Morgunblaðið - 17.10.1989, Síða 56
0HITACHI
S./rRÖNNING
' P KRINGLUNNI/SÍMI (91)685868
NÝTTUÞER
' ELDHÚSTÆKJA
TILBOÐIÐ FRÁ
damixa
ÞRIÐJUDAGUR 17. OKTOBER 1989
VERÐ I LAUSASOLU 90 KR.
■■tliiKiigf
iíiIKIiiiii
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Turninn kominn í Mæðragarðinn
Turninn í Austurstræti hefur verið lluttur i Mæðragarðinn við | kvæmdir í garðinuni en nú tær hann andlitslyftingu," sagði Jó-
Lækjargötu. Að sögn Jóhanns Pálssonar garðyrkjustjóra, hefúr I hann. „Gróðurinn sem fyrir er fær að njóta sín en lagðir verða
ekki verið ákveðið hvert hlutverk iians verður í framtíðinni en I gangstígar og torg myndað við turninn."
hann verður leigður út. „Það hefur verið beðið með allar fram- |
Stálskip hf.:
Urskurðar
krafist um
uppboðs-
kostnað
KRAFIST hefur verið úrskurðar
sýslumanns Barðastrandarsýslu
um upphæð uppboðskostnaðar
vegna sölu á togaranum Sigurey
til Stálskips hf. í Hafharfirði. Við
afhendingu skipsins var nýjum
eigendum þess gert að greiða um
5,2 milljónir króna í sölulaun til
rikisins auk þess sem veiðarfæri
voru ekki talin innifalin í kaup-
verði - skipsins en í öllum veð-
bréfiim er gert ráð fyrir að veið-
arfæri fylgi skipinu.
Að sögn Hrafnkels Ásgeirssonar,
lögfræðings Stálskips hf., er ágrein-
ingur um af hvaða fjárhæð upp-
boðskostnaðurinn skuli greiðast, en
1% eru sölulaun ríkissjóðs auk rúm-
lega 24 þús. króna sem er útlagður
og beinn kostnaður. Þá hefur verið
krafist 1% í innheimtulaun til ríkis-
sjóðs en það er skoðun kaupenda
að aðeins eigi að greiða af útborgun
í skipið en ekki af þeirri fjárhæð
sem samið hefur verið um að standi
óhreyfð sem veð af skipinu.
„Stálskip varð að greiða þetta
að fullu eða á sjöttu milljón, til
þess að fá skipið losað," sagði
Hrafnkell. „Þá hefur auk þess verið
gerð krafa um það að veiðarfæri
sem voru um borð í skipinu þegar
það var selt hafi fylgt í nauðungar-
sölunni."
Verðhækkanir lík-
legar á þorskblokk
Birgðir blokkar minnkandi og skortur á flökum innan tíðar
BIRGÐIR þorskblokkar í Bandaríkjunum eru nú fjórðungi ininni en
á sama tíma í fyrra. Vegna þess, fremur en aukinnar eftirspurnar,
er talið mögulegt að verð á blokkinni hækki úr 1,55 til 1,60 dollurum
á pund í 1,65. Heildarbirgðir af fiskblokk eru einnig Iægri nú en í
fyrra. Birgðir af ufsa, bæði frá Alaska og úr Atlantshafinu, eru nú
heldur minni en birgðir af Alaskaufsa í fyrra og því er talin mögu-
leg verðhækkun á ufsablokkinni um 5 til 8 sent á pundið. Þá eru
birgðir fiskrétta unninna úr blokk um fimmtungi minni en í fyrra.
Birgðir þorskflaka er nú taldar
hæfilegar vestan hafs, en mun
meiri en á sama tíma í fyrra. Hins
vegar er reiknað með minnkandi
framboði þorskflaka er lengra líður
-'d árið og á föstunni, sem hefst 28.
febrúar næstkomandi, verði orðinn
skortur á þorski, ýsu, iúðu, kola,
ufsa, grálúðu og karfa. Sala rækju
vestan hafs hefur undan farið vei-ið
með allra mesta móti og er reiknað
með að svo verði áfram, enda hald-
ist verð stöðugt. Mest af rækjunni
er fiutt inn frá Kína. Fyrstu 6
mánuði ársins komu þaðan um
23.000 tonn og er það meira en
tvöfalt meira en á sama tíma 1987.
Innflutningur frá öðrum helztu
löndum er nú um 18.700 tonn frá
Ecuador, 9.500 frá Mexico, 9.000
Niðurstaða hjá Atlant-
al um mánaðamótin
JON Sigurðsson iðnaðarráðherra segist gera sér vonir um að það
liggi fyrir endanleg niðurstaða um næstu mánaðamót livert fram-
hafdið verður Iijá Atlantal-hópnum, þ.e. hópi þriggja erlendra fyrir-
’^ækja, sem kanna möguleika á stækkun álversins í Straumsvík. í
gær var haldinn fundur hjá Atlantal í Amsterdam í Hollandi en
engin endanleg niðurstaða fékkst á þeim fundi.
Jón sagði að ekki væri búið að
ljúka samstarfssamningi og hlut-
hafasamningi en sér virtist sem
flest í þessum undirbúningi væri
samkvæmt áætlun. Hann sagði að
töluverð vinna væri eftir í samning-
um við Alusuisse en öllu miðaði þó
eðlilega.
„Það var ekki búist við neinum
endanlegum niðurstöðum á þessum
fundi,“ sagði iðnaðan'áðherra í
samtali við Morgunblaðið í gær.
„Þetta var fyrst og fremst tækni-
legur fundur, þar sem borin voru
saman gögn og menn veltu fyrir
sér möguleikum í samstarfi.“
frá Thailandi og 7.600 frá Ind-
landi. Vegna mikilla birgða og
mögulegrar aukningar innflutnings
er ekki reiknað með verðhækkun á
rækju.
Sérfræðingar í sjávarafurða-
markaðnum vestan hafs telja söluna
heldur vera að aukast frá því, sem
var í sumar. Sjávarafurðir eigi þó
enn undir högg að sækja í sam-
keppninni við nautakjöt og fugla-
kjöt. Sjávarafurðasalan var í maí,
júní og júlí minni en nokkru sinni
áður og því telja menn nú að botnin-
um sé náð ög staðan hljóti að fara
batnandi þó það gangi hægt. Neyzla
sjávarafurða er talin stöðug nú, en
eykst ekki, gæði afurðanna eru
meiri en áður, fjölbreytni og fram-
boð lér vaxandi, traust neytenda á
gæðum og hollustu vex að nýju og
auknu fé er varið til sölu- og kynn-
ingar á afurðunum.
Á síðasta ári neyttu Bandaríkja-
menn mests af niðursoðnum tún-
fiski, rækju, þorski, ufsa, flatfiski,
smyrslingi (clam), vatnasteinbít,
laxi, krabba og hörpudiski.
Helztu leiðir til að auka sölu á
veitingastöðum eru meðal annars
taldar aukin samvinna framleið-
enda og veitingahúsa með það í
huga að lækka matvælaverðið, að
auka vörukynningu og auglýsingar,
finna fieiri leiðir til að ná athygli
neytenda og bæta samkeppnisstöð-
una á skyndibitamarkaðnum, eink-
um gagnvart hamborgurum.
Grímur Sigurbjörnsson
Aldís Björgvinsdóttir
S-Þingeyjarsýsla:
Karl og kona lét-
ust í umferðarslysi
KARL og kona biðu bana er
bíll rann út af veginum og valt
út í Ljósavatn í Suður-Þingeyj-
arsýslu aðfaranótt mánudags-
ins. Konan hét Aldís Björgvins-
dóttir, Björgum II, Ljósavatns-
hreppi, fædd 30. júní 1942.
Maðurinn hét Grímur Sigur-
björnsson, Björgum, Ljósa-
vatnshreppi, fæddur 4. febrúar
1926. Hann var bróðir eigin-
manns Aldísar, Sigurðar Sigur-
björnssonar.
Hálka var og snjómugga, að
sögn lögreglu á Húsavík, þegar
slysið varð. Fólkið var á leið úr
Reykjavík. Vegurinn í Ljósavatns-
skarði liggur á kafla á uppfyllingu
úti í Ljósavatni. Verksummerki
þykja benda til þess að bíllinn,
pallbíll af japanskri gerð, hafi
runnið til á veginum og hafnað á
hvolfi út í djúpri tjörn milli vegar
og lands.
Lögreglu var gert vart um slys-
ið um klukkan 2 að nóttu. Um
fjörutíu mínútna akstur er að slys-
stað frá Húsavík. Aldís fannst
látin í bíinum. Kafarar fundu lík
Gríms í vatninu í gærmorgun.