Morgunblaðið - 28.11.1989, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 28.11.1989, Blaðsíða 4
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. NÓVEMBER 1989 Samkomu- lag í deilu flugvirkja og ríkisins Morgunblaðið/PPJ Komið úr fyrsta fluginu á vél Flugmálastjórnar í gær, Guðjón Valdimarsson deildarstjóri flugprófiinardeildar Flugmálastjórnar og flugstjórarnir Siguijón Einarsson og Snæbjörn Guðbjörnsson. SAMKOMULAG hefúr náðst til bráðabirgða í deilu Flug- virkjafélags Islands og sam- gönguráðuneytisins um launa- kjör tveggja flugvirkja hjá Flugmálastjórn íslands. Sam- gönguráðuneytið hefúr skipað neftid sem gera mun úttekt á störfúm flugvirkjanna og meta að hve miklu leyti starf þeirra tengist flugvirkjun. Nefndin á að skila áliti fyrir næstu ára- mót. Vegna deilunnar hefur ekki verið unnt að prófa blindflugs- tæki á flugvöllum landsins. Flug- vél Flugmálastjómar, sem fram- kvæmir prófanir á blindflugs- tækjum, hefur verið í lamasessi vegna verkfalls flugvirkja við stofnunina. Að sögn Péturs Einarssonar flugmálastjóra er verið að prófa blindflugstæki á Reykjavíkur- flugvelli og því næst verða blind- fiugstæki á Keflavíkurflugvelli yfirfarin. Hann sagði að annir væru framundan við prófanir á blindflugstækjum á flugvöllum víðs vegar um landið. Þrátt fyrir takmarkanir á blindflugsheimildum að undan- fömu vegna þessa ástands hefur innanlandsflug ekki farið úr skoðram nema að litlu leyti vegna þess hve veður hefur ver- ið gott í nóvember. VEÐURHORFUR íDAG, 28. NÓVEMBER. YFIRLIT í GÆR: Hæg breytileg átt og þurrt um austanvert landið en farið að þykkna upp með suðaustangolu eða kalda vestan- lands. Enn var vægt frost á stöku stað, einkum inn til landsins, en kominn allt að 8 stiga hiti á vestustu annesjum. SPÁ: Suðvestanátt, kaldi eða stinningskaldi með slydduéljum á Suðvestur- og Vesturlandi en björtu veðri norðaustantil. Hiti 0—5 stig. I/EÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR Á MIÐVIKUDAG: Stíf sunnanátt og htýindi um allt land. Þurrt á Norðausturlandi en súld eða rigning í öðrum landshlutum. HORFUR Á FIMMTUDAG: Suövestanátt og kólnandi veður í bili. Slydduél sunnanlands og vestan en bjart veöur á Norðausturlandi og Austurlandi. x Norðan, 4 vindstig: ' Vindörin sýnir yind- stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. / / / / / / / Rigning / / / * / * / * / * Slydda / * / * * * * * * * Snjókoma * * * ■JQ° HHastig: 10 gráður á Celsíus ý Skúrir * V El = Þoka = Þokumóða ’, ’ Súld OO Mistur —J- Skafrenningur Þrumuveður VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að fsl. tíma h'rti veftur Akureyri +4 skýjað Reykjavik 3 skýjaö Bergen +1 léttskýjað Helsinki +14 snjókoma Kaupmannah. 6 rigning Narssarssuaq skýjað Nuuk vantar Osló 5 léttskýjað Stokkhólmur +1 snjóél Þórshöfn 5 alskýjað Aigarve 18 hálfskýjað Amsterdam 9 skúr Barcelona 15 þokumófta Berlín 4 rigníng Chicago 6 alskýjað Feneyjar 5 þokumóða Frankfurt 3 skýjað Glasgow +2 þokuruðningur Hamborg 8 rigning Las Palmas vantar London 5 mistur Los Angeles 12 skýjað Lúxemborg 5 léttskýjað Madrid 12 skýjað Malaga 20 skýjað Mallorca 18 skýjað Montreal +13 léttskýjað New York vantar Orlando vantar París vantar Róm 11 heiðskírt Vín 2 alskýjað Washington 3 þokumóða Winnipeg +19 skýjað Hermálanefnd NATO: Varnir Islands voru kynntar herforingjum Brussel. Frá Kristófer M. Kristinssyni fréttaritara Morgunblaösins. FULLTRÚAR variiarmálaskrifstofú utanríkisráðuneytisins og varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli gerðu í gær hermálanefiid Atl- antshafsbandalagsins grein fyrir vörnum Islands og öðrum við- búnaði sem varðar öryggi landsins. Arnór Siguijónsson varnar-' málaráðunautur sagði að þetta væri í fyrsta skipti sem íslending- ar gerðu grein fyrir stöðu og fyrir- komulagi varna sinna á þessum vettvangi. Fund hermálanefndar- innar sátu að þessu sinni formenn herráða aðildarríkja NATO. Arnór sagði að á fundinum hefðu verið kynntar varna- og liðsaukaáætlan- ir sem varða ísland jafnframt því sem gerð hefði verið grein fyrir nauðsyn samræmingar þeirra við aðrar áætlanir, s.s. almannavarn- ir. Herráðsforingjunum hefðu og verið kynntar loftvamir íslands, landvarnir og hlutverk landsins í eftirliti með ferðum kafbáta. Gerð var grein fyrir endurnýjun varnarmannvirkja og nýbygging- um ratsjárstöðva á Islandi. Arnór sagði að kynningin væri liður í virkari þátttöku Islendinga í her- málasamstarfi innan NATO. Hann sagði að af undirtektum fundar- manna væri ljóst að þetta hefði verið tímabært. „Það er mikilvægt að bandamenn okkar fylgist með aðstæðum og viðbúnaði á Islandi," sagði Amór. Þorsteinn Ingólfsson, skrifstofustjóri varnarmálaskrif- stofu, sótti fundinn ásamt Thomas Hall, yfirmanni vamarliðsins á Keflavíkurflugvelli, sem tók þátt í kynningunni. Tillögur um vanda loðdýraræktar: Samkomulag við ráð herra Alþýðuflokks -segir landbúnaðarráðherra STEINGRÍMUR J. Sigfússon land- búnáðarráðherra segir að sam- komulag hafi tekist milli hans og ráðherra Alþýðuflokksins um til- lögur varðandi aðstoð við loð- dýrabændur. Ráðherramir iúnd- uðu um málið um helgina, en á ríkisstjórnarfúndi á fimmtudag- inn deiidu þeir um með hvaða hætti ætti að koma loðdýrabænd- um til aðstoðar. Aðspurður sagð- ist Steingrimur ætla að Ieggja samkomulagsgrundvöllinn fram á ríkisstjórnarfúndi í dag, og sagð- ist hann vonast til að hann yrði samþykktur þar. „Við ræddum þessi mál og reynd- um að finna einhveija sameiginlega lendingu í þessu, því annaðhvort kemst málið fram hér sem stjómar- frumvarp eða ekki. Ég mun leggja það fram á ríkisstjórnarfundinum, sem ég tel vera mögulegan sam- komulagsgrundvöll eftir þessar við- ræður. Eg tel þennan samkomulags- grundvöll vera skárri en engan, þó hann sé reyndar ekki að mínu skapi, en ég mun að sjálfsögðu bera ábyrgð á honum ef ég legg hann fram. Það er orðið löngu tímabært að fá botn í þetta mál, og af tvennu illu er betra að fá botn í það heldur en að halda því áfram svona,“ sagði Steingrímur. Steingrímur neitaði að gefa upp í hveiju samkomulagsgrundvöllurinn væri fólginn, en sagði þó að búið væri að skera niður upphaflegu til- lögurnar, sem hann lagði fyrir ríkis- stjórnina, en þær fólu meðal annars í sér ríkisábyrgð á um 60% af lausa- skuldum bænda og allt að 100 millj- óna króna ríkisframlag til niður- greiðslu á loðdýrafóðri á næsta ári. „Ég tel engu að síður að þetta ætti að geta komið að miklu gagni og í öllu falli á það að geta hjálpað fólkinu að endurskipuleggja fjárhag sinn og gefa því einhveija möguleika til að komast frá þessu án þess að verða unnvörpum gjaldrota, eins og annars blasir við. Hins vegar er það Ijóst að það verður kannski síður fýsilegt fyrir jafnmarga að halda áfram eins og ég hafði þó vonast til,“ sagði Steingrímur J. Sigfússon. Olíulekinn á Bolafjalli: Olíunni eytt í Bol- ungarvík Bolungarvík. OLÍUMENGAÐUR snjór var fluttur af Bolaíjalli til Bol- ungarvíkur fyrir og um helg- ina. Snjórinn verður hreins- aður einhvern næstu daga og oliunni eytt. Um helgina var lokið við að flytja snjóinn niður af fjallinu. Allur snjór í tíu metra radíus frá enda rörsins á fjallsbrún- inni þar sem olían lak, var tek- inn og fluttur á vörabílum nið- ur í Bolungarvík. Þar er hann geymdur í olíuporti Olíufélags- ins Skeljungs. I dag eða á morgun verður hafist handa við að eyða olíunni. Gunnar Gamli miöbærinn: Samræmdur afgreiðslu- tími verslana fyrir jólin MIÐBÆJARSAMTÖKIN Gamli miðbærinn hafa sent frá sér erindi til félaga sinna þar sem mælt er með samræmdum afgreiðslutíma verslana í miðbæ Reykjavíkur fyrir jólin. Þar er mælt með að laugardaginn 2. desember verði verslanir opnar klukkan 10.00 til 16.00, laugardag- inn 9. desember verði opið klukkan 10.00 til 18.00, laugardaginn 16. desember verði opið klukkan 10.00 til 22.00, föstudaginn 22. desember verði opið klukkan 9.00 til 22.00 og laugardaginn 23. desember, á Þorláksmessu, verði opið klukkan 10.00 til 23.00.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.