Morgunblaðið - 30.11.1989, Síða 41
MORGtJNBLÁÐIÐ FIMMTUDÁGUR 30‘. NÓVEMBER 1989
41
varð hún því snemma virk í verka-
lýðshreyfingunni og Alþýðuflokkn-
um. Sat hún í stjórn Verkakvenna-
félagsins Framsóknar í mörg ár,
lengi vel sem formaður, og eins
gegndi hún ýmsum trúnaðarstörf-
um fyrir Alþýðuflokkinn. Barátta
fyrir jafnrétti, bæði stétta og kynja,
var henni heilög, og seldi Jóna þær
hugsjónir aldrei fyrir stundarhags-
muni eða persónulegan frama. Kom
það þeim ekki á óvart, sem höfðu
fengið að kynnast Jónu, að hjaðn-
ingavíg og framapot stjórnmála-
manna á seinni árum voru henni
lítt að skapi.
Jóna kom inn í fjölskyldu okkar
á ská, ef svo má segja. Hafði Jóna
búið í allnokkur ár hjá fósturforeldr-
um föður okkar, þeim Guðrúnu
Halldórsdóttur og Guðmundi Hall-
dórssyni. Varð Jóna okkur systkin-
unum eins og viðbótaramma, hlý,
gefandi og ráðagóð. Sögurnar
hennar voru lifandi og skemmtileg-
ar, og þegar við þóttumst farnir að
fá vit á pólitík, þá urðu umræður
um þau mál oft æði fjörlegar. Þar
var Jóna umburðarlynd, fyrirgaf
okkur margt í ungæðisskap okkar,
en hélt alltaf sínu. Hismi og kjarni
runnu ekki saman í eitt hjá henni,
og alvaran var gjarnan sett fram
með gamansömu ívafi. Varð það
okkur mikilvægt veganesti í lífinu,
báðir fæddir eftir að dansinn í
kringum gullkálfinn var kominn á
hraðferð í þessu þjóðfélagi, að hafa
Jónu með sína reynslu og yfirsýn
sem nokkurs konar vita á siglingu
okkar í kröppum sjó.
Það var reisn yfir þessari konu.
Og hún varð stór þáttur í því litla
ævintýri, sem líf manns hefut' orð-
ið. Fyrir það verðum við henni
ævinlega þakklátir.
Asgeir Óskarsson
Högni Óskarsson
í dag verður tii moldar borin
Jóna Margrét Guðjónsdóttir, fyrr-
verandi formaður Verkakvennafé-
lagsins Framsóknar.
Þegar ég hóf störf hjá Alþýðu-
sambandinu 1974 sat Jóna, sem þá
var formaður Framsóknar, í mið-
stjórn sambandsis. Það var reisn
og myndugleiki yfir Jónu þó hún
væri mild og hæglát í fasi. Jóna
er'af þeirri kynslóð sem með enda-
lausri fórnfýsi og ósérhlífni byggði
upp sterka verkalýðshreyfingu.
Hún var örlát á sinn tíma og vann
hreyfingunni allt, hvort sem var í
starfi fyrir Framsókn, ASÍ, Al-
þýðubankann eða Alþýðuflokkinn.
HVar sem hún kom lét hún að sér
kveða og barðist fyrir hagsmunum
þeirra tekjulægstu og þeirra sem
áttu við erfiðleika að etja. Hún vildi
rétta hlut kvenna og ná jafnrétti
kyrrjanna.
Eg minnist Jonu með þakklæti
og ég flyt henni í dag þakkir heild-
arsamtakanna fyrir það verk sem
hún vann fyrir íslenskt launafólk.
Hún hélt hátt á lofti því merki jafn-
réttishugsjónar sem hefur mótað
íslenskt velferðarþjóðfélag.
Ég flyt Þórunni Valdimarsdóttur,
sem tók við af Jónu sem formaður
Framsóknar og fulltrúi í miðstjórn
og var hennar nánasti félagi, mínar
innilegustu samúðarkveðjur.
Asmundur Stefánsson
jónína Margrét Guðjónsdóttir —
Jóna — var búsett á æskuheimili
mínu í nærri þijá áratugi, enda
náinn vinur fósturforeldra minna.
Vinátta hennar fylgdi fjölskyldu
okkar hjóna, og ekki síst var henni
annt um þroska og feril barna okk-
ar og barnabarna. Fyrir þetta, og
fyrir það fordæmi, sern hún var
okkur öllum með háttvísi sinni og'
göfuglyndi, minnumst við hennar
með þakklæti.
Jóna var Austur-Skaftfellingur
að ætt og uppruna, af fátækum
komin, fædd að Seli í Skaftafelli.
Lífsbarátta öreigans var hörð fram-
an af þessari öld. Lélegt viðurværi,
sjúkdómar og langur vinnudagur
hijáðu ijöldann, þannig að margur
féll í valinn, en hinir harðfengu
stóðu af sér neyðina. Meðal þeirra
var Jóna, hún hélt fullu vinnuþreki
fram yfir sjötugt og náði því að
verða níræð.
Hlutskipti hennar varð frá byijun
erfiði verkakonunnar, en því kynnt-
ist hún frá blautu barnsbeini. Lá
því nærri, að samúðin með hinni
vinnandi stétt yrði uppistaðan í við-
horfi hennar til lífsins. Hún tók
snemma virkan þátt í veVkalýðs-
baráttunni, var um margra ára
skeið í fararbroddi verkakvenna-
hreyfingarinnar. Á þeim vettvangi
verður hennar lengi minnst. Allt
það starf varð hennat' lífsfylling.
Nú þegar Jóna er kvödd, er eðli-
legt að hugsa til samheija hennar,
Þórunnar Valdemarsdóttur, sem
reyndist henni stoð og stytta síðustu
árin.
Oskar Þ. Þórðarson
VIBRATORAR
steinsteypu.
Léttir
meðfærilegir
viðhaldslitlir.
Yj. Ávallt fyrirliggjandi.
r Góð varahlutaÞjómista
Þ. ÞDRGRÍMSSON & CO 3»o.o
iiiituitiuiii: EWalmau uriti Mrm ulii
SltmiSIEII IIOIIlLII ■ SltllILÍI - VlllM lliiltillll.
Lofta-
plötur
og lím
Nýkomin sending
Þ. ÞORGRfMSSON & CO
Ármula 29, Reykjavík, sími 38640
GÓÐUR ÖRBYLGJUOFN
FRÁ SIEMENS!
• Fjórar stillingar fyrir örbylgjustyrk: 90, 180, 360
og 600 W • Tímarofi með hámarkstíma = 30 mín.
• Snúningsdiskur • Tekur 21 lítra • Góður leiðarvísir
og íslensk matreiðslubók.
Verð: 26.700,-
SMITH &NORLAND
NÓATÚNI 4 • SÍMI 28300
Þú nœrð til
Akureyrar innon
10 sekúndna
Fáar aðrar samgönguleiðir slá
símanum við í hraða og þæginclum. Pú
ert um 1 klst. að fljúga á milii
Reykjavíkur og Akureyrar (í meðvincli).
Þú ert 5 klst. að aka sömu leið (á
löglegum hraða) og a.m.k. heilan dag
að sigla (í sléttum sjö).
Fyrir utan þetta er síminn ódýr leið og
þú verður ekki flugveikur, bílveikur eða
sjóveikur af því að tala í símann. Auk
þess er ódýrara að hringja eftir kl. 18 á
daginn og enn ódýrara eftir kl. 23 og
um helgar.
Langlínutaxtarnir eru tveir. Dœmi um
styttri langlínutaxta er Rcykjavík -
Keflavík og dœmi um lengri taxta er
Reykjavík - Akureyri*.
Reykjavík - Keflavík
Lengd símtals 3 min. 10 mín. 30 mín.
Dagtaxti kr. 18,00 kr. 53,00 kr. 153,00
Kvúkltaxti kr. 1 3,00 kr. 36,33 kr. 103,00
Nætur- og heigartaxti kr. 10.50 kr.28,00 kr. 78,00
• Hreylisl samkveemt gjalclskrú
Reykjavík - Akureyri
Lengd símtals 3 mín. 10 min. 30 mín.
Dagtaxti kr. 25,50 kr. 78,00 kr. 228,00
Kvöldtaxti kr. 18,00 kr. 53,00 kr. 153,00
Nætur- og helgartaxti kr. 14,25 kr. 40,50 kr. 1 15,50
PÓSTUR OG SÍMI
Við spörum þér sporin