Morgunblaðið - 31.10.1989, Síða 39
6861 aaaÖTXO .18 SUOAd'Jt-Glílci CH(3AjaMU*OHOM
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. OKTÓBER 1989
Eitt lambslæri í þrjár máltíðir
Umsjón: KRISTÍN GESTSDÓTTIR
Teikningar: SIGURÐUR ÞORKELSSON
Hinn 14. febrúar 1987 skrif-
aði ég þátt um lambakjöt,
sem bar yfirskriftina: „Eitt lambs-
læri í þijár máltíðir“. Margir hafa
komið að-máli við mig og beðið
mig að birta þennan þátt aftur,
og er við hæfi að gera það núna
í sláturtíðinni. Pláss mittí blaðinu
leyfir ekki, að ég birti allan þátt-
inn, en ég tek það sem ég tel
mestu máii skipta, en það er lýs-
ing á því hvernig skera á lærið
og síðan koma þijár uppskriftir
úr því. 1. Glóðarsteiktur inniæris-
vöðvi, 2. lærissneiðar m/sveppum,
3. Pottréttur úr því sem eftir er
af lærinu. Ég sleppi uppskrift af
súpu sem var í þættinum.
Glóðarsteiktur
innlærisvöðvi
Innlærisvöðvi, u.þ.b. 750 g
15 g (1 smápakki) smjör
1 hvítlauksgeiri
14 tsk. sait
nýmalaður pipar
bómullarþráður til að veíja um
vöðvann
1. Vefjið bómullarþræði um
kjötið, þannig að þetta verði lögu-
leg steik.
2. Nuddið salti í kjötið, þó ekki
á skorna vöðva. Malið pipar yfir
allan vöðvann.
3. Bræðið smjörið, meijið
hvítlauksgeirann og setjið saman
við. Smyijið kjötið með hluta af
smjörinu.
4. Hitið glóðarrist, setjið kjötið
í ofninn og glóðið í 45—60 mínút-
ur. Athugið að glóðarrist í ofnum
er mismunandi, sumir geta notið
blástur, en aðrir snúningstein. Ef
þið hafið hvorki snúningstein né
blástur, þarf að snúa kjötinu.
5. Penslið kjötið með smjörinu
einu sinni eða tvisvar meðan á
glóðun stendur.
6. Klippið þráðinn af og berið
fram.
Meðlæti: Bakaðar kartöflur,
sem hægt er að hálfbaka áður en
kjötið er glóðað, en fullbaka með
kjötinu. Setja þær á fat neðarlega
í ofninn. Einnig smjörsoðið græn-
meti, svo sem guirætur, baunir,
rósakál, sprotakál, blómkál eða
annað, sem ykkur hentar. Einnig
er gott að bera kryddsmjör með.
Lærissneiðar m/sveppum
Lærissneiðar skornar langsum,
u.þ.b. 750 g
114 tsk. salt
nýmalaður pipar
250 g ferskir eða frosnir sveppi
1—2 msk. matarolía
30 g smjör
114 dl ijómi
karrý milli fingurgómanna
1 msk. hreinn tjómaostur
1. Byijið á að þerra sveppina
vel með eldhúspappír, ef þeir eru
ferskir. Skerið hvem svepp í
tvennt. Setjið sveppi aldrei í vatn.
2. Setjið % hluta smjörsins í
pott, setjið sveppina út í og steik-
ið við hægan hita í 5 mínútur.
Hellið siðan ijómanum og karrý-
inu yfir og sjóðið í 10 mínútur.
Hafið hægan hita.
3. Hitið pönnu þar til rýkur úr
henni, setjið lærissneiðarnar á
pönnuna og steikið í 1 mínútu á
hvorri hlið, setjið þá 14 smjörsins
og olíuna á pönnuna, minnkið hit-
ann og steikið í 3—4 mínútur á
hvorri hlið. Stráið salti og pipar
yfir sneiðarnar, þegar þið hafið
snúið þeim við í seinna skiptið.
4. Hellið sveppasósunni yfir
sneiðarnar. Setjið iok á pönnuna
og sjóðið í 10—15 mínútur.
5. Hrærið ijómaost út í. Setjið
á fat og berið fram.
Meðlæti: Soðnar kartöflur og
heitt snittubrauð.
Pottréttur úr því sem eftir
er aflærinu
Það sem eftir er af lærinu ásamt
beinum
1 tsk. salt
5 piparkorn eða örlítið af möluð-
um pipar
2 dl vatn
1 hálfdós niðursoðnir tómatar
1 stór gulrót ■
14 meðalstór laukur
2 tsk. ferskt eða þurrkað dill
1 msk. hreinn ijómaostur
1. Hitið vatn ásamt salti og
piparkornum. Setjið það sem er í
tómatdósinni út í. Látið sjóða.
2. Takið beinin í sundur á liða-
mótum og setjið út í pottinn. Lát-
ið sjóða upp, en minnkið þá hitann
og sjóðið við hægan hita í 60
mínútur.
3. Þvoið gulrótina vel, skerið í
sneiðar og setjið í pottinn.
4. Afhýðið laukinn, skerið í iitla
bita og setjið í pottinn. Látið sjóða
áfram í 20 mínútur.
5. Takið allt kjöt af beinum,
skerið í litla bita og setjið aftur
í pottinn. Fleygið beinunum.
6. Setjið dill og ijómaost út í.
Hrærið vel. Sjóðið í 5 mínútur.
7. Búið til hveitihristing eða
notið sósujafnara og hrærið út í
sósuna.
Meðlæti: Kartöflustappa eða
soðin hrísgijón.
Ihaldið herðir tökin o g
ftjálslyndið axlar skinnin
eftir Ásgeir Hanncs
Eiríksson
Ólafur heitinn Thors var bæði
svipmikill og stórbrotinn formaður
Sjálfstæðisflokksins. Sá sem þessar
línur ritar kvaddi Óiaf Thors í hópi
ungra Heimdellinga með fánaborg
við Alþingishúsið þegar formaðurinn
var borinn til moldar þann 5. janúar
1965. Þá tókust íhaldsflokkurinn og
Fijálslyndi flokkurinn stöðugt á um
völdin í Sjálfstæðisflokknum eins og
í dag.
Eldri menn í flokknum hafa síðan
sagt mér margar góðar sögur af
Ólafi Thörs. Meðal annars að hann
hafi varað flokksmenn sína við að
kjósa þingmann úr landbúnaðarkjör-
dæmi til formanns í Sjálfstæðis-
flokknum. Einnig að formaður
flokksins mætti aldrei gegna
embætti fjármálaráðherra. Og að
stöðugt þurfi að finna jafnvægið í
forystu flokksins á hveijum tíma.
I dag er tæpur aldarfjórðungur
liðinn síðan Ólafur Thors kvaddi og
áfram leiða íhald og fijálslyndi sam-
an hesta sína í flokknum hans. En
heilræði gamla foringjans hafa hvert
á fætur öðru fallið í gleymsku og
dá. Núverandi formaður Sjálfstæðis-
flokksins er þingmaður úr land-
búnaðarkjördæmi. Stutt er síðan
formaðurinn sat í embætti fjármála-
ráðherra. Og flokksmenn gættu þess
ekki á landsfundi sínum að halda
hinu eftirsótta og nauðsynlega jafn-
vægi í forystusveit sinni. Þar herti
íhaldið tökin og fijálslyndið axlaði
skinnin.
íhaldið herðir tökin
Landsfundur Sjálfstæðisflokksins
hefur fram til þessa verið bæði
ábyrgur og sanngjarn fundur. Hann
hefur fylgt heilræði gamla foringjans
út í hörgul og bundið flokkinn þver-
böndum með því að kjósa forystu-
menn sína í kross. Fulltrúar á lands-
fundi hafa jafnan gætt þess hin síðari
ár að fijálslyndi hluti flokksins eign-
aðist sinn vara’formann þó íhaldsarm-
urinn héldi formanninum. Þannig
kaus fundurinn dr. Gunnar Thor-
oddsen varaformann Geirs Hallgrí-
mssonar á sínum tíma og Friðrik
Sophusson varaformann Þorsteins
Pálssonar. En á landsfundinum
brustu þessi þverbönd.
Það má margt gott um Davíð
frænda Oddsson segja og hann er
manna líklegastur til að standa fyrir
sínu þar sem eiginleikar hans koma
að notum. En að fijálslyndi sé honum
í blóð borið er hrein og klár blöndun
í blóðfiokkum. Davíð kemur ásamt
Þorsteini Pálssyni úr myrkustu klíku
Sjálfstæðisflokksins sem er jafnvel
ennþá skuggalegri en sjálf Svarta
klíkan. Þannig á nú íhaldið bæði
formann og varaformann flokksins í
dag en fijálslyndið hefur ekki lengur
mannaforráð í húsi föður míns.
Frjálslyndið axlar skinnin
Allt frá samruna Ihaldsflokksins
og Fijálslynda flokksins í Sjálfstæð-
isflokknum fyrir sextíu árum hefur
fijálslyndið átt erfitt uppdráttar í
flokknum. Fijálslyndu fólki á borð
við dr. Gunnar Thoroddsen, Aibert
Guðmundsson, Jón G. Sólnes, Eggert
Haukdal, Sigurlaugu Bjarnadóttur
og fleiri hefur verið haldið í skeQum.
Aðrir fijálslyndir sjálfstæðismenn
hafa yfirgefið flokkinn eins og Ellert
B. Schram og sá ijöldi flokksmanna
sem tók þátt í að stofna Borgara-
flokkinn. Friðrik Sophusson var því
í rauninni síðasti Móhíkaninn í for-
ystu Sjálfstæðisflokksins en nú hefur
landsfundur falið hann öxinni. og
jörðinni til geymslu og sent Friðrik
yfir í hin miklu pólitísku veiðilönd.
Skilaboð 28. landsfundar Sjálf-
stæðisflokksins eru því bæði hrein
og skýr. Flokkurinn hefur þrengt
ásjónu sína og dregið sig saman í
litrófi stjórnmálanna. Hann heldur
fast við erlendar kennisetningar sem
ekki henta íslensku þjóðfélagi. Þess
vegna stefnir flokkurinn í pólitíska
einangrun á sínum væng andspænis
einangruðu Alþýðubandalagi á hin-
um vængnum. Landsfundurinn vísaði
jafnframt öllu fijálslyndu sjálfstæð-
Tvö börn fyrir bíl
TVÖ börn urðu fyrir bílum í
Reykjavík um helgina. Hvorugt
slasaðist alvarlega.
14 ára stúlka gekk suður yfir
Hverfisgötu á gangbraut við Frakka-
stíg um klukkan 18 á föstudag og
varð þar fyrir fólksbíl á austurleið.
Stúlkan meiddist en meiðslin voru
talin minniháttar. Handstýrð um-
ferðarljós eru við gangbrautina.
Stúlkan mun ekki hafa stutt á hnapp-
inn og því gengið yfir mót rauðu ljósi.
Þá varð drengur á reiðhjóli fyrir
bíl á Sundlaugarvegi síðdegis á
sunnudag. Bamið var að hjóla utar-
lega á gangstétt og rakst á bíl sem
ekið var eftir Sundlaugavegi, féll af
hjólinu en slasaðist ekki alvarlega.
Ásgeir Hannes Eiríksson
„Skilaboð 28. lands-
ámdar Sjálfstæðis-
flokksins eru því bæði
hrein og skýr. Flokkur-
inn hefur þrengt ásjónu
sína og dregið sig sam-
an í litrófí stjórnmál-
anna.“
isfólki inn á ört vaxandi miðju stjórn-
málanna þar sem umburðarlyndi ríkir
ofar íhaldinu í bijóstum fijálslyndra
manna. Svo einföld eru þau skilaboð.
Að minnka áfram
Það verður því hvorki tekist á um
kvóta né búfénað í næstu alþingis-
kosningum. Ekki efnahagsbandalög
eða byggðaþróun. Heldur einungis
um það hversu lengi Sjálfstæðis-
flokkurinn ætlar að halda áfram að
minnka.
Höfundur cr þingmaður fyrir
Borgaraflokkinn.
NOUENCO
NOVENCO
HITABLÁSARAR
Fjölbreytilegir notkunar-
möguleikar fyrir stór og
smá fyrirtæki.
NOVENCO hitablásarar
fást í stærðum frá
4500-40000 kg kal/t
Tenging við hitaveituvatn,
ketilvatn, og gufu.
Þreplaus stilling eða
þriggja hraða stilling.
Fljótvirk hitun og jafnt
loftstreymi.
Möguleikar á inntaki fyrir
ferskt loft til loftræstingar
og inntaki fyrir blandað loff'
nOTHIMIMr
HOFÐABAKKA 9 REYKJAVIK
SÍMI: 685656 og 84530
Askríftarsiminn er 83033