Morgunblaðið - 20.12.1989, Qupperneq 28
28
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 1989
Höfundar: Guðmundur JónssonTjg Þorgeir Guðlaugsson.
Meðal efnis er: Ferðasaga á hestum yfir Heljardalsheiði á Tröllaskaga.
Bjó alein á Vstu -Nöf og vann við smölun á hálendinu heilt sumar. Setti
góminn á smergelið. Faldi skeiðknapann á háaloftinu. Á mótormeri með
lögregluna á hælunum um Breiðholtið. Um hverja er verið að fjalla? Alla
Aðalsteins, Hinna Braga, Baldvin Ara, Einar 0der, Rúnu Einars, Jón Pétur,
borgarböm og Hólabændur á ferðalagi. í bókinni eru hundruð mynda,
litmyndir og svarthvítar auk teikninga.
Þetta er níunda árbókin um íslenska knattspyrnu. Þessar bækur hafa
þegar öðlast fastan sess í bókasafni þeirra er unna knattspymunni.
Jafnframt því að vera árbók um íslenska knattspyrnu er ætíð hluti af
upphafssögu knattspymunnar rakin í hverri bók. Bókin er prýdd fjölda
mynda bæði litmynda og svarthvítra mynda. Höfundur bókarinnar er Víðir
Sigurðsson, íþróttafréttaritari og er óhætt að segja að slík árbók getur
ekki verið betur komin en í höndum hans.
ÍSkjaldborgf^j)
Ármúla 23 — 108 Reykjavík ", qL
Símar: 67 24 00
67 24 01
315 99
Evrópubandalagið:
Aðild Tyrklands
er ekki tímabær
Brussel. Reuter.
Framkvæmdanefnd Evrópu-
bandalagsins skýrði tyrkneskum
stjórnvöldum frá því á mánudag,
Kaupmannahöfti:
Róttæk endur-
skipulagning
á Krisljaníu
Kaupmauuahöfn. Frá Nils Jörgen Bruun,
fréttaritara Morgunblaðsins.
FYRIRHUGAÐ er að rífa 60 hús
í Kristjaníu-hverfinu í Kaup-
mannahöíh og endurskipuleggja
stóran hluta þess sem frístunda-
svæði fyrir almenning.
íbúar núverandi byggðar fá að
halda þriðjungi hverfisins áfram, að
því er fram kemur í skipulagstillögu
umhverfisráðuneytisins sem kynnt
var í gær. Allt húsnæði á svæðinu
á að verða löglegt eða hverfa.
í fyrstu lotunni verða 60 af 200
húsum hverfisins rifin. Hin fá að
standa í þéttri byggð á afmörkuðum
reit.
Þetta eru aðalatriðin i tillögu
ráðuneytisins í framtíðarskipulagn-
ingu hverfisins. Breytingarnar í
Kristjaníu eiga ekki að gerast í ein-
um áfanga, heldur smátt og smátt
svo að íbúarnir geti „verið sam-
ferða". Hljóti skipulagstillagan sam-
þykki verður allt húsnæði í hverfinu
löglegt um síðir.
Samkvæmt tillögunni á að rífa
grindverk og tijágróður sem umlyk-
ur Kristjaníu, svo að allir íbúar
Kaupmannahafnar geti glaðst við
að beija hverfið augum.
að ekki væri tímabært að ihuga
aðild Tyrklands að bandalaginu
fyrr en eftir 1993. Þangað til
verður reynt að búa í haginn
fyrir aðildina með auknu sam-
starfi í efnahags- og stjórnmál-
um. Tyrkneska stjórnin sagði að
áfram yrði unnið að fullri aðild
að EB.
Abel Matutes, sem fer með mál-
efni Miðjarðarhafsríkja innan EB,
sagði á fréttamannafundi í Brussel
að vegna þess hve Tyrkir ættu enn
langt í land í efnahags- og stjórn-
málalegri þróun væri tafarlaus aðild
þeirra að EB tilgangslaus, jafnt
fyrir þá sem bandalagið. Sagði
hann, að EB yrði að ljúka nauðsyn-
legum breytingum vegna innri
markaðarins 1992 áður en farið
yrði að ræða um aðild annarra ríkja.
Matutes lagði áherslu á, að þetta
ætti við um öll ríki, sem hygðust
sækja um aðild að Evrópubandalag-
inu, nema hugsanlega í „sérstökum
tilfellum". Er talið, að með þeim
orðum hafi hann verið að víkja að
ástandinu í Austur-Evrópu.
Tyrkir hafa verið aukaaðilar að
EB allar götur síðan 1963 en sóttu
um fulla aðild fyrir tveimur árum.
Matutes sagði, að í efnahagsmálun-
um yrðu Tyrkir að gera tvennt fyrst
og fremst, vinna sig út úr 60-70%
verðbólgu og bæta lífskjörin, og í
stjómmálunum yrði að koma á fullu
frelsi flokka og verkalýðsfélaga.
Þá nefndi hann einnig deilur
Grikkja, sem eiga aðild að EB, og
Tyrkja og minnti á, að aðild að EB
er háð samþykki allra ríkjanna.
:í
Bretland:
Verkamannaflokkurinn
samþykkir takmörkun á
valdi verkalýðsfélaga
St. Andrews, frá Gudmundi Heiðari Frímannssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
FORYSTA Verkamannaflokksins
í Bretlandi ákvað um helgina að
samþykkja hinn félagslega sátt-
mála Evrópubandalagsins, sem
setur valdi verkalýðsfélaga tak-
mörk. Vinstrisinnar innan flokks-
ins gagnrýndu ákvörðunina
harkalega.
Tony Blair, talsmaður flokksins
í atvinnumálum, gagnrýndi afstöðu
stjórnvalda til félagssáttmála EB
harkalega, en stjórn Thatcher hefur
lagzt eindregið gegn samþykkt
hans. Blair sagði forystu flokksins
styðja sáttmálann. í honum segir
að hver einstaklingur geti ákveðið,
hvort hann er í verkalýðsfélagi eða
ekki.
Hefðbundin stefna Verkamanna-
flokksins hefur verið, að menn geti
aðeins ákveðið í hvaða félagi þeir
séu, ekki hvort þeir séu í verkalýðs-
félagi yfirleitt. Flokkurinn hefur
líka stutt það að verkamenn þurfi
að vera í tilteknu félagi til að geta
fengið vinnu, eins og hjá hafnar-
verkamönnum. Undir forystu
Margaretar Thatcher hefur mark-
visst verið unnið gegn þessu kerfi
undanfarin ár, til dæmis settu
stjórnvöld ný lög á þessu ári um
vinnu við hafnimar.
Forystumenn í verkalýðshreyf-
ingunni eru hlynntir þesari breyt-
ingu. Meira að segja Ron Todd, leið-
togi Samtaka flutningaverka-
manna, sem barðist harkalega gegn
breytingunni á lögunum um hafnar-
verkamenn fyrr á þessu ári, segir
að vefkalýðshreyfingin verði að
átta sig á breyttum tímum og er
hlynntur þessari breytingu.
Eric Heffer, þingmaður flokks-
ins, gagnrýndi þessa stefnubreyt-
ingu harkalega og sagði að flokkur-
inn hlyti að styðja verkalýðshreyf-
inguna skilyrðislaust. Flokkurinn
ætti uppruna sinn í hreyfingunni
og væri nú að yfirgefa.hana.
Ný sending af samkvæmisklæðnaöi.
Slæður, sjöl, dragtir og kápur í úrvali.
Louis Féraud mansfield ESGADA Ffúnk. Uskr