Morgunblaðið - 20.12.1989, Side 43

Morgunblaðið - 20.12.1989, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 1989 43 Ærgildi verði skóggildi? Varasamt getur verið að blanda um of saman fyrirgreiðslu ríkisins til skógræktar annars vegar og að- gerðum þess til fækkunar sauðfjár hins vegar. Þetta eru tveir aðskildir þættir sem hver og einn verður að skoða vandlega ásamt ýmsu fieiru áður en hann tekur ákvörðun um hvernig hann byggir upp sinn rekst- ur og lífsviðurværi á hverri jörð. Að hefja skógrækt sem að mestu eða öllu leyti er kostuð af almannafé er ekkert neyðarbrauð og fjöldi fólks um allt land mun reiðubúið að leggja bæði jarðnæði sitt og vinnuafl til skógræktar. í ljósi þess og hinnar ótryggu stöðu sauðfjárræktarinnar er því engin ástæða til þess að bera þurfi á menn fé til þess að þeir hætti sauðfjárrækt og hefji skóg- rækt í hennar stað. Hugmyndir verkefnisstj órnar Verkefnisstjórn um eflingu skóg- ræktar á Fljótsdalshéraði hefur fyrir sitt leyti markað eftirfarandi megin- línur í væntanlegum viðræðum við bændur: „Verkefnisstjórn stefnir að því að þeim bændum sem afsala sér fullvirðisrétti í sauðfé verði tryggð atvinna við skógrækt eftir því sem umfang verkefnisins gefur tilefni til. Forgangur til vinnu verði veittur með hliðsjón af eftirfarandi: 1. Þeir bændur sem afsala sér öllum fullvirðisrétti í sauðfé. 2. Þeir bændur sem eru reiðubúnir til að fækka sauðfé verulega og girða af það fé sem þeir halda eftir. 3. Bændur sem hafa fasta búsetu á jörðum sínum. 4. Eyðijarðir. Tilboð felst í ofangreindum tillög- um um forgang að vinnu auk þess sem verkefnið greiði 80-100% kostn- aðar við skógrækt á jörðum þeirra bænda sem þátt taka í verkefninu og stuðli þannig að verðmætaaukn- ingu jarðanna.“ Sem sjá má af ofangreindri sam- þykkt verkefnisstjórnarinnar er það stefna hennar að tengsl milli þess að draga saman sauðfjárrækt og auka skógrækt verði fyrst og fremst fólgin í forgangi að vinnu við skóg- ræktina en ekki beinum umreikningi fullvirðisréttar til sauðfjárfram- leiðslu yfir í einhvers konar skóg- ræktarrétt. Eins og áður er getið mun verk- efnisstjóri fljótlega hafa samband við bændur og kynna sér aðstæður, áform og hugmyndir hvers og éins hvað þetta verkefni varðar. Að þeirri könnun lokinni er þess fyrst að vænta að grundvöllur verði til þess að leggja fram ítarlegar tillögur um hvernig best verði að því staðið að draga saman sauðfjárrækt og efla skógrækt á Fljótsdalshéraði. HOTEL SAGA óskar landsmönnum gledilegs árs og þakkar fyrir hid lidna. 1. janúar, 1990 Húsið opnar kl. 19.00 með fordrykk Hátíðarkvöldverður Rjómalöguö andasúpa Kryddklattar vafðir reyktum laxi og jómfrúarhumri Nautaturnar krýndir brauökrúnum Eftirréttahlaðborð Fransk-danski dessertmeistarinn Lone Larsen lagar eftirminnilega ábætisrétti meö alþjóölegu ívafi. Kaffi Borðvín I fyrsta sinn á Islandi: Hin vlðfræga söngkona og skemmtikraftur DONl\A IA \TO\ fer á kostum. Ræðumaður kvöldsins: EINAR KARASON rithöfundur LOFAR GÓÐU S. 29900 Höfundur er ndstoöarmaður landbúnaðarráðherra. Hagnýtar gjafir á góðn verði Samkort Einar J. Skúlason hf. Grensásvegi 10, sími 686933 Greiðslukjör — samningar J0IAGJAFIR TÖI\IIÓLkSI\S A HllMIIJVl Handy Scanner 3000 plus Victor tölvur Verð kr. 23 Q55 VPC llc/2 diskettudrif Verð frá kr. 93.575 WordPerfect 4.2 ritvinnsla Verð frá kr. 28.405 Microsoft mýs Verð frá kr. 5.890 Mannesmann Tally prentarar Verðfrákr. 18.810

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.