Morgunblaðið - 09.08.1989, Page 35

Morgunblaðið - 09.08.1989, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. ÁGÚST 1989 35 Félagsmálaráðuneytið; Kröfiir um aukið öryggi og styrkingu í byggingum Félagsmálaráðherra hefur gefið út reglugerð um breytingu á bygg- ingarreglugerð frá árinu 1979. Þar er meðal annars gert ráð fyrir að krafa um aukið öryggi og styrk bygginga verði hert, aðstaða fyrir hreyfihamlaða verði bætt auk þess, sem sett eru ákvæði varðandi skipufag og byggingu sumarbústaða. í nýju reglugerðinni er gert ráð nær lóðamörkum en 10 m. fyrir að fram fari lokaúttekt þegar Tekið er fram að umræddar breyt- byggingu er að fullu lokið og að gengið sé úr skugga um að húsið sé byggt í samræmi við samþykktar teikningar. Einnig sé kröfum um gerð og búnað íbúðar- og atvinnu- húsnæðis fullnægt. Þetta ákvæði er afdráttarlaust um að ekki megi fella niður lokaúttekt bygginga, en mikið er um að lokaúttektir hafi ekki ver- ið framkvæmdar. Þá er ákvæði um hámarksinnihaid salts í steinsteypu, skýrt kveðið á um notkun staðla við hönnun bygg- inga og sett ákvæði sem eiga að tryggja betur burðarhönnun og burðarþolsútreininga stórhýsa og annarra vandasamra burðarvirkja. Nota skal viðurkennd plastefni eða öryggisgler, þar sem um er að ræða stóra glerfleti í þökum. Ákvæði um birgðageymslu eiturefna, sprengi- efna og olíu er mun ítarlegri en áður og krafist samþykkis Siglinga- málastofnunnar. Auk þess er gert ráð fyrir að byggingarfulltrúi geti krafist þess að hönnuður, sem hann viðurkennir fari yfir og samþykki burðarþolsútreikninga á kostnað byggjanda. Kveðið er á um bætta aðstöðu fyrir hreyfíhamlaða. Meðal annars skal sjá fyrir einu bifreiðastæði á lóð húss eða í húsinu er henti fötluðum. Kröfur um lyftu eru hertar og krafa gerð um handrið beggja vegna með- fram tröppurr. í aðkomuleiðum að húsum. í öllum fjölbýlishúsum með sex íbúðum eða fleir'i skuli að minnsta kosti ein íbúð á jarðhæð vera hönnuð með þarfír fatlaðra í huga og í opinberum byggingum þar sem starfa tíu eða fleiri skal vera salerni sem hentar fötluðum fólki í hjólastól. í öllum sumarbústaða- hverfum á vegum launþegasamtaka eða starfsmannafélaga skuli að minnsta kosti einn bústaður hverra samtaka vera hannaður og byggður þannig að hann henti hreyfihömluð- um. ítarleg ákvæði eru sett varðandi skipulag og byggingu sumarbústaða og skal lágmarksstærð lóðar í sum- arbústaðahverfum vera 2000 fer- metrar. Skal jafnan gera byggingar- og skiþulagsskilmála fyrir hvert sumarbústaðahverfi. Hámarksstærð sumarbústaða er 60 fermetrar og þeir mega ekki vera nær sjó, ám og vötnum en 50 m og ekki hær þjóð- braut eða almennum vegum en 100 m. Þá skal heilbrigðisfulltrúi taka út rotþrær og meiga þær ekki vera ingar íjalla ekki um menntun hönn- uða að mannvirkjum né skiptingu lands í byggingarfulltrúaumdæmi og réttindi. Hefur félagsmálaráð- herra skipað nefnd til að endurskoða drög að frumvarpi til skipulagslaga og frumvarpi til byggingarlaga með það markmið að fella þau saman í einn lagabálk. Nefndina skipa Björn Friðfinnsson formaður, Guðmundur G. Þórarinsson aiþingismaður, Guð- rún Helgadóttir alþingismaður og Sigurgeir Sigurðsson formaður Sambands ísl. sveitarfélaga. Stefán Thors skipulagsstjóri ríkisins starfar með nefndinni en Hólmfríður Snæ- björnsdóttir er ritari hennar. Morgunblaðið/RAX Ný bílasala í Skeifunni BILASALA Reykjavíkur var opnuð fyrir nokkru í Skeifunni 11 í Reyfqavík. Eigendur bílasölunnar eru Viktor Urbancic og Gunnhildur Úlfarsdóttir. Á myndinni að ofan er Viktor ásamt sölumönnunum Halldóri Baldvinssyni og Guðmundi Albertssyni. í frétt frá bílasölunni segir, að hún sérhæfi sig í sölu öllum gerðum nýlegra notaðra bíla og hafi til umráða 400 fermetra húsnæði, auk bílastæða utan dyra. UTSALAN HEFSTI D SAUTJAIM, KRINGLUNIVI, sími 689017 i Ymislegt Skyggnislýsingarfundur Þórhallur Guðmundsson, miðill, heldur skyggnislýsingarfund í veitingasalnum Skútunni, Dals-' hrauni 15, Hafnarfirði, miðviku- daginn 9. ágúst kl. 20.30. Miðar seldir við innganginn. Wélagslíf Hvítasunnukirkjan Fíladelfía Almenn vitnisburðarsamkoma i kvöld kl. 20.30. Ailir hjartanlega velkomnir. Munið Seltjarnarneskirkju í kvöld kl. 20.30. Allir velkomnir. FERÐAFELA6 ÍSLANDS ÖLDUGÖTU3 SÍMAR11798 og 19533. Kvöldterð miðvikudaginn 9. ágúst: Kl. 20.00 Bláfjallahellar. Nauðsynlegt að hafa vasaljós meðferðis. Stærstu hellarnir verða skoðaðir. Verð kr. 600,-. Brottförfrá Umferðarmiöstöðinni, austanmegin. Farmiðar við bíl. Fritt fyrir börn í fylgd fullorðinna. Ferðafélag islands. M Útivist Helgin 11.-13. ágúst Fjölskylduhelgi í Þórsmörk 1. Góð dagskrá fyrir alla fjöl- skylduna. Ratleikur, leikir, pylsu- grill, gönguferðir og kvöldvaka. Unglingadeild Útivistar sér um dagskránna í sarpvinnu við farar- stjóra og skálaverði. Sérstakt afsláttarfargjald: Kr. 4.200,- f. utanfélaga og kr. 3.800,- f. fé- laga. Fritt f. börn 9 ára og yhgri og hálft gjald f. 10-15 ára m. foreldrum sinum. Árleg ferð sem þið ættuð ekki að sleppa. 2. Fimmvöröunáis Gengiö frá Skógum i Bása á laugardeginum, 8-9 klst. ganga. Gisting i Útivistarskálunum Básum. Einnig góð tjaldstæði. Afsláttarverð. Uppl. og farm. á skrifst. Grófinni 1, (Vesturgötu 4), simar: 14606 og 23732. Pantiö timanlega. Hörgshlíð 12 Boðun fagnaðarerindisins. Almenn samkoma i kvöld kl. 20.00. /ffix FERÐAFÉLAG ÍSLANDS ÖLDUGÖTU 3 SÍMAR11798 og 19533. Sumarleyfisferðir Ferðafélagsins: 11.-17. ágúst: Kirkjubæjar- klaustur - Fljótsdalshérað - Borgarfjörður eystri - Vopna- fjörður - Laugar í Reykjadal - Sprengisandur. Ekið sunnan jökla á leið austur um land og til baka um Sprengi- sand. Gist í svefnpokaplássi. Fararstjóri: Baldur Sveinsson. 11.-16. águst: Landmanna- laugar - Þórsmörk. Gist í sæluhúsum Fl á leiðinni frá Landmannalaugum til Þórs- merkur. Fararstjóri: Árni Sig- urösson. 16. -20. ágúst: Landmanna- laugar - Þórsmörk. Fararstjóri: Leifur Þorsteinsson. 17. -20. ágúst: Núpsstaðaskógur. Gist í tjöldum. Gönguferðir um stórbrotið landslag. Fararstjóri: Hilmar Þór Sigurðsson. Upplýsingar og farmiðasala á skrifstofu FÍ, Öldugötu 3. Ferðafélag íslands. iyjj útivíst Ferðist innanlands með Útivist. Fjölbreyttar sumarleyfisferðir. 1. 10.-16. ágúst. Síðsumars- ferð á Norðausturlandi. Ný og skemmtileg Útivistarferð, ein su vinsælasta i sumar. Kjalvegur, Hrisey, Tjörnes, Kelduhverfi, Melrakkaslétta, Langanes, Vopnafjörður, Mývatn, Jökuls- árgljúfur, Sprengisandur. Gist i svefnpokaplássi. Fararstjórar: Þorleifur Guðmundsson og Jó- hanna Sigmarsdóttir. 2. 18.-23. ágúst. Núpsstaðar- skógar - Grænalón - Djúpárdal- ur. Fjögurra daga bakpokaferð, Brottför föstudagskvöld kl. 20.00. Ýmsir möguleikar á út- úrdúrum, t.d. ganga á Græna- fjall og að Hágöngum i jaðri Vatnajökuls. Ný spennandi ferð. 3. 31. ág.-3. sept. Gljúfurleit - Kisubotnar - Kerlingarfjöil. Ný ferð. Ekið upp með Þjórsá að vestan og gist í Gljúfurleitar- skála. Skoðaðir Þjórsárfossar. Ekið um Kisubotna í Kerlingar- fjöll. Skoðað Kjalarsvæðið '(Hveravellir). Upplýsingar og farmiðar á skrifstofunni, Grófinni 1, símar 14604 og 23732. Sjáumst!

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.