Morgunblaðið - 30.11.1989, Síða 7

Morgunblaðið - 30.11.1989, Síða 7
7 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGURRþrtNÓVEMBKR -1989 ........................................ Aðalfimdur Félags hrossabænda: Hreinar tekjur ríkis- sjóðs af hrossakjöts- verzlun 46 milljónir Islensk málverk á myndlistarsýn- ingu í Leningrad ÁKVEÐIÐ hefur verið að opna sýningu á norrænni myndlist í Len- ingrad í Sovétríkjunum á næsta ári. Meðal verka á sýningunni verða málverk eftir Kjarval og Jón Stefánsson. Forseti íslands, Vigdís Finn- bogadóttir, opnar sýninguna fyrir hönd Norðurlandanna. AÐALFUNDUR Félags hrossa- bænda 1989 var haldinn í Bænda- höllinni 17. nóvember síðastlið- inn. Á fundinum kom fram mikil óánægja með að hrossakjöt er ein kjöttegunda látin bera sölu- skatt að fullu og að í boðuðum Tónleikar Sigríðar Ellu og Parsons í London SIGRÍÐUR Ella Magnús- dóttir óperusöngkona held- ur tónleika í tónleikasalnum Wigmore Hall í Lundúnum mánudaginn 4. desember. Undirleikari Sigríðar Ellu verður Geoffrey Parsons, einn kunnasti undirleikari Breta. Á tónleikunum syngur Sigríður Ella lög eftir Haydn, Schubert, Sibelius, Rossini, Verdi og Donizetti, auk laga eftir sjö íslensk tónskáld, Sigf- ús Einarsson, Árna Þorsteins- son, Sigvalda Kaldalóns, Emil Thoroddsen, Skúla Halldórs- son, Jón Leifs og Pál ísólfsson. íslenska sendiráðið í Lund- únum tók þátt í að undirbúa tónleikana en þeir eru styrktir af fjármálafyrirtækinu Gold- man Sachs. Sjálfstæðisfélögin í Kópavogi; Birna Frið- riksdóttir efst í skoð- anakönnun BIRNA Friðriksdóttir fékk flest atkvæði í skoðanakönnun innan fiilltrúaráðs sjálfstæðisfélag- anna í Kópavogi um nöfn til framboðs í prófkjöri fyrir næstu sveitarstjórnakosningar. Próf- kjör hefur verið dagsett 3. febr- úar á næsta ári. Skoðanakönnunin var gerð á fundi fulltrúaráðsins í síðustu viku og skrjfaði hver 8 nöfn sém hann vildi sjá í prófkjöri. 14 manns hlutu yfir 20% atkvæða og hefur þeim verið skrifað bréf þar sem óskað er eftir að þeir gefi kost á sér í prófkjör. Framboðsfrestur rennur út um áramót. Röðin í skoðanakönnuninni varð þessi: 1. Birna Friðriksdóttir, 2. Guðni Stefánsson, 3. Arnór Páls- son, 4. Kristín Líndal, 5. Bragi Mikhaelsson, 6. Jón Kristinn Snæ- hólm, 7. Kristinn Kristinsson, 8. Richard Björgvinsson, 9. Kristján Faraldsson, 10. Helgi Helgason, 11. Jóhanna Thorsteinsson, 12. Hjörleifur Hringsson, 13. Sveinn Hjörtur Hjartarson, 14. Guðrún Stella Gissurardóttir. Sjálfstæðisflokkurinn á nú 4 fulltrúa í bæjarstjórn Kópavogs, þá Richard Björgvinsson, Braga Mikhaelsson, Asthildi Pétursdótt- ur og Guðna Stefánsson. Ásthildur gefur ekki kost á sér áfram. virðisaukaskatti ríkissfjórnar- innar á enn að auka mismun í skattlagningu milli kjöttegunda. í skýrslu stjórnar og markaðs- nefndar félagsins kom fram að 25% söluskattur gefur ríkissjóði á árs- grundvelli miðað við 555 tonna fol- alda- og hrossakjötssölu 52 milljón- ir. Verðhækkanir sem áttu að koma til framkvæmda fyrri hluta verð- lagsárs 1988/1989 voru greiddar niður, en þessar niðurgreiðslur á ári nema 6 milljónum, þannig að heildartekjur ríkissjóðs, — „hreinn matarskattur", nemur 46 milljónum af þessari einu kjötgrein. Aðalfundurinn samþykkti „að mótmæla harðlega fyrirætlun ríkis- stjórnarinnar að setja 26% virðis- aukaskatt á afurðir hrossabænda en greiða jafnframt niður einstakar afurðir bænda. Krafa aðalfundarins var að allar innlendar landbúnaðar- vörur sitji við sama borð varðandi álagningu virðisaukaskatts." I umræðum um þetta mál kom fram að þessi mismunun milli bú- greina hlyti að vera brot gegn stjórnarskránni, sem yrði að láta reyna á lagalega, ef ríkisstjórnin ætlaði enn að auka þá mismunun milli kjötgreina, sem þegar er fyrir hendi. Tillaga um sýninguna var sam- þykkt á fundi norrænna mennta- málaráðherra í Kaupmannahöfn á mánudag. Nefnd fulltrúa Norður- landaþjóðanna, sem fer með sameig- inlega menningarkynningu utan þessara landa, sér um skipulag sýn- ingarinnar. Kristinn Hallsson, full- trúi Islands í nefndinni, sagði að sýningin í Leningrad yrði opnuð þann 12. júní. „Norðurlöndin hafa í rúm tíu ár starfað saman að kynningu á menningu og listum,“ sagði Kristinn. „Meðal verkefna hingað til má nefna sýninguna Scandinavia Today í Bandaríkjunum og umfangsmikla sýningu í Japan á síðasta ári. Á sýn- ingunni verða meðal annars verk eftir Jóhannes Kjai'val og Jón Stef- ánsson. Auk þess að sýna verkin í Leningrad er verið að kanna hvort þau megi ekki sýna víðar í Sovétríkj- unum, til dæmis í Moskvu og jafnvel einnig í Eystrasaltsríkjunum." Á fundi menntamálaráðherra Norðurlandanna var einnig sam- þykkt tillaga um að hefja undirbún- fng menningarsamstarfs við Eystra- saltsríkin þijú, Eistland, Lettland og Litháen. „Upphaflega var gert ráð fyrir að undurbúningur samstarfsins hæfist fljótlega eftir áramótin, en nú er sýnt að það dregst á langinn," sagði Kristinn. „Ástæða þess er sú, að örar þjóðfélagsbreytingar í þess- um ríkjum valda því að erfitt er að sjá við hvetja á að ræða. Við munum því hinkra við, þar til hlutirnir fara að skýrast." Með Veröld til Kanaríejja á einstöku tilboðsverði í janúar og febrúar Nýir samningar við hiótelaðila á Kanaríeyjum gera okkur kleift að bjóða farþegum okkar verulegan afslátt á ferðum í janúar og febrúar. Aðeins er um takmarkað hótelrými að ræða á þessu frábæra verði og er fólk hvatt til að tryggja sér ferð strax. Brottfarir til Kanarýeyja 18. des. uppselt • 8. jan. laussæti • miniBsmm Austurstræti 17, sími 622200 og Kirkjutorgi 4, Sími 622011 lg

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.