Morgunblaðið - 09.08.1989, Qupperneq 27
- MÓÁ(3Ú>jl5LvÐ.lj)’MÍD^ÍKUÍÍVÓuH M,: AÓUST: T 989
27 -
íi
imúti-
?ðum
Morgunblaðið/Rax
Morgunblaðið/Einar Falur
i og vel-
þjóðhátíð
idust í óveðri í mótslok
i sem haldin var um helgina fór
EjTum. Um 8.000 gestir voru á
etis veðri.
fólk lét það ekki aftra sér við hátí-
ðarhöldin og stóð skemmtun í Daln-
um fram á morgun mánudagsins.
Þegar leið á mánudaginn versn-
aði veður og aðfaranótt þriðjudags
var afspyrnu slæmt veður í Eyjum.
Flestar skreytingar í Heijólfsdal
fuku þá og skemmdust mikið þann-
ig að í gær var eins um að litast í
Dalnum og sprengja hefði fallið þar
og lágu byggingarnar eins og hrá-
viði um allar brekkur.
Að sögn Arndísar Sigurðardótt-
ur, formanns Þjóðhátíðarnefndar,
eru Týrarar ánægðir með hversu
vel hátíðarhöldin tókust en það ijár-
hagslega tjón, sem orðið hefði í
óveðrinu eftir hátíðina, væri mikið
áfalí.
Grímur
Morgunblaði/Einar Falur
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hugað að heimferð úr Þórsmörk.
Skemmtiatriðin gerðu Iukku í Húnaveri,
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Börnin höfðu nóg að gera í Galta-
læk.
sá vín á stöku fullorðnum. Borð og
stólar í tívolíi urðu fyrir skemmdum
af vöidum unglinganna, en lítið var
um óhöpp á fólki. Stemmningin á
mótinu var í heildina góð, sagði
Karl og gestir ánægðir.
Fjöldi unglinga í Þórsmörk
Allt fór ágætlega fram í Þórs-
mörk um verslunarmannahelgina,
en þar voru rúmlega 2000 manns
samankomnir í Húsadal og nokkur
hundruð í Langadal. Björgunar-
sveitin Dagrenning sá um gæslu í
Húsadal, en að sögn Jóns Her-
mannssonai' var mannijöldin ekki
meiri en oft gerist um venjulega
helgi á sumrin. Unglingar og fólk
rúmlega tvítugt hefði þó verið meira
áberandi en um venjulega helgi.
Ölvun sagði Jón ekki hafa verið
meiri en gerist og gengur í útilegum
Morgunblaðið/Sigurgeir
Hvassviðrið á mánudag feykti uni koll mannvirkjum í Herjólfsdal.
um verslunarmannahelgi.
Hætt var að selja í ferðir inn í
Þórsmörk um hádegi á föstudag og
sagði Ómar Óskarsson hjá Austur-
leið ástæðuna fyrir því vera þá að
þeir hafi ekki annað flutningum
þangað, en ekki þá að ekki hafi
verið hægt að taka á móti fleira
fólki. Fjöldi fólks kom með í Þórs-
mörk með rútum frá öðrum en
Austurleið og á einkabílum.
Skaftafelli lokað
Aldrei fyrr hafa jafn margir kom-
ið á tjaldsvæðið í Skaftafell um eina
helgi og nú um verslunarmanna-
helgina. Loka þurfti svæðinu seinni
partinn á laugardag, en þá voru
um 2000 manns komnir á svæðið.
Ástæðan fyrir lokuninni var að
þjónustan annað ekki öllum þessum
fjölda.
Þó nokkur ölvun var í Skafta-
felli að sögn starfsmanna þjónustu-
miðstöðvarinnar þar, en engin
vandræði og fór allt friðsamlega
fram.
Vægur Suðurlandsskálfti í
Arnesi
Dræm aðsókn var á Suðurlands-
skjálftann í Árnesi að sögn Ómars
Gunnarssonar. Þar voru 300 gestir
þegar flest var eða um helmingi
færra en búist hafði verið við. Allt
fór fram eftir auglýstri dagskrá og
fólk skemmti sér vel, sagði Ómars.
Engin ólæti voru á svæðinu.
Utidagskrá var alla dagana í
Árnesi og dansleikir á kvöldin.
Flestir gestanna voru yfir tvítugu
og lítið um börn og unglinga.
Dansað í Valskjálf
Engin úthátíð var haldin í Atlavík
að þessu sinni, en Ungmenna- og
íþróttasamband Austurlands sá þó
um gæslu og veitingasölu á svæð-
inu. Þangað komu um 800 manns
að sögn Magnúsar Stefánssonar
formanns UÍA. Ölvun var ekki til-
takanlega mikil og reyndi lítið á
gæsluna.
Valaskjálfti ’89 var haldinn á
Hótel Valaskjálf á Egilsstöðum og
að sögn starfsmanns þar komu um
750 manns á dansleikinn á laugar-
dagskvöldið og um 300 á sunnu-
dagskvöld. Fámennt var á dans-
leiknum á föstydagskvöld, en þá
dönsuðu austfirðingar í Végarði.
Allir fóru dansleikirnir vel fram.
Vel sótt fjölskylduhátíð
Fjölskylduhátíðin í Vík í Mýrdal
var vel sótt, en þangað komu á bil-
inu 1800-2000 manns. Mótshaldar-
ar voru ánægðir með aðsókn enda
aldrei verið meiri. „Þetta var skikk-
ánlegt fjölskyldufólki og lítil ölvun
á svæðinu,“ sagði Þorgerður Ein-
arsdóttir hjá Ungmennafélaginu
Drangi, sem stóð að samkomunni
ásamt Björgunarsveitinni Víkveija.
Húnaver:
Sjö fluttir til Reykjavík-
ur vegna fíkniefiiamáls
Ekki grunur um fíknieftiasölu
SJO manns vom handteknir á útihátíðinni í Húnaveri á laugardag
með íikniefiii, hass, amfetamín og eitt gramm af kókaíni í fórum
sínum. Það var flutt til Reykjavíkur til yfirheyrslu hjá fíkniefiiadeild
lögreglunnar en var látið laust að ioknum yfírheyrslum. Ekkert kom
fram sem benti til þess að fólkið hefði stundað sölu fíknieftia á sam-
komunni, að sögn Arnars Jenssonar lögreglufúlltrúa.
Að sögn Arnars var um fremur
lítið magn að ræða og þótti flest
benda til að fólkið hefði haft efnin
með sér að sunnan til eigin neyslu.
Um var að ræða eitt gramm af
kókaini og nokkur grömm af am-
fetamíni og hassi.
Fólkið er um og yfir tvítugt. Það
hefur allt áður verið kært fyrir
fíkniefnaneyslu og nokkrir úr hópn-
um hafa einnig hlotið kærur fyrir
fíkniefnadreifingu.