Morgunblaðið - 05.08.1989, Síða 49

Morgunblaðið - 05.08.1989, Síða 49
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. ÁGÚST 1989 49 ^ VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 691282 KL. 10—12 FRÁ MÁNUDEGI TIL FÖSTUDAGS iw Mrfrgin Þessir hringdu . Óþolandi skattheimta Arni Gunnlaugsson hringdi: „Samkvæmt lögum um ráðstaf- anir vegna kjarasamninga frá 1. júní síðastliðnum eiga þeir sem misst hafa maka sinn og sitja óskiptu búi að njóta þess réttar næstu fimm ár eftir andlát maka, að eignarskattssstofni sé skipt og eignarskattur reiknaður út eins og hjá hjónum væri. Átti þetta að koma til framkvæmda á þessu ári en var ekki gert við nýaf- staðna álagningu. Er engu líkara en verið sé að gera tilraun til ölög- legrar skattheimtu. Veit ég dæmi þess að hirt hef- ur verið af tryggingarbótum gam- als fólks, til greiðslu upp í ranga eignarskattsskuld. Þótt þetta verði líklegast leiðrétt síðar á ár- inu, er það óafsakanlegur skortur á tillitssemi við skattborgara, að gera þeim ekki viðvart með ýtar- legum hætti um, að álagningars-- eðlar gæfu ekki réttar upplýsing- ar um eignarskattinn í tilfellum þeim sem hér um ræðir. Og ekki er víst, að skilvíst gamalt fólk, sem treystir í blindni á tölur álagningarseðilsins, leiti réttar síns til endurgreiðslu. Er til of mikils ætlast að við- komandi yfirvöld biðjist afsökunar á glópsku sinni og yfirsjónum? Svo miskunnarlaus skattheimta og hér hefur verið gerð að umtals- efni, er með öllu óþolandi." Rótað í görðum María hringdi: „Ég vil taka undir með garðeig- andunum, sem skrifaði til Velvak- anda miðvikudaginn 5. ágúst. Ég er tvisvar í sumar búin að kaupa kaupa snyrtingu á garðinum mínum en í bæði skiptin hafa maðkaþjófar komið skömmu síðar, rótað í beðum og skemmt þau. Fólk í nágrenninu talar einn- ig um þetta, þannig að þetta virð- ist vera plága.“ Skattleysismörk þurfa að vera hærri Ásta hringdi: „Ég vil halda áfram umræðunni um ekknaskattinn. Þessi fimm ára aðlögunartími, sem talað er um í sambandi við skattinn, hefur ekk- ert að segja fýrir mig, sem hef verið ekkja í 25 ár. Ég bý í lítilli þriggja herbergja íbúð en þarf að borga 10.000 kr. í eignarskatt. Það var nú nóg að þurfa að borga fasteignagjöld. Þetta getur orðið til þess, að ég neyðist til að flytja mig yfir í 2. herbergja íbúð en það verður erfitt og þannig íbúðir liggja ekkert á lausu. Skattleysismörkin þyrftu að vera hærri. Ólafur Ragnar er að taka af þeim fátæku, ekki þeim ríku. Ég hvet Þuríði Pálsdóttur til að halda áfram baráttu sinni gegn þessari óréttlátu skatt- heimtu.“ GOÐIR ÚTVARPS- ÞÆTTIR Til Velvakanda. Útvaipsþættirnir um Hannes Hafstein ráðherra og skáld eru með besta efni, sem flutt hefur verið í útvarpinu á þessu sumri. Það hefur vissulega verið mikil hvíld frá öllu skvaldrinu og létt- metinu, sem dynur yfir mann dag og nótt bæði í sjónvarpi og út- varpi, að hlýða á þessa þætti um Hannes Hafstein. Flutningstími þáttanna var að mörgu leyti góð- ur, kl. 11 á sunnudagskvöldum. Höfundur handrits er Gils Guð- mundsson rithöfundur, en Klem- ens Jónsson leikari hefur annast upptöku og leikstýrt þeim. Efnis- val og öll úrvinnsla var sérlega vandað og hvergi virtist kastað til höndum. í fáum orðum sagt áhugavert útvarpsefni og eins og svo oft áður, þá er rás 1 með bestu dagskráratriðin. Eg hvet útvarpið í Efstaleiti til að flytja meira af svona vandaðri og fróðlegri dagskrá og jafnvel þ ó hún hafi verið flutt áður. Signrður Jónsson Eurosurf- seglbrettaskólinn v/Sjávargrund, Garðabæ og á Laugar- vatni Skellið ykkur á seglbrettanámskeið um helgina. Góður búnaður, íslenskar kennslubækur og alþjóðleg skírteini að námskeiði loknu. Upplýsingar og skráning fyrir Garðabæ í síma 91-82579 og fyrir Laugarvatn í síma 98-61153. íomhjolp Dakskrá Samhjálpar um Verslunarmannahelgina fyrir þá sem ekki fara í ferðalag. 'Laugardagur 5. ágúst: Opið húsí Þríþúðum kl. 14.00- 17.00. Heitt kaffi á könnunni. Norma Samúelsdóttirjes úr þók sinni, einsöng syngur Gunnbjörg ÓLadóttir. Kl. 15.30 tökum við lagið og syngjum saman kóra. Lítið inn og takið með ykkur gesti. Allir velkomnir. Sunnudagur 4. ágúst Almenn samkoma í Þríbúðum kl. 16.00, Fjölbreyttur almennur söngur, barnagæsla. Gunnbjörg Óladóttirt syngur einsöng, ræðumaður er Óli Ágústsson. Allir eru velkomnir í Þríbúðir, Hverfisgötu 42. Samjálp. Svangir fá grjón, prjón og matinn góoa og fína frá Kína segir Lína ...! Um verslunarmannahelgina er boðið upp á: Kínavagninn í hádeginu: Átta réttir á kr. 780,- Kínverskan kvöldverð: Fjórir réttir m/bjór kr. 1.500,- Opið laugardag og mánudag . . . lokað sunnudag. Ml ,Laugavegi 28b, s: 16513. Opið: 11:30 til 23:30

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.