Morgunblaðið - 28.11.1989, Blaðsíða 10
--------------------------------------------MÖRG^NBÍ^MÐ-ÞRyj^ÐÍIátiííM'ÍNÓ^MBÉlÍ'lá
iM
ævisögu Davíðs
Vísir að
______' Bækur____________
Björn Bjarnason
DAVÍÐ, líf og saga.
Höfundur: Eiríkur Jónsson.
Útgefandi: Tákn, Reykjavík,
1989.
195 bls. með fjölda mynda.
Við höfum ekki vanist því Islend-
ingar, að ævisögur manna séu ritað-
ar í óþökk þeirra. Aftast í bók
Eiríks Jónssonar, blaðamanns og
núverandi fréttamanns á Aðalstöð-
inni, um Davíð Oddsson borgar-
stjóra eru birt bréf, sem gengu á
milli höfundarins og söguhetjunnar.
Þar segist Davíð „eindregið andvíg-
ur“ því að um hann sé skrifuð bók
til sölu á almennum markaði um
þessar mundir. Hann skýrir afstöðu
sína með þessum hætti: „Ég tel út
Hbláinn að vera að skrifa slíkar
bækur um menn, sem ekki eru
komnir á miðjan aldur. Skipist mál
hins vegar þannig, að einhver hafí
í framtíðinni áhuga á að skrifa slíka
bók um mína persónu, lifi ég það
að verða gamall maður, þá gegnir
allt öðru máli. Legg ég eindregna
áherslu á, að þú fallir frá hugmynd-
um þínum um slíka bókargerð."
Eiríkur varð ekki við ósk Davíðs
og nú liggur bókin fyrir.
í stuttu máli tekur höfundur
þannig á málum, að hvorugur kem-
ur sár frá þeim leik. Eiríkur er
ekki með neinar getsakir eða gróu-
sögur. Hann beinir athygli sinni
einkum að æsku- og skólaárum
Davíðs og lýsir því af hvílíkum
dugnaði hann komst í fremstu röð
íslenskra stjórnmálamanna. Snýst
bókin einkum um þroskaár Davíðs
og framgöngu hans áður en hann
varð virkur þátttakandi í stjórn-
málum. Er engu líkara en höfundur
hafi átt í vandræðum með að finna
hæfilegan endapunkt á verkið.
Eiríkur fellur ekki í þá gryfju að
vitna óhóflega í nafnleysingja sem
segja kost eða löst á sögupersón-
unni. Heimildarmenn koma yfirleitt
fram undir eigin nafni og fyrir
bragðið leyfir lesandinn sér að ef-
ast um orð hinna sem skýla sér á
bak við nafnleynd. í bókinni er birt
bréf eftir Hannes Hólmstein Giss-
urarson háskólalektor þar sem hann
Eiríkur Jónsson
lýsir stjórnmálamanninum Davíð
Oddssyni. Má segja að það sé ein
heillegasta úttekt á þessum hæfi-
leikum Davíðs í bókinni.
Er ljóst af öllu að Eiríkur og
heimildarmenn hans vænta enn
meira af Davíð í stjórnmálunum en
við höfum kynnst til þessa. Til
marks um hvað kann að vera í
vændum vitnar Eiríkur í Indriða
G. Þorsteinsson, ritstjóra Tímans,
sem segir: „Davíð Oddsson minnir
mig á gæðing sem í stjórnmálalegu
tilliti er bundinn innan við borgar-
hliðin. Hvaða dag sem hann sleppur
út fyrir borgarhliðin og fer út á
þjóðmálavettvanginn mega and-
stæðingar hans fara að vara sig.
Maðurinn er alveg hörkudjarfur í
stjórnmálum og tekur ákvarðanir
út og suður án þess að óttast hið
minnsta um viðhorfið til sín eða hag
sinn í pólitík."
Þeir eru ekki margir stjórnmála-
mennirnir í sögu okkar, sem hafa
fengið þannig dóm frá ritstjóra
andstæðingablaðs, þegar þeir
standa enn í miðri baráttunni og
eiga ef til vill eftir að vinna mestu
stórvirkin. Sá viðmælandi Eiríks
sem er helst í nöp við Davíð er Ingi-
björg Sólrún Gísladóttir, fyrrum
borgarfulltrúi Kve'nnalistans, sem
segir að hann sé „gamaldags stjórn-
andi sem fylgir gömlum hefðum og
tekur sjálfan sig mjög hátíðlega",
hann sitji við borðsendann á fund-
um og vilji stjórna fólki en ekki
stjórna með fólki. Siguijón Péturs-
son, borgarráðsmaður Alþýðu-
bandalagsins, tekur ekki undir þá
skoðun Ingibjargar Sólrúnar að
Davíð sé gamaldags stjórnandi. Er
forvitnilegt að sjá hve það fór fyrir
bijóstið á Ingibjörgu Sólrúnu, að
kunnir listamenn rituðu undir
stuðningsyfirlýsingu við Davíð fyrir
síðustu borgarstjómarkosningar.
Sýnir það mér gamaldags skort á
umburðarlyndi hvernig Ingibjörg
Sólrún talar um það mál og Davíð
og skýrir betur en áður hvers vegna
hann er sérstaklega á varðbergi
gagnvart Kvennalistanum.
Fyrir þá sem hafa lesið blaða-
og timaritsviðtöl við Davíð Oddsson
eða fylgst með viðtalsþáttum við
hann í sjónvarpi kemur ekki margt
nýtt fram í þessari bók Eiríks Jóns-
sonar. Hann dregur upp mynd af
vinnu- og kappsömum stjórnmála-
manni, er fylgist vel með öllu í
kringum sig og hefur tögl og hagld-
ir, þar sem hann hefur haslað sér
vettvang. Ekki er nóg með að
vinnudagurinn sé langur. „Davíð
er einhver eftirsóttasti veislugestur
sem um getur á Iandinu enda er
haft á orði að veisla þar sem Davíð
mætir sé velheppnuð veisla. Sér-
staklega ef hann heldur ræðu og
það gerir hann nærri því undan-
tekningarlaust. Það er líklega ekki
á neinn hallað þegar sagt er að
Davíð Oddsson sé tvímælalaust
besti tækifærisræðumaður sem
fram hefur komið hér á landi hin
síðari ár,“ segir Eiríkur.
Þegar litið er á þessa bók Eiríks
Jónssonar og það sem hann hefur
um söguhetju sína að segja, hvarfl-
ar helst að manni, að erfiðast verði
fyrir Davíð Oddsson að standa und-
ir lofinu sem á hann er borið. Átti
hann þó varla von á því,. þegar
hann stóð í bréfaskriftum við Eirík
Jónsson í vor — eða hvað?
Bókin nær ekki til þeirra atburða
sem gerðust á landsfundi Sjálfstæð-
isflokksins nú í haust, þegar Davíð
hóf með óvenjulegum glæsibrag að
rita nýjan kafla í stjómmálasögu
sína. Við eigum auðveldara að fylgj-
ast með framhaldinu með bók Eiríks
Jónssonar að veganesti.
Minningabrot einstæðings
Bókmenntir
Jóhanna Kristjónsdóttir
Vilhjálmur Hjálmarsson: Frændi
Konráðs, foðurbróðir minn
Ævisaga Hermanns Vilhjálms-
sonar frá Brekku
Útg. Æskan 1989
Margir Reykvíkingar muna eftir
lágvöxnum manni, yfirleitt tötra-
lega klæddum og ekki þrifalegum
sem árum saman vann við götusóp-
un í bænum. Hann gekk einatt
undir nafninu Hemmi króna eða
Hemmi maur. í fljótu bragði séð
virtist hann ekki beinlínis geðsleg-
ur, oft viðskotaillur enda var honum
oft strítt og því tók hann af van-
máttugri reiði sem kannski espaði
hugsunarlausa krakka til að senda
honum enn hressilegar tóninn.
Um þennan sérkennilega ein-
stæðing hefur Vilhjálmur Hjálmars-
son, bróðursonur hans, nú gert bók,
sem byggir á minnisbrotum Her-
manns sjálfs, en þau las hann inn
á segulband allra síðustu æviár, svo
og ýmsu því sem Vilhjálmur hefur
skrifað eftir honum og rifjar upp.
Hermann náði aldrei fullum
líkamlegum burðum, hafði dapra
sjón og geðslag hans var honum
lengstum fjötur um fót. Á yngri
árum var hann að sögn Vilhjálms
hið mesta snyrtimenni. Hann lærði
ungur bakaraiðn og áður hafði hann
Iagt sig eftir að Iæra á orgel. Hann
virðist hafa gefið bakarastarfið frá
sér — eða það hann — vegna þess
að það virðist hafa staðið honum
fyrir eðlilegum þrifum alla tíð
Vilhjálmur Hjálmarsson
hversu örðugt hann átti með að
lynda við menn. Þó reyndust ýmsir
honum vel og sýndu honum þolin-
mæði og hlýju, einnig eftir að hann
komst á efri ár og sjúkleg söfnunar-
ástríða heijaði á hann. Sú árátta
varð meðal annars til þess að hvað
eftir annað varð að neyða hann til
að moka út mörgum hlössum af
drasli og óþverra úr híbýlum sínum.
Því fólki sem sýndi honum notalegt
viðmót var hann þakklátur á sinn
hátt.
Af lestri þessarar bókar lærir
maður að margt og margir eru
öðruvísi en augað sér og eru það
út af fyrir sig ekki nein frumleg
sannindi. En þau eru alltaf holl í
sjálfu sér. Hermann var aðhalds-
samur í peningamálum eins og þeir
vissu sem þekktu til hans. En af
bókinni að dæma var hann einnig
fróður um margt og vel lesinn.
Hann leit mjög upp til þeirra sem
hann taldi til heldri manna. Vil-
hjálmur segir að Hermann hafi ver-
ið mjög áfjáður í að gefa út ævi-
sögu sína. Væntanlega er það sérís-
lenskt fyrirbrigði að ævisaga ein-
stæðings á borð við Hemma maur
sé gefin út undir handleiðslu frænda
hans og fyrrverandi ráðherra.
Vilhjálmur hefur unnið verkið af
vandvirkni og veiviija sem er góðra
gjalda vert. Hann hefði átt að
sleppa bróðurparti !-merkjanna. !
er vandnotað greinarmerki. Annars
er bókin einkar þokkalega úr garði
gerð.
■ OLIVER TWIST eftir Char-
les Dickens er komin út í fjórðu
útgáfu hjá Æskunni í þýðingu
Hannesar J. Magnússonar fyrrum
skólastjóra. Bókin var fyrst gefin
út 1943.
■ BÓKA ÚTGÁFAN Forlagið
hefur sent frá sér þijár nýjar bæk-
ur í ritsafnmu Ævintýri barnanna.
Þær eru Öskubuska, Stígvélaði
kötturinn og Aladdín og töfra-
lampinn. Þorsteinn skáld frá
Hamri hefur þýtt og endursagt öll
ævintýrin. í kynningu segir meðal
annars: „Gömlu góðu ævintýrin eru
alltaf í fullu gildi hér og eru sögð
sígild ævintýri sem börn hafa
skemmt sér við kynslóð fram af
kynslóð.
GIMLIGIMLI
Þorsgata 26 2 hæö Simi 25099 ^ Þorsgata 26 2 hæö Simi 25099 ^
2f 25099
Einbýli og raðhús
PARHUS - MOS.
Fallegt ca 110 fm parh. á einni hæð ásamt
ca 26 fm bílsk. Húsið er mjög vandað
nánast fullb. Ákv. sala.
VANTAR RAÐHUS
Höfum fjársterka kaupendur að
raðhúsum í Grafarvogi, Seljahverfi
eða Seláshverfi eignin má vera á
byggingastigi.
VESTURVANGUR - HF.
Glæsil. einbhús á tveimur hæðum ásamt
tvöf. bílsk. Húsið er alls 440 fm. Séríb. á
neðri hæð. Arinn í stofu. Parket. Skipti
mögul. á minni eign.
VESTURBÆR - KÓP.
Ca 196 fm parh. á tveimur hæðum með
innb. bílsk. 3 stofur, 4 svefnherb., arinn.
Skipti mögul. á ódýrari eign.
í smíðum
PARH. Á FALLEGUM
ÚTSÝNISSTAÐ
Glæsil. ca 190 fm parh. á einum besta
útsýnisstað í Grafarvogi. Afh. frág að utan
fokh. að innan.
VEGHÚS - 2JA
EINSTÖK KJÖR
Eigum skemmtil. 2ja herb. íb. í nýju
glæsil. fjölbhúsi. Verð 4,2-4,5
miiij. Kjör - Dæmi: Við samning
100-200 þús., með láni frá hús-
næðisstj. 4,1 millj., eftirst. sam-
komutag ef einhverjar eru.
3ja herb. íbúðir
ÆSUFELL
Ca 87 fm íb. á 7. hæð í lyftuh. Fallegt
útsýni. Verð 4,7-4,8 millj.
ENGJASEL - BILSK.
- GLÆSIL. ÚTSÝNI
Guilfalleg 100 fm nettó 4ra herb.
íb, á 2, hæð ásamt stæði í mjög
góðu bilskýli. Vandaðar innr. Laus
fljótl. Áhv. ca 2 millj. V. 6360 þ.
VESTURBÆR - LAUS.
Glæsil. 4ra-5 herb. íb. á 3. hæð.
Belki-parket. Gufubað ( sameígn.
Hagst. áhv. lán allt að 1,8 millj.
Laus fljótl. Verð: Tiiboð.
VANTAR
GRAFARV.
3JA -
- SELÁS
Höfum fjársterkan kaupanda að
góðri 3ja-4ra herb. fb. í Grafarvogi
eða Selási. Þarf ekki að vera fullb.
KARFAVOGUR
Stórglæsil. 3ja hérb. íb. í kj. Öll uppgerð.
Hagst. lán. Verð 5,4 millj.
VESTURBÆR
Falleg 3ja herb. íb. á 1. hæð í góðu steinh.
Nýtt gler og parket. Verð 4,7 millj.
SKIPHOLT
Falleg 3ja herb. 96 fm nettó íb. á jarðh.
með sérinng. Nýtt eldh. Skuldlaus.
VESTURBERG
Falleg 3ja herb. íb. á 3. hæð. Nýtt parket.
Verð 4,6 millj.
NJÁLSGATA
Falleg miðhæð í járnklæddu timburh.
Þríbýli. Nýtt rafmagn. Endurn. bað. Eign
í toppstandi.
RAUÐARÁRSTÍGUR
Glæsil. 3ja herb. íb. á 2. hæð ásamt auka-
herb. í risi. Öll nýstandsett.
VÍKURÁS - 3JA
Stórglæsil. 84 fm nettó íb. á 3. hæð í
nýju fjölbhúsi. Parket á gólfum. Glæsil.
flísal. baðherb. Áhv. ca 700 þús. Eign í
sérflokki. Verð 5,7 millj.
ÞINGHOLTIN - NYTT
- 4RA + BÍLSK.
Ný 4ra herb. íb. á 2. hæð ásamt innb.
bílsk. Skilast tilb. u. trév. að innan. Afh.
fljótl. Hagst. verð. Verð aðeins 6,2 m.
STUÐLABERG - RAÐH.
Fallegt 132 fm raðh. á tveimur hæðum
ásamt bílsk. Afh. fullfrág. að utan, fokh.
að innan. Verð aðeins 5,9 millj.
5-7 herb. íbúðir
BUGÐULÆKUR
Góð 5 herb. íb. á 2. hæð í fallegu fjórb-
húsi. Tvöf. verksmiðjugler. 3 herb., 2 stof-
ur. Skuldlaus.
KARLAGATA -
MIKIÐ ÁHVÍLANDI
5 herb. íb. á tveimur hæðum með öllu
sér. 3 svefnherb., 2 stofur. Áhv. ca 3,3
millj. langtl.
HRAUNBÆR
Ca 120 fm nettó 5-6 herb. íb. á 3. hæð
í góðu fjölbhúsi ásámt aukaherb. í kj.
Tvennar svalir. Ákv. sala. Verð 6,8 millj.
ÁLFHÓLSVEGUR
Falleg 5 herb. hæð í góðu þríbhúsi. Sérþv-
hús. Bflsksökklar. Glæsil. útsýni. V. 7,8 m.
4ra herb. íbúðir
HOLAR - BILSK.
MIKIÐ ÁHVÍLANDI
Falleg ca 108 fm nettó óvenju rúmg. 4ra
herb. íb. á 2. hæö. Áhv. allt aö kr. 4
millj. Verð 6,7-6,8 millj.
VINDAS - BILSK.
Stórgl. 3ja herb. íb. á 1. hæð ásamt
stæði í bílskýli. Parket. Stórgl. bað-
herb. Suðurgarður. Áhv. 1800 þús.
langtímalán. Verð 6,7-5,8 millj.
HRAUNBÆR - UTSYNI
Falleg 3ja herb. íb. á 2. hæð m/vestursv.
Ákv. sala. Verð 4,9 millj.
2ja herb. íbúðir
LAUGARNESVEGUR
- HAGST. LÁN.
Glæsil. 70 fm ib. á 1. haeð i nýju
húsi. Mjög vandaðar innr. Parket.
Sérbílastæöi. Áhv. 2,2 millj. hagst.
lán.
BOÐAGRANDI
Falleg 2ja herb. íb. á 8. hæð í lyftuh.
Glæsil. útsýni. Verð 4,5 millj.
KRUMMAHÓLAR -
ÚTB. 1100 ÞÚS.
Falleg ca 60 fm 2ja herb. íb. á 5.
hæð. Bflskýll. Áhv. ca 3300 þús.
Verð 4,4 millj.
KJARTANSGATA - LAUS
Falleg 4ara herb. íb. í kj. Nýtt ger. End-
urn. bað og teppi. Verð 4,8 millj.
LANGHOLTSVEGUR
- GLÆSIL. RISHÆÐ
Glæsil. 4ra herb. mikið endurn risíb. 90
fm nettó. Nýtískulegar innr. Skipti mögul.
á 2ja herb. ib. Verð 6,8 millj.
FÍFUSEL - 4RA.
Glæsil. 4ra herb. ib. á 3. hæð. Góðar innr.
Suðursv. Eign í ákv. sölu.
HRAUNBÆR - LAUS
Góð 4ra herb. endaíb. á 3. hæð. Suð-
ursv. Áhv. ca 1350 þús hagst. lífeyrissjl.
Verð 5950 þús.
VESTURBERG
Falleg 4ra herb. íb. á jarðhæð 95 fm
nettó. Sérgarður. Laus fljótl. Lítið áhv.
Verð 5,3 millj.
KARASTIGUR - 2JA
- GLÆSIL. ÍBÚÐ
Glæsil. 3ja herb. íb. í kj. Lítið niðurgr. í
einu fallegasta timburhúsinu í Þingholtun-
um. íb. er endurn. í hólf og gólf sem og
hús að utan. Eign í sérfl. Verð 4,2-4,3
millj.
AUSTURBERG - 2JA
- HAGST. LÁN
Falleg 2ja herb. íb. á 2. hæð með suðursv.
Áhv. ca 2350 þús. við veðd. Ákv. sala.
ÞVERBREKKA
Falleg 2ja herb. íb. á 3. hæð í lyftuhúsi.
Glæsil. útsýni. Verð 3,7 mlllj.
LINDARGATA
2ja herb. nýstandsett gullfalleg íb. á jarðh.
Nýtt á gólfum o.fl. Laus strax. Verð 3,2
millj.
ÞVERBREKKA
Falleg 63 fm nettó íb. á 1. hæð með sér-
inng. í tveggja hæða fjölbhúsi. Suðurgarður.
GRAFARV. - BÍLSK.
Ný 61 fm íb. 2ja-3ja herb. á 3. hæð ásamt
uppsteyptum bílsk. Áhv. ca 2,2 millj.
hagst. lán. Verð 5,950 millj.
JÖKLAFOLD - BÍLSK.
- 30% ÚTB.
Glæsil. 2ja-3ja herb. íb. á 3. hæð ásamt
fokh. bílsk. Áhv. nýtt lán frá húsnstj. ca
4,1 millj.
SPÓAHÓLAR
Falleg, rúmg. 2ja herb. íb. á 1. hæð m/suð-
urgarði. Parket. Verð 4,350 millj.
VANTAR - 2JA
- STAÐGREIÐSLA
Höfum fjárst. kaupanda að 2ja
herb. fb. í Reykjavlk eða Kópavogi.
Nánast staðgreiðsla.
TRYGGVAGATA
Góð einstaklíb. með parketi ca 35 fm á
3. hæð með faliegu útsýni. Laus strax.
Verð 2,5 millj.
Árni Stefánsson, viðskiptafr.