Morgunblaðið - 30.11.1989, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. NÓVEMBER 1989
Borgarspítalinn:
Sjúkradeild fyrir
27 aldraða opnuð
Ný vararafstöð sett upp fyrir spítalann
ÞRIÐJA sjúkradeildin í B-álmu Borgarspítalans hefúr verið tekin í
notkun og er þar rými fyrir 27 aldraða hjúkrunar- og bæklunarsjúkl-
inga. Er þá samtals 81 rúm ætlað öldruðum í B-álmu spítaians.
Kostnaður við innréttingu deildarinnar er um 57 milljónir króna.
Þá hefur verið keypt ný vararafstöð fyrir spítalann og hefúr hún
verið sett upp í nýbyggingu sunnan við spítalann. Áætlaður kostnað-
ur vegna kaupanna er um 10 milljónir króna og um 8 milljónir vegna
framkvæmda við rafstöðvarhúsið.
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Davíð Oddsson borgarstjóri ræsir nýja vararafstöð Borgarspítalans
en henni hefúr verið komið fyrir í sérstöku vélarhúsi sunnan við
spítalann.
„Það er mikil gleði og ánægju-
stund þegar þessi deild er tekin í
notkun og langþráðum áfanga
náð,“ sagði Davíð Oddsson borgar-
stjóri við vígslu sjúkradeildarinnar.
Sagði hann að fjárveitingarvaldið
hefði stundum verið tregt til að
leggja fram fé svo að takast mætti
að Ijúka framkvæmdum, sem væri
•skiljanlegt þegar á sama tíma hefur
verið gripið til þess að loka deildum
vegna skorts á starfsfólki. Menn
teldu að núna væru að meðaltali
um 150 rúm lokuð á sjúkrahúsum
þegar sumarlokunum væri dreift
yfir allt landið. „í þeim lokuðu rúm-
um eru náttúrlega bundnir gríðar-
legir fjármunir eins og menn sjá
þegar reiknaður er fram meðaltals-
kostnaður við hvert rúm eins og
stundum er gert varðandi spítala,“
sagði Davíð.
Guðmundur Bjamason heilbrigð-
isráðherra, sagði að því miður væru
fjárveitingar, sem veittar hefðu ver-
ið til framkvæmda við Borgarspítal-
ann á undanförnum árum, og tillög-
ur fyrir fjárlagafmmvarp næsta árs
þess eðlis að ef til vill tækist ekki
að ljúka framkvæmdum fyrr en um
aldamót. „Vonandi líður ekki of
langur tími áður en okkur tekst að
ljúka næsta áfanga því þjónusta við
aldraða er eitt af áhersluatriðum í
heilbrigðisþjónustunni um þessar
mundir,“ sagði Guðmundur. „Öldr-
uðum fer fjölgandi og við verðum
að gera mun betur en okkur hefur
tekist að undanförnu."
Framkvæmdir við byggingu
B-álmu spítalans hófust árið 1977.
Álman er á sjö hæðum og er hver
hæð um 800 fermetrar. Enn er eft-
ir að innrétta þrjár hæðir en kostn-
aður við þær framkvæmdir er áætl-
aður um 414 milljónir króna.
Vegna alvarlegs rafmagnsleysis
á haustmánuðum 1988 tók stjórn
Borgarspítalans ákvörðun um að
keypt yrði ný vararafstöð, eftir að
í ljós kom að ekki var hægt að
treysta á vararafstöð spítalans. Hún
brást þegar síst skyldi. Þá reyndist
aflnotkun spítalans hafa aukist
verulega og því þörf á nýrri og
stærri vél, auk þess reyndist nauð-
synlegt að endurbætaverulega allar
aðaltöflur spítalans og verður því
verki lokið á næstu tveimur árum.
Áfengi og tó-
bak hækkar
um rúm 6%
ÁFENGI og tóbak hækkaði í gær.
Áfengi hækkaði að meðaltali um
6,2% en tóbak um 6,3%. Þetta er
þriðja hækkunin á þessum vörum
á árinu. I febrúar nam hækkunin
11,5% og í júlí 8%. Hækkunin nem-
ur því samtals tæplega 26% á
þessu ári.
Flaska af íslensku brennivíni kost-
ar nú 1.500 krónur en kostaði 1.400
krónur fyrir hækkun. Flaska af al-
gengri tegund af viskí hækkar úr
2.070 í 2.240 krónur, vodka úr 1.780
í 1.920 krónur, rauðvín úr 790 í 840
krónur, hvítvín úr 650 í 670 krónur
og sex dósir af algengum bjór úr 700
í 730 krónur.
Pakki af algengri tegund af sígar-
ettum hækkar úr 188 krónum í 199
krónur.
Gústaf Níelsson, skrifstofustjóri
Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins,
sagði að við hveija hækkun minnki
sala á áfengi nokkuð fyrstu vikurnar
en fari þá aftur í fyrra horf. Hann
sagði að tilgangurinn með þessari
hækkun væri að ná markmiði fjár-
laga, en þar er gert ráð fyrir að
hagnaður ríkissjóðs af áfengisversl-
uninni nemi rúmum sex milljörðum
króna.
VEÐUR
/ DAG kl. 12.00:
Heimild: Veðurstofa Islands
(Byggt á veðurspá U. 16.15 i gær)
VEÐURHORFURIDAG, 30. NOVEMBER.
YFIRLIT ( GÆR: Suð- og suðvestan átt á landinu, víða stinnings-
kaldi eða allhvass. Vestanlands og sums staðar á Suðurlandi var
rigning en þurrt og nokkuð bjart veður um norðaustanvert landið.
Hiti 5 til 9 stig. Yfir Norðursjó er 1033ja mb hæð en 983 mb lægð
yfir suðausturströnd Grænlands fer norðaustur og grynnist. Vax-
andi 978 mb lægð yfir Nýfundnalandi hreyfist norðnorðaustur.
SPÁ: Suðvestlæg átt um mestallt landið, víðast kaldi. Rigning verð-
ur við suðausturströndina framan af degi, skúrir um vestanvert
landið en þurrt að mestu og nokkuð bjart veður norðaustanlands.
Annað kvöld fer að rigna suðvestanlands með vaxandi suðaustan-
átt. Heldur kaldara en í dag, einkum vestanlands.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á FÖSTUDAG: Suðlæg átt, víða nokkuð hvöss og hlýtt
um allt land. Rigning um sunnan- og vestanvert landið en úrkomu-
lítið norðaustanlands.
HORFUR Á LAUGARDAG. Suðvestanátt og heldur kólandi í bili.
Skúrir eða slydduél um vestanvert landið en léttir líklega til austan-
lands.
TÁKN:
Heiðskírt
x Norðan, 4 vindstig:
* Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* / *
/ * / * Slydda
/ * /
* * *
* * * * Snjókoma
10" Hrtastig:
10 gráður á Celsius
Y Skúrir
*
V El
= Þoka
— Þokumóða
’ , 5 Súld
CO Mistur
—J- Skafrenningur
|~^ Þrumuveður
VEÐUR VIÐA UM HEIM kl. 12:00 i gær að ísl. tíma hiti veður Akureyri 8 skýjað Reykjavík 8 rigning og súid
Bergen 4 skýjað
Helsinki 4-0 skýjað
Kaupmannah. 2 skýjað
Narssarssuaq +5 snjóél
Nuuk 4-4 snjókoma
Osló 4-2 téttskýjað
Stokkhólmur 4-0 léttskýjað
Þórshöfn 8 skýjað
Algarve 16 þokumóða
Amsterdam 3 heiðskírt
Barcelona 13 þokumóða
Berlín 3 mistur
Chicago 440 heiðskirt
Feneyjar 7 heiðskirt
Frankfurt 2 léttskýjað
Glasgow 4 þoka
Hamborg 3 mistur
Las Palmas 22 skýjað
London 7 iéttskýjað
Los Angeles 9 heiðskirt
Lúxemborg 2 heiðskírt
Madríd 13 skýjað
Malaga 17 þokumóða
Mallorca 16 rigningás.kl.st.
Montreal 4-15 lésttskýjað
New York 2 skýjað
Orlando 20 þokumóða
París 3 heiðskírt
Róm 13 heiðskírt
Vin 4-0 heiðskírt
Washington 4 alskýjað
Winnipeg 4-6 heiðskírt
Mikill verðmunur
á bökunarvörum
MIKILL verðmunur á bökunar-
vörum kom fram í könnun Verð-
lagsstofúunar á verði í 34 verslun-
um í Reykjavík og á Norðurlandi.
í könnuninni kom fram að tveggja
kílóa hveitipoki kostaði 68-97 krónur
sem er 43% verðmunur. Tvö kíló af
sykri kostuðu 133-198 krónur sem
er 49% munur. Möndlur án hýðis,
100 grömm, kostuðu 49-130 krónur
sem er 165% munur. Kókosmjöl, 250
grömm, kostaði 39-77,50 krónur sem
er 99% munur. Á sama vörumerkinu
munaði mestu á Lyle’s sírópi í 1 kg
dós, en það kostaði 173-351 krónu
sem er 103% munur.
Verslunin Bónus í Faxafeni var
oftast með lægsta verð á vörutegund-
um eða 10 sinnum. KEA á Akureyri
var 9 sinnum með lægsta verð og
Fjarðarkaup 8 sinnum. SS Háaleitis-
braut var oftast með hæsta verð eða
9 sinnum og Laugarás og Skagfirð-
ingabúð voru 8 sinnum með hæsta
verð.
Kona fyrir bíl
KONA slasaðist er hún varð fyr-
ir bil á Hringbraut um klukkan
18 í gær.
Konan gekk yfir Hringbraut
móts við Ljósvallagötu og varð þá
fyrir bíl sem ekið var eftir Hring-
braut. Hún var flutt með sjúkrabif-
reið á slysadeild. Ekki tókst að afla
upplýsinga um líðan hennar í gær-
kvöldi.
Forsætisráðherra:
Framtíðarnefiid-
in hefiir störf á ný
Framtíðarnefnd svokölluð, sem
Steingrímur Hermannsson skip-
aði í fyrri forsætisráðherratíð
sinni fyrir nokkrum árum, mun
hefja störf aftur um áramótin og
ljúka verkefni sínu, sem er að spá
fyrir um þróun flestra þátta þjóð-
mála fram til ársins 2010.
Þetta kom fram í máli forsætis-
ráðherra á fyrsta fundinum í funda-
röð um mótun stefnu í atvinnumál-
um, sem Júlíus Sólnes hagstofuráð-
herra stendur fyrir. Forsætisráð-
herra sagði að sér fyndist mjög mik-
ilvægt að framtíðarnefndin lyki
störfum, en starfsemi hennar hefur
legið niðri um allnokkurt skeið.
Júlíus Sólnes sagði á fundinum
að fundaherferðin væri fyrst og
fremst ætiuð til að fá hugmyndir frá
almenningi um ný tækifæri í at-
vinnumálum. Hugarflugsnefndin
svokallaða, sem á að starfa með
ráðherranum að mótun atvinnu-
stefnunnar, mun að sögn Júlíusar
velta upp ýmsum möguleikum, en
síðan verður atvinnulífið að taka við
og framkvæma hugmyndir nefndar-
innar. Júlíus sagði að þegar hefðu
leitað til sín fjöimargir aðilar með
hugmyndir.
Hann sagði að beztir möguleikar
í framtíðinni væru í þjónustuiðnaði
fyrir sjávarútveg. Hann spáði því
einnig að skipasmíðar myndu rísa
úr öskustónni. Þá þyrfti að athuga
möguleika á því að komast inn á
markað Evrópubandalagsins með
því að íslenzk fyrirtæki stofnuðu
systurfyrirtæki í Danmörku, sem
bæði er aðili að samnorrænum
vinnumarkaði og að Evrópubanda-
laginu.
Hettumanni
mistókst rán
MAÐUR með grímu eða
lambhúshettu fyrir andliti
reyndi að fremja rán í söiut,-
urni við Laugalæk laust fyrir
klukkan 8 í fyrrakvöld. Hann
stökk innfyrir afgreiðsluborð
og sló afgreiðslumann í and-
litið.
Afgreiðslumanninum tókst
að forða sér bakvið læstar dyr
og hringja í lögreglu. Á meðan
átti maðurinn skamma stund
við peningakassa verslunarinn-
ar en hljóp á braut þegar hann
varð var við viðskiptavin á leið
í söluturninn. Lögreglan hafði
ekki haft hendur í hári þessa
manns í gær. Afgreiðslumaður-
inn hlaut ekki alvarlega áverka
af höggum hins grímuklædda
ræningja.