Morgunblaðið - 30.11.1989, Síða 27

Morgunblaðið - 30.11.1989, Síða 27
26 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. NOVEMBER 1989 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. NÓVEMBER 1989 27 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Aðstoðarritstjóri Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri Árvakur, Reykjavík Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Bjarnason. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, simi 691100. Auglýsingar: Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsia: Kringlan 1, sími 83033. Áskrift- argjald 1000 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 90 kr. eintakið. Vantraust á ríkisstjórn að er fullt tilefni til þess hjá stjórnarandstöðu- flokkunum að flytja tillögu um vantraust á núverandi ríkisstjórn. Sá glundroði, sem nú einkennir stjórnar- hætti í landinu, á sér fáar hliðstæður. Steingrímur Hermannsson hefur vissu- lega sýnt, að það er hægt að halda saman ríkisstjórn ijögurra eða fimm flokka en hann hefur líka sýnt og sann- að, að það er ekki hægt að stjórna landinu með ríkis- stjórn af því tagi. Meðferð virðisaukaskatts- málsins er skýrt dæmi um stjórnleysið og glundroðann, sem ríkir. Á þessari stundu veit enginn, hvort virðis- aukaskattur gengur í gildi um áramót eða hvers konar virðisaukaskattur kemur þá til framkvæmda eða hvort söluskattskerfið verður áfram við lýði um skeið. Hvernig halda menn, að at- vinnufyrirtækin, sem eiga að innheimta og greiða þennan skatt, geti staðið að því með þessu háttalagi? Hvernig á stjórnkerfið, sem á að halda utan um innheimtu þessa skatts, að undirbúa sig undir þessa víðtæku breytingu þegar allt er á huldu um hvenær hún kemur til fram- kvæmda og með hvaða hætti? Það hefur verið staðið með eindæmum illa að þessai’i skattkerfisbreytingu, sem þó hefur verið víðtæk samstaða um í grundvallaratriðum. Svo virðist sem Ólafur Ragn- ar Grímsson hafi gersamlega misst stjórn á fjármálaráðu- neytinu og verkstjórn þar. Staða þessa máls nú er meiri- háttar áfall fyrir fjármála- ráðherra. Þegar núverandi ríkis- stjórn tók við völdum fyrir rúmu ári lýsti hún því yfir, að hún mundi treysta at- vinnuöryggi í landinu. Niður- staðan er mesta atvinnu- Leysi, sem hér hefur þekkst í tvo áratugi. Þegar ríkisstjórnin tók við kvaðst hún mundu veija kjör hinna lægstlaunuðu og jafn- vel bæta þau. Niðurstaðan er mesta kjaraskerðing, sem hér hefur orðið í áratugi. Ríkisstjórnin kvaðst mundu stuðla að jafnvægi í byggðaþróun, en niðurstað- an eru einhverjir mestu erfið- leikar, sem hér hafa orðið í atvinnumálum landsbyggð- arinnar. Ríkisstjórnin lýsti því yfir, að hún mundi stuðla að stöð- ugleika í gengismálum. Nið- urstaðan er gífurleg gengis- felling á einu ári. Ríkisstjórnin lýsti því að sjálfsögðu yfir, að hún mundi ekki aðeins afgreiða fjárlög þessa árs hallalaus heldur með tekjuafgangi. Niður- staðan er milljarða halli á þessu ári og algjör uppgjöf fj ármálaráðherra við að leggja fram hallalaust fjár- lagafrumvarp fyrir næsta ár. Eitt helzta baráttumál ríkisstjórnarinnar var að lækka vexti verulega. Niður- staðan er sú, að þeir eru að þokast upp á svipað stig og þeir voru þegar ríkisstjórnin tók við! Þegar litið er yfir feril þessarar ríkisstjórnar og þann glundroða, sem nú ein- kennir stjórnarhætti hennar verður ljóst, að það er fullt tilefni til vantrausts. Verst er.þó, hve metnaður hennar er lítill. íslenzka þjóðin mun ekki rífa sig upp úr þeim efnahagslega öldudal, sem við erum nú stödd í, nema með meiri háttar uppskurði á ríkiskerfinu og grundvall- arbreytingum í sjávarútvegi og landbúnaði. Þessi ríkis- stjórn hefur engan metnað til þess að takast á við það verkefni. Þess vegna er hver dagur, sem hún situr, þjóð- inni ótrúlega dýr. Vinstri stjórnir hafa jafn- an verið þjóðinni til óþurftar. Svo var um vinstri stjórn Hermanns Jónassonar 1956- 1958 og tvær vinstri stjórnir Ólafs Jóhannessonar 1971- 1974 og 1978-1979. Hið sama á við um núverandi vinstri stjórn. Því fyrr, sem hún hverfur frá völdum, því betra. Kom mér mjög á óvart hve lítið fannst af loðnu -------------------- .. „ u, , -------------------------- . " - loðnan bæði horuð og léleg, segir Sveinn Sveinbjörnsson NIJ ER lokið nokkurra vikna loðnuleiðangri hafrannsóknaskipanna Arna Friðrikssonar og Bjarna Sæmundssonar. Mjög lítð fannst af loðnu og það, sem fannst var horað og lélegt. Að vísu tókst ekki að kanna svæðið út af Vestfjörðum vegna bræ'u og íss og er því þýðing fenginnar niðurstöðu nokkurri óvissu blandin. en norsku skipin væru með smáriðn- ar nætur og smáloðnan slyppi ekki úr þeim. Því væri hætta á verulegu smáloðnudrápi og skoða yrði þann möguleika að loka svæðinu. Rannsóknaskipið Árni Friðriksson hóf leiðangur sinn 26. október síðastliðinn og byijaði rannsóknir út af Vestfjörðum. Stöðugar brælur í hálfan mánuð hömluðu rannsókn- um með öllu og var þá haldið norður fyrir land. 11. nóvember kom Bjarni Sæmundsson út og ætlunin var að hefja rannsóknir fyrir vestan. ís var þá lagstur yfir fyrirhugað svæði og ekkert varð úr rannsóknum. Önnur hafsvæði tókst að rannsaka eins og áætlað hafi verið, en svæðið út frá Vestfjörðum milli Látrabjargs og Kögurs er ókannað. Sveinn Sveinbjörnsson, leiðang- ursstjóri á Árna Friðrikssyni, sagði í samtali við Morgunblaðið, að sér hefði komið á óvart hve lítið hefði fundizt af loðnu. í ljósi fyrri rann- sókna hefði verið búizt við mikilli loðnu á hefðbundinni slóð. Tvennt gæti komið til, einhver skilyrði í sjón- um hefðu komið í veg fyrir að loðn- án hefði komizt á legg, eða hún hagaði sér líkt og árin 1975 og 1979, þegar hún kom mjög seint inn á veiðisvæðið. Hvort væri líklegra, að' hún héldi sig á svæðinu undir ísnum eða hefði einfaldlega drepizt, vildi hann ekkert segja um. Úr því féng- ist ekki skorið fyrr en framvinda mála skýrðist. Það væri hins vegar verulegt áhyggjuefni hve horuð og léleg loðnan, sem fundizt hefði, væri. Tveggja ára loðnan hefði að meðal- Gífiirlegt áfall fyrir þjóðina alla segir Aðalsteinn Jónsson á Eskifirði AÐALSTEINN Jónsson, forstjóri Hraðfrystihúss Eskifjarðar, segir að tilgátur fiskift-æðinga um að loðnustofninn sé hruninn komi hann ekki undan ísröndinni úti fyrir Vestfjörðum séu geigvæn- legar. Hann segir að hrun stofiis- ins yrði gífurlegt áfall fyrir þjóð- ina alla. Aðalsteinn kvaðst þó efins um að þessu myndi fylgja verulegur samdráttur í þorskafla landsmanna, en fiskifræðingar telja að með hruni loðnustofnsins minnki stærð þorskstofiisins þar sem loðna sé uppistaða í fæðu þorsksins. „Það er loðna á víð og dreif um allan sjó. Það sést bara í trollum rækjubáta og í bolfiskafla báta um allt land,“ sagði Aðalsteinn. Hann sagði að útlitið hefði svo sem ekki verið bjart áður og fyrirtæki hans hefði' til dæmis ekki verið leyft að veiða loðnu frekar en öðrum árin 1982-83. „En þá var vaxtaokrið ekki til staðar og menn fljótari að jafna sig á svona áföllum." „Það eina sem er öðruvísi núna en undanfarnar vertíðir er að sjór- i'nn er allt að því helmingi hlýrri norðanlands en undanfarin ár. Þeg- ar loðnan gengur úr köldum sjó yfir í heitari sjó sundrast hún en finnst oft löngu síðar í torfum upp við land,“ sagði Aðalsteinn. Aðalsteinn sagði að fjárfestingar fyrirtækis síns vegna loðnuveiða næmu 700 milljónum króna, en fyr- irtækið gerir út loðnuskipin Hólma- borg, Jón Kjartansson og Guðrúnu Þorkelsdóttur og rekur 800 tonna loðnuverksmiðju. Hann sagðist hins vegar ekki enn hafa gefið upp alla von um að loðnu- veiðar glæðist. tali mælzt 12,2 grömm að þyngd, en í meðalári væri hún 17,4 grömm að þyngd. „Ef loðnan heldur sig annars staðar og er vel á sig komin, hefur sá hluti hennar, sem við fund- um og mældum, ekki verið á sama stað,“ sagði Sveinn. Sveinn sagði það ennfremur tölu- vert áhyggjuefni, að Norðmennirnir væru nú komnir á miðin. Loðnan væri enn mjög blönduð að stærð, í samningi íslendinga, Norð- manna og Grænlendinga er ákvæði um gagnkvæman veiðirétt innan iögsögu hvers lands, en ekkert ákvæði er um stærð riðils í nótinni. Enda var gert ráð fyrir því, að veið- ar Norðmanna innan lögsögu okkar hæfust ekki fyrr en eftir áramót og beindust fyrst og fremst að hrogna- fullri loðnu til frystingar, en þá hef- ur smáloðnan skilið sig frá þeirri stóru. Frá loðnubræðslu á Eskifirði. Dómssátt í „ Jónsmáli“ Fallið verði ft*á málshöfðun fyrir mannréttindadómstóli Dómsmálaráðherra og Jón Kristinsson á Akureyri munu að öllum líkindum undirrita á næst- unni sátt sem felur í sér að ríkið endurgreiði Jóni að ftillu með vöxtum sekt og málskostnað sem hann var dæmdur til að greiða í opinberu máli og kostnað hans við að leita réttar síns, gegn því að liann falli frá málshöfðun gegn íslenska ríkinu fyrir mannrétt- indadómstólnum í Strasbourg. Jón Thors skrifstofustjóri í dóms- málaráðuneytinu og Eiríkur Tómas- son hrl., lögmaður Jóns Kristjánsson- ar staðfestu þetta í gær. Jafnframt verður gerð sátt í hliðstæðu máli Einar Sverrisson, sem búsettur er í V-Skaftafellssýslu, en rekstur þess er mun skemur á veg kominn fyrir mannréttindanefnd og -dómstóli Evr- ópu en mál Jóns. Að sögn Eiríks Tómassonar er einnig gert ráð fyrir að ríkið sjái um að bókun verði gerð í sakaskrá um lyktir-málsins. Hann vildi ekki gefa upp um hve háar fjárhæðir umbjóð- endum hans yrðu endurgreiddar, en sagði að ekki væri um mikla peninga að ræða. Þá sagði hann að bera þyrfti þessi málalok undir mannrétt- indadómstól og mannréttindanefnd til samþykktar. Málshöfðun Jóns Kristinssonar er, sem kunnugt er, til komin vegna þess að sami maður, fulltrúi bæjar- fógetans á Akureyri, íjallaði sem lög- reglustjóri og sakadómari urn kæru gegn Jóni fyrir umferðarlagabrot. Svipaðar ástæður lágu tii þess að máli Einars Sverrissonar var skotið til Strasbourgar. Mannréttindanefnd Evrópu hafði komist að þeirri niður- stöðu í máli Jóns að sú skipan í landinu sem felur sýslumönnum og bæjarfógetum að fara með lögreglu- og og dómsmál í umdæmum utan Reykjavíkur bryti í bága við ákvæði mannréttindasáttmála Evrópu og hafði mannréttindadómstóllinn feng- ið máli ðtil meðferðar. Síðasta alþingi samþykkti lög um aðgreiningu dómsvalds og umboðs- valds sem taka munu gildi 1. júlí 1992, en í þeim felst að skilið verði á milli yfirstjórnar lögi-eglu- og dómsvaids í landinu öllu. Jón Thors segir að ráðuneytið hafi þegar búið svo um hnúta að ekki eigi að koma upp að sami einstaklingur mæli fyrir um meðferð máls sem lögreglustjóri og kveði síðan upp dóm í því. Kyrrðardagar í Skálholti: Starfsemi sem vax- andi þörf er fyrir - segir skólastjóri Skálholtsskóla „ÞETTA er starfsemi sem liefur sýnt sig að mikil og vaxandi þörf er fyrir og ég er viss um að á eftir að vinna sér varanlegan sess í okkar þjóðlífi,“ segir Sigurður Árni Þórðarson skólastjóri Skálholtsskóla um Kyrrðardaga, sem heíjast í Skálholti í dag og standa til laugardags. Kyrrðardagar hafa verið tvisvar til þrisvar sinnum á ári, en verða fjórum til sex sinnum á næsta ári, að sögn Sigurðar. „Kyrrðardagar eru kjörlendi fyr- ir þá sem búa og vinna við mikið álag,“ segir Sigurður aðspurður um hvers eðlis starfsemin er. Hann segir að ekki sé um að ræða af- slöppunarnámskeið, heldur fyrst og fremst kristna íhugun þar sem hinn ytri rammi er algjör þögn. „Það er lögð mikil áhersla á að þögnin sé alger,“ segir Sigurður. Þó er þögnin rofin af tónlist og við bænagjörð og flutning fræðslu- erinda. „Fólk hefur störf klukkan 8.30 að morgni með messu, síðan er tíðagjörð á þriggja stunda fresti og flutt eru fræðsluerindi,“ segir Sigurður. Þátttaka í Kyrrðardögum er öll- um heimil og eru tíu til tuttugu manns í einu, við það er miðað að einn sé um hvert herbergi. „Fólk hefur komið víða að á Kyrrðardaga og úr öllum hornum samfélagsins, enda gerum við engar kröfur um skoðanir fólks eða bakgrunn," seg- ir Sigurður Árni Þórðarson. Sjórannsóknir og loðnugöngur 2. niynd. Hafstraumar á Norður Atlantshafi og í Norðurhafi, ásamt upplýs- ingum um hvenær (ár) ákveðin skilyrði (seltuláginark), sem berast með straumi, fundust. Athuganir sýna að áhrifa hafísáranna við ísland, t.d. 1968, má rekja áfram í áhrifum íss og pólsjávar á seltu sjávar á Norður Atlantshafi. Áhrifanna gætti við suðurströnd íslands 1976, við Svalbarða 1979 og við Austur Grænland á hafinu fyrir norðan ísland 1981-1982. Áhrif frá lágri seltu í sjónum við ísland 1975-1979/1985-1988 munu sam- kvæmt þessu hugsanlega gæta um 1990-1993 í sjónum fyrir norðan land 1. mynd. Loðnugöngur í hafinu við Island (Hj. Vilhjálmss. 1983). Sumar og haustgöngur (fæðu og hrygningargöngur) í hafinu fyrir norðan land eru á sama svæði og rannsóknir á rs. Bjarna Sæmundssyni í september 1989. Gönguleiðirnar eru við skilin milli pólsjávarins og svalsjávarins á slóðinni. Austur-Islandsstraumi. Þegar seltan er undir 34,7 ríkir pólsjór í straumnum. b. Selta á 50 m dýpi í júní 1961-1989 út af Siglunesi. c. Selta á 100 m dýpi í júní 1971-1989 á Selvogsbanka. eftir Svend-Aage Malmberg Inngangur Rannsóknaskipið Bjarni Sæ- mundsson var í rannsóknum á vest- anverðu íslandshafi í september sl. Þá er átt við hafsvæðið milli Austur- Grænlands, Jan Mayen og íslands (1. mynd). Um var að ræða þátttöku Dana og Islendinga í alþjóðahafrann- sóknum í Norður-Grænlandshafi (Greenland Sea Project), en þær hóf- ust 1987 og verður þeim væntanlega fram haldið til 1991 í núverandi mynd. Greint var frá þessum rann- sóknum í grein í Morgunblaðinu 21. ágúst 1987. Birst hafa nokkrar skýrslur um rannsóknir og unnið er að ritgerðum um niðurstöður m.a. fyrir ráðstefnu jarðeðlisfræðinga í Evrópu (EGS), sem haldin verður í Kaupmannahöfn í apríl 1990. Grein- in hér á eftir byggist á grein sem er í undirbúningi fyrir ráðstefnuna í Káupmannahöfn. Ástand sjávar og loðnan Að loknum leiðangri í september sl. var höfundur ítrekað spurður álits á aðstæðum í sjónum í íslandshafi og hvort þar væri að finna nokkra skýringu á hegðun loðnunnar í haust (1989). Ekki voru þá á lausu neinar öruggar vísbendingar þar um og var vikist undan því að reyna að útskýra óljósar hugmyndir, enda er mikið í húfi. Vegna úrvinnslu gagna er því nú svo komið að málið hefur e.t.v. skýrst. Verður hér á eftir gerð grein fyrir ástandi sjávar í Islandshafi í haust með sérstöku tilliti til loðnunn- ar. Textanum verður stillt í hóf en reynt að útskýra málið með myndum. (Sv.A.M. o.fl.). Sjógerðir í íslandshafí . í íslandshafi gætir ýmissa sjó- gerða. Þar eru m.a. kaldur og seltu- lítill pólsjór í Austur-Grænlands- straumi suður með Austur-Græn- landi; hlýr og saltur Atlantssjór í Irmingerstraumi út af Norðurlandi; svalur arktískur millisjór á 400-600 m dýpi í landgrunnshlíðum Austur- Grænlands og Norðurlands, en hann er leyfar hlýsjávarins við Noreg og- Svend-Aage Malmberg „Þessir minnispunktar leiða hugann að því hvort eitthvað svipað kunni að gerast í sjón- um fyrir Norðurlandi 1990-1993 og gerðist 1981-1983.1 framhaldi af því vaknar einnig sú spurning hvort eitthvað svipað hafi ekki hent í hafinu fyrir Norður- Noregi og átt sinn hlut í hruni loðnustofiisins og þorskstofhsins við Noreg á allra síðustu árum.“ Svalbarða með ívafi blöndunar við fyrrnefndu sjógerðirnar; og kaldur og tiltölulega seltumikill djúpsjór, sem fyllir öll djúp Norðurhafa og myndast hann við kælingu á tiltölu- lega söltum sjó í yfirborðslögum. Seltufrávik áttunda áratugarins í N orður-Atlantshafi Meðal þess sem athuganir í ís- landshafi í september 1989 leiddu í ljós var að seltan í millisjónum var lægri en 1987 og 1988 eða um 34.92 í stað 34.85%o. Þessi uppgötvun leiddi hugann að svonefndu seltufrá- viki á áttunda áratugnum í straum- kerfi Norður-Atlantshafs og Norður- hafs (2. mynd). Upphafs þessa frá- viks var að leita í útstreymi pólsjáv- ar um Grænlandssund á hafísárunum 1965-1970 hér við land. Seltulítill pólsjórinn hafði áhrif um allt norðan- vert Atlantshaf og kom að því að seltulækkunin skilaði sér hér við land í kringum 1976 með hlýja sjónum úr suðri, eða úr átt sem síst skyldi ætla. Seltulækkunin barst áfram inn í Noregshaf allt norður að Svalbarða (1979) og þaðan áfram suður með Austur-Grænlandi til íslandshafs (1981-1982) í millisjónum. Seltufrávik 1975-1979/1985- 1088/1990-(1993?) Ef leitað er svars eftir ofannefnd- um leiðum við lágri seltu í millisjón- um í íslandshafi í september 1989 berast böndin að ástandi sjávar fyrir Norðurlandi 1975-1979 (3. mynd a,b). Þá fannst pólsjór á norðurmið- um í meira eða minna mæli. Þessu ástandi fylgdi svo ef að líkum lætur lækkandi selta í sjónum við sunnan- vert landið 1985-1988 (3. mynd c) og enn í millisjónum í september 1989 eins og að ofan sagði. Síðan má velta því fyrir sér hvernig ástand- ið í sjónum fyrir Norðurlandi verður ef lág selta frá 1979 fyrir norðan og síðan 1988 á Selvogsbanka skilar sér í Norðurhafi og íslandshafi sér- staklega (1993?). Verða komandi ár á Norðurmiðum svonefnd svalsjávar- ár eins og 1981-1983? Ástand sjávar og loðna 1981-1982 Athuganir þær sem lýst er hér að framan eru mjög áhugaverðar frá veðurfarslegu og haffræðilegu sjón- armiði, enda ofarlega á baugi með haffræðingum vesfanhafs og austan. Þær eru væntanlega ekki síður áhugaverðar frá vistfræðilegu sjón- armiði. Minnt skal á að seltufráviki áttunda áratugarins (1968-1976- 1981/82; 2. mynd) fylgdu óvenju óvistlégar aðstæður í hafinu fyrir Norðurlandi 1981-1983. Þávar ólag- skiptur og uppblandaður svalsjór í meira eða rninna mæli á norðurmið- um með vetrarástandi allt árið. Milli- sjórinn _var þá m.a. með greinilegu seltulágmarki, sem lækkar eðlis- þyngd hans og auðveldar blöndun hans við pólsjó og annan léttan yfir- borðssjó. Samfara þessu ástandi var lífríkið í sjónumn fátæklegt að vori og sumri (áta og seiði í lágmarki). Umhverfisáhrifin ásamt veiðunum leiddu svo 1982 til hruns í Joðnu- stofninum og veiðibanns. Ástand sjávar og öllu fremur loðnustofnsins kom svo fram í vexti og viðgangi þorskstofnsins með lítilli nýliðun, minnkandi vaxtarhraða og hækkun á kynþroskaaldri. Lokaorð Þessir minnispunktar leiða hugann að því hvort eitthvað svipað kunni að gerast í sjónurn fyrir Norðurlandi 1990-1993 og gerðist 1981-1983. í framhaldi af því vaknar einnig sú spurning hvort eitthvað svipað hafi ekki hent í hafinu fyrir Norður- Noregi og átt sinn hlut í hruni loðnu- stofnsins og þorskstofnsins við Nor- eg á allra síðustu árurn. Að lokum, þessi grein fjallar um ástand sjávar á miðunum, en ekki beinlínis um flókna ferla líffræðinnar í sjónum né rannsóknir á fiskistofn- unum við landið. Aðeins er að því vikið hvernig mismunandi ástand sjávar hefur hugsanlega áhrif á þá. Margar spurningar yakna eflaust hjá lesenda sem er ósvarað hér, en höf- undi þótti rétt og nauðsynlegt að koma þessum athugunum á fram- færi nú eins og málum virðist háttað varðandi loðnuveiðarnar við landið enn sem komið er a.m.k., hvað sem verður. Þessi umfjöllun sýnir einnig glöggt hve mikilsvert er fyrir okkur að fylgj- ast vel með ástandi sjávar bæði á djúpmiðum og grunnmiðum á hafinu umhverfis landið. Þessar rannsóknir okkar fá svo aukið burðarþol í al- þjóðasamvinnu á sviði hafrannsókna á enn víðáttumeiri svæðum eins og t.d. í hinum alþjóðlegu Norður- Grænlandshafsrannsóknum seni get- ið var í upphafi þessa tnáls. Höfundur er haffrædingur.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.