Morgunblaðið - 30.11.1989, Side 35

Morgunblaðið - 30.11.1989, Side 35
lagin saumakona og dugði það henni vel með allan strákaskarann. Einnig átti hún pijónavél á móti Elísu mágkonu sinni á Oddsflöt, þæv skiptust á um að nota hana. Pqonuðu auk þess fyrir aðrar konur í sveitinni. 'í Hnífsdal vann Sólveig lengi í rækju og kom sér þá vel hversu handfljót hún var, þá var rækjan handpilluð. Sólveig hefur sérlega fallega rit- hönd eins og móðir hennar hafði og mörg systkini hennar. Það var lítið um ritföng í sveitinni, þegar þau voru að alast upp á Höfða, þá stálust þau til að æfa ritlistina á baðstofusúðinni og var misjafnlega þokkað. Nú er sveitin hennar löngu kom- in í eyði, en um sögu hennar og ættir fólks verður hægt að lesa í langþráðri Grunrivíkingabók, sem er væntanleg nú fyrir jólin. Ég hef alltaf verið í miklu uppá- haldi hjá Sólveigu föðursystur minni og gladdi hún mig oft sem barn með ýmsu móti enda stutt á milli bæjanna Oddsflatar og Sútara- búða, en stundum var erfitt að kom- ast yfír lækinn. Ég vil á þessum tímamótum í lífi kærrar frænku minnar þakka henni allt sem hún hefur verið mér fyrr og síðar. Ég óska henni innilega til ham- ingju með afmælisdaginn og stóra hópinn sinn, og bið góðan Guð að blessa hana á ævikvöldinu og gefa henni góða heilsu. Steinunn María Guðmundsdóttir N.k. laugardag 2. desember, ætlar hún að taka á móti gestum á heimili sonar síns, Kristins Friðbjarnarsonar, Hlégerði 3, í Hnífsdal. Uppstilling eftir Kjarval ■ 24. MÁL VERKA UPPBOÐ Gallerí Boragar í samráði við Listmunauppboð Sigurðar Bene- diktssonar verður haldið í kvöld í Súlnasal Hótel Sögu og hefst það kl. 20.30. Um sjötíu verk verða boðin upp eftir alla helstu myndlist- armenn þjóðarinnar, lifandi og látna. Má þar nefna býantsteikn- ingu frá 1937 eftir Þorvald Skúla- son og olíumálverk eftir hann frá 1980. Einnig verður boðin stór olíu- MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. NÓVEMBER 1989 35 " Kjartan Gissurar- son - Afinæliskveðja Kjartan Gissurarson fisksali, Sæviðarsundi 38, er 75 ára í dag. Kynni okkar eru ekki löng á hans mælikvarða og einungis brot úr ævi hans. En tæpan fjórðung ævi minnar höfum við þekkst. Eg kom fyrst inn á heimili hans árið 1981 þegar ég kynntist dóttur hans Ónnu. Kjartan er fæddur í Byggðar- horni í Flóa og ólst þar upp ásamt fimmtán systkinum. Hann fór ung- ur til sjós og sigldi um öll heimsins höf. Hann giftist árið 1944 Karen Gissurarson Sloth og komu þau til íslands eftir síðari heimsstyijöldina og hófu búskap hér í Reykjavík. Börnin urðu sex og barnabörnin eru orðin átta og barnabarnabörnin tvö. Frændgarðurinn er því stór. Ég kynntist Kjartani í lok starfs- ævi hans. Kjartan rak í mörg ár Saltfiskbúðina á Frakkastíg og síðast í Álfheimum og var sem fisk- sali þekktur í bænum, sérstaklega hjá húsmæðrum sem komu á hveij- um degi til að fá nýmeti í soðið. Þó Kjartan sé alinn upp á miklum umbrota- og alvörutímum í íslensku þjóðfélagi er oft grunnt á gaman- seminni — stundum of grunnt. Verðbólgu-stresskynslóðin er ákaf- lega viðkvæm fyrir því þegar henni er strítt á því að erfiðleikarnir nú á tímum séu hljóm eitt hjá því sem kynslóð Kjartans upplifði. Hann er hneykslaður á því að þessari kyn- slóð sem nú stýrir landinu skuli fært allt upp í hendurnar og er mynd eftir Gunnlaug Blöndal. Þá verða boðnar upp tvær myndir eftir Svavar Guðnason, og tvær olíu- myndir eftir Jóhannes S. Kjarval, en önnur þeirra, Uppstilling, hefúr ekki verið sýnd áður hér- lendis. Myndirnar verða sýndar í Gallerí Borg við Austrvöll í dag milli klukkan 10 og 18. ■ BJÖRGVIN Pálsson mynda- smiður hefur undanfarið sýnt myndir frá Garve strönd í Portúgal hjá Gallerí Madeira Klapparstíg 25. Sýingunni lýkur í dag, og er hún opin frá kl. 8—18. ■ DR. TERTTU Utriainen laga- prófessor við Lapplandsháskóla í Rovaniemi og forstöðumaður Norr- ænu lagastofnunar Lapplandshá- skóla heldur fyrirlestur í Norræna húsinu í dag kl 17.30 í boði laga- deildar Háskóla íslands og Norræna hússins. Fvrirlesturinn nefnir hún óspar á að minna hana á það — í gamni þó. yVldrei man ég eftir því að Kjart- an skipti skapi þó oft hafí verið ástæða til, bæði í minn garð og annarra. Þrátt fyrir það kemst enginn hjá því að virða skoðanir hans því Flóaskapið er fast fyrir. Það er enginn tími hjá honum, að vera að ergja sig eða öfundast út í náungann. Hann lifir eftir mottóinu: Lífíð er ekki bara leikur, það er líka dans á rósum. Lifðu heill! Björns S. Lárusson, Selfossi. „Stefna Finna í refsirétti“, og verð- ur hann fluttur á ensku. ■ ALMENNUR borgarafundur um málefni þróunarlanda verður haldinn í Norræna húsinu í kvöld, og hefst hann kl. 20.30. Flutt verða erindi um þróunaraðstoð almennt og hvert stefni með þróunaraðstoð sem íslendingar veita, og mun Steingrímur Hermannsson for- sætisráðherra greina frá stefnu ríkisstjórnarinnar í þessum málum. Að því loknu stýrir Stefán Jón Hafstein umræðum fulltrúa stjórn- málaflokkanna um stefnu þeirra í þessum málum, og leyfðar verða almennar umræður og fyrirspurnir. Að fundinum standa Brú, sem eru samtök áhugafólks um þróunarl- öndin, Hjálparstofnun kirkjunn- ar, Samband íslenskra kristni- boðsfélaga, Rauði kross Islands, Þróunarsamvinnustofnun Is- lands og Jarðhitaskóli Samein- uðu þjóðanna. Ódýrar kommóður S. 44 5 44 S. 82 5 55 SIEMENS Með SIEMENS heimilistœkjum verður lífið léftara! Traustir umboðsmenn okkar eru víðs vegar um landið! • Akranes: Rafþjónusta Sigurdórs, Skagabraut 6. • Borgarnes: Glitnir, Fálkakletti 13. • Borgarfjörður: Rafstofan Hvítárskála. • Grundarfjöröur: Guðni Hallgrímsson, Grundargötu 42. • Hellissandur: Verslunin Blómsturvellir, Munaðarhóli 25. • Búðardalur: Versl. Einars Stefánssonar, Brekkuhvammi 12. • ísafjöröur: Póllinn hf„ Aðalstræti 9. • Sauðárkrókur: Rafsjá hf„ Sæmundargötu 1. • Siglufjörður: Rafbær sf„ Aðalgötu 34. • Akureyri: Sír hf„ Reynishúsinu Furuvöllum 1. • Húsavík: Öryggi sf„ Garðarsbraut 18a. • Neskaupstaður: Rafalda hf„ Hafnarbraut 24. • Egilsstaðir: Raftækjav. Sveins Guðmunds., Kaupvangi 1. • Breiðdalsvík: Rafvöruv. Stefáns N. Stefánss., Ásvegi 13. • Höfn í Hornafiröi: Kristall, Hafnarbraut 43. • Vestmannaeyjar: Tréverk hf„ Flötum 18. • Hvolsvöllur: Kaupfélag Rangæinga, Austurvegi 4. • Selfoss: Árvirkinn hf„ Eyrarvegi 29. • Garður: Raftækjav. Sigurðar Ingvarssonar, Heiðabraut 2a. • Keflavík: Ljósboginn, Hafnargötu 25.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.