Morgunblaðið - 30.11.1989, Side 51

Morgunblaðið - 30.11.1989, Side 51
MORGUNBLAÐIÐ ÍÞRÓTTIR FIMMTUDAGUR 30. NOVEMBER 1989 51 ENGLAND Forest borgar 15 millj. ffyrir Þorvald - segirbreska útvarpsstöðin BBC Breska útvarpsstöðin BBC sagði frá þvl í gær að enn einn íslandingurinn væri kominn til að leika í Englandi. Notting- ham Forest hafi fengið atvinnu- leyfi fyrir íslenska landsliðsmanninn Þorvald Örlygsson frá Akureyri. Fyrir væru þeir Sig- urður Jónsson hjá Arsenal og Guðni Bergsson hjá Tottenham. Frá Bob hennessy t'Englandi Sagt var frá því að kaupverð íslenska leikmannsins væri 150 þúsund sterlingspund, eða 14,7 millj. ísl. króna. „Leikmenn frá Norðurlöndunum hafa gert innrás í England,“ sagði BBC, en í frétt- inni var sagt frá því að Sheffield Wednesday hafí keypt Roland Nilsson frá IFK Gautaborg á þriðjudaginn fyrir 387 þús. pund. Þorvaldur heldur til Englands í dag. KNATTSPYRNA / 1. DEILD MI0RIK Friðrik. Friðrik íÞór Friðrik Fririksson, landsliðsmarkvörður, verður í herbúðum Þórs á Akureyri næsta sumar. Hann ákvað það endanlega í gær. Friðrik, sem nú er í námi í Danmörku, flyst til landsins í lok febrúar og fer þá norður ásamt íjölskyldu sinni. Þess má geta að sambýliskona hans er Nanna Leifsdóttir frá Akureyri, besta skíðakona landsins um árabil. Friðrik á að baki 16 leiki með A-landsíiði íslands, og lék á sínum tíma 73 leiki í 1. deild- inni með Fram og UBK. HANDKNATTLEIKUR / ISLANDSMOTIÐ Stóimeistarajafntefli «. v -; -VjI Í J i> i ' ..v -■ Brynjar Kvaran fór á kostum í marki Stjörnunnar, varði fjögur vítaskot í fyrri hálfleik og alls 20 skot gegn Val. ÁHORFENDUR skemmtu sér konunglega íValsheimilinu í gærkvöldi enda leikur Vals og Stjörnunnar fjörugur og eftir hlé mjög spennandi og góður, en leikmenn og þjálfarar beggja liða voru ekki eins ánægðir með jafnteflið, 23:23. Bæði lið ætluðu sér sigur, hvorugt mátti við tapi og menn voru svekktir að ná ekki settu marki. Sóknarleikur sat í fyrirrúmi og í fyrri hálfleik var hraðinn um tíma meiri en leikmenn réðu al- mennilega við. Stjörnumenn voru grimmari og auk þess var Brynjar í miklu stuði í mark- inu. Valsmenn komu tvíefldir til leiks eftir varnarleikur þeirra var allt Steinþór Guðbjartsson skrifar hlé, annar og betri, Theodór lífgaði upp á sóknina og um miðjan hálfleikinn tókst þeim að jafna í fyrsta sinn, 18:18. Þá riðlaðist sóknarleikur gestánna, heimamenn nýttu sér það og náðu tveggja marka forystu, en bikarmeistararnir gerðu tvö síðustu mörkin — Gylfi jafnaði, er fimm FráBob Hennessy ÍEnglandi íntím FOLK B RUUD GuIIit var kjörinn knatt- spyrnumaður ársins hjá enska tímaritinu World Soccer. Marco Van Basten, félagi hans hjá AC Mílanó og hol- lenska landsliðinu, hafnaði í öðru sæti. Brasilíski landsliðs- maðurinn Bebeto hjá Flamengo/Vaseo varð í þriðja sæti, Diego Maradona í því fjórða og Franco Baresi, AC Mílanó, i fimmta sæti. AC Mílanó var valið lið ársins og þjálfari þess, Arrigo Sacchi, þjálfari ársins. Þetta er í fyrsta sinn, sem öll þrenn verðlaun- in fara til sama félags. ■ MEIRA af Gullit: Tilkynnt var í gær að hann færi í annan upp- skurð, á morgun, vegna hnémeiðsl- anna sem hafa hijáð hann. Von forráðmanna Mílanóliðsins um að hann yrði kominn í slaginn fyrir jól rætist því ekki. Það er nú ljóst að hann verður ekki leikfær á ný fyrr einhvern tíma á nýja árinu. ■ DON Howe tók í gær við stjórninni hjá QPR. Hann á að stjóma iiðinu næstu þijár vikurnar - til að byija með. ■ NIGEL Spa.ckma.ii hjá QPR fór í gær til Glasgow til að ræða við Graeme Souness, fram- kvæmdastjóra Glasgow Rangers. Félagið hefur samþykkt að borga QPR 600 þús. pund fyrir hann. KNATTSPYRNA / AHORFENDUR Flestir hjá Fram AIls greiddu 10.708 áhorfendur aðgangseyri að heimaleikjum Fram í 1. deild í knattspymu á liðnu sumri eða 1.190 að meðaltali. Áhorfendum á leiki í deildinni fjölgaði frá fyrra ári, úr 62.222 í 67.518. Mesta aðsókn var á leik Frani og FH, 2.254 áhorfendur. 1.000 áhorfendur eða fleiri greiddu aðgangseyri að 14 leikjum deildar- innar, en að meðaltali voru 750 áhorfendur á leik í sumar. Góð aðsókn var almennt á heima- leikjum Fram, en á tveimur leikjum var aðsókn undir meðaltali; 271 miði seldur á viðureign Fram og Víkings og 724 áhorfendur sáu leik Fram og Þórs. 1.100 manns voru að meðaltaii á heimaleikjum Fram í fyrra. 9.460 sáu heimaleiki íslands- meistara KA eða 1.051 að meðal- taii. Fiestir voni á leik KA og Vals — 1.776 manns, en fæstir miðar voru seidir, er KA fékk Fram í heim- sókn — 638. Meðaltalið á heimaleikj- um KA í fyrra var 803 áhorfendur. KR fékk 8.245 áhorfendur á sína heimaleiki eða 916 að meðaltali mið- að við 917 í fyrra. 1.546 sáu Fram- ara í Frostaskjólinu, en aðeins 212 mættu á leik KR og Þórs. Siifurlið FH var með fjórðu bestu aðsóknina; 6.694 greiddu aðgangs- eyri að heimaleikjum nýliðanna eða 744 að meðaltali. Flestir komu á síðasta leikinn, er Fylkir kom í heim- sókn — 1.656 manns. Hins vegar voru fæstir áhorfendur í Kaplakrika á leik FH og ÍA — 370 greiddu að- gangseyri. Á heimaleiki Vals komu 6.255 áhorfendur eða 695 að meðaltaii, en í fyrra var meðaltalið 673 að Hlíðar- enda. 1.305 áhorfendur fylgdust með leik Vals og Fram, en 116 létu sjá sig, er Þór kom í heimsókn, og var það lægsta aðsóknartala sum- arsins. Skagamenn fengu ívið fæiri áhorfendur nú en 1988. Aðsóknin var 5.797 manns samtals — 644 að meðaltali en 673 í fyrra. 907 sáu leikinn gegn Valsmönnum, en fæstir fylgdust með Frömurum á Skipa- skaga — 341. 5.586 áhorfendur voru á heima- leikjum nýiiða Fylkis eða 621 að meðaltali. Metið var gegn ÍBK, 916 manns, en 325 voru á leiknum gegn Þór. Víkingur fékk 5.283 áhorfendur á sína heimaleiki, 587 að meðaltali samanborið við 589 í fyrra. Heima- leikurinn gegn Fram laðaði 971 að, en 238 fylgdust með viðureigninni gegn ÍBK. Aðsóknin hjá Þór var samtals 5.211 manns, 579 að meðaltali seni er talsverð fækkun miðað við 713 að meðaltali í fyrra. 784 voru á leikn- um gegn Val, en fæstir sáu Þór gegn ÍA eða 377 áhorfendur. Ahorfendum á heimaleikjum ÍBK fækkaði um 200 manns að meðal- tali á milli ára. í sumar gi-eiddu 4.279 aðgangseyri í Keflavík eða 475 að meðaltali, en 679 manns 1988. sekúndur voru til leiksloka. ,sVið fórum illa með dauðafæri og að klikka í fjórum vítum gengur ekki. Við áttum að sigra en jafn- teflið er betra en ekki neitt og nú verðum við að vinna FH i næsta leik til að halda spennunni," sagði Þorbjörn Jensson, þjálfari Vals, við Morgunblaðið. „Við lékum betur en oft áður og hefðum átt að fara héðan með bæði stigin. Við áttum möguleika á að hrissta þá af okkur eftir að hafa náð fjögurra maraka forystu, en reynsla einstakra Valsmanna vóg þungt í lokin,“ sagði Gunnar Einarsson, þjálfari Stjörnunnar. ÚRSLIT Valur-Stjarnan 23:23 Valsheimili, íslandsmótið í handknattleik, VÍS-keppnin, miðvikudaginn 29. nóv. 1989. Gangur leiksins: 0:3, 1:4, 2:5, 4:5, 5:6, 5:9, 6:10, 8:10, 9:12, 10:12, 10:13, 11:14, 11:15, 14:15, 14:17, 16:17, 16:18, 18:18, 19:19, 20:20, 21:20, 21:21, 23:21, 23:23. Valur: Brynjar Harðarson 8/1, Theodór Guðfinnsson 4, Valdimar Grímsson 3, Finn- ur Jóhannesson 2, Jakob Sigurðsson 2, Jón Kristjánsson 2/1, Júlíus Gunnarsson 1, Páll Guðnason 1. Varin skot: Einar Þorvarðarson 6, Páll Guðnason 10/1 (þar af tvö skot, er boltinn fór aftur til móthcrja). Utan vallar: Fjórar mínútur. Stjaman: Gylfi Birgisson 7, Sigurður Bjarnason 7/2, Einar Einarsson 3, Skúli Gunnsteinsson 3, Hafsteinn Bragason 2, Axel Bjömsson 1. Varin skot: Brynjar Kvaran 20/4 (þar af 8/1, er boltinn fór aftur til mótheija), Ing- var Ragnarsson 1. Utan vallar: Sex mínútur. Seldir miðar: Um 840. Dómarar: Rögnvald Erlingsson og Stefán Arnaldsson. Brynjar Kvaran, Stjömunni. Páll Guðnason, Brynjar Harðarson og Theo- dór Guðfinnsson, Val. Sigurður Bjamason og Gylfi Birgisson, Stjömunni. Fj. leikja U J T Mörk Stig FH 7 6 1 0 193: 159 13 VALUR 7 5 1 1 175: 152 11 STJARNAN 7 4 2 1 162: 138 10 KR 7 3 2 2 154: 160 8 IBV 7 2 2 3 163: 163 6 ÍR 7 2 2 3 159: 159 6 GRÓTTA 7 2 1 4 143: 158 5 KA 7 2 1 4 155: 172 5 VÍKINGUR 7 1 1 5 157: 171 3 HK 7 1 1 5 143: 172 3 Valdimar. Matika. ÍÞfémR FOLK ■ DENNIS Matika, bjálfari körfuknattleiksliðs Grindvíkinga, var dæmur í tveggja leikja bann á fundi aganefndar KKÍ í gærkvöldi. Þjálfarinn missti stjórn á skapi sínu í leik gegn IBK sl. sunnudag. ■ BO Heiden, bandaríski leik- maðurinn í liði Tindastóls, verður í leikbanni í leiknum gegn KR á Sauárkróki í úrvalsdeildinni í körfuknattleik á sunnudaginn. Heiden fékk tvær tæknivillur í leik Tindastóls og Þórs á Akureyri um síðustu^ helgi. ■ STEFÁN Kristjánsson, hand- knattleiksmaður úr KR, fékk högg á ökkla vinstri fótar í leik KR gegn KA sl. sunnudag. Hann er nú með þrýstiumbúðir um ökklann, þar sem sprunga fannst í beini eftir mynda- töku. Stefán, sem fer til sjúkra- þjálfara í dag, mun að öllum líkind- um ekki leika með KR gegn Gróttu á laugardaginn. ■ HELGI Bjarnason, bakvörður- inn efnilegi úr knattspymuliði Fram, hefur ákveðið að breyta til og leika með öðru félagi næsta suinar. Miklar líkur eru á að hann gangi til liðs við Fylki. ■< Birgir. Duffield. ■ PÁLL Guðnason, markvörður Vals í handknattleik, gerði ævin- týralegt mark í gærkvöldi á síðustu sekúndum fyrri hálfleiks. Eftir að hafa varið glæsilega leit hann fram, sá að Brynjar í marki Stjörnunnar’" var framarlega í teignum og sendi hnitmiðað yfir allan völlinn og Brynjar með hnitmiðuðu boga- skoti. ■ VALDIMAR Grímsson, lands- liðsmaður í Val, meiddist á hné um miðjan seinni hálfleiks og var óttast að liðþófi hefði rifnað. ■ MARK DuOield hefur verið endurráðinn þjálfari 2. deildarliðs KS í knattspyrnu. Hann mun einn- ig leika áfram með liðinu. ■ GUÐMUNDUR Baldursson, markvörður Fylkis, hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna. Guð- mundur hefur verið einn litríkasti markvörður landsins undanfarin ár - varð íslandsmeistari með Fram 1986 og Val 1987. H SVEINBJÖRN Sigurðsson, drengjalandsliðsmaður í körfu- knattleik úr Grindavík, hefur ákveðið að hætta að léika með lið- inu. Hann hefur ekki mikið fengið að spreyta sig með UMFG í vetur ög er ekki sáttur við það. ■ BIRGIR Sigurðsson, línumað- ur úr Víkingi, er í landsliðshópi Bogdans, sem kemur saman á sunnudaginn. Nafn hans féll út af listanum yfir landsliðshópinn í gær. ÞJALFARI Ungmennafélagið Leiknir, Fáskrúðsfirði, auglýsir eftir þjálfara fyrir tímabilið frá maí til og með ágúst 1990. Nánari upplýsingar veitir Þröstur í síma 97-51220 eða 97-51221.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.