Morgunblaðið - 30.11.1989, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 30.11.1989, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ' FJMMTiUDAGUR 30. NÓV'EMBER 1989, 29 Aðalfundur SÍL í dag AÐALFUNDUR Sambands íslenskra loðdýraræktenda verður haldinn í dag á Hótel Sögu og hefst hann klukkan 10. Auk venjulegra aðalfundar- starfa verður fjallað um þá stöðu, sem komin er upp varðandi framtíð loðdýraræktarinnar, í kjölfar ákvörðunar ríkisstjórnarinnar um aðgerðir til að leysa vanda búgrein- arinnar. Menntaskólinn við Hamrahlíð: Valdegi nemenda frestað SVAVAR Gestsson mennta- málaráðherra ætlar að leita leiða til að koma í veg fyrir að niðurskurður á kennslustund- um við Menntaskólann í Hamrahlíð komi niður á náms- ferli nemenda við skólann. Þetta kom fram á fiindi sem nemendafélag skólans efhdi til í skólanum síðastliðinn þriðju- dag og menntamálaráðherra Bókun forsætisráðherra um EFTA- EB-viðræður: * Island með í und- irbúnings og samn- ingaviðræðum Bókunin algjörlega ófiillnægjandi, sagði formaður Sjálfstæðisflokksins Forsætisráðherra las Samein- uðu þingi í gær bókun, sem gerð var á ríkisstjórnarfimdi þá um morguninn, um könnunar- og samningaviðræður EFTA við EB. Formaður Sjálfstæðisflokks- ins sagði bókun forsætisráð- herra algjörlega ófullnægjandi. Alþingi hljóti að álykta um mál- ið. Bókun ríkisstjórnar sé ekki nægjanlegur grundvöllur undir ákvörðun um málmeðferð af Is- lands hálfu. Bókunin, sem gerð var á fundi ríkisstjórnarinnar í gærmorgun, var svohljóðandi: „Utanríkisráðherra hefur gert ríkisstjórn og Alþingi grein fyrir sameiginlegum könnunai-viðræðutn EFl’A-ríkjanna við Evrópubanda- lagið um víðtækara samstarf ríkjanna átján, -sem aðilar eru að EFTA og EB. Utanríkisráðherra mun áfram taka þátt í undirbún- ings- og samningaviðræðum þess- ara aðila, sem byggðar verða á sameiginlegum niðurstöðum könn- unarviðræðna þ.m.t. þeim fyrirvör- um, sem íslendingar hafa sett fram. Jafnframt því sem fylgt verður eftir í þessum viðræðum sameigin- legri kröfu EFTA-ríkjanna um fríverzlun með fiskafurðir innan hins væntanlega evrópska efna- hagssvæðis, verður haldið áfram tvíhliða viðræðum íslendinga við Evrópubandalagið og aðildarríki þess, með það að markmiði að tryggja tollfijálsan aðgang fyrir íslenzkar sjávarafurðir að mörkuð- um Evrópubandalagsins og stöðu íslenzks sjávarútvegs að öðru leyti. Náið samráð verður haft innan ríkisstjórnarinnar og við utanríkis- málanefnd Alþingis á öllum stigum Umræðum veg’na könnunar viðræðna við EB frestað sat. Halldóra Jónsdóttir, formaður nemendafélags MH, sagði að á fundinum hefðu kennarar við skólann komið til liðs við nemendur með því að knýja á um það við skólayfirvöld að valdegi nemenda yrði frestað, en að öllu óbreyttu hefði hann átt að vera í gær. Halldóra sagði að næstu daga myndu nemendur í samráði við kennara leita leiða til að ná niður fyrirhuguðum sparnaði án þess að það kæmi niður á námsmöguleik- um við skólann. Hún sagði að kom- ið hefði fram í máli menntamála- ráðherra að hann væri reiðubúinn til að taka á vanda skólans til lengri tíma litið og kvaðst hún sátt við niðurstöðu fundarins. Mikill órói einkenndi þingstörf í gær. Þingskaparumræða skyggði á dagskrármál um sinn. Annað dagskrármálið „Könnun- arviðræður EFTA-ríkja við Ev- rópubandalagið [skýrsla utanrík- isráðherra]" var til umfjöllunar á sama tíma í utanríkismálanefnd og í Sameinuðu þingi, sem er óvenjulegt. Stjórnarandstöðu- þingmenn kröfðustu þess að for- seti frestaði þingfundi meðan utanríkismálanefnd Ijallaði um viðkomandi dagskrármál, enda hlyti málsmeðferð og niðurstaða í nefndinni að hafa áhrif á um- ræðu og afgreiðslu málsins í Sameinuðu þingi - og mikilvægt væri, auk þess, að utanríkisráð- herra og þingmenn í utanríkis- málanefnd væru viðstaddir um- Ijöllun þingsins sjálfs. Forseti varð um síðir við til- mælum um frestun þingfiindar unz fundir nefndar og þingflokka væru yfirstaðnir. Steingrímur Hermannsson for- sætisráðherra las þingheimi ríkis- stjórnarbókun, sem gerð var í gær- morgun, um könnunar- og samn- ÍQgaviðræður EFTA við EB. Ólafur Ragnar Grímsson fiármálaráð- herra las þingmönnum samþykkt þingflokks Alþýðubandalagsins um sama efni. Frá efni bókunar og samþykktar er greint í fréttum á öðrum stað hér í blaðinu í dag. Þorsteinn Pálsson (S-Sl) sagði það eitt stærsta hagsmunamál þjóð- arinnar að tryggia hindrunarlausan (tollfijálsan) útflutning sjávarvöru á Evrópumarkað. I þeim tilgangi sé mikilvægt að taka án tafar upp tvíhliða viðræður við EB-ríki, sam- hliða EFTA-viðræðum við EB. Bók- un forsætisráðherra er algjörlega ófullnægjandi, sagði þingmaðurinn, sem grundvöllur undir ákvörðun af Isladns hálfu í jafn veigamiklu máli. Alþingi verður að álykta um málið. Bókunin gerir heldur ekki á fullnægjandi hátt grein fyrir fyrir- vörum Islands. Meðan svo er veit enginn hver stefna ríkisstjórnar er í raun í málinu. Fleiri stjórnarandstöðuþingmenn tóku í sama streng. Þeir kröfðust þess að utanríkismálanefnd fengi málið til tafarlausrar umijöllunar, en ríkistjórnin hafi sniðgengið bæði nefndina og þingflokka stjórnar- andstöðu við undirbúning og um- fjöllun málsins, og að þingfundi yrði frestað fram yfir fundi nefndar- innar og þingflokka um málið. Eft- ir allnokkurt orðaskak var fundi síðan frestað og verður málið vænt- anlega tekið upp að nýju á mánu- dag. Fundað var í þingflokkunum síðdegis og utanríkismálanefnd hélt stuttan fund klukkan 19.00. Þar bar formaður nefndarinnar, Jóhann Einvarðsson, upp þá tillögu að vísa tillögu sjálfstæðismanna í nefndinni um tvíhliðaviðræður íslands og EB til ríkisstjórnarinnar. Tillaga hans van samþykkt með fjórum atkvæð- um stjórnarsinna gegn þremur at- kvæðum stjórnarandstöðunnar. Sjálfstæðismenn munu að öllum líkindum endurflytja þessa tillögu sem þingályktunartillögu á þing- fundi í dag. Ólafur Ragnar' Grímsson fjár- málaráðherra las Sameinuðu þingi í gær samþykkt þingflokks Alþýðubandalagsins um aðild Is- lands að viðræðuin EFTA og EB. I samþykktinni er ítrekaður „full- ur fyrirvari um fjárfestingu út- lendinga í íslenzku efnahags- og atvinnulífi". Þingflokkurinn legg- ur og áherzlu á tvíhliða viðræður við einstök EB-ríki. Þorsteinn Pálsson formaður Sjálfstæðis- flokksins sagði í þingræðu að ekki kæmi fram í samþykkt þingflokks Alþýðubandalagsins samþykki við þátttöku Islands í formlegum samningaviðræðum, sem ráðgert er að taka ákvörðum um á ráð- herrafúndi EFTA og EB 19. des- ember nk. í samþykkt þingflokks Alþýðu- bandalagsins segir: „Þingflokkur Alþýðubandalagsins samþykkir fyrir sitt leyti að Island vei;ði áfram þátttakandi í viðræðum EFTA og EB, en áður en til þátt- töku í beinum og formlegum samn- ingaviðræðum komi verði málið tek- málsins". Þorsteinn Pálsson formaður Sjálfstæðisflokksins sagði í þing- ræðu í gær, að bókun forsætisráð- herra væri algjörlega ófullnægj- andi. Alþingi hljóta að verða að álykta um málið. Bókun ríkisstjórn- ar sé ekki nægilegur grundvöllur undir ákvörðun um málsmeðferð af íslands hálfu. Hér sé með ófull- nægjandi hætti fjallað um máls- meðferð er varði meginhagsmuni þjóðarinnar: hindrunarlausan út- flutning með sjávarvörur. Gera verði kröfu til þess að formlegar tvíhliða viðræður verði þegar hafn- ar. Þá sé ekki gerð fullnægjandi grein fyrir fyrirvörum íslands. Meðan svo er viti enginn hver stefna ríkisstjórnarinnar sé í raun í þessu mikilvæga hagsmunamáli þjóðarinnar. ið til sérstakrar umfjöllunar og af- greiðslu í ríkisstjórn og stjórnar- flokkum. Þingflokkurinn ítrekar þá stefnu Alþýðubandalagsins varðandi samnjnga EFTA og Efnahagsbanda- lagsins að fullur fyrirvari verði hafð- ur um þátttöku og fjárfestingu út- lendinga í íslenzku atvinnulífi. Al- þýðubandalgið hefur almennan fyr- irvara við málið á þessu stigi. Þingflokkurinn telur ennfremur biýnt að tryggt verði að stjórnar- flokkarnir eigi beinan aðgang að meðferð málsins á hveiju stigi á næstu mánuðum. Þingflokkurinn telur óhjákvæmi- legt að utanríkisráðherra geri við- mælendum sínum grein fyrir fyrir- vörum ríkisstjórnarinnar og ríkis- stjórnarflokkanna varðandi fjárfest- ingu útlendinga og þátttöku þeirra í íslenzku atvinnulífi. Þingflokkurinn leggur áherzlu á að áfram verði haldið tvihliða við- ræðum við forystumenn einstakra ríkja Evrópubandalagsins, sérstak- lega um fríverzlun með sjávarafurð- ir“. FISKVERÐ éA UPPBOÐSMÖRKUÐUM 29. nóvember. FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar- verð verð verð (lestir) verð (kr.) Þorskur 100,00 35,00 79,58 12,087 961.880 Þorskur(smár) 38,00 38,00 38,00 0,768 29.184 Ýsa 102,00 82,00 94,18- 6,462 608.594 Ýsa(ósl.) 75,00 74,00 74,38 1,628 121.050 Karfi 37,00 20,00 35,72 36,783 1.314.190 Ufsi 33,00 33,00 33,00 0,382 12.623 Steinbítur 46,00 43,00 43,82 0,795 34.857 Langa 49,00 35,00 44,03 3,683 162.172 Lúða 415,00 205,00 267,79 0,506 135.529 Koli 40,00 35,00 44,03 3,683 162.172 Keila 15,00 15,00 15,00 0,397 5.955 Keila(ósL) 17,00 15,00 16,04 1,790 28.703 Samtals 52,61 66,305 3.488.236 í dag verða m.a. seld 20 tonn af þorski, 8 tonn af ýsu, 9 tonn af karfa og óákveðið magn af löngu og fleiri tegundum úrUjalteyrinni EA og bátum. FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík Þorskur 77,00 29,00 68,17 9,819 669.352 Þorskur(umál) 48,00 15,00 23,68 1,162 27.519 Ýsa 111,00 30,00 76,90 8,251 634.525 Karfi 37,00 30,00 36,99 6,004 222.064 Ufsi 49,00 47,00 47,19 5,360 252.910 Hlýri+steinb. 50,00 42,00 48,77 0,861 41.991 Langa+blál. 24,00 20,00 22,09 0,065 1.436 Lúða 530,00 185,00 244,76 0,585 143.185 Skarkoli 61,00 55,00 60,84 0,876 53.300 Sólkoli 67,00 67,00 67,00 0,385 25.795 Keila 12,00 12,00 12,00 0,073 876 Skötuselur 415,00 415,00 415,00 0,012 4.980 Samtals 62,12 33,453 2.077.933 í dag verður meðal annars selt óákveðið magn af þorski, ýsu, karfa og ufsa úr Margréti EA og fleirum. FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf. Þorskur 97,00 38,00 67,52 39,543 2.670.122 Þorskur(umál) 25,00 25,00 25,00 0,300 7.500 Ýsa 93,00 31,00 74,93 11,331 849.069 Karfi 38,00 25,00 36,77 25,713 945.403 Ufsi 39,00 39,00 39,00 0,514 20.046 Steinbítur 56,00 20,00 46,01 1,309 60.227 Langa 35,00 20,00 31,62 1,009 31.905 Lúða 285,00 160,00 202,68 0,176 35.671 Keila 20,00 13,00 15,42 3,885 59.912 Skata 108,00 108,00 -108,00 0,039 4.212 Samtals 55,88 83,819 4.684.067 í dag verður meðal annars selt óákveðið magn af ýsu úr Hauki GK, svo og óákveðið magn af blönduðum afla úr línu- og netabátum. Þingflokkur Alþýðubandalagsins um EFTA-EB-viðræður: „ Almennur fyrir- vari við málið“ Tvíhliða viðræðum við EB-ríki haldið áfram

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.