Morgunblaðið - 30.11.1989, Síða 52
SAGA Cl^SS
Fyrir þá sem eru aðeins
á undan
FLUGLEIÐIR
FIMMTUDAGUR 30. NOVEMBER 1989
VERÐ I LAUSASOLU 90 KR.
Tillaga flutt um van-
traust á ríkisstjórn
Umræðum verður útvarpað í kvöld
TILLAGA til þingsályktunar
um vantraust á ríkisstjórnina,
þingrof og kosningar svo fljótt
sem unnt er, var í gær lögð fram
á Alþingi. Vantraustsumræðu
Lést eftir
• •
slys á Oxna-
dalsheiði
TÆPLEGA fimmtugur mað-
ur lést á sjúkrahúsi í
Reykjavík í gær af völdum
höfúðáverka sem hann hlaut
er flutningabifreið sem hann
ók fór út af veginum efst á
heiðarsporðinum skammt frá
Giljareit á Öxnadalsheiði í
fyrrakvöld.
Vegfarandi kom fyrstur að
og lá maðurinn þá í vegarkant-
inum, en flutningabifreiðin sem
var með tengivangi hafði farið
út af og var einungis framendi
hennar uppi á veginum. Að sögn
lögreglu á Sauðárkróki var
fljúgandi glæra á veginum, suð-
vestan strekkingur og svellið
mjög blautt.
Flutningabifreiðin var að
koma að sunnan og er álitið að
henni hafi verið ekið upp brekku
skammt frá Norðurárbrúnni, í
Skógarhlíð. Mikil hálka var í
brekkunni. Talið er að bíllinn
hafi runnið niður brekkuna ein-
hveija metra, kerran farið
þversum og við það hafi öku-
maður misst bílinn útaf.
Maðurinn var fluttur á
sjúkrahúsið á Sauðárkróki, en
síðan með flugvél Landhelgis-
gæslunnar á Borgarspítalann í
Reykjavík. Þar gekkst hann
undir aðgerð í gærmorgun en
lést af völdum áverka sinna í
gærkvöldi.
verður útvarpað og væntanlega
einnig sjónvarpað í kvöld.
Forystumenn stjórnarandstöðu-
flokkanna þriggja, Þorsteinn Páls-
son, Sjálfstæðisflokki, Kristín Ein-
arsdóttir, Samtökum um Kvenna-
lista, og Ingi Björn Albertsson,
Fijálslynda hægri flokknum, lögðu
í gær fram á Alþingi vantrauststil-
lögu á ríkisstjórn Steingríms Her-
mannssonar. Tillagan er svohljóð-
andi:
„Alþingi ályktar að lýsa van-
trausti á ríkisstjórnina.
Alþingi lýsir þeim vilja sínum
að þing verði rofið og efnt verði
til almennra þingkosninga svo
fljótt sem unnt er.“
Vantraustsumræðu verður út-
varpað og væntanlega einnig sjón-
varpað í kvöld klukkan 20. Þing-
fundir, utan fundur í sameinuðu
þingi um vantraust á ríkisstjórn-
ina, falla niður í dag.
Stund milli stríða ísöltuninni
Morgunblaðið/RAX
Síldarsöltun miðar vel og á þriðjudagskvöld hafði
verið saltað í 163 þúsund tunnur af síld, þar af
tæplega 90 þúsund tunnur á Rússlandsmarkað.
Stóra síldin er farin að veiðast inni á fjörðum og
því bjartara yfir, en þegar ósamið var við Sovét-
menn og stóra síldin fannst ekki. Þessir tveir starfs-
menn Fiskimjölsverksmiðjunnar á Höfn njóta þess
eins og aðrir að vel gengur.
Nánast engrar loðnu vart í rannsóknarleiðöngrum;
Skilyrðin í sjónum svipuð
og loðnuleysisárin 1982-83
- segir Svend Aage Malmberg
NÁNAST engrar ioðnu varð vart
í rúmlega mánaðarlöngum leið-
angri tveggja rannsóknarskipa,
sem nú er lokið. Sveinn Svein-
björnsson, leiðangursstjóri, segir
þessa niðurstöðu koma sér á
óvart, enda hafi til þessa verið
talið að árgangurinn frá 1987
væri mjög stór og bæri veiðina
uppi nú. Ekki tókst að rannsaka
hafsvæðið út af Vestflörðum
vegna brælu og íss og er hugsan-
Guðmundur Bjamason um verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga:
Heilbrigðisstoftianir starfí á
ábyrgð heilbrigðisráðherra
Breytingamar ná alls ekki til sjúkrahúsa, segir Davíð Oddsson
ÁGREININGUR hefur risið milli Guðmundar Bjarnasonar heilbrigðis-
ráðherra og borgaryfírvalda vegna breytinga á lögum um heilbrigðis-
þjónustu sem ráðherra hefur lagt f'ram á Alþingi um verkaskiptingu
ríkis og sveitarfélaga. Þar er gerl ráð lyrir að stjórnir allra heil-
brigðisstofnana verði skipaðar með sama hætti um allt land og að
þær starfi á ábyrgð ráðherra. Jafnframt er gert ráð fyrir að starfs-
menn stofnananna verði ríkisstarfsmenn eftir næstu sveitarstjórnar-
kosningar. Þetta eigi við um allar heilsugæslustöðvar og sjúkrahús
að meðtöldum Borgarspítala. Davíð Oddsson borgarstjóri segir, að
þegar samið var um verkaskiptingu milli sveitarfélaganna, hafi ver-
ið tekið fram að breytingarnar næðu alls ekki til sjúkrahúsa. Vil-
hjálmur Þ. Vilhjálmsson, varaformaður í stjórn Borgarspítalans,
segir að jafna megi lagabreytingunum við eignaupptöku, nái þær
fram að ganga.
Guðmundur segir að tillagan
byggi á ákvörðun frá því í vor um
að ÖIl heilbrigðisþjónusta skuli kost-
uð af ríkinu, þar með taldar allar
heilsugæslustöðvar og sjúkrahús
hvar sem er á landinu, einnig Borg-
arspítalinn. „Það er fráleitt að önnur
lög gildi um hann,“ sagði Guðmund-
ur. „Um það var samkomulag milli
Sambands íslenskra sveitarfélaga í
vor, þar á meðal Reykjavíkurborgar,
sem er aðili að því samkomulagi."
Gert er ráð fyrir að í stjórnir heil-
brigðisstofnananna verði tilnefndir
þrír fulltrúar sveitarfélaganna,
starfsmenn stofnananna tilnefni
einn og ráðherra einn fulltrúa sem
jafnframt yrði formaður nefndarinn-
ar. „Ágreiningurinn snýst um að
stjórnirnar starfa á ábyrgð ráðherra,
sem skipar þær vegna þess að ríkið
greiðir allan kostnað," sagði Guð-
mundur. Sagði ráðherra að einu
undantekningarnar sem hann hefði
fallist á væri þegar um sjálfseignar-
stofnun er að ræða, þeim stjórnum
yrði ekki breytt, enda horfði málic
öðruvísi við þar.
„Borgin á spítalann ennþá og
hefur forræði yfir rekstri hans þó
að ríkið greiði rekstrarkostnað og
borgin aðeins byggingarkostnað að
hluta,“ sagði Davíð. „Þegar reglan
um verkaskiptingu var sett í vor,
var sérstaklega tekið fram að menn
mundu ekki sætta sig við þá skipun
sem sumir vildu koma á stjórn spítal-
ans. Þar var alls ekki gert ráð fyrir
að starfsmenn hans yrðu ríkisstarfs-
menn, þannig að þetta kemur okkur
mjög á óvart. Svona hlutir þurfa að
gerast í samráði við þann aðila sem
hefur haft frumkvæði að byggingu
spítalans og telst eigandi hans.“
legt að loðnan haldi sig þar. Svend
Aage Malmberg, haffræðingur,
segir ástand sjávar nú óvenjulegt
og minna um margt á ástandið
fyrir og um loðnuleysisárin 1982
og 1983. Bregðist loðnuveiðin
með öllu, tapast á milli 5 og 6
milljarðar í útflutningsverðmæt-
um, sé miðað við útflutning loðnu-
afúrða árið 1988.
Svend Aage Malmberg, haffræð-
ingur hjá Hafrannsóknastofnun,
ritar grein í Morgunblaðið í dag.
Þar bendir hann á óvenjulegt ástand
sjávarins umhverfis landið, sem
hann segir svipa mjög til áranna
1981 og 1982. Síðara árið var
loðnuveiði nánast engin og reyndar
bönnuð. Hann segir síðar í grein-
inni: „Umhverfisáhrifin ásamt veið-
unum leiddu svo 1982 til hruns á
loðnustofninum og veiðibanns.
Ástand sjávar og öllu fremur loðnu-
stofnsins kom svo fram í vexti og
viðgangi þorskstofnsins með lítilli
nýliðun, minnkandi vaxtarhraða og
hækkun á kynþroskaaldri."
Sveinn Sveinbjörnsson segir að
loðnan, sem fundizt hafi, sé óvenju
horuð og léleg og bendi það til
fæðuskorts. Loðnuveiði hrundi
síðast árin 1982 og 1983 og var
veiði þá bönnuð um tíma. Fyrra
árið veiddust 13.000 tonn, 133.000
seinna árið. í kjölfarið fylgdi siakur
þorskstofn og töldu fiskifræðingar
þá ekki rétt að veiða meira en
200.000 tonn af þorski. Þorskaflinn
varð 294.000 tonn 1984 og 281.000
tonn árið eftir. Verði engin loðnu-
veiði nú, telja fiskifræðingar að
takmarka verði þorskveiðina í kjöl-
farið við 200.000 tonn.
Útflutningsverðmæti loðnuaf-
urða árið 1988 var um 5,5 milljarð-
ar króna, 12% alls verðmætis út-
fluttra sjávarafurða. Fyrr á þessu
ári var talið að veiða mætti á
vertíðinni um eina milljón tonna.
Verðmæti þess afla upp úr sjó er
3.6 milljarðar króna miðað við
loðnuverð í dag. Samkvæmt því
gefur kvótinn bátunum tekjur frá
um 70 milljónum upp í 130. Háseta-
hlutur er nálægt 2% af brúttóverði
afla, svo verði engin veiði og annað
pláss fáist ekki verður tekjutapið
frá um 1,4 milljónum króna upp í
2.6 hjá hásetum, helmingi meira
hjá skipstjórum.
Sjá ennfremur á miðopnu.
Framleiðslu-
verðmæti UA
yfir milljarð
í FYRSTA sinn í sögu Útgerð-
arfélags Akureyringa hefur
framleiðsluverðmæti frysting-
arinnar farið yfir einn milljarð
króna, en það gerðist nú í vik-
unni.
„Framleiðsluverðmætið er
komið yfir milljarð og við erum
nú nýkomnir yfir á annan millj-
arðinn," sagði Gunnar Ragnars
framkvæmdastjóri Útgerðarfé-
lags Akureyringa. „Það stefnir í
að þetta verði nwstu framleiðslu-
verðmæti í sögu félagsins og
einnig hvað varðar magn.“
Gunnar sagði að útlitið væri
gott framundan, þrátt fyrir ótta
manna um að ekki tækist að
halda uppi fullri atvinnu síðasta
hluta ársins.