Morgunblaðið - 28.11.1989, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR,28. hjÓy,EMJBgR, 1,989
f KRAKKAR!
AAUNÍÐ
AÐ BURSTA
.TENNURNAR
Reuter
Lsiug austur-þýskra kommúnistaleiðtoga
Vestrænir fréttamenn fengu í fyrsta sinn að koma inn í afgirta húsaþyrpingu fyrir leiðtoga austur-þýska
kommúnistaflokksins fyrir utan Austur-Berlín í gær. Á myndinni sést sundlaugarvörður fyrir framan laug
leiðtoganna.
Möltu-fundur leiðtoga risaveldanna:
Aukin efiiahagssamvinna
helsta krafa Gorbatsjovs
Sovétríkin:
Gorbatsjov ver
marxismann og
alræði eins flokks
Moskvu. Reuter.
ÞOTT sovéska heimsveldið virðist vera að hrynja til grunna er
Míkhaíl Gorbatsjov, forseti Sovétríkjanna, jafh viss og áður um
yfirburði sósíalismans. Kemur það fram í langri grein, sem hann
skrifaði í Prövdu, málgagn konnnúnistaflokksins, á sunnudag en
þar vísar hann á bug öllum vangaveltum um aðrar leiðir og seg-
ir þær vera tilgangslausa draumóra.
I greininni víkur Gorbatsjov að
þeirri gagnrýni, að í hinni nýju
stefnu, „perestrojkunni“, sé ekki
að finna neina leiðarvísa fyrir
framtíðina og segir, að það sé
ógjömingur að neyða upp á þjóð-
félagið heimasmíðuðum hugmynd-
um, að það sé ekki hægt að laga
lífið sjálft að dagdraumum ein-
stakra manna. Hann segir hins
vegar, að nú sé komið að því að
hefja aftur til vegs og virðingar
hugsjónir marxismans og þær
lausnir, sem hann býður upp á.
Gorbatsjov nefndi ekki þróunina í
Austur-Evrópu þar sem kommúni-
staflokkarnir eru að leggja upp
laupana hver um annan þveran
Moskvu, Washington. Reuter.
MIKHAÍL S. Gorbatsjov, leiðtogi sovéska kommúnistaflokksins, hyggst
einkum leggja áherslu á að ríki Vesturlanda slaki á reglum sínum um
viðskipti við Sovétríkin er hann heldur til fúndar við George Bush
Bandaríkjaforseta um næstu helgi. Bush forseti hefiir hins vegar boðað
að hann vilji einkum ræða frelsi og lýðréttindi manna í Austur-Evrópu
þannig að unnt verði að binda enda á kalda stríðið.
Heimildarmenn Reuters- frétta-
stofunnar í Moskvu sögðu að þrátt
fyrir ólguna í ríkjum Austur-Evrópu
teldu ráðamenn í Kreml að aukin
efnahágssamvinna austurs og vest-
urs ætti að verða eitt helsta umræðu-
efnið er leiðtogarnir koma saman til
óformlegs fundar um borð í tveimur
herskipum undan strönd Möltu á
laugardag og sunnudag. Vísuðu þeir
til þess að Bandaríkjamenn hefðu
brugðist með jákvæðum hætti við
breytingunum í aðildarríkjum Var-
sjárbandalagsins þannig að eðlilegt
væri að láta nú reyna á þessa þíðu
í samskiptum risaveldanna. Tíma-
bært væri að aflétta öllum hindrun-
um á viðskiptum ríkjanna en sérstak-
ar reglur gilda víðast hvar á Vesturl-
öndum um viðskipti við Sovétmenn
og einkum og sér í lagi um sölu á
hátæknibúnaði þangað. Sovéskir
embættismenn hafa hins vegar lagt
á það áherslu að þeir leiti ekki eftir
beinni efnahagsaðstoð og vísaði Edú-
ard Shevardnadze utanríkisráðherra
nýlega til þjóðarstolts Sovétmanna í
þessu samhengi.
Sömu heimildarmenn töldu eðli-
legt að gera ráð fyrir því að leið-
togarnir myndu ræða umrótið í Aust-
ur-Evrópu en bentu á að ágreiningur
væri ekki ríkjandi á þessu sviði.
„Bandaríkjaforseti og leiðtogar Vest-
urlanda hafa sýnt hófstillingu og
mikinn skilning á atburðum þess-
um,“ sagði einn þeirra.
Bush Bandaríkjaforseti mun hugs-
anlega leggja til að 220.000 banda-
rískir hermenn verði kallaðir heim
frá Vestur-Evrópu á fundinum með
Gorbatsjov Sovétleiðtoga. Kemur
þetta fram í nýjasta hefti tímaritsins
Newsweek. Segja heimildarmenn
tímaritsins að Bush sé tregur til að
leggja þessa tillögu fram en fari svo
að Gorbatsjov kynni nýjar hugmynd-
ir um róttækan niðurskurð á sviði
Iiðsafla og vopnabúnaðar í Evrópu
verði svar Bandaríkjaforseta þetta.
Richard Cheney, varnarmálaráð-
herra Bandaríkjanna, sagði í gær að
engin ákvörðun yrði tekin á Möltu-
fundinum um framtíð herliðs Banda-
ríkjamanna í Vestur-Evrópu sem tel-
ur um 320.000 menn. Hermt er að
ráðamenn í ríkjum Atlantshafs-
bandalagsins (NATO) óttist að fund-
urinn geti tekið óvænta stefnu líkt
og gerðist í Reykjavík árið 1986 er
Ronald Reagan Bandaríkjaforseti
þótti sýna gáleysi í viðræðum sínum
við Gorbatsjov um fækkun kjarn-
orkuvopna. Cheney hafði áður sagt
að sökum breytinganna í Austur-
Evrópu og efnahagsörðugleika í
Bandaríkjunum yrðu bandarísk
stjórnvöld að draga úr útgjöldum til
varnarmála. Lét hann að því liggja
að hermönnum í Vestur-Evrópu yrði
fækkað. Frá því Cheney lét þessi
ummæli falla hafa hann og Bush
forseti lagt áherslu á að engin slík
ákvörðun verði tekin án samráðs við
önnur aðildarríki NATO.
ERLENT
en litið er svo á með tilliti til vænt-
anlegs fundar hans og George
Bush Bandaríkjaforseta, að með
greininni hafi hann viljað eyða öll-
um efa um framtíð sósíalismans í
Sovétríkjunum.
Gorbatsjov vísar á bug kapital-
ismanum og segir, að sósíalisminn
og marxisminn séu skilgetin af-
kvæmi siðmenningarinnar. Þá
segir hann, að kommúnistaflokk-
urinn verði áfram í „fararbroddi í
sovésku samfélagi“ og leggur
áherslu á, að til að sameina alla
jákvæða krafta í þjóðfélaginu verði
að viðhalda einsflokkskerfinu.
„Samtímis verður flokkurinn þó
að leyfa ólíkum skoðunum að tak-
ast á til hagsbóta fyrir lýðræðið
og fólkið,“ segir Gorbatsjov.
• •
eru komin á alla
útsölustaði
RYMINGARSALfl
ALLT Á Afl SELJAST
Fataskápar, bað- og eldhúsinnréttingar
á niðursettu verði.
Allt á að seljast - verslunin flytur.
Opið mánud.-föstud. frá kl. 9-18
og laugardaga frá kl. 11-15.
Oll Lionsdagatöl eru merkt.
Innréttingar hl., Síðumúfa 32, sími 678118
Þeim fylgir jólasveinslímmiði og tannkremstúpa.
Allur hagnaður rennur óskiptur til líknarmála.