Morgunblaðið - 31.10.1989, Qupperneq 34

Morgunblaðið - 31.10.1989, Qupperneq 34
m M()H(;L.\i{LA»]l), ÞRIÐJVPAGUjl 31.,0KTQBPR 1,98,9 Yfirlýsing Slippstöðvar- innar vegna uppsagna Morgunblaðið/Benjamín Baldursson Nýtt og glæsilegt íþróttahús var tekið í notkun við Hrafhagilsskóla á laugardaginn og mættu um 700 manns á vígsluathöfiiina. Hrafiiagilsskóli: Nýja íþróttahúsið vígt Ytri-Tjörnuin. LAUGARDAGINN 28. október var nýtt íþróttahús á Hrafiiagili vígt og formlega tekið í notkun. Sigurður Aðalgeirsson skólastjóri Hralhagilsskóla setti vígsluathöfnina og stjórnaði henni. Að Ioknu setningarávarpi var helgistund í umsjón séra Hannesar Arnar Blan- don og sameinaðir kórar úr Laugalandsprestakalli sungu undir stjórn irú Sigríðar Schiöth. HÉR fer á eftir tilkynning Slipp- stöðvarinnar hf. vegna uppsagna starfsfólksins í gær: „Öllum starfsmönnum Slippstöðv- arinnar hf. á Akureyri hefur verið sagt upp störfum frá 1. nóvember 1989 með samningsbundnum fyrir- vara. Taka uppsagnirnar gildi hjá langflestum 1. febrúar 1990 en hjá öðrum 1. janúar 1990. Uppsagnirnar eru varúðarráðstöfun vegna fyrirsjá- anlegs verkefnaskorts seinni hluta vetrar. Næstu vikur verða notaðar til að fara yfir rekstur fyrirtækisins og endurráða starfsfólk eins og að- sts?ður leyfa. Gífurleg sveifla er á framboði á viðgerða- og endurbygg- ingaverkefnum eftir árstíðum þar sem sumarið er háannatíminn en vetrarmánuðirnir nánast steindauðir. Sú þjónusta sem Slippstöðin innir af hendi á sviði viðgerða og endurbygg- inga fer nánast öll fram á 6-8 mánuð- um ársins og hafa nýsmíðar gert okkur kleift að ráða við þessa sveiflu með því að breyta áherslum á vinnu í nýsmíðum eftir framboði annarra verkefna. Mikil óvissa ríkir um fram- hald nýsmíða fískiskipa á Islandi og hefur um nokkurra ára skeið verið nánast kyrrstaða í þeim málum. Stöðugur innflutningur er þó á nýjum skipum erlendis frá og vaxandi út- flutningur á viðgerðum og endur- Breytingar lækka laun umhelming SÆVAR Frímannsson formaður Verkalýðsfélagsins Einingar segir að í Krossanesverksmiðjunni hafi verið í gildi munnlegir samningar við starfsmenn og Eining líti svo á að við uppsögn starfsmannanna hafi þeim ekki verið sagt upp. Kröfu Einingar um 408 krónur á tímann í dagvinnu segir hann byggjast á samningi milli Akur- eyrarbæjar og Einingar, að við- bættum þeim hlunnindum sem starfsmenn áður höfðu og hefð væri fyrir í verksmiðjunni. Þá seg- ir hann að breytingar á vaktaíyrir- komulagi sem taka átti upp hafi í íor með sér um helmingslækkun á tekjum starfsmanna verksmiðj- byggingum. Á undanförnum árum hefur það heyrt til undantekninga að Slippstöðinni væri gefinn kostur á að bjóða í nýsmíðar. Skipin hafa síðan streymt til landsins, á verði sem við teljum okkur geta keppt við í mörgum tilfellum. Við teljum það vera mikla óheillaþróun að nýsmíðar hafa nánast alveg færst út fyrir land- steinana og vaxandi útflutningur er á viðgerðum og endurbyggingum. Þessari þróun þarf að snúa við og helja aftur uppgangs- og framfar- atímabil í skipasmíðaiðnaði • innan- lands þrátt fyrir tímabundna um- framaflcastagetu flotans. Við megum ekki láta skammtímaástand villa okkur sýn í þessum efnum. Það er skoðun okkar að öflugur skipasmíða- iðnaður eigi ekki aðeins rétt á sér heldur sé hann nauðsynlegur og afar mikilvægur fyrir útgerð og fisk- vinnslu, sem er undirstaða okkar þjóðfélags, og fyrir málmiðnaðinn í heild, sem er ein af undirstöðum iðn- aðar í landinu. Það er ennfremur skoðun okkar að nýsmíðar geri fyrir- tækinu kleift að viðhalda og end- urnýja þá verk- og tækniþekkingu sem nauðsynleg er til að sinna öðrum verkefnum á fullnægjandi hátt. Skortur á nýsmíðaverkefnum til langs tima veldur stöðnun, jafnvel hnignun á þessum sviðum. Þessi skoðun hefur styrkst við að upplifa þá þróun sem átt hefur sér stað í kjölfar samdráttar í nýsmíðum inn- anlands á undanförnum árum. Fyrr- nefndar uppsagnir eru eins og áður segir varúðarráðstöfun vegna fyrir- sjáanlegs verkefnaskorts seinni hluta vetrar. Reynt verður að útvega fyrir- tækinu verkefni við hæfi fyrir þetta tímabil þannig að röskun á starfsem- inni verði sem minnst. Það er áfram stefna fyrirtækisins að halda uppi öflugri starfsemi á sviði nýsmíða, viðgerða og endurbygginga íslenska flotans. Formaður bygginganefndar, Birgir Þórðarson á Öngulstöðum rakti byggingarsögu hússins og kom fram í máli hans að heildar- kostnaður vegna byggingarinnar er á núvirði 151,5 milljónir króna. Þar af hefur ríkið greitt 40,3 millj- ónir, eða 26,6%, en hitt skiptist á milli þeirra Ijögurra aðildarhreppa sem að byggingunni standa, Hrafnagils-, Saurbæjar-, Sval- harðsstrandar og Öngulstaða- hreppa. Sjálfur íþróttasalurinn er 18X33 metrar og áhorfendasvæði er fyrir 250 til 300 manns. Ófrágengin kjallari er undir salnum, en þar er gert ráð fyrir aðstöðu fyrir verk- greinar skólans. Við athöfnina á laugardaginn bfluttu ávörp Guðmundur Bjarna- son ráðherra, Jóhannes Geir Sigur- geirsson formaður skólanefndar og Sigurður Guðmundsson sem talaði fyrir hönd íþróttafulltrúa ríkisins. Þá var fimleikasýning undir stjórn Jóhönnu Sigurðardóttur íþrótta- kennara skólans. Alls komu um 700 manns og tóku þátt í að víga þetta stórglæsilega íþróttahús, sem er aðildarsveitarfélögunum til mikils sóma. Að lokinni athöfn í húsinu þáðu gestir kaffi í matsal Hrafna- gilsskóla. Benjamín Deilt um kaup og kjör í Krossanesi: Krossanes býðst til að greiða 381 kr. í meðaltímakaup, en Eining vill 533 Kröfur Einingar óraunhæfar, segir Geir Zoega ft-amkvæmdaslóóri LAUSN í deilu milli Verkalýðsfélagsins Einingar og forsvarsmanna Krossanesverksmiðjunnar virðist ekki í sjónmáli, en deila þessi kemur í kjölfar uppsagna og endurráðninga starfsmanna og hagræðingar sem grípa átti til innan verksmiðjunnar. Forsvarsmenn Krossanesverksmiðj- unnar telja kröfur Einingar óraunhæfar og óaðgengilegar, þar sem m.a. sé farið lram á mun hærri laun en tíðkist í sambærilegum iðnaði í landinu. Framkvæmdastjóri verksmiðjunnar hélt fund með starfsmönn- um á fijstudaginn þar sem hann skýrði frá stöðu verksmiðjunnar og sjónarmiðum forsvarsmanna liennar varðandi vinnudeiluna sem í gangi unnar. „Það er engin lausn í sjónmáli, þetta er í biðstöðu," sagði Sævar. Hann sagði að deilan stæði fyrst og fremst um það svipta ætti starfs- menn ákveðnum sérsamningum sem í gildi hafa verið til íjölda ára. „Við lítum svo á að segja verði þessum sérsamningum sérstaklega upp, en ekki að þeir falli sjálfkrafa úr gildi við það að starfsmönnunum er sagt upp störfum," sagði Sævar. „Við teljum því að þessir sérsamningar séu enn í gildi, en það hafa forsvars- menn Krossanesverksmiðjunnar ekki viljað viðurkenna." Sævar sagði að breytingar á vaktafyrirkomulagi í þá átt að fallið er frá tvískiptum vöktum eins og verið hafi og fjórskiptar vaktir tekn- ar upp, hafi geysilega launalækkun í för með sér fyrir starfsmenn. „Við lögðum fram málamiðlun um að tek- ið yrði upp þriggja vakta kerfi, ég get fúslega viðurkennt að tveggja vakta kerfi er ómanneskjulegt." hefur verið. Geir Zoéga framkvæmdastjóri Krossanesverksmiðjunnar segir að upphafið megi rekja til þess að síðastliðin 3-4 ár hafi staðið yfir miklar og kostnaðarsamar breyting- ar á verksmiðjunni sem hafi í för með sér fækkun þeirra starfsmanna sem vinni á hverri vakt. Starfsmönn- um verksmiðjunnar var sagt upp stört'um fyrr á þessu ári og tóku uppsagnirnar gildi 1. ágúst síðastlið- inn. Geir segir að starfsmönnum hafi. verið boðin endurráðning við annars konar vaktafyrirkomulag en áður var við lýði í verksmiðjunni, en hluti starfsmanna þáði ekki endur- ráðingu og voru nýir ráðnir í þeirra stað. Samkvæmt gamla vaktafyrir- komulaginu var unnið á átta tíma vöktum allan sólarhringinn og voru tvö holl í gangi. Nýja fyrirkomulagið sem forsvarsmenn verksmiðjunnar vildu taka upp miðaði að því að sami fjöldi starfsmanna yrði við störf í verksmiðjunni, en fjögur holl gengu vaktir. Geir segir að samkvæmt nýja fyrirkomulaginu ynni hver vaktmað- ur 42 stundir á viku í mánuði, en áður hafi verið unnar 76 stundir. „Það sem við bjóðum er að sami mannskapur verði áfram við störf í verksmiðjunni á hærri grunnlaunum, en yfirvinnan verður minnkuð. Ástæða þess að við viljum hækka grunnlaun manna, er sú fyrst og fremst að menn eru útkeyrðir af svefnleysi og þreytu í kjölfar þessa gamla vinnufyrirkomulags. Það er ekki eðlilegt að vinna til langs tíma í átta tíma, taka átta tíma frí og koma síðan aftur til starfa í átta tíma og svo framvegis. Enda tel ég að þetta fyrirkomulag hafi verið ástæða ýmiskonar samstarfserfiðleika á vinnustaðnum auk þess sem það jaðri við að vera brot á reglum um hvíldartíma. Ég tel að gamla kerfið henti verksmiðjunni ekki og með því að taka upp nýtt kerfi fengjum við starfsmenn sem væru betur upplagð- ir í vinnunni, en þannig þurfa starfs- menn að vera í verksmiðju sem fram- leiðir gæðamjöl," sagði Geir. Byijunarlaun vaktmanna í Krossa- nesi nú eru 307 krónur á tímann í dagvinnu, en kröfur Einingar fyrir starfsmenn sem unnið hafa eitt ár eða eru orðnir 19 ára gamlir hljóða upp á 408 krónur. Ef greitt væri samkvæmt „Akureyrarsamningun- um“ svonefndu frá síðasta ári, en þar var samið um kaup og kjör í loðnuverksmiðjum á Áusturlandi, yrðu byijunarlaun starfsmanna 225 krónur á tímann í dagvinnu, en 258 krónur samkvæmt samningi sem í gildi er milli Akureyrarbæjar og Ein- ingar. Ef miðað er við ijórskiptar vaktir yrðu mánaðarlaun starfs- manna hjá Krossanesi nímlega 81 þúsund krónur og áætlaðar árstekjur um 807 þúsund krónur. Kröfur Ein- ingar miðað við þrískiptar vaktir gera ráð fyrir rúmum 159 þúsund krónum í mánaðarlaun og áætlaðar árstekjur með vöktum yrðu tæplega 1,3 milljónir króna. Miðað við sömu forsendur yrðu mánaðarlaunin um 108 þúsund ef greitt væri samkvæmt samningi Akureyrarbæjar og Eining- ar og áætlaðar árstekjur um 855 þúsund krónur. Væri „Akureyrar- samningurinn" lagður til grundvallar yrðu mánaðarlaun starfsmanna verksmiðjunnar um 102 þúsund krónur og áætlaðar árstekjur rúm- lega 786 þúsund krónur. Ef með- altímakaup starfsmanna Krossaness með vöktum er skoðað kemur í Ijós að verksmiðjan borgar 381 krónu, en Eining vili 533 krónur. Væri far- ið eftir samningi Einingar og Akur- eyrarbæjar kæmu 353 krónur í hlut starfsmanna að meðaltali, en 324 ef farið væri eftir „Akureyrarsamn- ingnum“. „Forsendur þess að við getum gTeitt þau laun sem við bjóðum er auðvitað sú að það komi loðna, en menn eru orðnir mjög uggandi og mikil óvissa ríkjandi varðandi loðnu- veiðarnar. Frá því sumarloðnuveiðar hófust árið 1976 hefur ævinlega ein- hver afli borist að landi fyrstu mán- uði vertíðarinnar, mest afli norskra og færeyskra skipa í upphafi, en nú var engin veiði og við erum þegar komnir í vanda þar sem við höfum ekki getað afgreitt mjöl til okkar viðskiptavina. Það er ekkert laun- ungarmál að verksmiðjan stendur fjárhagslega illa og þær umframtekj- ur sem við höfðum áætlað vegna söiu á gæðamjöli skila sér vitanlega ekki þar sem ekkert hráefni berst verksmiðjunni," sagði Geir. Jörð til sölu Til sölu er jörðin Grund II í Hrafnagils- hreppi, Eyjafirði. Um er að ræða sölu á landi og fasteignum. Bústofn fylgir ekki. Upplýsingar gefur Fasteignasalan, Brekku- götu 4, sími 96-21744, Akureyri.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.