Morgunblaðið - 23.11.1989, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. NÓVEMBER 1989
Bandaríska sendiráð-
inu hótað áður en
sprengjan sprakk
Talið að um samskonar sprengjur
hafi verið að ræða og sprungu í
borginni í september
Rannsóknarlögregla ríkisins vinnur nú að rannsókn á þvi hver
beri ábyrgð á sprengingunni sem varð í húsagarði við Laufásveg
í fyrrakvöld og braut á þriðja tug rúðna í nálægum húsum. RLR
varðist í gær allra frétta af gangi rannsóknarinnar. Sprengjusér-
fræðingar Landhelgisgæslunnar telja að um dínamítsprengju hafi
verið að ræða. Um hádegisbilið í fyrradag, tæpum tíu tímum áður
en sprengingin varð, hafði bandaríska sendiráðinu við Laufásveg
borist sprengjuhótun.
Ekki mun hafa verið gripið til
sérstakra ráðstafana vegna hótun-
arinnar. Vitað er að hringt var
utan höfuðborgarsvæðisins en
ekki mun hafa tekist að rekja sam-
talið. Tveir piltar voru á gangi í
um 20 metra fjarlægð frá
sprengjustaðnum og felldi högg-
bylgjan frá sprengingunni annan
þeirra til jarðar en slasaði hvorug-
an.
Að sögn sprengjusérfræðinga
Landhelgisgæslunnar bendir allt
til að dínamít hafi verið notað í
sprengjuna og að ein túba af því
efni hafi verið sprengd. Sama efni
var notað í sprengjur sem sprungu
við Bergþórugötu og Öldugötu að
kvöldi hins 13. september en talið
er að þær séu fólki lífshættulegar
í um það bil 6 metra fjarlægð.
Sprengjusérfræðingamir hafa
fundið bút af þræði sem notaður
hefur verið í kveikjubúnað
sprengjunnar. Ljóst þykir að hún
hafi sprungið í garði hússins núm-
er 24 við Laufásveg og sjást vegs-
ummerki þess á gangstétt í garði
og á bílskúr við húsið.
Lögreglan hafði vörð í grennd
við sprengistaðinn og nágrenni
hans í gær og fylgdist með manna-
ferðum.
Tveir piltar, nemendur í
Kvennaskólanum — menntaskól^
við Fríkirkjuveg, voru á gangi í
um það bil 20 metra fjarlægð frá
þeim stað þar sem sprengingin
varð. „Við höfðum verið að æfa
leikrit í skólanum og vorum í pásu
á leið að bílnum sem var á Skot-
húsvegi. Allt í einu heyrðist rosa-
leg sprenging og áður en ég vissi
nokkuð Iá ég flatur á jörðinni og
missti veskið mitt, lyklana og gler-
augun," sagði annar þeirra, Jó-
hann G. Friðbertsson. „Þetta var
rosalegur hvellur. Eg hef aldrei
heyrt annað eins. Vegna spreng-
ingarinnar hljótum við að hafa
Morgunblaðið/Júlíus
Sprengjunni hafði verið komið fyrir í kverkinni þar sem veggur-
inn og húsgaflinn mætast. Hurð fyrir dyrunum á myndinni þeytt-
ist inn og dyraumbúnaður skemmdist.
misst heyrn í smástund, því við
heyrðum engar rúður brotna, enga
bíla aka í burt og sáum engan
umgang nema einhveija gangandi
vegfarendur á Fríkirkjuvegi, sem
stoppuðu þegar sþrengingin varð.
Okkur datt ekki í hug að þetta
hefði verið svona alvarlegt fyrr
en við sáum sjónvarpsfréttirnar
klukkan ellefu.“ Jóhann sagði að
hann og félagi hans hefðu farið
aftur á staðinpr um kvöldið, haft
þar tal af lögreglunni og sagt allt
sem þeir vissu um málið.
Samstarfsnefrid atvinnurekenda í sjávarútvegi:
Hafhar verði beinar viðræður
við EB um fríverslun með fisk
ATVINNUREKENDUR í sjávarútvegi vilja að hafnar verði beinar
tvíhliða viðræður við Evrópubandalagið um fríversluh með fisk og
fiskafúrðir og að látið verði reyna á velvilja forsvarsmanna og leiðtoga
í löndunum í þeim efinum, en þeir hafi margir hveijir lýst yfir skilningi
á sérstöðu Islendinga. Telja þeir enga meinbugi á að slíkar viðræður
fari firam jafnhliða viðræðum EFTA og EB, Sem staðið hafa yfir að
undanförnu, um eitt evrópskt efnahagssvæði vegna sameiginlegs innri
markaðar EB í árslok 1992. íslendingar hafa forystu fyrir þeim viðræð-
um til áramóta.
Þetta kom fram á blaðamanna-
fundi, sem Samstarfsnefnd atvinnu-
rekenda í sjávarútvegi boðaði til í
gær, til að kynna skýrslu um íslensk-
Jón sagði að reglulega væri farið
í stöðvarnar til eftirlits. Það hefði
verið gert hálfsmánaðarlega að und-
anfömu en yrði vikulega í vetur.
Olíulekinn sem uppgötvaðist á Bola-
fjalli í síðustu viku hefði einmitt
komið í ljós við slíkt eftirlit. Jón
sagði að á milli eftirlitsferða væri
fjargæsla og við hana kæmi t.d. í
Ijós ef rafmagn færi af stöðinni og
annað slíkt. Valdimar L. Gíslason,
formaður bæjarráðs Bolungarvíkur,
hefur gagnrýnt eftirlitsleysi á fjall-
inu og að heimamenn skyldu ekki
vera látnir vita um olíulekann strax
þegar hans varð vart. Jón sagði að
mannvirkin á Bolafjalli væru á
ábyrgð bandaríska sjóhersins, en
an sjávarútveg og Evrópubandalag-
ið. Aðild að nefndinni eiga öll helstu
samtök í íslenskum sjávarútvegi.
Fram kom að í viðræðuhópi EFTA
ekki Ratsjárstofnunar. Stofnunin
hefði látið sjóherinn vita af lekanum
og einnig vamarmálaskrifstofuna
og það væri þeirra að ákveða hvern-
ig við ætti að bregðast. Jón sagðist
hafa vitað af því þegar hráolía var
flutt á Bolafjall, en fram hefur kom-
ið að starfsmönnum varnarmála-
skrifstofunnar var ekki kunnugt um
það. Hann sagði olíuflutningana á
ábyrgð eigenda stöðvarinnar en ekki
í þágu Ratsjárstofnunar og gæti
stofnunin ekki skipt sér af þeim.
Ratsjárstöðvamar komust einnig
í fréttir vegna sendingar á neyðar-
bylgu sem hefur orðið til þess að
tvisvar á undanförnum vikum hefur
og EB um frelsi í viðskiptum er sjáv-
arútvegur afar aftarlega og að EB
flokkar sjávarútveg með landbúnaði
og vill einskorða umræðuna við frelsi
í viðskiptum með iðnaðarvörur. Hins
vegar séu sjávarafurðir iðnaðarvörur
íslendinga, þar sem þær séu 70-75%
vöruútflutningsins til samanburðar
við 6% vægi í Noregi og 2% í Kanada,
en þessi lönd séu oft borin saman
við ísland. Sérstaða íslands sé því
ótvíræð og markmið okkar hljóti að
vera viðurkenning á henni og frjáls
aðgangur að mörkuðum EB, en á
verið hafin leit í nágrenni stöðv-
anna. Jón Böðvarsson sagði að
merkjasendingin frá stöðinni á
Gunnólfsvíkurfjalli hefði orðið
vegna þess að aðskotahlutur komst
að tækjunum og leiddi saman tvo
póla. Sendingarnar frá Bolafjalli
hefðu verið raktar til bilunar í Qar-
skiptastöð varnarliðsins á Keflavík-
urflugvelli. Í kjölfar þessara óhappa
hefði verið slökkt á þessum tækja-
búnaði og frá því gengið að hann
yrði ekki settur í gang nema með
vitund Ratsjárstofnunar.
Töluverð umferð er upp á Bola-
fjall. Aðspurður um slysahættu þar
sagði Jón að végurinn upp á fjallið
væri einkavegur og til stæði áð setja
upp viðvörunarskilti eða skilti sem
bannaði umferð um hann. Bjóst
hann við að það yrði gert í vor.
Sjá einnig bls. 30: Heilbrigðis-
nefnd krefúr utanríkisráð-
herra svara.
árinu 1988 hafi 63% af útflutningi
sjávarafurða okkar farið þangað. A
því ári námu .tollar á innflutning
íslenskra sjávarafurða til EB-land-
anna 1-1,1 milljarði íslenskra króna.
„Við viljum leggja meiri áherslu
á beinar viðræður við Evrópubanda-
lagið,“ sagði Kristján Ragnarsson
formaður Landssambands íslenskra
útvegsmanna og varaformaður sam-
starfsnefndarinnar. „Við teljum að
það sé líklegra til árangurs að fara
þá leið, heldur en að bíða og sjá
hvað kemur út úr EFTA-viðræðun-
um. Við höfum séð að fiskurinn er
þar neðstur á blaði.“
Kristján sagði að eftir því sem
viðræður drægjust á langinn væru
líkur til þess að staða okkar veikt-
ist. Atvinnurekendur hefðu áhyggjur
af stöðu íslendinga ef þetta yrði
síðasta málið sem tekið yrði til úr-
lausnar í samskiptum EFTA og EB,
þegar búið væri að leysa öll mikil-
vægustu samskiptamál samtakanna,
en sjávarútvegsmálin snertu önnur
lönd í EFTA ekki mikið.
Aðspurður hvort það séu mistök
að óska ekki eftir beinum viðræðum
fyrr, sagði Kristján: „Maður veit
aldrei hvenær er rétta viðhorfið.
Okkur finnst að það hafi komið fram
mjög jákvætt viðhorf, sem sjálfsagt
sé að nýta sér, og mjög mikilvægt
að það gerist áður en þessi markaðs-
heild kemur upp ’92. Það ætti að
vera okkur auðveldara að gera það
núna heldur en þá.“
Hann sagði að atvinnurekendur
hefðu áhyggjur af því að við værum
að falla á tíma. „Því er ekki að leyna
að vilji til samninga við íslendinga
virðist ekki koma fram hjá þessum
skriffinnum í Brussel, en þá þarf að
sækja þann vilja til þeirra sem þessu
ráða, sem eru leiðtogar þessara
bandalagsríkja."
Bandaríski sjóherinn ber
ábyrgð á ratsjárstöðvunum
RATSJÁRSTOFNUN tekur við rekstri ratsjárstöðvanna á Bolafjalli
og GunnólfsvikurQalli síðari hluta næsta árs. Á meðan á byggingu
stendur eru mannvirki og tæki á ábyrgð eiganda þeirra, bandaríska
sjóhersins. Ratsjárstofiiun hefúr þó tekið að sér ákveðlð efitírlit, sam-
kvæmt samningi við bandariska sjóherinn, að sögn Jóns Böðvarsson-
ar framkvæmdastjóra Ratsjárstofiiunar.
*
Ahugi á sam-
vinnu Evrópu-
þjóða í sjón-
varpsmálum
JÓN Baldvin Hannibalsson, ut-
anríkisráðherra, hefúr ritað
frönskum sljórnvöldum bréf þar
sem lýst er áhuga á samvinnu
Evrópuþjóða á sviði sjónvarps-
mála og þátttöku Islendinga í
slíkri samvinnu. I bréfinu grein-
ir utanríkisráðherra frá erindi
sem borist hefúr frá Stöð 2, þar
sem lýst er áhuga á nánu sam-
starfi við franska sjónvarpsstöð;
Kanal Plus.
Bréfið er sent í kjölfar fundar
forsætis- og utanríkisráðherra
með Francois Mitterand, forseta
Frakklands, fyrir skömmu en þar
ræddi forsetinn mikilvægi sam-
vinnu Evrópuríkja á þessu sviði til
eflingar menningu Evrópuþjóða.
Jón Baldvin tekur undir þessi sjón-
armið í bréfinu og segir þetta mál
sem íslendingar þurfi að taka af-
stöðu til.
Utanríkisráðherra telur einnig
að nauðsyn sé að styrkja starfsemi
íslenskra sjónvai-psstöðva, bæði
hvað varðar fjárhag þeirra og dag-
skrárefni.
Skeljavík á
Patreksfirði
kaupir Lýting
NÝTT hlutafélag á Patreksfirði,
Skeljavík hf., hefúr keypt tog-
skipið Lýting frá Vopnafirði.
Skipið verður aflient nýjum eig-
endum í desember.
Lýtingur, sem er um 200 tonn,
hefur verið í eigu Tanga á Vopna-
firði undanfarin tvö ár, en þangað
var hann keyptur frá Djúpavogi.
Skipið er nú á síldveiðum, en verð-
ur afhent nýjum eigendum í des-
ember. Pétur Olgeirsson, fram-
kvæmdastjóri Tanga á Vopnafirði,
segir að kvóti Lýtings sé ígildi
tæpra 500 tonna af þorski, um
120 tonna rækjukvóta og 1100
tonna síldarkvóta á þessu ári. Pét-
ur kvaðst ekki vilja gefa upp verð
skipsins.
Hluthafar í Skeljavík hf. eru
Bjarg hf., Vesturver hf., Fiskiðjan
á Bíldudal og áhöfnin, sem verður
á Lýtingi. Hlutafé er 45 milljónir
króna. Framkvæmdastjóri
Skeljavíkur er Reynir Finnboga-
son.
Selfoss:
Prófkjör
hjá sjálf-
stæðismönn-
um í janúar
Selfossi.
EFNT verður til prófkjörs 20.
janúar á næsta ári um val á
frambjóðendum á lista sjálf-
stæðismanna fyrir bæjarstjórn-
arkosningarnar næsta vor.
Þátttaka í prófkjörinu verður
heimil . öllum flokksbundnum
sjálfstæðismönnum og stuðn-
ingsmönnum flokksins.
Viðhorfskönnun verður 3. og
4. desember meðal flokksmanna
og þeirra sem ganga vilja í flokk-
inn um kandídata í væntanlegu
prófkjöri. í viðhorfskönnuninni
verður fólk beðið að rita 5-10 nöfn
sem það vill sjá á framboðslista
flokksins í bæjarstjórnarkosning-
unum.
- Sig. Jóns.