Morgunblaðið - 30.11.1989, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 30.11.1989, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. NÓVEMBER 1989 GLÆSILEGT JÓLAHLAÐBORÐ A GÓÐU VERÐI Nú þegar jólin eru í nánd færist jóla- stemmningin yfir Skrúð.^Þar er gestum og gangandi boðið upp á stórglæsilegt jólahlaðborð,4 heitt og kalt,4 á hagstæðu verði.á Hlaöborðið er á boð- stólum frá kl.11-23 daglega og að sjálfsögðu er jólaglögg alltaf til reiðu.4 Ath.4 Við bjóðum upp á jólaglögg og jóla- hlaðborð í einkasölum - fyrir starfsmanna- hópa og hvers konar jólagleðskap.4 4 Skrúður kemur öllum í jólaskapið! Indfrel!- -lofargóðu! SÍLDARRÉTTIR «I SV SOGUR EFTIR HALL- DÓR STEFÁNSSON UPPLÝSINGAR: SÍMSVARI 681511 - LUKKULÍNA 991002 BÓKAÚTGÁFA Máls og menn- ingar hefur sent frá sér bókina Sögur eftir Halldór Stefánsson. Þetta er „Stórbók" og geymir öll smásagnasöfn Halldórs, en þau eru í fáum dráttum (1930), Dauðinn á þriðju hæð (1935), Einn er geymdur (1942), Sögur og smáleikrit (1950), þar sem leikritunum er þó sleppt, og Blakkar rúnir (1962). í kynningu útgefanda segir m.a.: „Halldór Stefánsson var Austfirð- ingur, fæddur árið 1892, en bjó lengst af í Reykjavík og lést þar árið 1979. Á þriðja áratugnum ferð- aðist hann talsvert um Evrópu, og í Berlín lét hann prenta fyrsta safn- ið sitt árið 1930. Hann var einn „Rauðra penna“ og stofnenda Máls og menningar, og átti um langt skeið sæti í stjórn félagsins. Hann skrifaði bæði skáldsögur, leikrit og orti kvæði, en lagði þó alla tíð mesta rækt við smásagnaformið. Hann hefur verið talinn til list- fengustu smásagnahöfunda íslenskra, og sögur hans hafa verið þýddar á 15 tungumál. Flestar eru þær löngu ófáanlegar, og því var þessi útgáfa gerð. Aftast í bókinni er eftirmáli um ævi og störf höfund- arins eftir Halldór Guðmundsson, og ítarleg ritaskrá. Stórbók Halldórs Stefánssonar er 560 blaðsíður að stærð, unnin í Prentsmiðjunni Odda, en Guðjón Ketilsson gerði kápu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.