Morgunblaðið - 31.10.1989, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. OKTÓBER 1989
;-----------------—t—r- i----i--; : > .
Verður 30% virðis-
aukaskattur á Islandi?
eftir Árna Reynisson
Á sameiginlegum fundi Félags ís-
lenskra stórkaupmanna og Versl-
unarráðs íslands um virðisaukaskatt
í innflutníngi taldi Ólafur Ragnar
Grímsson fjármálaráðherra öll tor-
merki á því að gjaldfrestur verði
veittur af virðisaukaskatti innfluttrar
vöru í tolli, þó lög leyfi. Hér er haf-
inn háskalegur leikur með hagsmuni
þeirrar alþýðu, sem flokkur flármála-
ráðherra kennir sig við. Á fundinum
gafst ekki mikill tími til umræðu um
þetta mál, og því skal sjónarmiðum
Félags íslenskra stórkaupmanna
fylgt eftir með nokkrum orðum.
Þegar Alþingi samþykkti virðis-
aukaskattslögin, var í lokagerð frum-
varpsins fellt inn heimildarákvæði til
gjaldfrests á allan innflutning, vegna
upplýsinga frá samtökum innflytj-
enda um verðlagsáhrif, sem metin
voru 2-4%. Ætti því að vera ljóst
hver vilji Álþingis og þáverandi fjár-
málaráðherra var í þessu sambandi.
Einnig kom fram í ræðu fjármálaráð-
herra þá, að sparnaður vegna skatt-
frelsis á rekstrarvömm fyrirtækja
og rýmkun á uppgjörstíma ætti að
geta leitt til 1% lækkunar á vöru-
verði.
í ræðu sinni á fundi FÍS og VÍ
gerði fjármálaráðherra lítið úr verð-
lagsáhrifum staðgreiðslu skattsins í
tolli. Hann kvað hagdeild ráðuneytis-
ins hafa reiknað dæmið fyrir sig og
viðurkenndi að staðgreiðslan hafi í
för með sér kostnaðarhækkun sem
svarar u.þ.b. 1,5-2% af vöruverði.
Frá því dró hann síðan ofangreindan
rekstrarsparnað og fékk þannig út
0,5% hækkun kostnaðar. Þar með
var viðurkennt að skatturinn, sem
átti að lækka vöruverð um 1% mun
nú valda hækkun verðlags um
0,5; 1%.
Áhugi íjármálaráðuneytisins á
staðgreiðslu VSK í tolli byggist
væntanlega á ósk um að bæta
greiðslustöðu ríkissjóðs með upphæð
sem gæti numið 3-5 milljörðum
króna. Beinn sparnaður fyrir ríkið
án tillits til nokkurs annars, gæti þá
numið fáeinum hundruðum miljóna
króna.
Sú skoðun FÍS er hins vegar
óbreytt, að þessi aðferð við fjármögn-
un ríkissjóðs sé svo dýr í framkvæmd
að kostnaðurinn nemi margföldum
þeim hagnaði, sem ríkið gæti haft
upp úr krafsinu. Hér á eftir fara
helstu ástæður sem við höfum nefnt:
Vaxtakjör fyrirtækja. Hugmynd
okkar um 2-4% verðlagshækkun er
byggð á þeirri staðreynd, að innflytj-
andi þarf að taka lán fyrir útgreidd-
um skatti með því að selja viðskip-
takröfur á kaupgengi, sem nemur
49% í tilteknum banka. Ríkið nýtur
að sjálfsögðu bestu viðskiptakjara
við lántökur, hugsanlega 25-30%, en
verslunarfyrirtæki þurfa að greiða
allt að helmingi hærri vexti, því þau
njóta að jafnaði lökustu kjara á jað-
arlán sín.
Innlendur fjármagnsmarkaður ‘
er þröngur og ljóst er að skyndileg
eftirspurn eftir 3-5 milljörðum króna
myndi valda einhverri hækkun vaxta.
Vaxtagjöld ríkisins. Slík vaxta-
sprenging hefur að sjálfsögðu áhrif
á afkomu ríkissjóð, sem er stærsti
lántakinn á innlendum fjármagns-
markaði. EinungisVs% hækkun vaxta
gæti kostað ríkið u.þ.b. 300 milljónir
króna, þó aðeins sé horft til við-
skipta þess við lífeyrissjóðina vegna
húsnæðismála á næsta ári. Er þá
horfinn verulegur hluti þess hagnað-
ar, sem stefnt var að með stað-
grejðslunni.
Ohagkvæmni. Rýrð lausafjár-
staða heildverslana leiðir óhjákvæmi-
lega til óhagkvæmari vinnubragða.
Það hægir á veltu. Menn neyðast til
að minnka pantanir, og sætta sig
við hærra innkaupsverð, dýrari flutn-
inga, lélegra birgðahald, og meira
umstangs innan fyrirtækjanna. Allt
þetta þenur verlsunarkostnaðinn, og
hækkar álagningu. Því má búast við
að innflytjandinn, sem greiðir 26%
hærra verð fyrir vöruna i tolli, noti
óbreytta álagningarprósentu fyrst
um sinn, til að veija sig kostnaði af
hvers konar óvæntu óhagræði í
Árni Reynisson
„Sú skoðun FÍS er hins
vegar óbreytt, að þessi
aðferð við flármögnun
ríkissjóðs sé svo dýr í
framkvæmd að kostn-
aðurinn nemi margföld-
um þeim hagnaði, sem
ríkið gæti haft upp úr
krafsinu.“
rekstrinum. Hugmyndin um aö heild-
verslun stytti greiðslufrest sinn
gengur ekki upp eins og á stendur.
Smásalan og framleiðslufyrirtækin
eru mörg á barmi gjaldþrots, og
vörukrít heildsala er gjarnan líftaug
þeirra.
Áhrif á framleiðsluiðnað. Fjár-
málaráðherra nefnir að staðgreiðsla
VSK í tolli bæti samkeppnisstöðu
innlends iðnaðar. Því verður ekki
trúað, að forsvarsmenn íslensks iðn-
aðar hafi borið' fram óskir, sem
ganga þvert á samninga við EFTA
og EB, svo og stefnuskrá Félags ís-
lenskra iðnrekenda, sem nýlega var
gefin út. Upptaka virðisaukaskatts
er eitt af stóru skrefunum í átt til
samræmingar við Evrópu. Stað-
greiðsla í tolli heyrir hins vegar til
undantekninga, hún'þekkist hvergi
í þeim Evrópulöndum, sem við viljum
bera okkur saman við.
Samkeppnisstaða verslunar. Is-
lensk verslun, sem hefur um 10 þús-
und manns í vinnu, á í harðri sam-
keppni við erlenda. íslenskir ferða-
menn, sem búa við svimandi hátt
verðlag heima fyrir, nota hveija ut-
anferð til að gera góð kaup. Þeir eru
ekki að sniðganga álagningu ís-
lenskrar verslunar. Þeir eru að snið-
ganga álagningu ríkissjóðs Islands,
sem setur nú heimsmet með ákvörð-
un um 26% virðisaukaskatt, og. bæt- _
ir honum við ýmsa aðra skatta s.s.
launaskatt, eignaskatt og húsnæðis-
skatt á fyrirtæki, ,jöfnunargjald“,
vörugjöld og tolla upp á 10 millj-
arða, sem samkeppnisþjóðirnar hafa
losað sig við fyrir löngu. Enginn tap-
ar meira á þessum verslunarflótta
en ríkissjóður sjálfur, því með honum
minnkar skattstofninn umtalsvert,
auk þess sem störfum í íslenskri
verslun fækkar.
Með staðgreiðslu í tolli bætast,
samkvæmt ofansögðu, fyrirsjáan-
lega nokkur prósent við 26% heims-
metið, miðað við nágrannalönd.
Þessi hluti skattsins er ekki sýnileg-
ur, heldur er honum þrýst inn í álagn
ingu heildverslunar. Engu að síður
mætti jafnvel tala um 30% VSK á
ÍSlandi, ef staðgreiðslan verður að
veruleika.
Þessi orð eru skrifuð í þeirri von
að menn sjái, að allt er vænlegra
fyrir ríkið til að bæta greiðslustöðu
sína, en að fara þessa leið. Aðferðin
sem gæti i hæsta lagi létt af ríkinu
kostnaði upp á fáein hundruð millj-
óna króna, er svo dýr í framkvæmd,
að atvinnulíf og neytendur þurfa að
bera þann kostnað. margfaldan.
Hðfundur er framkvæmdastjóri
Félags ísl. stórkaupmanna.
Canoti
Einstök vél á frábæru verði
ki r. 41 E EUnOCARO 3.800,- stgr. Raðgreiðslur
ttt"*
Hentar vel fyrlr einstakllnga, mlnnl fyrlr-
tækl og delldlr stærrl fyrlrtækja o.fl.
* Sex skörp IJósrit á mínútu
* Ljósritar á venjulegan pappír, karton og
glærur
* Lltakassettur er hægt að fá í bláu,
rauðu, grænu, brúnu og svörtu
* Afrltastærð A4 nlður í nafnspjalda-
stærð
* Viðhaldsfrí vél
l<riívélin hf
SUÐURLANDSBRAUT 22 - REYKJAVÍK - S: 91-685277
STÖRÚISALA
Vörumarkaður allt árið
■HaanmaaaBBMHmmssnaanHHasa^MHaasmMa
Nýjar vörur
Kápur, úlpur, buxur, blússur, jakkar, pils, krumpugallar,
jogginggallar, barnafatnaður, skyrtur, sokkar, nærfatnaður,
kaffi- og matarstell, glös og hnífapör og margt, margt fleira.
Bókamarkaður rw
s • k • i • f • a • n Hljómplötur og gefsladiskar
Opið frá kl. 12-18.30
Laugardaga frá kl. 10-16
I JL HUSINU, 2. HÆD
SÍMI 11981
VERSLUNARMIÐSTOD VESTURBÆJAR, HRINGBRAUT 121
t