Morgunblaðið - 30.11.1989, Síða 13

Morgunblaðið - 30.11.1989, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. NÓVEMBER 1989 13 Kammersveit Reykjavíkur: Tónleikar í Askirkju LAUGARDAGINN 2. desember nk. heldur Kammersveit Reykjavíkur tónleika í Áskirkju og hefjast þeir klukkan 17. Á efiiisskránni verður Oktett í F-dúr eftir Franz Schubert. Tónleikamir verða fyrstu tónleik- ar sveitarinnar í Reykjavík á þessu starfsári, sem er hið sextánda hjá Kammersveitinni. Starfsárið er þó löngu hafið því Kammersveitin hef- ur átt annríkt í haust. Hún lék verk Atla Heimis Sveinssonar, „A gleði- stundu“, við vígslu Borgarleikhússins þann 20. október og í lok októ- ber fór Kammersveitin í tónleikaferð til Bretlands og hélt fema tón- leika með verkum íslenskra og erlendra höfunda við góðar undirtektir. Ingibjörg Styrgerður Haralds- dóttir sér og af þeim skal enginn hafa áhyggjur — ef til er frumlegur neisti í manni kemur hann fram í gegnum rökrétt vinnubrögð. Fyrr eða síðar. Þessi tregða íslenskra lista- manna til að inna af hendi lág- marksskyldur gagnvart skoðendum og listrýnum fer með sanni í taug- amar á mér, enda einsdæmi í heimi sem svo mjög ýtir upplýsingum að fólki og em hér listhúsin í útlandinu engin undantekning og þá síst af öllu framúrstefnusýningarhúsin. Tók ég t.d. ekki eftir slíkri van- rækslu í einu einasta listhúsi París- arborgar á sl. sumri, enda dettur engum í hug að bjóða skoðendum upp á slíkt í menningarborginni og frumlegt er það sannarlega ekki. Jafnan liggur fýrir kynning á við- komandi listamanni í einhveiju formi, — tíu línur í einfaldri sýning- arskrá geta sagt heilmikið, og því merkilegra sem sýningamar em, þeim ítarlegri er kynningin iðulega. Gefur það kannski auga leið? ■ KOMIN er út hjá Máli og menningu endurprentun á bók Astrid Lindgren og Ilon Wikland Víst kann Lotta að hjóla. Ásthild- ur Egilsdóttir þýddi. ■ LEIKJABOK fyrir smáfólk eftir Rod Campbell er komin út hjá Máli og menningu. í bókinni em léttir námsleikir fyrir yngstu börnin og er ætlað að kenna liti, lögun hluta og bókstafina svo eitt- hvað sé nefnt. ■ VEISTU h vað fullorðna fólk- ið gerir á kvöldin?er litmyndabók sem sem Mál og menning hefur sent frá sér. Bókin er þýdd úr norsku og segir hvað fullorðna fólk- ið þarf að snúast í mörgu eftir að börnin geta farið að hvíla sig. Bók- in er 32 blaðsíður og er prentuð í Danmörku. ■ NM UNG er flokkur barna- og unglingabóka sem kemur út í ódýrri útgáfu hjá Máli og menn- ingu. Bæði er um endurútgáfur vinsælla verka að ræða og nýjar þýðingar. ■ ÆVINTÝRI litla tréhestsins heitir bók sem nú kemur út í þess- um flokki. Bókin er eftir Ursula Moray Williams, breskan höfund sem er þekktur víða um heim, og myndskreyting er eftir Joyce L. Brisley. Sigríður Thorlacius þýddi söguna sem kom fyrst út 195L ■ í NM-UNG flokknum kemur líka út unglingabókin Átök við alt- urgöngur eftir breska rithöfundinn Gillian Cross. Við æfingar á skóla- leikriti, sem á bakgmnn rViktoríut- ímanum, gerast undarlegir atburð- ir. Guðlaug Richter þýddi söguna sem er 208 blaðsíður og mynd- skreytt. ■ ANNA í Grænuhlíð 2 er kom- in út í flokknum NM-UNG hjá Máli og menningu. Hér er Anna orðin barnakennari og hefur tekið að sér tvö munaðarlaus börn. Ró- mantíkin blómstrar alltaf í kringum Önnu þó hún hyggist ekki sjálf gifta sig í nánustu framtíð. Axel Guð- mundsson þýddi. í vetur einkennast tónleikar sveit- arinnar af verkum eftir Franz Schu- bert og verða þijú stærstu kammer- verk hans flutt: Oktettinn, sem flutt- ur verður á tónleikunum á laugar- dag, strengjakvintettinn og Silung- akvintettinn, sem verða á dagskrá seinna í vetur. Hinirhefðbundnujóla- tónleikar verða í ár helgaðir tvíleiks- konsertum fyrir blásturshljóðfæri og koma þar fram margir af okkar fremstu hljóðfæraleikumm sem ein- leikarar. Kammersveitin hefur fengið Paul Zukofsky til landsins til að leið- beina með flutning Oktettsins og leikur hann einnig með á fíðlu. Tónleikamir á laugardaginn verða helgaðir minningu Péturs Þorvalds- sonar, sellóleikara, sem lést 1. októ- ber sl. Pétur var einn af stofnendum Kammersveitar Reykjavíkur og tók virkan þátt í störfum hennar meðan kraftar hans entust. NETTARI, KRAFTMEIRIOG FULLKOMNARI örbylgjuofn MIC ROWtl 1 I MILR1> RF ATOD Utanmál 485 breidd X 297 hæð X 325 dýpt. 17 lítra 600w eldunarorka 5 hitastillingar 60 mín. klukka JAPISS BRAUTARHOLTI 1 ■ KRINGLUNNI, AKUREVRI STUDIO KEFLAVlK

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.