Morgunblaðið - 20.12.1989, Side 36
36
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 1989
svtlá auglýsingar
TILKYNNINGAR
Fataúthlutun
verður miðvikudeginn 20. des-
ember kl. 16.00-19.00 hjá Hjálp-
ræðishernum, Kirkjustræti 2.
Allir eru velkomnir!
Hjálpræðisherinn.
Rf.ClA MIISTERISRIDDARA
RMHekla
20.12. VS. JM.
I.O.G.T.
St, Verðandi nr. 9 og Frón nr.
227.
Fundur í kvöld kl. 20.30.
ÆT.
Wélagslíf
□ GLITNIR 598912207 Jólaf.
Hörgshlíð 12
Boðun fagnaðarerindisins.
Almenn samkoma i kvöld
kl. 20.00.
Hvítasunnukirkjan
Fíladelfía
Almennur biblíulestur verður í
kvöld kl. 20.30. Allir hjartanlega
velkomnir. Ræðumaður Garðar
Ragnarsson.
Jólagjöfin
fyrir örbylg jwof naeigendur
y«MNrmNM
gerir gæíumuninn í matreiDslunni
í töfrapottinum geturðu matreitt kjúklinga, svína-
kjöt og lambakjöt með góðum árangri í örbylgjuofn-
inum þínum og fengið fallega brúningu á steikina.
Töfrapottarnir fást í þremur stærðum fyrir alla ofna.
Verð kr. 1.425 - kr. 1.865 - kr. 2.390.
íslenskar leiðbeiningar fylgja. <
í'
ti
Einar Farestveit&Co.hf.
BORQARTÚN 28. SÍMAR: (91) 16995 OQ 622900 - NÆQ BÍLASTÆÐI
KÍMINN ÓHUGNAÐUR
Hijómplðtur
Árni Matthíasson
Ham, Buffalo Virgin, One
Little Indian.
Rokksveitin Ham sendi frá sér
tólftommuna Hold snemma á
síðasta ári á vegum Smekkleysu. Á
þeirri plötu sigldi sveitin á milli
skers og báru græskulausrar kímni
og óbeislaðs óhugnaðar. Viðbrögð
við plötunni voru ýmist óblendin
hrifning og aðdáun, eða afdráttar-
laust ógeð, en þeir sem sem ekki
skildu kímnina voru helst á seinni
skoðuninni.
Breska útgáfufyrirtækið One
Little Indian gerði við Ham samn-
ing og gaf út breiðskífuna Buffalo
Virgin í sumar. Sú plata hefur
fengið frábæra dóma í Bretlandi
og ekki að furða því hana verður
að telja með bestu plötum íslenskra
hljómsveita síðustu ára þrátt fyrir
nokkra ágalla.
Aðal Ham er samsöngur for-
söngvaranna tveggja, Sigurjóns
Kjartanssonar og Ottars Proppé,
en Siguijón semur öll lög á plöt-
unni utan eitt og Óttar nær alla
texta. Ef til vill er það rödd Óttars
sem vekur blendastar tilfinningar
hjá áheyrendum, en 'nenni verður
trauðla lýst.
í bestu lögum plötunnar, Slave,
Svin, Whole Lotta Love, Voulez
vous, Misery og Egg ya Hummie,
næst nær fullkomið jafnvægi tóna
og texta og gamli Abba-slagarinn
Voulez vous er reyndar eitt það
albesta sem íslensk rokksveit hefur
tekið upp og aðdáunarvert hvernig
sveitinni tekst að breyta afkáralegu
ástarhjali í óhugnanlegan bak-
grunn fyrir mannfómir sem passað
hefði í Cronenberg-mynd. Svin sker
sig úr með texta sem gerir mis-
kunnarlaust grín að mökun manna
og textinn í Egg ya Hummie er
stórskemmtilegur ástaróður til
eggjahommans.
Eins og fram kom hefur platan
sína ágalla og þá helst hljóminn,
sem er fullloðinn. Á plötunni er
sveitin og að ganga í gegnum
mannabreytingar, sem styrkt hafa
hana mjög, en gera plötuna sundur-
lausari fyrir vikið og þau þijú lög
sem lenda á milli spilla heildar-
myndinni.
í stuttu máli: Plata fyrir alla sem
unna ágengri rokktónlist í þyngri
kantinum og hafa snefil af kímni-
gáfu.
TILDURSL AU ST ÞUNGAROKK
Bootlegs, WC Monster.
Smekkleysa s.m. hf.
Speed metal-tónlist, sem er hratt
þungarokk án tildurs og pijáls,
hefur sótt mjög í sig veðrið á seinni
árum, enda er það helsti vaxtar-
broddur rokks í þyngri kantinum
og felur í sér alla bestu þætti þess,
óbeislaða orku, eftirminnilega
gítarfrasa og einlægni. Fremsta
speed metal-sveit í heimi er Met-
allica, en hér á landi starfar Boot-
legs; sveit sem skipar sér á bekk
með því besta sem gerist ytra.
Bootlegs sendi nýverið frá sér sína
fyrstu breiðskífu, WC Monster, sem
er tvímælalaust besta þungarokk-
plata sem gefin hefur verið út hér
á landi.
Bestu lög plötunar, At the End,
Void, 1 out of 3, Stairway to Hell,
Þú og WC Monster, eru reyndar
með því besta sem ég man eftir
að hafa heyrt af þyngra rokki á
árinu. Þar fer saman fyrirtaks
hljóðfæraleikur framúrskarandi
þéttrar sveitar, sem hleður upp
hveijum klassískum gítarfrasanum
á eftir öðrum.
Textar eru yfirleitt á ensku en
nokkrir á íslensku. Heiti laganna
eru þó öll á ensku utan eitt og á
köflum virðast þau heiti í litlu sam-
ræmi við texta. Til að mynda er
ómögulegt að gera sér grein fyrir
því hvernig 1 out of 3 og Void fengu
nöfn sín, þegar hlýtt er á textana.
Það skiptir þó líklega litlu máli,
enda eru textarnir flestir frekar
uppfylling en innblástur. Þó bregð-
ur fyrir mjög góðum sprettum eins
og í laginu WC Monster sem rekur
átakanlega sögu, og Þú sem felur
í sér snarpa ádeilu.
Nýverið bárust fregnir af því að
WC Monster verði að öllum líkind-
um gefin út í Bandaríkjunum og
vekur litla furðu. Vonandi taka
íslenskir rokkáhugamenn þá við
sér, en WC Monster hefur ekki náð
þeirri sölu sem hún ætti að ná
miðað við áhuga á erlendum
þungarokksveitum hérlendis.
SUNDURLAUST
Bítlavinafélagið, Konan sem
stelur Mogganum mínum. Stein-
ar.
Þó að plata Bítlavinafélagsins,
Tólf íslensk bítlalög, sem út kom
fyrir síðustu jól, hafi verið alllangt
frá því að vera besta plata ársins,
verður því ekki neitað að hún var
besta hugmynd ársins og seldist
því best. Ætluðu því margir að
jólaplata sveitarinnar, Konan sem
stelur Mogganum mínum, myndi
seljast vel.
Einkenni á Kona sem stelur
Mogganum minum er að á henni
eiga allir sveitarmenn lög. Það
gerir plötuna meiri hljómsveitar-
plötu en ella, en líka sundur-
lausari, enda eru þeir sveitarmenn
misgóðir lagasmiðir og ólíkir. Lag
Haraldar Þorsteinssonar, 2+2, sem
minnir á löngu liðna sveit, kemur
til að mynda eins og skrattinn úr
sauðarleggnum innan um létt popp-
lög og Sætar nætur, lag Rafn Jóns-
sonar sem er ágætt, passar og illa.
Á plötunni er sitthvað vel gert,
til að mynda Breyskur maður, hluti
af Teldu upphátt, Ég þekki nætur
og Einskis manns landið, sem eru
mátulega hallærislegar stælingar á
tónlist áttunda áratugarins. Alltaf
er hinsvegar ekki gott lag og Kon-
an sem stelur Mogganum, geldur
fyrir það hvað það á að vera snið-
ugt. Útsetningar eru almennt
skemmtilegar þó ekki séu þær
frumlegar.
Því miður bendir Konan sem
stelur Mogganum mínum ekki til
þess að Bítlavinafélagið hafi neitt
sérstakt fram að færa í íslenskri
popptónlist.
A
Mark útvarpsvekjarar frá 1.945 stgr
Melissa ryksugur
frá 8.300 stgr.
Kitchen Aid hrærivélar
22.686 stgr.
Melissa örbylgjuofnar, 18 lítra
18.981 stgr.
^SAMBANDSINS
HOLTAGÖRÐUM SÍMI 68 55 50
VIÐ MIKLAGARÐ
Nova rafmagnshandþeytarar
2.600 stgr.