Morgunblaðið - 30.11.1989, Síða 36
36
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. NOVEMBER 1989
Viðtalstimi borgarfulltrúa
Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins
verða til viðtals í Valhöll, Háaleitisbraut 1,
á laugardögum ívetur frá kl. 10-12.
Er þá tekið á móti hvers kyns fyrirspurnum
ogábendingum.
Allir borgarbúar velkomnir.
Laugardaginn 2. desember verða til viðtals Jóna Gróa Sigurðardóttir, formaður atvinnu-
málanefndar, í stjórnum bygginganefndar aldraðra og SVR, og Guðmundur Hallvarðs-
son, formaður hafnarstjórnar.
w w w S/ W! rv; V- V? rv; S
I f # # | f í i í í f \
Morgunblaðið/Arnór
Sigurvegararnir í Sandgerðismótinu, bræðurnir Magnús og Gísli
Torfasynir spila gegn feðgunum Karli Einarssyni og Karli Karlssyni
en hinn fyrrnefndi er formaður bridsfélagsins Munins, sem stóð fyr-
ir mótinu. Talið frá vinstri: Gísli, Karl K., Magnús og Karl E.
Brids
feggll
Ví‘;,.v
Avextiri
SUMARSINS
Geyma Gullna Örku
Við hjá Sól kynnum nýjan íslenskan ávaxta-
drykk sem sameinar bragðgœði, ferskleika og
hollustu. Nýju ávaxtasafarnir heita Nektar, sem
er œvafomt heiti á ódáinsdrykk hinna fornu
guða Grikkja og Rómverja.
Nektar er mildur og
bragðljúfur
drykkur, mildari en óblandaðir safar og fer því
betur í maga. Apþelsínu-nektar er unnin úr
úrvals appelsínum og Trópikal-nektar úr anan-
as, perum, eplum og appelsínum. Gullin safi frá
sérfrœðingum í framleiðslu
ávaxtadrykkja.
Arnór Ragnarsson
Naumur sigur bræðranna
í Sandgerði
Bræðurnir Magnús og Gísli Torfa-
synir unnu nauman en sætan sigur í
árlegu helgarmóti Bridsfélagsins Mun-
ins í Sandgerði sem fram fór sl. laugar-
dag. 32 pör spiluðu barometer, tvö
spil milli para. Gísli og Magnús leiddu
mótið framanaf og af og til síðari hlut-
ann.
Lokastaðan:
Magnús Torfason — Gísli Torfason 150
Hróifur Hjaltason — Sverrir Ármannsson 149
Sigtryggur Sigurðsson — Bragi Hauksson 142
Valur Sigurðsson — Hjördís Eyþórsdóttir 139
Sveinn Eiríksson — Steingrímur Pétursson 89
Jóhannes Ellertsson — Heiðar Agnarsson 72
Helgi Jóhannsson — Haukur Ingason 71
Fyrsti vinningur var ferðavinningur
fyrir 60 þúsund krónur auk 5 þúsund
kr. peningaverðlauna, önnur verðiaun
40 þús. kr. ferðavinningur og sömu
peningaverðlaun, þriðju verðlaun 20
þúsund kr. ferðavinningur auk 5 þús-
und kr., fjórðu vérðlaun 10 þúsund kr.
og fimmtu verðlaun 5 þúsund kr.
Mótið fór mjög vel fram. Keppnis-
stjóri var Olafur Lárusson.
Nokkur misbrestur var á að þeir, sem
höfðu skráð sig til keppninnar mættu
ekki. Þessi framkoma er óþolandi bæði
fyrir stjórnendur og aðra spilara sem
voru á biðlista að komast í mótið. Mega
viðkomandi búast við að verða útilokað-
ir frá keppninni í framtíðinni.
Bridsfélag Suðurnesja
Sveit Þórðar Kristjánssonar sigraði
í 9 sveita minningarmóti um Guðmund
Ingólfsson sem staðið hefir yfir undan-
farna mánudaga. Með Dodda spiluðu
Jóhannes Sigurðsson, Karl Hermanns-
son og Arnór Ragnarsson.
Segja má að „óvænt endalok" hafi
orðið í mótinu þar sem sveit GS hafði
ekki tapað leik fyrir síðustu umferðina
og átti bestu möguleikana á sigri í
mótinu. Þeir töpuðu hins vegar illa
fyrir „gömlum harðjöxlum" á meðan
sveit Þórðar fékk 18 stig fyrir yfirsetu.
Lokastaðan:
Þórður Kristjánsson 170
GS 164
Heiðar Agnarsson 164
Kjartan Olason 155
Haraldur Brynjólfsson 140
Grethe íversen 134
Næsta mánudag verður spilaður eins
kvölds tvímeningur og annan mánudag
hefst tveggja kvölda firmakeppni. Spil-
að er í Golfskálanum í Leiru á mánu-
dögum kl. 20.
Bikarkeppni Austurlands
Leikjunum báðum í undanúrslitum
Bikarkeppni er lokið. Annars vegar
áttust við sveit Herðis frá Egilsstöðum
og sveit Samvinnubankans, Vopnafirði,
og sigraði síðarnefnda sveitin í jöfnum
leik með 5 impa mun. Hins vegar öttu
kappi sveit Skipakletts frá Reyðarfirði
og Eskfirðingur frá Eskifirði. Eskfirð-
ingur vann þar góðan sigur með 129-83
impum. Sveit Eskfirðings og Sam-
vinnubankans munu eigast við í úrslita-
leik þann 10. desember nk.