Morgunblaðið - 30.11.1989, Side 30
30
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30J NÓVEMBER 1989
Nýsmíðaskip Slippstöðvarinnar:
Samningur gerður við Meleyri á
Hvammstanga um kaup á skipinu
SAMNINGUR hefur verið gerð-
ur um kaup Meleyrar hf. á
Hvammstanga á nýsmíðaskipi
Slippstöðvarinnar hf. Samning-
urinn er með fyrirvara um sam-
þykki banka, sjóða og sjávarút-
vegsráðuneytis vegna yfír-
færslu á kvóta, en Slippstöðin
mun taka Glað HU, eldra skip
Meleyrar, upp í kaupin.
Sigurður Ringsted forstjóri
Slippstöðvarinnar sagði að stefnt
væri að því að afhenda skipið full-
búið í apríl á næsta ári, en nokk-
urra mánaða vinna er enn eftir
■ BJARTMAR Guðlaugsson
heldur útgáfutónleika í Sjallanum,
Akureyri í kvöld, vegna útkomu
fimmtu sólóplötu hans, „Það er
puð að vera strákur“. Það má
teljast sjaldgæft að tónlistarmenn
haldi útgáfutónleika sína utan
Reykjavíkur. Bjartmar mun einnig
árita nýju plötuna sína í Hljómdeild
KEA og Hagkaup á Akureyri á
fimmtudaginn. Laugardaginn 2.
desember mun hann svo halda tón-
leika í Hótel Mælifelli á Sauðár-
króki en áritun platna fer fram í
Kaupfélagi Skagfirðinga föstu-
daginn 1. desember.
við skipið. Hann sagði að vinna
við skipið hæfist væntanlega í jan-
úar, en undirbúningur vegna loka
verkefnisins væri þegar hafinn,
þ.e. kaup á búnaði og fleira.
„Þetta lagar mjög fjárhagsstöð-
una og léttir af þeim lánum sem
hvíla á skipinu,“ sagði Sigurður.
Samningurinn var gerður með fyr-
irvara um samþykki viðskipta-
banka, Fiskveiðasjóðs og sjávarút-
vegsráðuneytis vegna yfirfærslu
veiðiheimilda Glaðs yfir á nýja
skipið, en Sigurður sagðist eiga
von á að afgreiðslu málsins yrði
hraðað.
Sigurður sagði að vinna við
skipið væri um fjórðungur af allri
vinnu í Slippstöðihni og því ljóst
að enn vantaði fleiri verkefni.
Slippstöðin bauð sem kunnugt er
i verk við endurbætur á Árna Frið-
rikssyni, skipi Hafrannsóknar-
stofnunar og bíða menn nú svars
um hvaða stöð fær það verkefni,
en þrjár íslenskar stövðar koma
til greina. Það tilboð sem Slipp-
stöðin gerði er verkið var boðið
út, stendur enn óbreytt, að sögn
Sigurðar, en honum var boðið að
skoða skipið og tilboðið að nýju.
Byijað er að endurráða starfs-
fólk Slippstöðvarinnar, en verk-
stjórar og flokksstjórar hafa verið
endurráðnir. „Við erum að vinna
í þessu, en tökum eitt skref í
einu,“ sagði Sigurður.
Meleyri hf. sem kaupir skipið
mun gera það út sem rækjutogara
og tekur Slippstöðin Glað HU upp
í kaupin. Sigurður sagði enn
óákveðið hvað gert verður við
Glað, en a,ð öllum líkindum yrði
hann gerður upp hjá stöðinni og
síðan seldur.
Kara:
.
> 'V'SiS. Sft
■
Blesi taminn
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Hann
temja
vetra,
sýndi mikla leikni við tamninguna, hann Pétur, sem var að
Blesa við bæinn Brún, rétt ofan Akureyrar. Blesi, sem er sex
lét vel að stjórn og gekk samvinna þeirra Péturs hið besta.
Von á milljónustu dósinni
ÞEIR Gunnar Garðarsson og Alfireð Jónsson hjá Kara, fyrirtæki
sem tekur á móti einnota umbúðum á Akureyri, búa sig undir að
taka.á móti milljónustu dósinni, en frá því byrjað var að taka á
móti einnota umbúðum seinnipart sumars og þar til nú hefur ver-
ið skilað inn tæplega einni milljón eininga.
■ Tekið er á móti um 10 þúsund
einingum á dag, að jafnaði, en
þeir Gunnar og Alfreð sögðu áber-
andi mest að gera *á mánudögum
og síðan aftur síðustu daga vik-
unnar, á fimmtudögum og föstu-
dögum. „Við förum að taka á
móti milljónustu dósinni og sá er
með hana kemur fær að sjálfsögðu
blómvönd,“ sagði Gunnar Garð-
arsson, en hann er framkvæmda-
stjóri Kara.
„Eg byijaði að vihna hérna fyr-
ir um tveimur mánuðum og líkar
vel, þetta er alveg ágætt,“ sagði
Alfreð. I fyrstu unnu átta manns
við móttöku einnota umbúða, en
þeim hefur smám saman fækkað
og eru þeir félagarnir tveir að
störfum þessa stundina.
„Við þyrftum í rauninni að reka
Selja hurð-
arkransa
Zontaklúbburinn Þórunn hyrna
verður með sölu á hurðarkröns-
um í göngugötunni á Akureyri,
í dag, fimmtudag, á morgun
og á laugardag. Allur ágóði af
sölunni rennur til líknarmála.
meiri áróður fyrir því að fólk skil-
aði umbúðunum inn,“ sagði Gunn-
ar. „Hjá barnafjölskyldum er
þessu haldið til haga og skilað inn
reglulega, en hinir fullorðnu nenna
síður að koma með, umbúðirnar
hingað.“ Frá því mótttaka umbúð-
anna hófst hefur einn einstakling-
ur fengið greiddar um 138 þúsund
krónur, en hann hefur komið með
mest magn einstaklinga.
Gunnar sagði að rætt hefði ver-
ið um að bæta aðstöðuna og kaupa
vélar og tæki til að taka á móti,
telja og pressa dósirnar, en blikur
væru á lofti þar sem stefndi i að
verslanir og fyrirtæki hygðu á
slíkar fjárfestingar einnig. „Ef
verslanir taka upp móttöku á ein-
nota umbúðum er um leið búið að
kippa rekstrargrundvellinum und-
an starfi okkar, við höfum átt við-
ræður við forsvarsmenn verslana
og allir utan einn eru tilbúnir til
að hætta við. Okkur þykir það
ansi sárt ef vérslanir fara út í
þetta, þar sem það er íþróttafélag
sem stendur á bak við okkar starf-
semi, um leið og við gerum gagn
öflum við fjár fyrir félagið," sagði
Gunnar.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Þeir Gunnar Garðarsson og Alfreð Jónsson taka á móti um 10 þús-
und einingum af einnota umbúðum á dag og ef fram heldur sem
horfir munu þeir taka á móti milljónustu dósinni innan skamins.
Stéttarsamband bænda um aðgerðir ríkisstjórnarinnar
vegna vanda loðdýraræktar:
*
Atelur harðlega vinnu-
brögð við ákvarðanatöku
STÉTTARSAMBANI) bænda hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem
segir að þær aðgerðir sem ríkisstjórnin hefur ákveðið uiti stuðning við
Ioðdýraræktina séu með öllu ófullnægjandi, og raunar ákvörðun um
að leggja loðdýrarækt niður sem atvinnugrein hér á landi. Atelur Stétt-
arsambandið harðlega þau vinnubrögð sem viðhöfð voru við töku þess-
arar ákvörðunar, þar sem málið er gert að sérstöku samningsatriði
milli flokka innan ríkisstjórnarinnar, í stað þess að fjalla uin það á
Alþingi á lýðræðislegan hátt eins og áformað hafði verið.
í yfirlýsingunni segir orðrétt:
„Stéttarsambandið minnir á að hér
er um mjög sérstætt mál að ræða.
Með uppbyggingu loðdýraræktarinn-
ar var verið að gera tilraun til ný-
sköpunar í landbúnaði. Þessi tilraun
var gerð að frumkvæði stjórnvalda
og kröfu samfélagsins. Hins vegar
var rekstrargrundvellinum kippt
undan loðdýraræktinni með beinum
stjórnvaldsaðgerðum, fastgengis-
stefnu og okurvöxtum.
Miklu fé hefur verið varið til þess-
arar uppbyggingar og ekki annað
sýnt en að mestur hluti þeirra fjár-
muna glatist. Hér er hins vegar ekki
eingöngu um fjárhagslegt tjón að
ræða, heldur glatast einnig sú verk-
þekking og kunnátta sem skapast
hefur í þessu sambandi. Vert er einn-
ig að hafa í huga að hrun loðdýra-
ræktarinnar er mikið áfall, ekki ein-
asta fyrir landbúnaðinn heldur fyrir
atvinnulíf landsmanna í heild, og
veruleg hætta á að það eigi eftir að
draga kjarkinn úr þeim sem reyna
að fitja upp á nýjungum í atvinnulíf-
inu.
Stéttarsambandið minnir enn
fremur á að hundruð fjölskyldna í
landinu munu verða fyrir gífurlegu
ijárhagslegu og félagslegu áfalli
vegna þessarar ákvörðunar ríkis-
stjórnarinnar, og krefst þess að þessu
fólki verði með einhveijum hætti
komið til aðstoðar."
mmrn
Brældi á loðnumiðum
BRÆLA var á loðnumiðunum
í fyrrinótt og engin veiði.
Súlan tilkynnti um 640 tonn til
Þórshafnar í fyrrakvöld.
Síðdegis í gær, miðvikudag,
höfðu þessi skip tilkynnt um afla
frá miðnætti: Þórshamar 600 tonn
til Þórshafnar, Erling 150 til Si-
glufjarðar, Víkingur 700 til Akra-
ness, Hilmir 850 til Siglufjarðar,
Húnaröst 650 til Þórshafnar,
Helga II 500 til Sigluijarðar,
Harpa 230 til Siglufjarðar, Gull-
berg 330 til Siglufjarðar, Keflvík-
ingur 370 til Siglufjarðar,
Grindvíkingur 400 til Sigluijarð-
ar, Höfrungur 450 til Siglufjarð-
ar, Þórður Jónasson 450 til
Krossaness, Isleifur 450 til Siglu-
fjarðar, Svanur 300 til Siglufjarð-
ar og Júpíter 800 til Bolungarvík-
ur.