxar hafa skilað sér í hafbeitarstöðvar og laxveiðiár meira og minna særðir eftir net. „Þessi reglugerð er meiri háttar sigur,“ sagði Orri Vigfússon for- maður Laxárfélagsins í samtali við Fyrstu íslensku kartöflumar í búðir Uppskeran verður minni en í fyrra Hlynur Sigtryggsson. gegndu starfi veðurstofustjóra dr. Þorkell Þorkelsson jarðeðlisfræð- ingur og Teresía Guðmundsson veð- ur- og eðlisfræðingur. FYRSTU íslensku kartöflurnar komu í búðir fyrir helgi. Ekki verður þó farið að dreifa íslensk- um kartöflum að ráði fyrr en um miðjan mánuðinn. í samtali við Sturlu R. Guð- mundsson, framkvæmdastjóra Ágætis, kom fram að fyrirtækið hefði dreift einu tonni af íslenskum kartöflum í búðir síðastliðinn fimmtudag. Heildsöluverð íslensku kartafln- anna er um 60 krónum hærra en innfluttu kartaflnanna sem verið hafa á markaðnum frá því í júní. Kílóið af íslenskum kartöflum mun að öllum líkindum kosta 190 til 200 krónur út úr búð. Talið er að íslenskar kartöflur verði almennt komnar á markaðinn uppúr miðjum ágúst, ef til vill að- eins seinna norðanlands. Kartöfluuppskeran í ár verður sennilega minni en uppskeran í fyrra sem var minni en í meðalári. Morgunblaðið í gær, en nokkur óskráð net hafa verið hirt við ósa Laxár í Aðaldal í sumar og eigend- ur þeirra kærðir. Veigamestu atriðin í reglugerð- inni nýju eru að einungis megi veiða sjósilung í lagnet sem ekki séu lengri en 50 metrar, ekki smáriðn- ari en 4,5 sentimetrar og ekki stór- riðnari en 5,0 sentimetrar. Og girn- isþykktin megi ekki vera meiri en 0,3 mm. „Sá lax sem festir sig í slíku neti á að geta slitið sig lausan,“ sagði Orri. Þá eru í reglugerðinni ákvæði um að netin verði að leggja með flotlínu, þ.e.a.s. það megi ekki kaf- leggja þau eða mynda fyrirstöðu eða gildru með staurum, grjóti eða öðrum föstum búnaði. Þau verði að vera landföst og liggja þvert á fjöru og bil milli slíkra neta eftir endi- langri fjöru verði að vera að minnsta kosti 100 metrar, en þó aldrei skemmra en fimmföld lengd nets- ins. Þau net sem um ræðir eiga að vera merkt með bauju ásamt nafni ábúanda og lögbýlis sem hefur við- komandi veiðirétt og ef maður veið- ir fyrir landi annars skal skriflegt leyfí til slíks liggja fyrir. Að öðru leyti gilda áfram þær reglur sem verið hafa, m. a. hvað varðar helg- arbann.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.