Morgunblaðið - 30.11.1989, Qupperneq 12
er
12
'MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. NOVEMBER 1989 -
■4
••
HANDA-BOND
OG HJARTAÞEL
Myndlist
Bragi Ásgeirsson
í pistlum mínum um list textíl-
kvenna hef ég stundum vikið að
því, að þær væru full nálægt mál-
verkinu og skúlptúrlistinni.
Málið er, að það fara ekki allir
í skóna hinnar pólsku listakonu
Magdalenu Abakanowitz, sem getið
hefur sér heimsfrægð fyrir sér-
kennilega meðhöndlun vefjarins.
Verk hennar eru iðulega meira rým-
islist og leikur við tilfallandi rými
en vefjarlist. Eru að auk heilmikil
„installation“ eins og það heitir.
Og þótt hún geti þetta með glæsi-
brag er það ekki borðleggjandi að
heill her af norrænum konum geti
það líka.
Hver sýningin rekur aðra, þar
sem myndverk viðkomandi virðast
á mörkum þess að vera það sem
þau eru sögð vera.
Það er því nokkur léttir að koma
inn á sýningu Birnu Kristjánsdóttur
í Ásmundarsal og sjá jafn hrein
vinnubrögð og þar koma fram —
og þetta með hreinu vinnubrögðin
skiptir miklu máli í myndlistinni.
Birna er útlærð sem textíllista-
maður og hefur hér lokið meist-
aragráðu, eins og það heitir í henni
Améríku. En hún hefur þó valið að
taka fram pensilinn og litina, en
hagnýta sér um leið þekkingu sína
á textíl og þetta er allt annað en
t.d. að nálgast málverkið með all?
konar tilfæringum. Jaðrar mynd-
anna eru ekki alltaf beinir og slétt-
ir heldur eins og vex myndverkið
áfram til hliðanna, eftir því sem
verða vill og listamaðui’inn telur við
hæfi.
í París sá ég svipaða mynd-
hugsun í sumum verka blökku-
mannsins fræga, Hervé Télemaque,
en hann fer að á allt annan og
hnitmiðaðri hátt, enda myndhugsun
hans einnig allt önnur, Hann rúllar
kannski upp léreftstranga og festir
með mikilli vandvirkni við eina hlið-
ina — snjöll hugmynd er gengur inn
í myndverkið og verður hluti þess
og felur í sér efnislega skírskotun.
Miklu oftar sér maður slíkar til-
raunir, sem koma eins og skrattinn
úr sauðarleggnum í algjöru til-
gangsleysi sínu, en er fálmkennd
tilraun til að vera nútímalegur.
Formin í myndum Birnu eru ein-
föld og heil, hún tekur ekki mikla
áhættixi, en telst rétt að svo komnu,
en það er eitthvað skrambi mynd-
rænt við þessar myndir er leitar á
og heldur manni föstum. Er hér um
að ræða mannverur, einar sér eða
tvær, sem hún staðfærir á mynd-
flötinn á mjög einfaldan og mynd-
rænan hátt. -Vil ég hér einkum
nefna myndirnar „Handa-bönd I“,
„Hjartaþel (13), „Gljúpur" (14),
Rof og umbrot
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Birna Kristjánsdóttir
„Handa-bönd 111“ (15), „Hjartaþel
111“ (16) og „Kuldinn" (19).
Allt eru þetta myndir, sem í ein-
faldleika sínum og myndrænni út-
færslp eins og kalla á athygli skoð-
andans.
í eystri sal Kjarvalsstaða hefur
veflistakonan Ingibjörg Styrgerður
Haraldsdóttir komið fyrir nokkrum
myndverka sinna og stendur sýn-
ingin til 3. desember.
Ingibjörg hefur verið mjög virk
á þessum árátug og víða sýnt verk
sín ásamt því að vefa fyrir ýmsar
opinberar stofnanir og einkaaðila.
Fyrir tveim árum sýndi hún verk
sín í vestari gangi Kjarvalsstaða
og er sú sýning mér nokkuð minnis-
stæð.
Það er látleysið, sem einkennir
vinnubrögð Ingibjargar, hvort held-
ur sem hún velur sér liti eða form.
Teppi hennar era einföld í sniðum
og litirnir mildir og þá yfirleitt blá-
ir og róandi. Er þetta mjög í sam-
ræmi við skapgerð listakonunnar,
sem gengur að auk að hlutunum
með yfirvegaðri ró og flýtir sér
hægt.
Teppin á sýningunni eru nokkuð
nútímaleg í formi og er ég ekki
alltaf viss um, að það henti henni
né að hún gangi að þeim með fullri
sannfæringu. Mun heilsteyptari er
vefur henni í sígildu formi t.d. vegg-
teppið „Vindur“ (10). En ekki er
ég alveg með á nótunum, er ókenni-
leg horn vaxa út úr myndunum eins
og t.d. á sér stað í myndunumj
„Allt til enda“ (6) og „Vala, vefur,
vefur vefur..(8), sem að öðru
leyti eru vel ofin verk og athyglis-
verð.
Hornin þykja mér fullkomlega
óþörf og einna líkast ókennilegum
útskotum.
Mun betur tekst henni upp að
mínu mati í nútímalega vefnum
„Rof“, þar sem formin eru heil, ein-
föld og klár.
Það er ákaflega heill og þekkileg-
ur svipur yfir þessari sýningu og
þegar Ingibjörgu tekst að beisla
nýjungaákefðina, þá er ekki vafi á
því, að hún eigi eftir að ná enn
lengra í vef sínum.
Frumleikinn og nýjungarnar
verða nefnilega að koma af sjálfu
MINNIS V ARÐ AR
„Bautasteinar" nefnir ung mynd-
listarkona málverkasýningu sína í
FÍM-salnum á horni Ránargötu og
Garðastrætis.
Þetta eru stórar myndir mjög
þungra og einfaldra forma, þar sem
áherslan er lögð á efni, lit og form.
Minnisvarðarnir eru dökkir og
þungbúnir, líkt og þeir búi yfir
óræðri sögu úr fortíðinni, — sögu
margvíslegra og á stundum torráð-
inna örlaga. En allt eins getur
myndefnið einungis verið hrein og
bein glíma við stór form, fáa en
klára liti og efniskennd svo og alla
samanlagða myndbygginguna.
Þetta er frekar einhæft þema og
að sama skapi erfitt, enda er útkom-
an æði misjöfn og þá sýnu best að
mínu mati í myndunum 2, 3 og 9.
Einkurn er formið í síðasttöldu
myndinni lifandi.
Mér finnst einhvern veginn sem
Ingibjörg færist full mikið í fang
og hafi ekki náð nægilega sterkum
tökum á samspili forma og lita, og
myndir þurfa ekki endilega að virka
svona þungar, þótt menn noti svart
óspart.
En það er hins vegar tvímæla-
laust mjög áhugavert, er ungt lista-
fólk velur sér jafn erfitt hlutskipti
og hér á sér stað, og með þraut-
Bautasteinar.
seigju og þolinmæði kann það að sýningarskrá á staðnum, stefnu-
bera dijúgan ávöxt, er tímar líða. yfirlýsing af nokkru tagi né þekki
Hvert listakonan er að fara, veit ég viðhorf hennar til málaralistar-
ég ekki með öllu, því að hvorki er innar.
VERZLUNARSKOLI
ÍSLANDS
ÖLDUNGADEILD
Innritun á vorönn öldungadeildar Verzlunarskóla
Islands fer fram á skrifstofu skólans dagana
27. - 30. nóvember kl. 08.30-19.00.
Ráðgert er að kenna eftirtalda námsáfanga á vorönn:
Bókfærsla: BÓK204, BÓK404, BÓK613
Danska: DAN404
Enska: ENS204, ENS404, ENS804
Farseðlaútgáfa: FAR114
Franska: FRA403, FRA803
Hagfræði: ÞJÓ203, REK415
íslenska: ÍSL102, ÍSL214, ÍSL404, ÍSL804
Landafræði og saga íslands: LAN213
Líffræði: LÍF204
Mannkynssaga: SAG602
Ritvinnsla: VÉL403
Stærðfræði: STÆ204, STÆ404, STÆ804, STÆ814
Tölvubókhald: TÖB214, TÖB414
Tölvufræði: TÖL113, TÖL203, TÖL403, TÖL614
Vélritun: VÉL102, VÉL201
Þýska: ÞÝS403, ÞÝS803
Aföngum ofangreindra námsgreina er hægt að safna saman
og láta mynda:
Próf af bókhaldsbraut
Próf af ferðamálabraut
Próf af skrifstofubraut
Verslunarpróf
Stúdentspróf
Umsóknareyðublöð og námslýsingar fást á skrifstofu
skólans, Ofanleiti 1.
Eyjabálkur Einars
Kárasonar kominn út
ÚT ER komin hjá Máli og menn-
ingu skáldsagan Fyrirheitna
landið eflir Einar Kárason.
í kynningu útgefanda segir m.a.:
„Þessi saga er sjálfstætt framhald
bókanna Þar sem djöflaeyjan rís og
Gulleyjan. Hún gerist nokkru síðar
en þær, sögusviðið er ekki lengur
Thulekampurinn heldur segir hér frá
för til fvrirheitna landsins, Ameríku.
Sögumaður er Mundi, sonur Dollíar,
og með honum í för er bróðir hans,
billjardséníið Bóbó og skáldið og sér-
vitringurinn Manni, sonur Fíu og
Gabriele
100
Tóta. Þeir halda á slóðir frumheija
rokksins, endurlifa gömlu sögurnar,
goðsagnirnar, fjörið og lætin. Þeir
hitta um síðir gömlu hetjuna, Badda,
sem býr í hjólhýsi með móður sinni,
Gógó. Þetta ér saga um hetjumynd-
ir, sársauka, draumóra og uppgjör."
Nú er verið að gefa fyrri bækurn-
ar tvær út í þýðingum á Norður-
löndum.
Fyrirheitna landið er 234 blaðsíð-
ur. Guðjón Ketilsson teiknaði kápu.
Prentstofa G. Benediktssonar prent-
aði, en bókband annaðist Arnarfell
hf.
Mál og menning hefur líka gefið
út „stórbók" sem hefur að geyma
þijár skáldsögur Einars Kárasonar,
Einar Kárason
sem eru Þar sem djöflaeyjan rís,
Gulleyjan og Fyrirheitna landið.
Saman mynda þessar sögur eina
heild og hafa þær stundum verið
nefndar „Eyjabálkurinn".
//ITRIUMPH-ADLER
Ritvélar
í úrvali
Verö frá kr.17.900,-stgr
EinarJ. Skúlason hf.
Grensásvegi 10, sími 686933
Greinar, ræður og pistl-
ar effcir Jónas Árnason
JÓNAS ÁRNAON, skáld og fyrr-
um alþingismaður, hefúr gefíð út
bókina „Góð bók og gagnleg fyrir
suma“ og í undirtitli eru taldir til
þess hóps sósíalistar, kvennalista-
konur, vinstri framsóknarmenn,
skynsamir kratar og viðtalshæfir
íhaldsmenn.
I bókinni eru greinar, ræður og
pistlar Jónasar frá tíma hans í blaða-
mennsku og á þingi og í bókarauka
íjórtán bréf hans frá New York til
meistara Þórbergs Þórðarsonar.
Kápumynd og kaflalýsingar eru eftir
Tolla og Jónas gefur bókina út í
minningu Kristins E. Andressonar.
Efni bókarinnar er skipt í eftir-
talda kafla: Hernámsmál, Utanrikis-
mál, Landhelgismál, Náttúruvernd
og stóriðja, Greinar um ýms efni,
Ádrepur af ýmsu tæi og Bókarauki.
Bókin er 202 blaðsíður.
Jónas Árnason
4