Morgunblaðið - 30.11.1989, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 30.11.1989, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. NÓVEMBER 1989 LYFTU ÞÉR UPP OG OPNAÐU PILSNER Sgils ...að sjálfsögðu! 6. áskriftartónleikar Sinfóníuhljómsveitar íslands: Nýtt íslenskt verk og einleikur á klarinett efbirRafti Jónsson SJÖTTU áskriflartónleikar Sin- fóníuhljómsveitar Islands verða í Háskólabíói í kvöld, 30. nóvem- ber og hcfjast klukkan 20.30. Á eftiisskránni verða þrjjú verk, Reflex eftir Kjartan Ólafsson, Klarinettukonsert eftir Carl Ni- elsen og Sinfónía nr. 4 eítir Beet- hoven. Einleikari í þetta sinn verður Einar Jóhannesson klar- inettuleikari og hljómsveitar- stjóri er írinn Colman Pearce. Reflex er fyrsta verkið, sem Sin- fóníuhljómsveitin flytur eftir Kjart- an Ólafsson. Hann lauk námi frá Tónfræðideild Tónlistarskólans í Reykjavík 1984 og hélt þá til fram- haldsnáms í Hollandi í raftónlist. 1986 hélt hann svo til náms í raf- tónlist við Sibelíusar-akademíuna í Helsinki, þar sem hann er nú við nám. Hann vinnur þar að lokaverk- efni, Licentiate, sem er hljómsveit- arverk. Reflex skrifaði hann í Finn- landi í fyrra. Þetta verk byggir á tveimur meginhugmyndum, ann- arri, sem er mjög flókin, en hinni, sem er mjög einföld. Verkið hefst á annarri hugmyndinni en lýkur með hinni. Kjartan hefur áður skrifað kammerverk, einleiksverk og kórverk, auk raftónlistar. Danska tónskáldið Carl Nielsen lærði á fiðlu og trompet á ungl- ingsárum sínum. Hann hefur stundum verið kallaður Sibelius Danmerkur, þótt sú samlíking eigi ekki fyllilega við. Á yngri árum samdi hann tónlist í anda Griegs, Brahms og Liszt, en er fram liðu stundir hreifst hann af nútímatón- list, þótt enn mætti heyra áhrif alþýðutónlistar. Klarinettukonsert- inn var síðasta hljómsveitarverk hans, frumflutt í Humlebæk í Dan- mörku í september 1928. Síðasta verkið á tónleikunum er Sinfónía nr. 4 eftir Beethoven. Verkið var frumflutt í Vínarborg í mars 1807. Á árunum 1802-1808 var Beethoven mjög afkastamikill og skrifaði þá mörg stærstu og mikilfenglegustu verka sinna, s.s. sinfóníurnar nr. 4, 5 og 6, Fiðlukon- sertinn, Þríkonsertinn og fjöldann allan af píanósónötum. Einleikarinn á tónleikunum í kvöld er Einar Jóhannesson. Einar þarf vart að kynna. Hvar sem hann hefur komið fram, hefur leikur hans á klarinettu vakið verðskul- daða hrifningu. Nýlega kom út í Lundúnum bók sem nefnist „Clari- nett Virtuosi of Today“, þar sem tilgreindir eru 45 fremstu klarinett- leikarar heimsins í dag. Þar er kafli um Einar og hann hiklaust talinn í hópi fremstu klarinettleik- ara. Einar stundaði nám við tónlistar- skólánn í Reykjavík undir hand- leiðslu Gunnars Egilson og hélt til framhaldsnáms í The Royal College of Music í Lu'ndúnum 1969. Einar hefur unnið til fjölda verðlauna fyrir leik sinn, m.a. vann hann sam- keppni sem Yehudi Menuhin efndi tii í Lundúnum 1976 og árið 1979 hlaut hann verðlaun þau sem Sonn- ingsjóðurinn danski veitir ungum norrænum einleikurum. Einar hef- ur komið fram sem einleikari víða Einar Jóhannesson í löndum Evrópu og einnig í Japan og Kína. Einar mun leika með Sin- fóníuhljómsveit Missisippi í Banda- ríkjunum í apríl á næsta ári og með útvarpshljómsveitinni í Dublin á írlandi og taka þátt í Tónlistarhá- tíðinni í Flandern í Belgíu í septem- ber á næsta ári. Hljómsveitarstjórinn Colman Pearce er írskur. Hann fæddist í Dublin og nam við tónlistarskólann þar og lauk námi frá Tónlistar- háskóla írlands 1960. Framhalds- nám stundaði hann í Hilversum og Vínarborg. Frá því að hann hóf hljómsveitarstjórn hefur hann starfað fyrir Utvaipshljómsveit ír- lands og jafnframt verið aðalhljóm- sveitarstjóri hennar. Colman Pe- arce starfar þó mikið utan írlands og hefur hann stjórnað á Spáni, í Þýskalandi, Belgíu, Ungverjalandi, Búlgaríu, Brasilíu og Bandaríkjun- um, auk þess sem hann er regluleg- ur stjórnandi hjá BBC í Bretlandi. Höfimduv er kynningarfulltrúi Sinfóníuhljómsveitarinnar. Colman Pearce innréttingum " j í tilefni af komu hátíöanna ætlum við aö veita 30% afslátt af baöinnréttingum fram til jóla. Norsku FOSSBAD í baöinnréttingarnar eru sérlega vandaöar og glæsilegar og möguleikarnir eru ótæmandi. Aö sjálfsögöu eigum viö allt annaö sem þarf í baðherbergið og það í miklu úrvali og á hreint frábæru veröi. Líttu viö hjá okkur og þú kemst í sannkallað hátíöarskap ! w«ESðSH»n*aria WŒhffi í AUT A BADID Suðuriandsbraut 20 • Sími 83833 ■ PHYLLIS A. Withney er fastagestur á jólabókamarkaðin- um. Iðunn hefur gefið út sextándu 'bókina á íslenzku og heitir hún Týndar slóðir. Sagan segir frá Jennifer Blake, sem getur ekki gleymt þeim afdrifaríka degi þegar þriggja ára dóttir hennar hvarf sporlaust og neitar að gefast upp við leit að henni. Þórey Frið- björnsdóttirþýddi. H BETRA LÍF nefnist bóka- flokkur, sem Mál og menning hefur hafið útgáfu á. Fjórar bækur eru komnar. Fitusnautt fæði eftir Margréti E. Jónsdóttur er mat- reiðslubók fyrir þá sem þurfa að lækka blóðfitu sína. Gunnar Sig- urðsson yfirlæknir Lyflækninga- deildar Borgarspítalans ritar form- álsorð. Bókin er 235 bls. Mynd- skreytingar gerði Anna V. Gunn- arsdóttir. Næst hannaði kápu, en Prentsmiðjan Oddi hf. prentaði. Fyrirburar — Bók íyrir foreldra er eftir W.H. Kitchen, J.V. Liss- enden, M.M. Ryan og A.L. Rick- ards er bók, sem fjallar um börn sem fæðast fyrir tímann. Gunnar Biering, yfirlæknir á Vökudeild Barnaspítala Hringsins ritar form- ála. Sigríður Sigurðardóttir þýddi bókina sem er 92 bls. Næst hannaði kápu, en Prentsmiðjan Oddi hf. prentaði.Listin að elska er þriðja bókin í þessum flokki. Hún er eftir Erich Fromm, sem var bæði sálfræðingur og félags- fræðingur og byggði hann bókina á þeirri sannfæringu að ástin sé svarið við vandamálum mannlífs- ins. Þýðandi er Jón Gunnarsson en þetta er þriðja^útgáfa bókarinn- ar á íslenzku. Utbrunninn? - - Farðu betur með þig heitir fjórða bókin í þessum flokki. Hún er eft- ir Barbro Bronsberg og Ninu Vestlund og Ólafur G Kristjáns- son þýddi. Bókin fjallar um álag í vinnu og heima fyrir og benda höfundar á ráð til að koma í veg fyrir það að menn gangi fram af sér. Bókin er 170 blaðsíður og prentuð hjá Odda.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.