Morgunblaðið - 09.08.1989, Síða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. ÁGÚST 1989
Brottflutningur Indlandshers frá Sri Lanka;
Indverjar segjast til-
búnir innan misseris
Setja brottflutningnum þó skilyrði
Colombo á Sri Lanka. Reuter.
INDVERJAR segjast vera reiðubúnir til þess að flytja hersveitir sínar
á Sri Lanka á brott frá eynni fyrir febrúar á næsta ári, að því til-
skildu að stjórn Sri Lanka gangi að ýmsum kröfiim Indlandsstjóm-
ar. Þetta kom fram í máli utanríkisráðherra Sri Lanka í gær þegar
hann gaf þinginu skýrslu um gang vikulangra viðræðna ríkjanna
tveggja í síðustu viku. Ekki tókst samkomulag um brottfluning hinna
44.500 indverskra hermanna, sem em á Sri Lanka. Upphaflega komu
þeir þangað sem friðargæslulið að beiðni Sri Lanka-sljómar, en
valdamönnum þar þykir Indveijar hafa gerst fullþaulsetnir.
Að sögn utanríkisráðherrans, veldisdraumfarir, og er minnt á
Ranjan Wijeratne, kveðast Indveij-
ar tilbúnir til þess að hefja brott-
flutning herja sinna í áföngum, ef
Sri Lanka-stjóm samþykkir að setja
á laggirnar sérstaka öryggismála-
nefnd, sem æðsti ráðherra norð-
austurhéraðs eyjarinnar sitji i, en
þar em tamílar í meirihluta. Sú
nefnd ætti að fylgjast með að ör-
yggi borgaranna yrði tryggt.
Samkvæmt tilkynningu stjórnar
Sri Lanka mun Ranasinghe
Premadasa forseti ekki móta af-
stöðu stjórnar sinnar til lykta við-
ræðnanna í síðustu viku fyrr en á
föstudag. Talið er að forsetinn vilja
biða þess að þingumræðu um málið
ljúki áður en hann tekur af skarið,
en viðræðurnar eru á dagskrá
þingsins á fimmtudag og föstudag.
Upphaflega fóm hersveitir Ind-
landshers til Sri Lanka árið 1987
samkvæmt samningi ríkjanna
tveggja, en með honum var vonast
til þess að unnt yrði að binda enda
á blóðuga sjálfstæðisbaráttu tamíla
á norðurhluta eyjarinnar. Tamílar
em jafnframt fjölmennir í ríkinu
Tamil Nadu á suðurodda Indlands-
skaga og vom vonir bundnar við
að Indveijum tækist að fá skæm-
liða tamíla til þess að leggja niður
vopn, gegn því að öryggi tamílska
minnihlutans yrði tryggt.
Skæruliðasamtök tamíla tóku
þessum hugmyndum hins vegar
víðs fjarri þegar á reyndi og hefur
Indveijum ekkert orðið ágengt við
að stilla til friðar. Á hinn bóginn
hafa þær gagnrýnisraddir æ orðið
hærri, sem saka Indveija um stór-
hvemig þeir sendu herlið til
Maldíva-eyja til þess að afstýra
byltingu þar fyrr á árinu.
í Nýju Delí á Indlandi vildi Rajiv,
Gandhi, forsætisráðherra, sem fæst
segja um málið, en lét hafa eftir
sér að ekki væri til nein einföld
lausn á vanda Sri Lanka-búa.
Stjórnmálaskýrendur telja að Gand-
hi vilji ekki flytja herina á brott frá
Sri Lanka fyrir áramót vegna kom-
andi þingkosninga, en talið er að
Kongress-flokkur Gandhis muni
eiga erfitt uppdráttar í þeim.
Reuter
Daniel Ortega, forseti Nicaragua, skýrir frá friðaráætlun fimm forseta Mið-Ameríkuríkja, sem felur í
sér að kontra-skæruliðar, andstæðingar sandínistastjómar Ortega, Ieggi einhliða niður vopn. Átta ára
borgarastríð í landinu hefúr orðið um 40.000 manns að fjörtjóni.
Fundur forseta Mið-Ameríkuríkja:
Syeitir kontra-skæruliða í
Nicaragua leggi niður vopn
Tela í Hondúras og Atlanta í Handaríkjunum. Reuter.
FORSETAR fimm ríkja í Mið-
Ameríku leggja til að kontra-
skæmliðar, sem beijast gegn
stjórn sandínista í Nicaragpia frá
bækistöðvum í Hondúras, leggi
niður vopn innan fjögurra mán-
aða. í staðinn standi sandínistar
við loforð sín um ffjálsar kosn-
ingar í febrúar á næsta ári og
jafiiframt verði þeim kontralið-
um, sem þess óska, leyft að snúa
aftur heim. „Dauðadómur
kontra-sveitanna hefúr verið
kveðinn upp,“ sagði Daniel Or-
tega, forseti Nicaragua, er hann
kom aftur til síns heima eftir
fúnd forsetanna sem haldinn var
í Hondúras. Talsmenn kontranna
segja að þeir muni ekki taka í
mál að afvopnast fyrr en að búið
verði að tryggja lýðræði í landinu
og James Baker, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, sem stutt
hafa kontrana með vopnum og
vistum, sagði í gær að mikilvægt
væri að sandínistar stæðu við
loforð sín um lýðræðisumbætur.
Baker hrósaði sandínistum fyrir
að hefja viðræður við andstæðinga
sína en sagði að gjörðir yrðu að
fylgja orðum. Áætlun forsetanna
fimm er nokkurt áfall fyrir Banda-
ríkjastjórn sem hefur lagt til að
Pólland:
Walesa býður smáflokk-
um til stj órnar samstarfs
♦
Samstöðumenn haftia boði kommúnista um myndun samsteypustjórnar
Varsjá. Reuter.
LECH Walesa, leiðtogi Samstöðu, hefúr lagt til að mynduð verði
samsteypstjórn Samstöðu og tveggja smáflokka á pólska þinginu.
Forystumenn flokkanna tveggja, Bændaflokksins og Demókrata-
flokksins, sem löngum hafa fylgt kommúnistum að málum, hafa
rætt tillögu Walesa en verði hún að veruleika verður það í fyrsta
skipti frá stríðslokum sem kommúnistar standa utan sljórnar í Aust-
ur-Evrópu. í tilkynningum sem flokkarnir tveir sendu frá sér í gær
var ekki tekið undir tillögu Walesa en sagt að hún yrði tekin til
nánari athugunar.
stjóm landsins.
í tilkynningu sem pólski Demó-
krataflokkurinn birti í gær sagði
að skoða þyrfti tillögu Walesa vand-
lega og hefði henni verið vísað til
viðeigandi valdastofnana innan
flokksins. Tillagan yrði tekin til
greina þætti sýnt að þjóðarhagur
krefðist þess. Var og harmað að
Walesa skyldi ekki hafa kynnt hug-
mynd þessa fyrr. í yfirlýsingu
Bændaflokksins sem einnig var birt
í gær sagði að tillaga stjómarand-
stöðunnar hefði verið rædd og að
hún yrði tekin til nánari athugun-
Walesa kynnti hugmynd þessa á
mánudag en hann lagði til að
Bændaflokkurinn og pólski Demó-
krataflokkurinn, mynduðu stjórn
með Samstöðu, hreyfingu stjómar-
andstæðinga. Flokkar þessir hafa
um áratugaskeið óbeint lotið stjóm
kommúnista, en að - undanfömu
hafa leiðtogar þeirra gerst sjálf-
stæðari í stefnumótun sinni enda
hefur stjómmálaþróunin í Póllandi
orðið til þess að dregið hefur nokk-
uð úr alræðisvaldi pólska kommúni-
staflokksins. Þannig lögðust 60
þingmenn Bændaflokksins gegn því
í síðustu viku að Czeslaw Kiszczak
yrði skipaður forsætisráðherra og
hótuðu þeir um tíma að ganga til
liðs við stjómarandstöðuna.
Lech Walesa sagði í ræðu er
hann flutti í Gdansk á mánudag
að kreppa ríkti bæði á sviði efna-
hags- og stjómmála í Póllandi. Or-
sakir vándans væri að rekja til al-
ræðis kommúnistaflokksins sem
stjórnað hefði landinu undanfarin
45 ár. Walesa sagði í ávarpi sínu
að kjör Kiszczaks í embætti forsæt-
isráðherra sýndi ljóslega að komm-
únistar hygðust ekki hverfa frá ein-
ræðislegum stjórnarháttum og
kvaðst uggandi um framtíðina.
Áður höfðu leiðtogar Samstöðu
hafnað boði Kiszczaks, forsætisráð-
herra um að ganga til stjórnarsam-
starfs við kommúnista. Heimildar-
menn Reuíers-fréttastofunnar
sögðu að Samstöðumenn teldu
óráðlegt að mynda stjóm með
kommúnistum og að slíkt yrði tæp-
ast til þess að treysta stöðu samtak-
anna. Á hinn bóginn teldu leiðtogar
Samstöðu að úrslit þingkosning-
anna í júnímánuði sýndu að almenn-
ingur allur vildi að stjórnarandstað-
an yrði í forsvari fyrir næstu ríkis-
Óþolinmóður Lithái:
Keypti sér Lödu
- íBretlandi
London. Reuter.
VÖRUBÍLSTJÓRI frá Sovétlýð-
veldinu Litháen hafði ekki þolin-
mæði til að bíða í fimm ár eftir
því að fá afhentan nýja Lödu-
bifreið og ákvað að stytta sér
leið fram hjá kerfinu. Jvibiaf
Rimanthas flaug því til Bret-
lands og með aðstoð írænku
sinnar, sem túlkaði fyrir hann,
festi hann kaup á notaðri Lödu
fyrir 725 pund (um 70.000
ísl.kr.).
Ný Lada af sömu gerð kostar
sem svarar 580 þúsund krónum í
Sovétríkjunum. Að sögn talsmanns
Lödu-umboðsins í Bretlandi getur
Rimanthas hagnast vel á framtak-
inu þar sem sovéskir kaupendur
eru reiðubúnir að greiða meira fyr-
ir notaðan bíl en nýjan ef sá not-
aði fæst afhentur strax. Rimant-
has, sem býr í borginni Kaunas,
hyggst aka heim um Belgíu, Þýska-
land og Pólland.
kontrarnir afvopnist ekki fyrr en
að loknum þingkosningunum á
næsta ári. í hópi forsetanna fimm
eru dyggir stuðningsmenn Banda-
ríkjamanna, þ. á m. forseti E1
Salvadors, þar sem stjórnvöld hafa
um árabil átt í blóðugri baráttu við
vinstrisinnaða skæruliða. Síðastlið-
inn föstudag náðu sandínistastjóm-
in og 20 flokkar stjórnarandstæð-
inga í Nicaragua samkomulagi um
afvopnun kontranna og fram-
kvæmd kosninganna.
Átta ára hernaður sandínista og
kontra-skæruliða hefur kostað um
40.000 manns lífið. Bandaríkjaþing
samþykkti í apríl að veita kontrun-
um 50 milljónir Bandaríkjadollara
(um 2.900 milljónir ísl.kr.) í aðstoð
sem þó má ekki nota til hergagna-
kaupa. Daniel Ortega sagði eftir
fund forsetanna að hann vænti
stuðnings Bandaríkjastjórnar við
friðaráætlun Mið-Ámeríkuforset-
anna og jafnframt að stjórnin not-
aði áðurnefnt fé til að kosta af-
vopnun og heimflutning kontranna.
Gert er ráð fyrir því að skipuð verði
eftirlitsnefnd á vegum Samtaka
Ameríkuríkja og Sameinuðu þjóð-
anna og sjái hún um afvopnun
kontranna sem lokið verði innan
íjögurra mánaða. Sandínistar heita
þeim kontrum, sem það vilja, að
þeir fái jarðnæði í Nicaragua, en
aðrir fá landvistarleyfi annars stað-
ar. Kontra-skæruliðar í Hondúras
eru ásamt skylduliði sínu um 50.000
og áttu þeir ekki þátt í að semja
um skilmála friðaráætlunarinnar.
Leiðtogar kontranna háfa þegar
vísað áætlun forsetanna á bug. „Sú
hugmynd að menn okkar geti farið
friðsamlega aftur heim er fárán-
leg,“ sagði Jose Medina Cuadra,
pólitískur talsmaður hreyfingarinn-
ar.
Jimmy Carter, fyrrum Banda-
ríkjaforseti, hefur tekið að sér að
veita fórystu eftirlitsnefnd sem
fylgjast á með því hvort kosning-
arnar í Nicaragua í febrúar verða
lýðræðislegar. Sandínistar jafnt
sem stjórnarandstæðingar hvöttu
Carter til starfans en í stjórnartíð
hans var Anastasio Somoza, ein-
ræðisherra Nicaragua, steypt af
stóli árið 1979 með þegjandi sam-
þykki stjórnar Carters, sem síðan
veitti gífurlegum fjármunum í efna-
hagsaðstoð við hina nýju stjórn
sandínista.