Morgunblaðið - 05.08.1989, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 05.08.1989, Qupperneq 12
12 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. ÁGÚST 1989 Rósariddaraspori — Delphinium ruysii Bióm vikunnar Umsjón Ágústa Björnsdóttir 134. þáttur Riddarasporar eru gamlar garð- plöntur. Þegar á 17. öld voru komin fram mismunandi afbrigði en það var þó ekki fyrr en eftir 1850 sem kynbætur á þeim hófust fyrir alvöru. Þær byrjuðu í Frakklandi og Eng- landi og síðar í Þýskalandi og Hol- landi. Margir tóku þátt í þessu starfi og einn sá kunnasti var B. Ruys, Dedemsvaart í Hollandi. B. Ruys hafði einsett sér að fá fram kynblendinga með bleikum bló- malit sem yrði þá alger nýjung. Næstum allar villtar tegundir ridd- araspora eru með blá blóm nema tvær: Jarlaspori (D. nudicaule) og D. cardinale frá Kaliforníu og eru þær báðar með rauð blóm. B. Ruys Rósa- riddara- spori. réði til sín sérfræðing 1906 en hvern- ig sem þeir reyndu fóru allar þeirra tilraunir út um þúfur. Svo liðu árin og B. Ruys hefur vafalaust fyrir lögnu verið búinn að gefa upp alla von um bleikan riddaraspora. En þá gerðist það furðulega á 3. áratug þessarar aldar að planta sem vaxið hafði upp af fræi í stöðinni — alveg óviðkomandi öllu kynbótastarfi — fór að blómstra fallegum bleikum blómum öllum að óvörum. Það var eiginlega merkilegast að þetta skyldi gerast hjá B. Ruys en ekki einhvers staðar annars staðar. Þetta nýja afbrigði var kallað „Pink Sensation" og varð strax frægt eins og nærri má geta. Rósariddarasporinn — Delph- inium ruysii — er ekki mjög hár, 60-90 sm með stinna stöngla og fremur gisna blómklasa. Vegna þessa vaxtarlags er álitið að hann Nýtíúr Móttaka hefst 8. ágúst kl. 13 Fyrst í stað verður tekið á móti einnota öl- og gosdrykkjaumbúðum á 10 móttökustöðum og 44 söfnunarstöðum um allt land. Með haustinu færist skipulagið í varanlegt horf og móttökustöðum fjölgar um allt land. Að sjálfsögðu er tekið við beygluðum jafnt sem heilum dósum en við biðjum ykkur að tæma umbúðirnar vel áður en þeim er skilað. Með tímanum munu vélar leysa móttökustöðvarnar af hólmi. Rétt er að táka fram að vélarnar geta ekki tekið við mjög beygluðum dósum sem þarf þá að skila beint til Endurvinnslunnar. Þannig er móttökunni háttaé: Á móttökustöðunum er tekið við umbúðum og skilagjaldið greitt út í hönd. Til að flýta fyrir afgreiðslu eru menn beðnir að flokka umbúðir þannig að áldósir séu í einum poka, plastdósir og -flöskur í öðrum og einnota gler- flöskur í þeim þriðja. Á söfnunarstöðunum er tekið við umbúðum, þær merktar og fluttar til Endurvinnslunnar í Reykjavík þar sem þær eru flokkaðar og taldar. Endur- vinnslan sendir eigendum síðan ávísun fyrir skilagjaldinu í pósti. Þeir sem skila á söfnunarstað þurfa ekki að flokka umbúðirnar en miðað er við að menn safni a.m.k. 100 umbúðum í einn poka áður en pokanum er skilað.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.