Morgunblaðið - 30.11.1989, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. NÓVEMBER 1989
19
■ LILJA Eiríksdóttir hefur opn-
að sína fyrstu málverkasýningu.
Sýningin er í Smíðagalieríinu Mjó-
stræti 2B og er hún opin virka
daga frá kl. 10—18 og laugardaga
frá kl. 14—17. Á sýningunni eru
22 olíumyndir, sem flestar eru mál-
aðar á síðustu tveimur árum.
■ HÁTÍÐ verður í Fíladelfíu,
Hátúni 2, dagana 1. og 2. desem-
ber, og ber hún heitið „Hósanna ’89
— Tónleikar og tilbeiðsla“. Bæði
kvöldin verða tónleikar, sem hefjast
kl. 20.30, þar sem fjöldi þekktra
og óþekktra tónlistamanna kemur
fram. Meðal þeirra eru Þorvaldur
Halldórsson, jalti Gunnlaugsson,
kórinn Ljósbrot, sönghópur úr
Hjálpræðishernum og margir
fleiri. Laugardaginn 2. desember
verða haldnir fyrirlestrar. um texta-
gerð, tilgang lofgjörðarinnar og
hvernig hún fer fram. Fyrirlesarar
eru sr. Sigurður Ægisson, Samúel
Ingimarsson og Hafliði Kristins-
son. Aðgangur er ókeypis og Öllum
heimill.
H ÁHUGAHÓPUR um íslenskar
kvennarannsóknir heldur fund í
Skólabæ, Suðurgötu 26, í kvöld kl.
20.30. Fundarefni er „Hvað er
markvert að gerast í kvennarann-
sóknum í hinum ýmsu greinum?11,
og opnar Guðný Guðbjörnsdóttir
dósent umræðuna með því að fjalla
um þróun í uppeldisfræði. Allar þær
sem áhuga hafa á _ framgangi
kvennarannsókna á íslandi eru
hvattar til að mæta og taka þátt í
umræðunni.
■ UGLAN — íslenski kiljuklúb-
burinn hefur sent frá sér bókina
Myrkvun eftir danska rithöfundinn
Anders Bodelsen. Sagir gerist á
stríðsái-unum í Danmörku og segir
frá rannsókn á morði Otto Bau-
manns, forstjóra kvikmyndavers og
koma bæði andspyrnuhreyfingar-
tnenn og nasistar við sögu. Ingunn
Ásdísardóttir þýddi bókina sem er
171 bls. Næst hannaði kápu, en
Prentstofa G. Benediktssonar
prentaði.
Hvítmálað með
rúmfataskúffu
stærð 74X160 sm
FURU
HÚSID
Grensásvegi 16
108 Reykjavlk
Sími 687080
Aðventan
Aðventan hefst á sunnudaginn og þá byrjar
jólaundirbúningurinn fyrir alvöru.
Blómaval skartar nú sínu fegursta og býður
fólk velkomið á stærri
og betri jólamarkað.
Jólastjama
á hverju heimili
Hjá okkur velurðu úr
hundruðum jólastjarna.
GOTT VERÐ.
Nýjungar 1
jólaskrauti
JÓLATRÉSSALAN
ER HAFIN.
OPIÐ FRÁ
KL. 9-22
TIL JÓLA