Morgunblaðið - 30.11.1989, Page 24

Morgunblaðið - 30.11.1989, Page 24
24 MOUGUNBLADH) FÍMMTUDAGl'R 30. NÖVEMBÉR TÖ89 Hong Kong: Yfirvöld hóta að flytja Víetnama á brott með valdi St. Andrews. Frá Guðmundi Heiðari Frímannssyni, fréttarilara Morgimblaðsins. Reuter. BRESK yfirvöld hafa ákveðið að senda allt víetnamskt báta- fólk frá Hong Kong til Víet- nams, nema þá sem teljast pólit- ískir flóttamenn. Þau segjast reiðubúin að beita valdi til að framkvæma vilja sinn en stjórn- arerindrekar og fulltrúar Sam- einuðu þjóðanna sögðu í gær að það væri ólíklegt vegna þess umróts sem slíkar aðgerðir myndu valda í Bretlandi og öðr- um vestrænum löndum. Heimildarmenn segja að orð- slípirokkur verö frá kr. 7.744 HORKUTOL ■PYRIR VANDLÁTA # BIACKSiDECKER ! ÖLL TÆKIERU í STÁLKÖSSUM i SÖLUSTAÐIR UM ALLT LAND SINDRA BORGARTÚNI 31 STALHF SÍMI -62 72 22 Reuter Víetnömsk börn í flóttainannabúðum í Hong Kong. Þau eru úr hópi þeirra 13 þúsund manna sem úrskurðaðir hafa verið löglegir flótta- menn og fá því landvistarleyfi í borginni. rómur um að yfirvöld í Hong Kong væru að leigja skip til að flytja iíóttamenn til Víetnam væri búinn til í því skyni að hræða Víetnama frá því að flýja land. Einnig væri þetta gert til að róa almenning í Hong Kong en yfir 56 þúsund flóttamenn eru í yfirfullum búðum í borginni. Nokkrir flóttamann- anna hafa verið reiðubúnir til að fara af fijálsum vilja til baka, en langflestir þeirra vilja ekki hverfa til síns heima. í síðustu viku lýsti George Bush Bandaríkjaforseti yfir andstöðu sinni við fyrirætlun breskra yfir- valda á fundi með Margaret Thatc- her, forsætisráðherra Breta. Thatcher sagði að bátafólkið væri ólöglegir innflytjendur, sem yrði að senda til baka, rétt eins og Bandaríkjamenn gerðu sjálfir við ólöglega innflytjendur í sínu landi. Mannréttindasamtökin Amnesty International ákváðu um síðustu helgi að senda tvo fulltrúa til að fylgjast með framkvæmd heim- flutningsins. Douglas Hurd, utanríkisráð- herra Breta, sagði að senda yrði töluverðan hluta fólksins heim fyr- ir jól, áður en ný holskefla flótta- manna skylli á Hong Kong í upp- hafi næsta árs. William Wal- degrave aðstoðarutanríkisráðherra sagði að enginn annar kostur væri fyrir hendi en senda bátafólkið heim. Byggi það áfram í flótta- mannabúðunum í Hong Kong mundu sjúkdómar á borð við kól- eru stráfella það. Óstaðfestar fregnir herma að bresk stjómvöld séu um það bil að gera samning við víetnömsk yfirvöld um að taka á móti báta- fólkinu. Deilur um inn- flyljendur blossa upp í Frakklandi París. Reuter og Daily Telegraph. HÆSTIRÉTTUR Frakklands hefúr úrskurðað að stúlkur, sem játa múhameðstrú, megi bera slæður í skólum landsins í samræmi við trúarsiði sína. Jaftiframt var sagt að nemendur sem beittu aðra nemendur þrýstingi í trúareftium ætti að reka úr skóla. Ovæntir sigrar Þjóðfylkingar hægriöfgamannsins Jean-Marie le Pens í tveim aukakosningum hafa orðið til þess að málið hefúr blossað upp á ný eftir nokkurra vikna hlé og „slæðustríðið“ er á ný forsíðuefni dagblaða. Þjóðfylkingin vill banna innflutning múslima. Frambjóðandi Þjóðfylkingar- innar i borginni Dreux hlaut rúm 42% atkvæða og varð efstur; í Marseille hlaut fylkingin 33% og hafnaði næsfy á eftir fulltrúa hægrimanna. Urslitin hafa valdið írafári hjá hefðbundnu flokkunum og hafa kommúnistar í fyrsta sinn í sögu sinni hvatt kjósendur sína til að st.yðja hægrimenn í seinni umferð kosninganna til að hindra Þjóðfylkingarmenn í að ná kjöri. RENOLD KEÐJUR, TANNHJÓL OG ÁSTENGI Drifbúnaður hvers konar og rafmótorar eru sérgrein okkar. Allt evrópsk gæðavara. Veitum tæknilega ráðgjöf við val á drifbúnaði. Það borgar sig að nota það besta. Þekking Reynsla Þjónusta HOGG- OG TITRINGSPUÐAR FALKINN SUOURLANDSBRAUT 8 SlMI 84670 Þjóðfylkingin hefur ekki átt sæti á þingi i hálft annað ár. Stjórnar- flokkur sósialista hvetur sína kjós- endur til hins sama. Andstæðingar innflytjenda gerðu mikið úr því í kosningabar- áttunni að borgaryfirvöld í Mar- seille og Dreux hygðust reisa bænahús handa múslimum, mosk- ur. Einnig var það notað gegn sósialistum að stjórn Micheis Roc- ards hefur sagt að nemendur úr röðum múslima ættu að fá leyfi til að bera slæðurnar, þrátt fyrir mótmæli kennara, kvenréttinda: samtaka og ýmissa áhrifahópa. í Frakklandi eru ströng lög sem banna alla trúariðkun í skólum landsins og er markmiðið að koma í veg fyrir mismunun í þeim efn- um. Múslimar fleiri en kristnir eftir 20 ár? Talið er að múslimar í landinu séu um þijár milljónir og segir Þjóðfylkingin að innan tuttugu ára verði múslimar orðnir fleiri en kristnir. Dagblöð hvetja stjórnar- flokkinn og helstu stjómarand- stöðuflokka til að taka skýra af- stöðu til málefna innflytjenda og hreinsa þannig andrúmsloftið í því skyni að stöðva framgang Þjóð- fylkingarinnar. „Hvenær munu stjórnmálamenn okkar skilja að með því að neita að ræða málið ganga þeir aðeins erinda Þjóð- fylkingarinnar?" spurði íhalds- blaðið Le Figa.ro. Vinstriblaðið Li- beration tók í sama streng.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.