Morgunblaðið - 28.11.1989, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 28.11.1989, Blaðsíða 43
43 MQRpyN^LAÆ)IS ÞRlÐjUflAfiÚúif^- ?ý()yKMBEK:}9X9 Minning: Lára Valdadóttir Fædd 28. október 1901 Dáin 19. nóvember 1989 Útför Láru Valdadóttur fór fram í kyrrþey frá Garðakirkju þann 27. nóvember síðastliðinn. Elskuleg tengdamóðir mín fékk friðsælt andlát, með þau orð á vör- unum að hón hefði átt góðan dag í faðmi fjölskyldunnar. Foreldrar hennar voru Valdi Jónsson á Steinum undir Eyjafjöll- um, síðar sjómaður í Vestmannaeyj- um, og Sigurborg Eyjólfsdóttir frá Rauðafelli. Lára var alin upp á Miðgrund undir Eyjaíjöllum hjá Eyjólfi Jónssyni og Jóhönnu Gunn- steinsdóttur. Lára giftist Helga Jónssyni full- trúa og verslunarmanni og ólu þau upp sjö börn. Heimili Láru og Helga var félagsheimili ijölskyldunnar allrar og hélst það eftir lát Helga. Helgi Jónsson lést árið 1969, var það Láru mikill missir, því hann var henni allt. Lára var myndarleg húsmóðir. Ef gest bar að garði var hún ekki sein á sér að bregða upp pönnunni og baka nokkrar pönnukökur og þar var eingöngu notað „íslenskt smjör“ eins og hún sagði alitaf. Margar setningar og orðatiltæki tamdi hún sér og fastar venjur hafði hún en allir sem minnast hennar þekkja þær vel, það vakti traust. Hún var hinn fasti punktur Ijöl- skyldunnar og bjó hún henni glæsi- legt heimili þar sem allt var með myndarbrag. Lára var heilsuhraust um ævina en hin síðari ári sótti þó í það horf, að hún gat ekki séð um sig sjáif og var svo komið að hún þurfti á skjóli að halda. Það fékk hún á hjúkrunarheimilinu Skjóli síðasta árið sem hún lifði. Þar leið henni vel og var unun að heimsækja hana þangað. Hún spurði frétta og vildi fylgjast með afkomendum sínum sem eru orðnir 59 talsins. Hún helg- aði sig heimili og barnauppeldi alla sína ævi, þegar hún hafði alið upp sín eigin börn tóku barnabörnin við. Lára bjó í Reykjavík allan sinn bú- skap, lengst af.á Réttarholtsvegi 43. Ég er þakklát fyrir þá tengda- móður sem ég eignaðist og þau kynni er ég hafði af henni. Guð blessi minningarnar um vandaða og góða sómakonu. Ólöf S. Eysteinsdóttir Yfírlýsing ft*á íslendingafélag- inu í Færeyjum: Bjarni Péturs- son hreinsað- ur af öllum sakargiftum MORGUNBLAÐINU hefur borizt eftirfarandi yfirlýsing frá vara- formanni og gjaldkera Islend- ingafélagsins í Færeyjum, þeim Sigurbirni Guðmunssyni og Gísla Jónssyni. Yfirlýsingin er tilkomin vegna deilna um happdrætti fé- lagsins í Færeyjum síðastliðið sumar: „í sumar var í íjölmiðlum fjallað um íjármál íslendingafélagsins og fyrrverandi formaður þess, Bjarni Pétursson, sakaður um svo ólíklegt athæfi sem þjófnað. Er þessar ásak- anir komu fram, var það metið rétt- ast að biðja löggiltan endurskoð- anda (Endurskoðunarskrifstofuna JS) að kanna bókhald félagsins og færa reiknisyfirlit yfir ijárreiður vegna happdrættisins. Er niður- staðan lá fyrir ákvað nefnd á vegum félagsins, sett vegna málsins, að greiða ijölmiðlum frá henni í sam- ræmi við sannleikann. Þar kemur skýrt fram að Bjarni Pétursson er fullkomlega hreinsað- ur af öllum ásökunum um að hafa stolið fé frá félaginu. Þvert á móti er það félagið, sem skuldar honum fé, er hann hefur lagt út vegna þess.“ Blómostofa Friðfinns Suðurlandsbraut 10 108 Reykjavík. Sími 31099 Opið öll kvöld til kl. 22,- einnig um helgar. Skreytingar við öil tilefni. Gjafavörur. t Eiginmaður minn, SIGURÐUR MAGNÚSSON frá Halsbæ, Hellissandi, lést í Landspítalanum 26. nóvember. Jarðarförin auglýst síðar. Guðrún Jónasdóttir. t Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langa- langamma, LÁRA VALDADÓTTIR, Réttarholtsvegi 43, lést sunnudaginn 19. nóvember. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Erla V. Helgadóttir, Jón Helgason, Rakel Sæmundsdóttir, Rafn V. Helgason, Þórdfs Helgadóttir, Tómas Helgason, Guðrún Helgadóttir, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn. Óskar Hallgrímsson, Karóiína Eiriksdóttir, Bjarni Árnason, Ólöf S. Eysteinsdóttir, Pétur Bjarnason, Móðurbróðir minn, + SÖRENSÖRENSSON, Akurgerði 23, verður jarðsunginn frá Fossvogskapellu fimmtudaginn 30. nóv- ember kl. 15.00. Aðalheiður Sigurðardóttir. t Útför móður minnar, SIGRÍÐAR SVÖVU GUÐMUNDSDÓTTUR, Kjartansgötu 4, fer fram frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 30. nóvember kl. 13.30. Þeim, sem vildu minnast hennar, er vinsamlegast bent á Land- spítalann eða Krabbameinsfélag íslands. Ragnar Kristinn. + Systir okkar, ÁSTA SIGRÍÐUR HALLDÓRSDÓTTIR frá Bolungarvík, Skipholti 51, Reykjavík, sem andaðist í Landakotsspítala 22. nóvember verður jarðsungin frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 29. nóvember kl. 15.00. Margrét Halldórsdóttir, Guðríður Halldórsdóttir. + Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, VIÐAR HJALTASON véismiður, Heiðarhrauni 9, Grindavík, andaðist í Borgarspítalanum 25. nóvember. Sigrún Kjartansdóttir, Ólöf Guðrún Viðarsdóttir, Andrés Ari Ottósson, Laufey Viðarsdóttir, Björn Leósson. Kjartan Viðarsson, Viðar Andrésson, + Útför JÓRUNNAR STEFÁNSDÓTTUR, Hátúni 10, ferframfrá Fossvogskirkju miðvikudaginn 29. nóvember kl. 13.30. Hrönn Aðalsteinsdóttir, Gunnar Bjarnason og barnabörn. + Innilegar þakkir til allra þeirra sem auðsýndu okkur samúð og vináttu við andlát og útför, BENÓNÝS GUÐJÓNSSONAR frá Bæ. Aðstandendur. + Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför föður okkar, tengdaföður og afa, JÓNS KARLSSONAR, Múla, Álftafirði. Börn, tengdabörn og barnabörn. + Hugheilar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför, SIGRÚNAR MAGNÚSDÓTTUR hjúkrunarkonu, Fyrir hönd vandamanna, Andrés Ásmundsson, Guðmundur Pétursson. + Innilegt þakklæti fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför eiginmanns míns, föður, tengdaföður og afa, BERGS HAUKDAL ÓLAFSSONAR, Heiðarbæ 11. Elfsabet Lárusdóttir, Ólafur Haukdal Bergsson, Guðbjörg Ingibergsdóttir, Bergur Haukdal Ólafsson. + innilegar þakkir til allra sem auðsýndu okkur samúð og vinarhug vegna andláts móður okkar, tengdamóður, systur og ömmu, ELÍNAR ÓLAFS DREYER. Halldóra Árnadóttir, Pétur Hauksson, Linda E. Dreyer, Charles Hochbaum, Sigríður Ólafsdóttir, Adda Barrows, John Barrows og barnabörn. + Hugheilar þakkir sendum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og vinarhug við fráfall og jarðarför ÁGÚSTU JÓNSDÓTTUR, Suðurgötu 83, Hafnarfirði. Skarphéðinn Helgason, Árni Rosenkjær, Guðrfður Karlsdóttir, Karl Rosenkjær, Selma Guðnadóttir, Guðrún Hildur Rosenkjær, Ágústa Ýr Rosenkjær, Jóhann Viðarsson, Guðný Birna Rosenkjær, Sigurjón Einarsson og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.