Morgunblaðið - 05.08.1989, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. ÁGÚST 1989
29
Mjólkursamlag KEA:
Pökkun Smjörva
sparar 14-16 millj.
Björgun æfð á láði og legi
Morgunblaðið/Rúnar Þór
ÞYRLUFLUGMENN á danska eftirlitsskipinu
Vædderen æfðu um hádegisbilið í gær björgunar-
aðgerðir, en skipið hefur legið við bryggju á
Akureyri undanfarna daga. Hífðu þeir menn upp
úr sjó og einnig af landi, og þá var þessi mynd
tekin.
Kópasker:
Sótt um úreldingu sláturhúss
KAUPFÉLAGIÐ á Kópaskeri hefur lagt inn beiðni til Úreldingarsjóðs,
um að hann úreldi sláturhúsið þar, og er þetta liður í heildarskipulagn-
ingu á' sláturhúsarekstri á Norð-Austurlandi. Rætt hefiir verið um
fækkun sláturhúsa á þessu svæði, úr 6 húsum í þijú, og er þá ráðgert
að starfrækja sláturhús á Akureyri, Húsavík og Þórshöfn.
MIKILL áhugi er fyrir því hjá
kaupfélagsmönnum á Akureyri,
Dagsprent:
Rekstrarspár
stóðust ekki
„Þær rekstrarspár, sem notaðar
voru fyrir þessum auknu umsvif-
um Dags og Dagsprents, stóðust
einfaldlega ekki, og nú er fyrirsjá-
anlegt að reksturinn beri ekki
Qármagnskostnað næstu ára,“
sagði Sigurður Jóhannesson,
stjómarformaður Dagsprents,
þegar hann var inntur eftir því,
hvers vegna ráðist hefði verið í
þessar miklu Qárfestingar, sem nú
stæði til að seþ'a.
„Með því að bjóða húseignina við
Strandgötu til sölu erum við að reyna
að afstýra frekari rekstarörðugleik-
um, og takist okkur að selja húsið,
ætti ekki að þurfa að koma til neinna
breytinga á útgáfu blaðsins. Það
hefur verið unnið að hagræðingu á
blaðinu að undanfömu og er greini-
legt að það er rekstrarhæft. Forsend-
umar fyrir rekstrinum eru hins veg-
ar þær, að það takist að selja hús-
eignina við Strandgötuna. Einnig er
sá möguleiki fyrir hendi að það ta-
kist að selja húseignir Prentsmiðju
Odds Björnssonar, en allar umræður
um samruna fyrirtækjanna hafa ver-
ið jákvæðar," sagði Sigurður.
Um söluverðmæti húseignarinnar
við Strandgötu sagðist Sigurður ekki
geta fullyrt neitt; sagði að bmna-
bótamat á húsinu um síðustu áramót
hefði verið 95-100 milljónir, en mark-
aðsverð væri líklega 70-90% af þeirri
upphæð.
að pökkun á Smjörva fari fram
hjá Mjólkursamlagi KEA, en ekki
hjá Osta- og smjörsölunni í
Reykjavík eins og verið hefúr, en
talið er að það geti sparað mjólk-
ursamlaginu allt að 14-16 milijónir
árlega. Þá myndi þessi ráðstöfún
hafa í för með sér talsverðan
sparnað fyrir mjólkuriðnaðinn í
heild sinni, og er talað um að rúm-
lega 10 milljónir króna sparist á
ári við pökkun Smjörvans á Akur-
eyri.
„Við viljum gjarnan fá þessa pökk-
un hingað, þó svo það þýði auðvitað
nokkrar fjárfestingar fyrir mjólkur-
samlagið hér,“ sagði Magnús Gauti
Gautason, kaupfélagsstjóri KEA, og
benti á að það þyrfti að byggja frysti-
geymslu fyrir mjólkursamlagið hér,
sem hefði töluverðan kostnað í för
með sér. „Það þarf hins vegar einnig
að byggja frystiklefa fyrir sunnan,
eigi pökkun á Smjörva að vera þar
áfram, þannig að þetta er að nokkru
leyti spurning um hvar byggja eigi
þann frystiklefa," sagði kaupfélags-
stjórinn.
Hólmgeir Karlsson, framleiðslu-
stjóri hjá Mjólkursamlagi KEA, sagði
að kostnaður við byggingu frystiklef-
ans yrði í kringum 13 milljónir, en
stærð hans hefði verið áætluð um
200 fermetrar. Þá sagði hann kostn-
að við kaup á pökkunarvél, sem
líklega verður óhjákvæmilegt að
kaupa, verða á bilinu 8-10 milljónir.
„Samkvæmt okkar athugunum
virðist sem sparnaður fyrir mjólkur-
iðnaðinn í landinu verði rúmlega 10
milljónir króna, en beinn sparnaður
fyrir mjólkursamlagið hér verður
líklega á bilinu 14-16 milljónir,"
sagði Hólmgeir. Vísaði hann meðal
annars til þess að beinn kostnaður
mjólkursamlagsins við pökkunina í
Reykjavík væri um 12 milljónir.
Eysteinn Sigurðsson; kaupfélags-
stjóri á Kópaskeri, sagði að þessi
beiðni um úreldingu sláturhússins,
væri til umfjöllunar hjá landbúnaðar-
ráðuneytinu, og erfitt á þessu stigi
málsins, að segja til um hversu mik-
ið Úreldingarsjóður greiddi fyrir hús-
ið.
Sláturhúsið var metið á 74 milljón-
ir 1. janúar 1988, en Eysteinn sagði
að Úreldingarsjóður myndi sennilega
ekki greiða nema hluta af þeirri upp-
hæð fyrir sláturhúsið.
„Það er mjög erfitt að segja nokk-
uð til um það hversu mikið fæst úr
Úreldingarsjóði, enda hugmyndin sú
að reyna að nýta húsnæðið að hluta,
t.d. frystigeymslurnar, undir aðra
starfsemi," sagði Eysteinn.
„Sláturhúsið er hins vegar stærsta
eign kaupfélagsins á Kópaskeri, og
þar sem við erum nú að hefja nauða-
samninga við kröfuhafa um 100-130
milljóna króna skuld, er alveg ljóst
að það ræðst af því, hvað við fáum
fyrir sláturhúsið, hvað við getum
borgað kröfuhöfum hátt hlutfall af
kröfum þeirra,“ sagði Eysteinn að
lokum.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Ellefú krakkar sóttu námskeiðið á vegum Rauða krossins, sem haldið var í íþróttahöllinni, Qórir
strákar og sjö stelpur.
Góða Island er fagnrgrænt
en vonda Island er mengað
Börnin á mannúðarnámskeiði Rauða krossins heimsótt
MANNÚÐ og menning hét
námskeið á vegum Rauða
krossins, sem haldið var á Ak-
ureyri fyrir börn á aldrinum
8-10 ára. Ellefú krakkar sóttu
námskeiðið, sem haldið var í
íþróttahöllinni, en markmiðið
með námskeiðinu var að kynna
fyrir þeim starfeemi Rauða
krossins á íslandi og erlendis,
svo og uppfræða þau um um-
hverfísvandamál, mannleg
samskipti, vanda þróunarlanda
og kenna þeim skyndihjálp.
Það voru félagar í ungmenna-
hreyfingu Rauða krossins á ís-
landi, sem stóðu að þessu nám-
skeiði, Vala Magnúsdóttir og Fan-
ney Tryggvadóttir, en áður hafa
námskeið af þessu tagi verið hald-
in í Reykjavík. Vala sagði að nám-
skeiðin hefðu tekist mjög vel og
gæfu tilefni til þess að áframhald
yrði á þessari starfsemi. Spum-
ingunni um það hvort námskeið
af þessu tagi ættu sér fyrirmynd
í útiöndum, sagði hún það ekki
vera, þau væru heimatilbúin, ef
svo mætti að orði komast.
Góðaísland
og vonda ísland
Þegar blaðamann og ljósmynd-
ara bar að garði í íþróttahöllinni,
voru krakkarnir í óðaönn að
teikna tvískipta mynd af íslandi.
Annar helmingurinn átti að tákna
góða ísland, en hinn helmingurinn
vonda ísland. Spurningunni um
það hvað væri gott ísland og hvað
væri vont svaraði Kristín Þóra
Haraldsdóttir, 10 ára.
„Góða ísland er þar sem er
mikið af tijám og gróðri,“ sagði
Kristín Þóra, og hélt áfram að
útlista fyrir blaðamanni, að hið
góða við landið væri hið hreina
andrúmsloft og tæra vatnið.
„Mengunin er hins vegar vond,
og þess vegna þarf að setja síur
á strompana á verksmiðjunum,
svo þær eitri ekki út frá sér,“
sagði Kristín, og hafði greinilega
mjög ákveðnar hugmyndir um
hvað það væri sem lægi að baki
hugmyndinni ijim |„Hreint land,
fagurt land“.
Hún var einnig
ákveðin í því að starfa á vegum
Rauða krossins þegar hún yrði
stór, því Rauði krossinn ynni
nauðsynleg störf; hjálpaði fólkinu
í heiminum án tillits til kynþátta
eða landamæra.
Skyndihjálpin
skemmtilegust
Pascal Skúladóttir, 8 ára, sagði
að mjög skemmtilegt væri á nám-
skeiðinu, en skemmtilegast væri
að læra skyndihjálpina.
„Það er alveg bráðnauðsynlegt
að kunna skyndihjálp, svo hægt
sé að bjarga fólki frá drukknun
eða eldsvoða,“ sagði Pascal. Hún
hafði samt ekki sjálf bjargað nein-
um enn frá drukknun, en sagði
að það ætti að blása lofti í fólk,
sem væri að drukkna, og væri um
eldsvoða að ræða, ætti að slökkva
eldinn, áður en hann næði að
breiðast út.
„Það eiga að vera til slökkvi-
tæki í öllum húsum, og líka froðu-
tæki,“ sagði Pascal, og sagði að
svoleiðis tæki væru til heima hjá
sér. „Það hefur samt aldrei kvikn-
að í heima, bara í húsinu sem er
á ská á móti. Þar brann einu sinni
köttur inni,“ sagði Pascal að lok-
um, greinilega vel að sér um
hættur þær sem steðjuðu að í elds-
voða.
Óréttlæti heimsins
Steingrímur Siguijónsson, 8
ára, var kokhraustur þegar mann-
leg samskipti bárust í tal, og sagði
að einn skólafélagi sinn hefði ver-
ið að stríða öðrum, og það hefði
sér mislíkað, og gefið honum einn
á ’ann, eins og hann kallaði það.
„Hann átti ekkert með að vera
að stríða öðrum,“ sagði
Steingrímur, og var óhugur í hon-
um yfir óréttlæti heimsins. Hann
sagði að skólafélaginn hefði nú
svarað fyrir sig með því að sparka
í hann, en þá hefði hann gefið
honum blóðnasir. Að lokum sagði
hann þá hafa sæst, og fyrirgefíð
hvor öðrum. Lærdóminn af þessu
sagði hann vera þann, að maður
ætti ekki að stríða öðrum eða
leggja í einelti, og svo ætti maður
ekki heldur að slást. Bæði gæti
maður meitt aðra, og ekki síður
sjálfan sig.