Morgunblaðið - 30.11.1989, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. NÓVEMBER 1989
39
Sören Sörensson
læknir - Minning
Miðvikudaginn 22. nóvember sl.
andaðist í Borgarspítalanum Sören
Sörensson læknir og fræðimaður
eftir þriggja mánaða sjúkrahús-
vist.
Var hann kunnastur fyrir þátt
sinn við undirbúning Ensk-íslensku
orðabókarinnar.
Ég var svo lánsöm að kynnast
Sören og hans elskulegu konu,
Elínborgu, þegar ég var barn að
aldri. Ég bjó í næsta húsi við þau
í Akurgerðinu, var heimagangur
hjá þeim og naut góðs af barn-
gæsku þeirra en þeim varð ekki
barna auðið.
Á þessum árum áttum við marg-
ar .góðar stundir saman og kaus
ég þá oft á tíðum að dvelja á heim-
ili þeirra frekar en að eyða tíman-
um með jafnöldrum mínum. Heim-
ili sem hafði yfir sér sérstakan
virðuleika og hlýlegan blæ sem
mótaður var af persónuleika fræði-
manns og natinnar húsmóður.
Gleymi ég því aldrei þegar ég sat
í kjöltu Sörens á skrifstofu hans
þar sem hann kenndi mér að skrifa.
Einnig eru mér ógleymanlegar
stundirnar í garði þeirra hjóna og
ferðirnar með þeim út fyrir borg-
ina.
Árin liðu, ég og fjölskylda mín
fluttum í annað hverfi, Elínborg
lést, samverustundunum fækkaði
en þrátt fyrir það hélst vináttan
og tryggðin.
Við flölskyldan minnumst nú
góðs vinar og ánægjulegra sam-
verustunda er við áttum með hon-
um á heimili mínu og einnig heim-
ili foreldra minna á liðnum árum.
Stórt skarð mun verða við matar-
borðið á aðfangadagskvöld. En það
er þó huggun að vita að Sören
hefur eflaust verið hvíldinni feginn.
„Nú legg ég augun aftur
ó, Guð, þinn náðar kraftur
mín veri vörn í nótt.
Æ virzt mig að þér taka
mér yfir láttu vaka
þinn engil svo ég sofi rótt.“
(Sveinbj. Egilsson)
Sigríður Gunnarsdóttir
IGLERI
NÝTT SYKURSKERT MALT
Helmingi fœrri hitaeiningar
■ TÍMARITIÐ Skák gengst fyrir
39. Helgarskákmóti sínu dagana
1,—3. desember næstkomandi í
Keflavík í samvinnu við taflfélag
staðarins og bæjaryfirvöld. Teflt
verður í Flughótelinu og hefst
mótið kl. 17 föstudaginn 1. desem-
ber, en þá verða tefldar þijár um-
ferðir. Laugardag og sunnudag
hefst fyrri umferðin kl. 10, en mót-
inu lýkur með sameiginlegu borð-
haldi og verðlaunaafhendingu.
Fyrstu verðlaun eru 50 þúsund
krónur, 2. verðlaun 25 þúsund krón-
ur, þriðju verðlaun 15 þúsund krón-
ur og fjórðu verðlaun eru tíu þús-
und krónur. Þá verða veitt ungl-
inga-, kvenna- og öldungaverðlaun,
sem eru boð á næsta helgarskák-
mót, auk bókaverðlauna. Þátttöku-
tilkynningar þurfa að berast tíma-
ritinu Skáksem allra fyrst.
Ódýr og hentug búsáhöld
fyrir daglegar þarfir heim-
ilisins. Létt og þægileg i
allri meðferð. Einstaklega
auðvelt að þrifa.
BURSTAGERÐIN"
SMIÐSBÚÐ 10, GARÐABÆ
SÍMI 41630 & 41930
Sanitas
EINNOTA FLÖSKUR MEÐ SKILAGJALDI
TONA-LITGREINING
og fatastílsnámskeið
Litgreining:
★ Þínir bestu litir, viðskipta-, sport- og samkvæmislitir,
förðun o.fl.
Fatastflsnámskeið:
★ Persónuleg námskeið um hvaða fatasnið henta þinni
líkamsbyggingu og hvaða fatastíll fer þér best.
MÓDELSKOLINN JANA, Skeifunni 19, sími 686410.
Gjafakort, einka-, hóp- og hjónatímar.
módelskólinn
J <211(2
FESTINGARJÁRN FYRIR BURÐARVIRKI
Þ.ÞORGRÍMSSON&CO
ÁRMÚLA29, SÍMI 38640