Morgunblaðið - 09.08.1989, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. ÁGÚST 1989
Aðalfundur Norrænu bændasamtakaima:
Rætt um milliríkja-
verslun með búvörur
AÐALFUNDUR Norrænu bændasamtakanna, NBC, var settur í
Háskólabíói í gær. Á fundinum eru um 300 manns, þar af um 250
erlendir gestir. Helsta umræðuefni fundarins er milliríkjaverslun
með Iandbúnaðarvörur. Á fundinum í gær hélt Kalevi Sorsa, forseti
finnska þjóðþingsins, ræða þar sem hann fjallaði um breytingar í
landbúnaðarframleiðslu á Norðurlöndum, einkum með tilliti til sam-
eiginlegs markaðar Evrópubandalagsríkjanna 1992 og GATT-sam-
komulagsins um viðskipti og tollamál.
Norrænu bændasamtökin eru
heildarsamtök bænda og afurða-
stöðva á Norðurlöndum. Af íslands
hálfu eiga aðild að þeim Stéttar-
samband bænda, Landssamtök slát-
urleyfishafa og Samtök afurða-
stöðva í mjólkuriðnaði. Undanfarin
tvö ár hefur Haukur Halldórsson,
forseti Stéttarsambands bænda,
verið forseti samtakanna.
Við setningu fundarins í gær
fluttu þeir Steingrímur J. Sigfús-
son, landbúnaðarráðherra og Glenn
Flaten, forseti Alþjóðasambands
bænda, ávörp og Haukur Halldórs-
son flutti skýrslu um starfsemi sam-
takanna síðastliðin tvö ár. Sagði
hann meðal annars, að þrennt væri
mest áberandi í umræðum um land-
búnaðarmál á Norðurlöndunum; í
fyrsta lagi offramleiðsla, í öðru lagi
áróður fyrir frjálsum milliríkjavið-
skiptum og innflutningi ódýrra bú-
vara og í þriðja lagi væri áberandi
að landbúnaðurinn ætti undir högg
að sækja í fjölmiðlum.
Kalevi Sorsa, forseti fínnska
þjóðþingsins, hélt ræðu um breytt
viðhorf í milliríkjaverslun með land-
búnaðarvörur með tilliti til GATT-
samkomulagsins um viðskipti og
tollamál og sameiginlegs markaðar
Morgunblaðið/Einar Falur
Hluti fúndarmanna á aðalfúndi Norrænu bændasamtakanna, sem var
settur í Háskólabíói í gær. Á innfelldu myndinni flytur Haukur Hall-
dórsson, forseti Stéttarsambands bænda og Norrænu bændasamta-
kanna, ávarp sitt á aðalfúndinum.
Evrópubandalagsríkjanna. Hann
sagði meðal annars að Norðurlöndin
yrðu að standa saman í þessum
málum og varðveita rétt sinn til að
móta sjálfstæða stefnu, í stað þess
að beygja sig undir ákvörðunarvald
fjölþjóðlegra stofnana. í máli hans
kom fram stuðningur við meira
frelsi í milliríkjaverslun með land-
búnaðarvörur og andstaða við út-
flutningsbætur.
Sorsa vék að byggðamálum í
ræðu sinni og sagði meðal annars,
að hann teldi heppilegra vinna að
jafnvægi milli dreifbýlis og þétt-
býlis með beinum styrkjum til
bænda í staðinn fyrir að styrkja
framleiðslu þeirra. Hins vegar
þyrfti líka að leita annarra leiða til
að stuðla að byggðajafnvægi.
TAKN:
•G • Heiðskírt
Léttskýjað
Hátfskýjað
Skýjað
1 \ Alskýjað
Norðan, 4 vindstig:
" Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ r / / Rigning
/ / /
* / *
/ * / * Slydda
/ * /
* * *
* * * * Snjókoma
* * *
10 Hitastig:
10 gráður á Celsius
ý Skúrir
*
V E'
= Þoka
= Þokumóða
’, ’ Súld
OO Mistur
Skafrenningur
[7 Þrumuveður
Heimild: Veðurstofa islands
(Byggt á veðurspá kl. 16.15 i gær)
VEÐUR VIÐA UM HEIM
kl. 12:00 í gær að ísl. tíma
hiti veður
Akureyri 15 skúr
Reykjavík 10 skýjaö
Bergen 14 skúr
Helsinki 22 skruggur
Kaupmannah. 18 alskýjað
Narssarssuaq 7 skýjað
Nuuk 4 skýjað
Osló 17 skýjaö
Stokkhólmur 23 hálfskýjað
Þórshöfn 11 alskýjað
Algarve 27 léttskýjað
Amsterdam 21 þokumóða
Barcelona 28 mistur
Berlín 23 léttskýjað
Chicago 13 heiðskírt
Feneyjar 26 hálfskýjað
Frankfurt 20 skýjað
Glasgow 19 skýjað
Hamborg 22 mistur
Las Palmas 27 léttskýjað
London 24 skýjað
Los Angeles 18 skýjað
Lúxemborg 20 skýjað
Madríd 31 léttskýjað
Malaga 31 léttskýjað
Mallorca 30 léttskýjað
Montreal 13 skýjað
New York 15 heiðskírt
Orlando 25 þokumóða
París 23 skýjað
Róm 28 léttskýjað
Vín 21 skúr
Washington 17 heiðskírt
Winnipeg vantar
Skrifstofu Alþingis
skipt í tvö meginsvið
FYRIR skömmu lauk endurskoðun á skipulagsmálum og starfsháttum
skrifstofú Alþingis. Forsetar Alþingis hafa samþykkt skipurit að nýju
skipulagi og ákveðið að hrinda í framkvæmd. Miða skipulagsbreyting-
arnar íyrst og fremst að því að treysta og styrkja innviði skrifstofúnn-
ar og gera vinnubrögðin markvissari og skipulegri, að því er fram
kemur í frétt frá skrifstofú Alþingis.
í fréttatilkynningunni segir einnig: stöðum:
í grundvallaratriðum er skipuritið
útfært á þann hátt, að skrifstofu
Alþingis er skipt í tvö meginsvið,
annars vegar þingsvið, hins vegar
fjármála- og rekstrarsvið. Með þess-
ari skiptingu er stefnt að því að sem
best sé greint á milli almenns rekstr-
ar skrifstofunnar og þess þáttar í
starfsemi hennar sem lýtur að verk-
efnum löggjafans. í stjórnunarlegu
tilliti heyra sviðin tvö undir skrif-
stofustjóra Alþingis, sem fer með
yfirstjóm alls daglegs rekstrar í
umboði forseta Alþingis.
Skipulagsbreytingarnar fela það í
sér að tekin verða upp nokkur ný
starfsheiti en ekki leiðir það þó til
fjölgunar starfsmanna. Þetta kemur
til af því að hinn 1. september nk.
láta 10 starfsmenn Alþingis af störf-
um fyrir aldurs sakir og verða þá
starfsmannamálin endurskipulögð á
grundvelli hins nýja skipulags.
Nú þegar er búið að ganga frá
ráðningum í nokkrar af hinum nýjum
Forstöðumaður fjármála- og
rekstrarsviðs hefur verið ráðirin Karl
M. Kristjánsson viðskiptafræðingur.
Forstöðumaður þingsviðs hefur
verið ráðinn Helgi Bernódusson
íslenskufræðingur, en hann gegndi
áður starfi deildarstjóra.
Nefndaritari hefur verið ráðinn dr.
Þorsteinn Magnússon stjórnmála-
fræðingur.
Deildarstjóri útgáfu hefur verið
ráðinn Steingrímur Jónsson BA í
stað Kristins Arnarsonar.
Deildarstjóri tölvumála hefur verið
ráðinn Haukur Amþórsson tölvu-
fræðingur í stað Þórarins Friðjóns-
sonar.
Deildarstjóri fasteigna- og hús-
búnaðardeildar hefur verið ráðinn
Gunnar Ingibergsson innanhússarki-
tekt.
Fulltrúi í nefnda- og þingmála-
deild hefur verið ráðin Sólveig Jóns-
dóttir BA.
Lítil veiði og lágt verð
LOÐNUVEIÐI hefúr verið léleg
að undanförnu. Öll erlendu loðnu-
skipin fóru af miðunum við Kol-
beinsey á mánudag, sum með
slatta en önnur engan afla. íslensk
skip hafa enn ekki hafið veiðar á
Sæfinnur hf.
innsiglaður
LÖGREGLAN í Reykjavík hefúr
innsiglað skrifstofúr útgerðarfyr-
irtækisins Sæfinns hf. i Reykjavík
að kröfú Gjaldheimtunnar vegna
vangoldinna opinberra gjalda sem
nema milljónum króna.
Nokkrir dagar eru síðan fyrirtæk-
inu var lokað. Það á og gerir út einn
togara, frystitogarann Arinbjörn.
Hann var nýfarinn á veiðar þegar
fyrirtækið var innsiglað, en að
óbreyttu stöðvast hann strax og hann
kemur til hafnar.
vertíðinni en afli færeyskra og
norskra skipa var á þriðjudag
orðinn 34.279 tonn, að sögn Land-
helgisgæslunnar. 1 færeyskt og
14 norsk skip fóru af miðunum á
mánudag en samtals hafa 6 fær-
eysk og 62 norsk skip verið á loð-
numiðunum á þessari vertíð.
Jón Ólafsson, framkvæmdastjóri
Félags íslenskra fiskmjölsframleið-
enda, sagðist í samtali við Morgun-
blaðið ekki vita til þess að íslensku
loðnuverksmiðjumar væm búnar að
ákveða hvað þær greiddu fyrir loðn-
una. Hann sagði að verð á lýsi væri
enn að lækka en rnjölverðið hefði
þokast örlítið upp á við.
Jón sagði að trúlega væri ekkert
til af loðnumjöli og -lýsi í landinu
en búasf mætti við að nú fengjust
um 200 Bandarikjadalir (11.800
krónur) fyrir tonnið af loðnulýsi og
rúmlega 7 dalir fyrir prótíneininguna
af loðnumjöli (um 29.000 krónur
fyrir tonnið).
/ DAG kl. 12.00:
VEÐURHORFUR í DAG, 9. ÁGÚST
YFIRUT í GÆR: Á Grænlandshafi er 982 mb nærri kyrrstæð lægð
sem grynnist. Heldur er að kólna í veðri, fyrst Vestanlands.
SPÁ: Fremur hæg sunnan- og suðvestanátt, að mestu úrkomu-
laust norðanlands, en skúrir í öðrum landshlutum.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á FIMMTUDAG OG FÖSTUDAG: Norðaustan strekkings-
vindur og fremur svalt í veðri, einkum norðanlands. Súld við norð-
austur-ströndina, en þurrt annars staðar og víða léttskýjað á Suð-
ur- og Vesturlandi.