Morgunblaðið - 09.08.1989, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. ÁGÚST 1989
Endurvinnslan hf:
TEKIÐ var á móti fyrstu skilagjaldsskyldu einnota umbúðunum
undan drykkjarvörum á aðalmóttökustöð Endurvinnslunnar hf. í
gær. Skilagjaldsskyldar umbúðir eru málmdósir 33 og 50 cl, plast-
dósir 33 cl, plastflöskur undan gosdrykkjum 50, 100, 150 og 200 cl
og einnota gosflöskur úr gleri. Greiddar verða 5 krónur fyrir hverja
einingu.
Jón Sigurðsson, iðnaðarráðherra,
afhenti ungri skátastúlku fyrstu
umbúðirnar sem fóru í endurvinnslu
og flutti stutt ávarp. í ávarpinu
lagði ráðherra áherslu á gildi nátt-
úruverndar og endurvinnslu. Eirík-
ur Hannesson, formaður stjómar-
nefndar Endurvinnslunnar, fór
nokkmm orðum um fyrirtækið. I
máli Eiríks kom fram að ekki væri
allur tækjabúnaður verksmiðjunnar
komin til landsins en það stæði til
bóta. Auk Eiríks flutti Kristín
Bjarnadóttir, aðstoðarskátahöfð-
ingi, ávarp og afhenti Endurvinnsl-
unni hf. nokkrar greniplöntur fyrir
hönd skátahreyfingarinnar.
Móttökustöðvar Endurvinnslu-
stöðvarinnar hf. í Reykjavík verða
fimm, í vesturbæ á homi Boða-
granda og Eiðisgranda, í Breiðholti
við Jaðarsel, í Kópavogi við Dalveg
Ókeypis laxveiði í Norðfirði:
Þúsundir laxa sluppu
úr flotkví hjá Mánalaxi
Neskaupstað
FJÖLDI fólks greip tækifærið og
renndi ókeypis fyrir lax er þús-
undir laxa sluppu úr flotkví
Mánalax á Neskaupstað á mánu-
dag. Gizkað var á að 300 Iaxar
að minnsta kosti hefðu veiðzt á
stöng í Norðfirði. Laxinn hefur
einnig gengið upp í Norðíjarð-
ará. Bæjarfógetinn á Neskaups-
stað stöðvaði þessar veiðar um
hádegið í gær.
Þess varð vart um miðjan dag á
mánudag að gat hafði komið á
flotkvína og laxinn sloppið. Strendur
urðu brátt þéttskipaðar veiðimönn-
um og lönduðu þeir fengsælustu
sautján fiskum. Mest af Iaxinum er
tvö til þrjú pund á þyngd, en menn
fengu upp í fimm punda físka.
A mánudagskvöldið var kafari
fenginn til þess að loka gatinu á
kvínni til bráðabirgða og var þá enn
töluvert af laxi í henni. Fiskurinn,
sem eftir var, var færður yfír í aðra
kví í gær. Gylfí Gunnarsson, eig-
andi Mánalax, sagði í samtali við
Morgunblaðið að honum teldist svo
til að nokkur þúsund laxar af um
sjö þúsund I kvínni hefðu sloppið.
Ágúst
Akvörðun um stækkun ál-
vers hugsanlega tekin í haust
7, í Hafnarfirði í húsi Vinnuskólans
við Flatahraun og í Dugguvogi 2 í
aðalmóttökustöðinni. Að auki verða
móttökustöðvar á Akranesi,
ísafirði, Akureyri,Vestmannaeyj-
um, Selfossi og Keflavík. Á framan-
greindum mótttökustöðum verða
umbúðimar taldar og greitt fyrir
þær á staðnum. Á nokkrum öðrum
stöðum úti á landi er verið að semja
við flutningafyrirtæki um mótttöku
og flutning.
Nokkrar verslanir hafa fest kaup
á vélum til móttöku á málmdósum.
Bent skal á að ef dósirnar em mjög
beyglaðar tekur vélin ekki við þeim.
Mjög beygluðum dósum og öðmm
umbúðum þarf að skila á móttöku-
staði Endurvinnslunnar hf.
Það var margt um manninn í
Endurvinnslunni hf. í gær. Fólk
kom klyfjað umbúðum sem áttu að
fara í endurvinnslu. Einn þeirra var
Gústaf Ólafsson, 8 ára. Gústaf
sagðist vera búinn að safna umbúð-
um í tvær vikur. Aðallega niður í
bæ en líka í Stóragerðinu þar sem
hann á heima. Hann sagðist ætla
að halda áfram og safna sér fyrir
einhveiju.
Átta fastir starfsmenn og þijátíu
lausráðnir vinna hjá Endurvinnsl-
unni hf.
Sjá einnig bls. 30.
Morgunblaðið/Einar Falur
Grétar Ólafsson var með þeim fyrstu sem kom með umbúðir til endur-
vinnslu.
Móttaka á umbúðum til
endurvinnslu hófst í gær
Landssamband íslenskra útvegsmanna:
Fimmtíu skip fá að landa
í Þýskalandi til áramóta
LANDSSAMBAND íslenskra útvegsmanna hefur veitt fimmtíu skip-
um leyfi til að sigla með afla á Þýskalandsmarkað á tímabilinu frá
september til áramóta. Ennfremur hafa 35 siglingar á Bretlandsmark-
að verið heimilaðar í september og október.
Sótt var um leyfi fyrir 91 sigl-
ingu til Þýskalands á tímabilinu frá
1. september til áramóta. 41 um-
sókn var hafnað. í fréttatilkynningu
frá Landssambandi íslenskra út-
vegsmanna segir, að umsóknum um
siglingar á Þýskalandsmarkað hafi
fjölgað og stafí það af því, að þar
fáist nú hátt verð fyrir karfa. Með-
alverð hans á ísfiskmarkaði sé nú
2,75 mörk á kílóið en á sama tíma
í fyrra hafí það verið 2,63 mörk.
Sótt var um 54 siglingar á Bret-
landsmarkað í september og októ-
ber. Ákveðið var að heimila 35 en
19 var hafnað. í fréttatilkynningu
LÍÚ segir, að við úthlutun leyfanna
hafí verið haft að leiðarljósi, að
útflutt magn yrði í samræmi við
það magn, sem flutt hafi verið út
á sama tíma síðastliðin ár. Til hlið-
sjónar hafi verið höfð reynsla um-
sækjenda síðastliðin þijú ár; hversu
oft hvert skip hefði siglt með afla
sinn á þessa markaði svo og árang-
ur siglinganna með tilliti til gæða.
FUNDUR ráðgjafarnefiidar iðn-
aðarráðherra og ATLANTAL-
hópsins verður haldinn í Kaup-
mannahöfh þann 23. ágúst næst-
komandi. Að sögn Jóns Sigurðs-
sonar iðnaðarráðherra gerir
hann sér vonir um að fyrir þann
tíma liggi fyrir áfangaskýrsla
frá sænska ráðgjafafyrirtækinu
SIAB, sem er að vinna hag-
kvæmniathugun fyrir iðnaðar-
ráðuneytið um stækkun álvers-
ins í Straumsvík.
„Ég vonast til að niðurstöður í
þessu og starfi lögfræðingahóps
ATLANTAL um hugsanlegan sam-
starfssamning fyrirtækjanna fjög-
urra um stækkun álversins í
Straumsvík liggi fyrir bráðlega,
þannig að málið komist á ákvörðun-
arstig í lok september eða byijun
októbermánaðar,“ sagði iðnaðar-
ráðherra í samtali við Morgunbiað-
ið.
Jón sagðist hafa í hyggju að hitta
einhveija af málsaðilunum á næstu
vikum, m.a. Alusuisse-menn. „Eins
Hagvirki:
Fundað í fjár-
málaráðuneyti
FULLTRÚAR Hagvirkis hf. áttu
fúnd með fiilltrúum íjármála-
ráðuneytisins í gærdag. Rætt var
um leiðir til lausnar þeirri deilu
sem fyrirtækið og ráðuneytið
hafa átt í vegna söluskattsmála.
Aðalsteinn Hallgrímsson fram-
kvæmdastjóri Hagvirkis vildi ekkert
tjá sig um fundinn að honum lokn-
um. Sagði aðeins að leitað væri
lausnar á málinu og að aðilar hefðu
orðið sammála um að fjalla ekki
um það opinberlega að svo stöddu.
Erlendsína Helgadóttir
gerð að heiðursborg-
ara á 100 ára afinælinu
Vognm.
HREPPSNEFND Vatnsleysustrandarhrepps heiðraði frú Er-
lendsínu Helgadóttur á hundarð ára afrnæli hennar í gær með
því að afhenda henni skrautritað skjal um að hún væri heiðurs-
borgari Vatnsleysustrandarhrepps með þakklæti fyrir langan og
fórnfiisan starfsdag.
Ómar Jónsson oddviti sagði af
þessu tilefni að hreppsnefnd vildi
með þessu heiðra frú Erlendsínu
fyrir hennar framlag til líknar-
og félagsmála í hreppnum. Frú
Erlendsína þakkaði fyrir .sig með
kossi.
Afkomendur Erlendsínu héldu
henni veislu í tilefni þessara tíma-
móta í félagsheimilinu Glaðheim-
um í Vogum og þangað kom fjöldi
fólks.
Erlendsína sagði í samtali við
Morgunblaðið að henni liði mjög
vel á afmælisdaginn og gesta-
fjöldinn í afmælinu færi fram úr
öllum vonum.
Erlendsína er fyrsti heiðurs-
borgari í Vatnsleysustrandar-
hreppi og fyrsti íbúinn sem nær
eitt hundrað ára aldri. EG
Morgunblaðið/Eyjólfur M. Guðmundsson
Omar Jónsson oddviti afhendir Erlendsínu skjal um að hún sé
heiðursborgari.
og ég hef margoft sagt, þá vil ég
tengja þetta við framhald virkjana
og stóriðjuframkvæmda, eftir allt
of langt hlé og ákvarðanaleysi,“
sagði ráðherra og kvaðst líta á þetta
sem fyrsta skrefið af þremur, sem
þyrfti að taka ákvarðanir um á
næstu misserum: „Þau eru stækkun
álversins í Straumsvík, virkjun á
Fljótsdal og drög að stóriðjurekstri
á Norðurlandi eða Austurlandi."
Togarinn Bjartur:
Gír bilaði við
gangsetningu
eftir klössun
VEGNA alvarlegrar bilunar í
togaranum Bjarti heíur Síldar-
vinnslan á Neskaupstað orðið að
leigja togarann Júlíus Geir-
mundsson frá ísafírði. Bjartur
hafði verið i gagngerri klössun
í Slippstöðinni á Akureyri og
átti að fara að gangsetja skipið
við bryggju er í ljós kom alvar-
legur galli á tengingu milli gírs
og vélar.
Að sögn Guðmundar Bjarnason-
ar, starfsmannastjóra Síldarvinnsl-
unnar, er Júlíus Geirmundsson
gerður út með áhöfn Bjarts. „Það
er ljóst að bilunin í Bjarti getur
tafið skipið um langan tíma, en það
á mikið eftir af kvóta," sagði Guð-
mundur. Hann sagði að óveiddur
kvóti Bjarts væri um 1.600 tonn.
Sigurður Ringsted, forstjóri
Slippstöðvarinnar á Akureyri, sagði
að bilunin væri vegna framleiðslu-
galla í nýjum gír, sem útgerðin
hefði keypt af erlendum framleið-
anda en Slippstöðin séð um ísetn-
ingu. Sigurður sagði að verið væri
að skoða hvernig mætti bæta skað-
ann, en Ijóst væri að það gæti tek-
ið nokkrar vikur.