Morgunblaðið - 30.11.1989, Side 15

Morgunblaðið - 30.11.1989, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. NOVEMBER 1989 15 HaftiarQörður - framtíðarsýn eftirMjöll Flosadóttur Húsnæðismál Unga fólkið sem er að hefja bú- skap í Hafnarfirði á ekki margra kosta völ í leit sinni að hentugu íbúðarhúsnæði. Hingað til hefur megin áherslan verið lögð á skipu- lagningu einbýlis- og ráðhúsa í bænum, sem eru í flestum tilfellum ekki það húsnæði sem unga fólkið fjárfestir í þegar það er að hefja búskap. í nánustu framtíð vil ég gjarnan sjá íbúðarsvæði sérsniðin með þarf- ir ungs fólks í huga, þar sem skólar og dagheimili væru í næsta ná- grenni. Einnig þarf að huga að eldri hverfum bæjarins, gefa þarf ungu fólki tækifæri á að flytja í þau og þar með að skapa líf í þeim, auk þess sem þeir skólar sem fyrir eru verða ekki vannýttir. Lista- og menningarlíf Mjög mikilvægt er hveiju bæjarfé- lagi að hafa gott lista- og menning- arlíf. Leikfélag Hafnarfjarðar hefur til dæmis verið í stöðugri sókn á undanförnum árum og er það vel. Það er því verðugt verkefni að hlúa að leiklistinni í bænum svo og ann- arri lista- og menningarstarfsemi. Góð hugmynd væri að setja á stofn bama- og unglingaleikhús, sem myndi án efa draga til sín alla ald- urshópa, hvaðanæva af landinu. Slíkt leikhús myndi ekki einungis efla leiklistarstarfsemi bæjarins, heldur einnig ýta undir ýmiss konar þjónustu. Einnig mætti hugsa sér að efla aðrar listgreinar, svo sem mjmdlist, tónlist og margvíslega nytjalist, með því að fullnýta þá aðstöðu sem fyrir er og skapa ný tækifæri. Án efa myndi bæjarlífið í miðbænum taka verulegan fjör- kipp ef stefnt yrði markvisst að því að gera Hafnarfjörð að menningar- og listamiðstöð. Atviíinutækifæri í æ ríkari mæli hafa Hafnfirðing- ar sótt atvinnu til Reykjavíkur, eru ástæður þess margvíslegar. Þeirri þróun þarf að hægja á. Það mætti til dæmis efla starfsemi þjónustu- fyrirtækja í Hafnarfírði og þá ekki hvað síst í sjávarútvegi, þar sem stór hluti afkomu okkar byggir á þeim vettvangi. Einnig mætti hugsa sér að auka ferðamannaþjónustu við innlenda og erlenda ferðamenn. Ferðamannabær Höfnin, Hamarinn, Hellisgerði og gamli bærinn, allt eru þetta stað- ir sem Hafnfirðingar eru stoltir af óg gaman væri að leyfa öðrum, jafnt innlendum sem erlendum ferðamönnum, að njóta með okkur. Eg sé fyrir mér mikla möguleika í Hafnarfirði sem ferðamannabæ. Erlendir ferðamenn kæmu með gjaldeyri og mætti jafnvel hugsa sér Hafnarfjörð sem fríverslunar- svæði. Það myndi ekki einungis hafa í för með sér auknar gjaldeyr- istekjur, heldur einnig aðstöðugjöld af versluninni auk annarra skatta. Tengja mætti aðra þjónustu fyrir ferðamenn í Hafnarfirði við þessa verslun. Lokaorð Hafnarfjörður er fallegur ög vinalegur bær. Mjög mikilvægt er að viðhalda þeim bæjarbrag sem fyrir er, auk þess að stuðla að því að gera bæinn enn fegurri og líflegri. Slíkt gerist fyrst og fremst með fólkinu sem bæinn byggir, þörfum þess og löngun til að gera bæjarlífið áhugavert og uppbyggi- Mjöll Flosadóttir Hvernig er húsnæðis- málum háttað í Hafnar- firði? Hvernig stendur lista- og menningarlíf og hvað með atvinnu- tækifæri í bænum? Er Hafnarflörður þekktur ferðamannabær? Svari hver fyrir sig, en með framboði mínu í prófkjöri sjálfstæðis- manna í Hafnarfirði ætla ég að berjast fyrir eflingu þessara mála- flokka. legt. Því er nauðsynlegt á tímum framfara að fylgjast vel með óskum og þörfum nýrra kynslóða, því þetta er fólkið sem á að taka við þjóðar- skútunni. Kjósendur, nú er ykkar tími kom- inn til að velja talsmenn ykkar í bæjarmálum næstu fjögur árin. Nýtið ykkur því rétt ykkar til að kjósa. Höfimdur er forstööumaður verðbréfaviðskipta Sparisjóðs Hafnarfjarðar. Mun ekki liggja á liði mínu eftir Trausta Hólm Jónasson Hafnfirðingar geta í dag verið stoltir af búsetu í góðum bæ. Stolt- ið skýrist aðallega af tvennu. Sjálf- stæðismenn í fyrri bæjarstjórnum fylgdu hugsjónum sínum um með- ferð ijármuna og plægðu þann ■ DREGIÐ var í happdrætti Fé- lagsheimilis tónlistarmanna þann 10. nóvember síðastliðinn. Vinning- at' komu á eftirtalin númer: 1. vinn- ingur, Skoda Favorit 1990 kom á númer 1504, 2. vinningur, ferð fyr- ir tvo til Mallorca á vegum ferða- skrifstofunnar Atlantik að verð- mæti kr. 70 þúsund kom á númer 4770, 3.-6, vinningur, fjörutíu tímar í hljóðveri (án upptökumanns) kom á númer 404, 272, 2356 og 442, 7.-8. vinningur, innborgun á vöruúttekt hjá Molto kr. 50 þúsund kom á númer 4162 og3141, 9. vinn- ingur, Yamaha laser geislaspilari frá Hljóðfæraverslun Poul Bern- burg hf. kom á númer 1573, 10—11 vinningur, Sony tvöfalt segulband frá Japis hf. kom á miða númer 4577 og 4501, 12.—13 vinningur, myndverk að eigin vali að upphæð kr. 10 þúsund kom á númer 3711 og 4501, 14.—18. vinningur, matur og drykkur að eigin ósk samkvæmt matseðli á Veitingastaðnum Mong- olian Barbeque kom á númer 4182, 3777, 2005 og 2750, 19,—20 vinn- ingur, íslensk tónlist (átta plötur og geislad.) heildarútgáfa kom á númer 3701 og 637. ókræsilega akur óarðbærra rekstr- arforma sem sóunarsinnar höfðu slegið skjaldborg um. Þá fyrst skap- aðist grundvöllut' fyrir aukinni vel- ferð þeirri er nú blasir við okkur, ágætu Hafnfirðingar. í öðru lagi-getum við verið stolt af þeim glæsilegu mannvirkjum sem hinn þaulæfði borðaklippari okkar, bæjarstjórinn, hefur lokið við. Sumir segja að verði okkur sá þingmaður'ef gæfa hans og ógæfa okkar leyfir, sem næstdýrastur verður á eftir Góldfinger. En hann héfur fært okkur með dugnaði sínum endahnykk þess sem margt hvað hafði nú verið í burðarlið fyrri meirihluta og sumt hvað jafnvel yel á veg komið. Allir vita hvað við er átt og nægir að nefna Hafnarborg, sundlaugina í Suðurbænum og flakkarann úr Setbergshverfinu, en ég nefni ekki æskulýðsmiðstöðina. Eg viðurkenni að þar held ég að við höfum ekki verið nægilega stór- huga en það breytir ekki því að sú sem undir kom hjá borðaklipparan- um er hreinn „skandal“ þó fram- kvæmdin hafi verið bráðnauðsyn- leg. I þeirri óráðsíu óttast ég að sú framtíð sem þar gengur um sali muni bera þann kostnað sjálf og hvar er þá velferðin á vegi stödd. Mun framtíð þeirra ungmenna tengjast dráttarvaxtatekjum pen- ingafursta? Við megum ekki glata unga fólkinu burt til þeirrar Svíþjóðar þar sem hreinustu ftjáls- hyggjumenn búa miðað við þá tíma- skekkju sem það rauðbleika rugl færir okkur hér. Ég endurtek það sem ég hef Trausti Hólm Jónasson „Skattheimta er, að mínu mati, ofbeldisað- gerð,og um hana er engin þjóðarsátt.“ áður sagt. Skattheimta er, að mínu mati, ofbeldisaðgerð, og um hana er engin þjóðarsátt. Ég er samt ekki á móti velferð en að fara iila með fé skattpíndra samborgara er að strá salti í sár nútíðar og fram- tíðar. Það að geta valið, það er lýð- ræðið. Ef víðsýnir bæjarbúar vilja auka valkosti í þjónustu hér eftir sem hingað til í bænum mun ég ekki liggja á liði mínu við að gæta sem best hagsmuna skattgreiðenda ekki síður en annarra. Höfundur er rafvirki og í framboði í prófkjöri sjálfstaeðismanna i Hafnarfirði. ÁmorfórtÆst fimmtudags-til laugardagskvöld frá kl. 22 til 1.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.