Morgunblaðið - 23.11.1989, Side 29
Vélsmiðjan Oddi hf.:
Eitthundraðasta
kassaklóin afhent
Frá afhendingu eitthundruðustu kassaklóarinnar, sera Vélsmiðjan Oddi hf. hefur framleitt. Frá vinstri
eru Torfi Gunnlaugsson forstjóri Odda, Guðjón Björnsson vélstjóri hjá ÚA og Gísli Konráðsson fyrrver-
andi framkvæmdastjóri, Sæfangsmennirnir, Smári, Kristján og Svanur Guðmundssynir og Gísli Erlends-
son frá RT-Tölvutækni. _
Borgarafimdur um atvinnumál:
Sé fiillvinnslu sjávarafla sem
stóriðjuverkefini Eyfirðinga
- seg-ir Árni Steinar Jóhannsson deildarstjóri umhverfisdeildar Akureyrarbæjar
ÖFLUGUR Háskóli á Akureyri, stóriðja í Eyjafirði og málefni skip-
asmíðaiðnaðarins voru ofarlega í huga margra fundarmanna, sem
til máls tóku á fjölmennum borgarafundi sem haldinn var í Sjallanum
á Akureyri í fyrrakvöld. Það var atvinnumálanefnd Akureyrar sem
efhdi til ftmdarins eftir að fram hafði komið um það áskorun frá
Starfsmannafélagi Slippstöðvarinnar. Á fundinn komu m.a. allir þing-
menn kjördæmisins og bæjarsfjórn Akureyrar. Fram kom á fundinum
að um 230 manns væru á atvinnuleysisskrá í bænum og hefðu svo
háar tölur ekki áður sést í nóvembermánuði og var því beygur í
mönnum þar sem atvinnuleysi er að jafnaði mest fyrstu mánuði ársins.
VÉLSMIÐJAN Oddi hf. afhenti
Sæfangi hf. í Grundarfirði 100.
kassaklóna, sem framleidd heftir
verið hjá fyrirtækinu. Söluverð-
mæti þeirra kassaklóa sem fram-
leiddar hafa verið á undanförnum
árum er um 65 miiljónir króna og
að baki þeim liggja um 23 þúsund
vinnustundir.
Eyjaljörður:
Félag aldr-
aðra stofiiað
Ytri-Tjömum.
FÉLAG aldraðra var nýlega
stofnað í Eyjafirði, af hrepp-
unum þremur framan Akur-
eyrar. Á fysta fundi, sem
haldinn var í Freyvangi,
gerðust 32 stofnfélagar, en
alls hafa nú um 80 manns
skráð sig í félagið.
Sfjóm félagsins skipa Ang-
antýr Hjörvar Hjálmarsson,
Hrafnagili, formaður, Baldur
H. Kristjánsson, Ytri-Tjörnum,
gjaldkeri, IngibjörgBjamadótt-
ir, Núpufelli, ritari.
Margvísleg mál em á stefnu-
skrá félagsins, m.a. að fólk
komi saman og kynnist, grípi í
spil og skemmti sér á annan
hátt. Þá era fyrirhuguð ferða-
lög yfir sumartímann. Ein aðal-
driffjöðrin í stofnun Félags
aldraðra í Eyjafirði var Svan-
hildur Eggertsdóttir, Holtseli.
Benjamín
Framleiðsla tækja fyrir fiskvinnslu
hófst um 1980 og er upphaf þess
að Gísli Konráðsson þáverandi fram-
kvæmdastjóri Útgerðarfélags Akur-
eyringa kom á framfæri við Odda
hugmynd sem hann, ásamt starfs-
mönnum sínum, hafði þróað. Um var
að ræða kassakló á gaffallyftara til
flutnings á fiskikössum þannig að
ekki þyrfti að nota vörubretti.
Kassaklóin var þróuð hjá Odda og
hefur nú verið seld í flest frystihús
landsins. Um helmingur framleiðsl-
unnar hefur verið fluttur út. í gær
var Sæfangi hf. í Grundarfirði afhent
eitt hundraðasta kassaklóin sem
framleidd hefur verið hjá Odda og
var söluaðili RT-Tölvutækni.
Þrátt fyrir að ástandið sé ekki
sérlega bjart þessa stundina í at-
vinnumálum á svæðinu, sagði Árni
Steinar Jóhannsson deildarstjóri
umhverfisdeildar Akureyrarbæjar,
að menn gætu verið tiltölulega
bjartsýnir, hér væra vel stöndug
sjávarútvegsfyrirtæki. „Það er
þessi boðskapur sem ég hef til fólks-
ins í Eyjafirði. Við skulum þurrka
út hreppamörk, vinna saman frá
Ólafsfirði í vestri til Grenivíkur í
austri, slá saman þessum fyrirtækj-
um sem standa flest vel og hefja
stóriðju í matvælaiðnaði. Við getum
gert það í samráði við gamalgróna
framleiðendur, eins og Abba í
Svíþjóð og Nordsee í Þýskalandi.
Menn þurfa að hafa sambönd og
samvinnu út í hinn stóra heim, en
ég sé fyrir mér fullvinnslu sjávar-
afla sem stóriðjuverkefni sem leiðir
af sér fjölbreytt atvinnulíf á hinum
ýmsu sviðum," sagði Árni Steinar.
Fram kom í máli fundarmanna
að brýnt væri að yerja það sem
fyrir er og nefndi t.d. Heimir Ingi-
marsson bæjarfulltrúi að gífurleg
fækkun hefði orðið á störfum í ull-
ariðnaði á síðustu árum. Hann sagði
að það myndi slaga upp í eitt stykki
álver, ef ullariðnaðurinn yrði á nýj-
an leik allur hér á Akureyri. „Ef
orkufrekur iðnaður verður allur á
Suðurlandi verðum við að krefjast
þess að fá Álafoss heilan til baka,“
sagði Heimir.
Margir nefndu að Eyfirðingar
þyrftu að standa saman og þrýsta
á um stóriðju á svæðinu, en aðrir
vöruðu menn við of mikilli bjartsýni
í þeim efnum auk þess sem stóriðja
leysti ekki það vandamál sem nú
væri við að etjá. Stefán Valgeirsson
alþingismaður sagði Eyfirðinga
hafa álíka mikla möguleika á að fá
stóriðju og að komast undir regn-
bogann og Steingrímur J. Sigfússon
alþingismaður sagði mönnum holl-
ast að búa sig undir að hér kæmi
ekki stóriðja, en ef til kæmi mætti
líta á það sem happdrættisvinning.
Hús Bernörðu Alba:
Síðasta sýn-
ingarhelg'i
UM HELGINA verða síðustu sýn-
ingar Leikfélags Akureyrar á Húsi
Bernörðu Alba eftir Gareia Lorca.
Upphaflega var ráðgert að síðasta
sýning verksins yrði á laugardags-
kvöld, 25. nóvember, en þar sem
troðfulit hús var á báðar sýningarn-
ar um síðustu helgi var ákveðið að
efna til aukasýningar á verkinu á
sunnudagskvöld.
Skipasmíðastöðvar
samkeppnisfærar ef
vaxtaafsláttur fæst
- segir framkvæmdastj óri Samherja
ÞORSTEINN Már Baldvinsson framkvæmdastjóri Samherja á Akur-
eyri sagði á borgarafimdi um atvinnumál sem haldinn var í Sjallan-
um í fyrrakvöld, að veita ætti vaxtaafslátt á þau lán sem veitt eru
vegna smíði skipa innanlands, það væri nákvæmlega það sama og
gert væri í útlöndum. Hann sagði þær íslensku skipasmíðastöðvar
sem vel væru reknar fyllilega samkeppnisfærar í verði við þær er-
lendu ef iðnaðurinn byggi við lán sem bæru 4,5% vexti. „Við búum
hins vegar við þetta séríslenska kerfi, að athyglin beinist fyrst og
fremst að þeim sem gert hafa illa,“ sagði Þorsteinn. Hann sagði einn-
ig mikilvægt að íslensku stöðvarnar fengju bankaábyrgð á verk á
sama hátt og erlendar stöðvar hafa fengið. Mæta þyrfti samkeppni
við erlendu stöðvarnar sem byggju við niðurgreiðslu á sama hátt
hér, en fyrir slíkum niðurgreiðslum væru fordæmi á Islandi.
Þorsteinn Már gerði samanburð
á íslenskum og erlendum skipa-
smíðaiðnaði, og bar saman Oddeyr-
in EA, sem smíðuð var hjá Slipp-
stöðinni og skip sem smíðað var í
Portúgal. Rætt hefði verið um að
til landsins væri að koma fullbúinn
frystitogari sem væri helmingi
ódýrari en Oddeyrin. „Mér leist orð-
ið ekkert á að reka Óddéyrina við
hlið þessa skips,“ sagði Þorsteinn.
Hann sagði að tveimur mánuðum
eftir að þetta skip kom til landsins
hefði hann skoðað það. „Það fyrsta
sem ég tók eftir var að ekkert spil
var í skipinu, engar lestarlúgur
heldur, auk þess voru engar íbúðir
í skipinu og heldur engin vinnslu-
búnaður. Þetta skip er nú farið að
slaga upp í Oddeyrina, en orðið
talsvert dýrara.“
Þetta skip sagði Þorsteinn hafa
verið keypt með aðstoð Byggða-
stofnunar, en sú stofnun hefði helst
haft það fyrir stafni, „að setja pen-
inga eins og í þetta skip og þennan
stað — sem heitir Patreksfjörður“.
Þá nefndi Þorsteinn að á síðasta
ári hefðu 68 milljónir farið frá
Byggðastofnun til Patreksijarðar.
„Þetta fyrirtæki þarna var löngu
farið á hausinn, það þurfti ekki að
bíða fram á árið í ár. Ef Slippstöð-
in hefði fengið þessar 68 milljónir
væri þar allt í fullum gangi, en
þetta er alltaf. spurning um í hvað
eigi að setja peningana."
NÝJAR BÆKUR
Síðasta ferlln
Þatrtci« Bombwi
ALLT STAKAR SÖGUR ás^Én FAANLEGAR 4 i PAKKA A KR. 1.750.