Morgunblaðið - 20.12.1989, Síða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 1989
Iðnaðarráðherra í Kaupmannahöfti:
A fund með Gránges
og Hoogovens í dag
JÓN Sig-urðsson, iðnaðarráðherra hélt til Kaupmannaha&iar
síðdegfis í gær og í dag mun hann eiga fimd ineð forráðamönnum
sænska álfyrirtækisins Granges og hollenska fyrirtækisins Hoogo-
vens um byggingu nýs álvers á Islandi.
Iðnarráðherra sagði í samtali við
Morgunblaðið í gær að hann hefði
í fyrradag átt fund með Sigfúsi
Jónssyni, bæjarstjóra á Akureyri
um áhuga Eyfirðinga á álveri við
Eyjafjörð og vilja þeirra til hafnar-
gerðar, til að stuðla að því að álver
rísi þar. „Ég hef nú svo sem ekki
rhargt um málið að segja, annað
en það, að ég hef frá því á sl. sumri
hreyft öðrum staðsetningarhug-
myndum en Suðvesturhorninu, við
þá sem við höfum átt í viðræðum,
en ég bendi á að allur undirbúning-
ur Atlantalmálsins miðaðist sam-
kvæmt samkomulagi við staðsetn-
ingu í Straumsvík," sagði iðnaðar-
ráðherra.
Hann kvaðst m.a. mundu ræða
staðsetningarmálin við Hoogovens
og Grangres á fundinum í Kaup-
mannahöfn í dag, en einkum og
sér í lagi hygðist hann ræða þau
mál við nýja viðræðuaðila eins og
bandaríska álfyrirtækið Alumax.
Hann myndi bæði ræða við Alumax
um þátttöku í Atlantal og einnig
um hugsanlegt nýtt, sjálfstætt ál-
ver og þá byði Eyjafjarðarsvæði
upp á greinilega kosti.
Varðandi áætlanir hans um
byggingu nýs álvers, sagði iðnaðar-
ráðherra að þær miðuðust við það
að upphaf framleiðslunnar gæti
orðið í árslok 1993 og full fram-
leiðsla yrði síðan 1994. „Til þess
að svo geti orðið, þarf að halda á
spöðunum," sagði ráðherra, „en því
miður verður það að segjast eins
og er að viðræðurnar með þátttöku
Alusuisse töfðu málið.“
Morgunblaðið/Inga
Hraunbrún, Kelduhverfi.
Kreisting á norskum eldislaxi fór fram hjá fiskeldisstöð ísnó hf. í Kelduhverfi fyrir skömmu.
Þessi lax var fluttur frá Noregi i byijun árs 1984, sem augnhrogn. Sumarið 1985 voru seiðin um 50 grömm
og voru þá flutt í sjókvíar, þar sem þau hafa verið í fjögur og hálft ár.
Til fróðleiks má geta þess að hrogn úr einni hrygnunni voru rúm 5 kíló og stærsti hængurinn reyndist
vera 33,5 kíló eða 67 pund. Það er að öllum líkindum stærsti lax á íslandi í dag. Inga
Stærsti hængurinn 67pund
VEÐUR
/ DAG kl. 12.00:
Heimild: Veðurstofa Islands
(Byggt á veðurspá kl. 16.15 í gær)
VEÐURHORFUR íDAG, 10. DESEMBER.
YFIRLIT I GÆR: Yfir N-Grænlandi er 1.022 mb hæð en við LÓfót
er 965 mb lægð sem þokast norðnorðaustur. Um 400 km vestur
af Snæfellsnesi er 998 mb lægð á hægri hreyfingu austsuðaustur.
Önnur álíka lægð er kyrrstæð skammt suðaustur af landinu. Vest-
antil á landinu dregur nokkuð úr frosti í nótt og á morgun, en
annars verður víðast 8-17 stiga frost.
SPÁ: Norðaustanátt um allt land. Stinningskaldi eða alihvass á
annesjum norðaustan- og austanlands, en hægari annars staðar.
Sunnanlands úrkomulaust, en él í öðrum landshlutum.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á FIMMTUDAG: Austan- og norðaustanátt, allhvöss
norðan- og vestanlands með slyddu eða rigningu, en mun hægari
og úrkomulítið sunnan- og suðaustanlands. Hiti 1-3 stig.
HORFUR Á FÖSTUDAG: Norðan- og norðvestanhvassviðri og
slydda eða él norðan- og vestanlands og einnig suðvestanlands,
en hægviðri og úrkomulítið austantil á landinu. Hiti um frostmark. '
TÁKN:
Meiðskírt
s, Norðan, 4 vindstig:
^ Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
Alskýjað
r r r
r r r r Rigning
r r r
* r *
r * r * Slydda
r * r
* * #
* * * * Snjókoma
** * *
■J0° Hitastig:
10 gráður á Celstus
y Skúrir
*
V El
= Þoka
= Þokumóða
’ , ’ Súld
OO Mistur
—J~ Skafrenningur
Þrumuveður
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12:00 í gær að ísl. tíma
hiti veSur
Akureyri 410 skýjað
Reykjavik v11 léttskýjað
Björgvin 2 haglél
Helsinkl 3 rigning og súld
Kaupmannahöfn 8 rigning
Narssarssuaq -i-10 léttskýjað
Nuuk <•6 alskýjað
Óstó 7 léttskýjað
Stokkhólmur 4 þokumóða
Þórshöfn 0 alskýjað
Algarve 18 skýjað
Amsterdam 7 skúr
Barcelona 16 léttskýjað
Berlín 12 skýjað
Chicago +12 snjókoma
Feneyjar 14 skýjað
Frankfurt 9 skúr
Glasgow +2 reykur
Hamborg 9 skýjað
Las Palmas 21 hálfskýjað
Lundúnir 8 skýjað
Los Angeles 13 skýjað
Lúxemborg 7 skúr
Madríd 11 skýjað
Malaga 17 skýjað
Mailorca 18 léttskýjað
Montreal +19 snjókoma
New York +7 léttskýjað
Orlando 16 bokumóða
París 10 skýjað
Róm vantar
Vín vantar
Washington vantar
Winnipeg +34 ísnálar
Hljómplata með söng
Krisljáns Jóhannssonar
IÐUNN hefur gefið út hljómplötu
með söng Kristjáns Jóhannsson-
ar. Platan heitir Með Kristjáni
og með honum syngur einn dúett
Dorriét Kavanna og Natalia Rom
tvo. Með Kristjáni er einnig gefin
út á geisladiski og einnig gelúr
Iðunn út á geisladiski fyrstu
hljómplötu Kristjáns, sem bar
nafii hans.
A riyju plötunni eru hljóðritanir
frá tónleikum Kristjáns í Há-
skólabíói árin 1981 til 1989. Þar
syngur Kristján verk eftir Bellini;
De Curtis, Di Capua, Bizet, Mas-
cagni, Donizetti, Gounod, Puccini
og Verdi. Dorriet Kavanna syngur
einn dúett með Kristjáni á plötunni
og Natalia Rom tvo. Sinfóníuhljóm-
sveit íslands leikur undir á plöt-
unni, stjómendur em Maurizio
Barbacini, Páll P Pálsson, Jean -
Pierre Jacquillat og Cesare Alfieri.
Hljóðritanirnar voru gerðar á veg-
um Ríkisútvarpsins.
Á geisladiskinum, sem ber nafn
Kristján Jóhannsson
Kristjáns Jóhannssonar ieikur Lon-
don Symphony Orchestra undir
söng hans, stjómandi er Maurizio
Barbacini. Meðal laga á þessum
diski eru Sjá dagar koma, í fjar-
lægð og Hamraborgin.
Keflavíkurflugvöllur:
Hert eftirlit við Flug-
stöð Leifs Eiríkssonar
FLUGRÁÐ kom saman í gær til
að ræða um atvikið sem átti sér
stað á Keflavíkurflugvelli, er sto-
lið var úr flugvél firá SAS. Eftir
þjófiiaðinn, sem er enn óupplýst-
ur, óskaði SAS eftir því að land-
göngubrú yrði tekin frá ílugvél-
um flugfélagsins um nætur og
vélunum læst.
Rætt var um hvernig hægt væri
að tryggja að öryggi væri sem best
við Flugstöð Leifs Eiríkssonar. „Við
lítum þetta atvik mjög alvarlegum
augum og tökum mið af því þegar
við gerum okkar ráðstafanir til
öryggi á flugvellinum verði sem
best. Það er ekki ætlum okkar að
ræða þær aðgerðir í fjölmiðlum,"
sagði Pétur Guðmundsson, flugvall-
arstjóri á Keflavíkurflugvelli, sem
var á fundi Flugráðs.
Pétur sagði að búið væri að gera
við hlið það sem sjónvarpsmenn
fóru inn um á dögunum. Það var
ekið á hliðið á sínum tíma, en síðan
ekki nægilega vel gengið frá því
aftur.
„Við gerum að sjálfssögðu okkar
besta til að öryggið sé sem best í
og við fíugstöðina," sagði Pétur.
Borgarráð:
12 kaupleigu-
íbúðir keyptar
BORGARRÁÐ hefur samþykkt að
kaupa tólf íbúðir við Skúlagötu
fyrir rúmlega 74,5 milljónir króna.
Forsendur íbúðakaupanna er
ákvörðun borgarráðs um að
byggja og selja 40 almennar kaup-
leiguíbúðir og greiðir Húsnæðis-
málastofhun 85% af kaupverðinu.
Um er að ræða tíu 2ja herbergja
íbúðir og tvær 3ja herbergja íbúðir
í nýbyggingu, sem Steintak hf. er
að reisa á hornlóð við Skúlagötu og
Klapparstíg. Verð fyrir hveija 2ja
herbergja íbúð er tæplega 5,9 millj-
ónir og tæplega 7,8 milljónir fyrir
hvetja 3ja herbergja íbúð. Að sögn
Gunnars Eydal skrifstofustjóra borg-
arstjórnar, verða íbúðirnar tilbúnar
til aftiendingar 25. ágúst á næsta ári.