Morgunblaðið - 05.08.1989, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. ÁGÚST 1989
13
Grundarfi örður:
Unnið að fegrun
og viðhaldi gatna
Grundarfirði.
FRÁGANGUR og viðhald á götum á Grundarfirði hefur staðið yfir
undanfarið. Eins og víða annars staðar fóru götur illa í snjónum í vet-
ur og mikið af holum kom í slitlagið. Fyllt hefur verið í þær, gang-
brautir málaðar á ný en mestu munar að kantsteinar hafa verið steypt-
ir meðfram mörgum götum bæjarins, alls 2 km.
Morgunblaðið/Ragnheiður Gunnarsdóttir
Um tveir kílómetrar af kantsteinum hafa verið lagðir á Grundarfirði
í sumar.
sé afkomandi jarlaspora og einhvers
annars e.t.v. Delphinium elatum.
Hann virðist harðgerður og þolir
betur slæm veður heldur en þeir sem
hafa lengri og þéttari blómklasa.
Hann er oft settur í flokk með svo-
nefndum Belladonna-riddarasporum
sem líkjast honum í vexti og éru
svipaðir á stærð. Belladonna-ridd-
arasporarnir komu fyrst fram um
1880. Fallegt afbrigði af þeim eru
t.d. Blue Bees, blátt með hvítu auga,
Wendy og Völkerfrieden, dökkblátt
og Moerheimi sem ber hvít blóm og
er eitt þeirra elstu. Þessi afbrigði
ættu að henta betur íslenskum að-
stæðum en þau stóru og skrautlegu.
Rósariddarasporinn hefur reynst
vel hér á landi, a.m.k. norðanlands,
staðið lengi í blóma á hveiju sumri
og vakið aðdáun allra sem sáu hann.
Hólmfríður Sigurðardóttir
Þessi framkvæmd, sem kostar um
1 milljón króna, er mikið til að prýða
bæinn auk þess sem viðhald á götum
ætti að minnka þegar möl og steinar
berast ekki lengur inn á slitlagið.
Af öðrum framkvæmdum má
nefna að lokið var við að steypa þekju
á norðurgarðinn í Grundarfjarðar-
höfn og bætir það enn aðstöðuna við
höfnina. Ný borhola bættist við
vatnsveitu Grundarfjarðar sl. sumar.
Bætti hún úr. brýnni þörf sem orðin
var fyrir meira vatn. Þessari fram-
kvæmd lýkur nú í haust' þegar kom-
ið verður fyrir 7—8.000 tonna miðl-
unartanki við nýju veituna.
Ahugi á umhverfisverndarmálum
er að aukast um allt land. Einn liður
í að draga úr mengun er bættur frá-
gangur á holræsalögnum og nú
stendur til að ganga frá lögnum úr
nýjasta bæjarhlutanum og lengja
þær á haf út. Hverfið byggðist fyrir
10 árum og hefur þetta verið ófrá-
gengið síðan. Auk ofangreindra
verkefna er unnið að viðhaldi á fast-
eignum sveitarfélagsins.
— Ragnheiður
Reykjavík:
Við Jaðarsel (hverfisstöð Gatnamálastjóra).
í Vesturbæ: Skemma við Eiðisgranda.
Kópavogur: Dalvegur 7
Hafnarfjörður: Við Flatahraun
Akranes: Smiðjuvellir 3
ísafjörður: Hjallavegur 11
Akureyri: Við KA-heimilið
Vestmannaeyjar: Við Kaupfélagið
Selfoss og nágrenni: Vörumóttaka KA
Keflavík og nágrenni: Iðavellir 9B
Söfnunarstaðir:
Borgarnes
Ólafsvík og Hellissandur
Grundarfjörður
Stykkishólmur
Búðardalur
Patreksfjörður
Tálknafjörður
Bíldudalur
Eingeyri
Flateyri
Suðureyri
Bolungarvík
Súðavík
Hólmavík
Hvammstangi
Blönduós og Skagaströnd
Sauðárkrókur
Siglufjörður
Ólafsfjörður
Dalvík
Húsavík
Kópasker
Raufarhöfn
Pórshöfn
Vopnafjörður
Egilsstaðir
Seyðisfjörður
Neskaupstaður
Eskifjörður
Reyðarfjörður
Búðir
Stöðvarfjörður
Breiðdalsvík
Djúpivogur
Höfn
Kirkjubæjarklaustur
Vík
Hvolsvöllur
Hella
Hveragerði
Laugarvatn
Stokkseyri
Porlákshöfn *
Grindavík
Endurvinnsla stuðlar að hreinna umhverfi, heilbrigðara verðmætamati
og er auk þess dágóð búbót fyrir duglega safnara.
Búast má við miklu álagi fyrstu dagana, meðan menn eru að skila þeim
umbúðum sem þeir hafa safnað undanfarnar vikur. Sýnum því þolinmæði, þá
gengur allt betur.
[NDmimiMi Hf
Nýtt úr notuðu