Morgunblaðið - 20.12.1989, Qupperneq 49

Morgunblaðið - 20.12.1989, Qupperneq 49
6861 3331/3830 ,0S aUOAaU}IIVaiM QIGAJaVIUOHOM MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 1989 8t 49 nám. Hún hefur staðið eins og klett- ur við hlið hans ásamt foreldrum, systur og mági hans í baráttunni við þann sjúkdóm sem leiddi hann til dauða. Megi minningin um ein- stakan dreng létta sorg ykkar. Þess óskar fjölskyldan í Bogahlíð 7. Kristrún Stefánsdóttir Frændi minn og góður félagi, Magnús Blöndal Sigurbjörnsson, er látinn eftir baráttu við krabbameins- sjúkdóm. Þetta verða ekki kveðjuorð til Magnúsar, því Maggi eins og hann var kallaður, mun alltaf lifa í hugum okkar sem þekktu hann. Maggi hefði örugglega ekki viljað hafa þetta of hátíðlegt og mun ég því skrifa í anda hans. Magnús byijaði að þjálfa hjá Val aðeins sautján ára gamall og þá gátu fáir ímyndað sér að hann ætti eftir að breyta unglingastarfinu þar til hins betra og eignast svo marga vini. Hann reif strákana áfram með dugnaði sínum og kímnigáfu. Reyndar voru það ekki einungis stundirnar í Valsheimili, því hann var alltaf að bjóða þeim heim og gleðja þá á einhvern hátt. Vals- heimilið varð brátt hans annað heim- ili og með hveiju árinu bættust fleiri og fleiri strákar við flokkana hans og hann náði einnig að virkja for- eldrana. Það er honum að þakka að nú er nokkurs konar foreldraráð starfandi í Val. Ekki leið á löngu þar til Maggi var orðinn einn virt- asti og besti unglingaþjálfari á landinu. Við í 3. flokki karla vorum svo heppnir að hafa Magga sem liðs- stjóra er við fórum í keppnisferð til Italíu. Þar fengum við tækifæri til að kynnast honum betur. Framkoma hans var svo aðlaðandi og skemmti- leg að eftir tvær vikur fannst okkur öllum að hann hefði alltaf verið með okkur, líkt og bróðir. Framkoma hans heillaði ekki aðeins okkur held- ur einnig erlendu keppendurna. Besta dæmið um þetta var, er við vorum eitt sinn að bíða eftir rútu, þá var Maggi allt í einu kominn í hóp Palestínumanna og lét þá syngja með sér íjöldasöng inn á kassettu. Maggi átti alltaf svo auðvelt með að ná til barna og unglinga. Hann skildi okkur svo vel, var skemmtileg- ur og bjartsýnn. Hressileiki hans og hlýja gat drifið hvern okkar í að gera hvað sem var. Þetta og það að hann hvorki drakk né reykti gerði það að verkum að hann var frábær fyrirmynd okkar strákanna. Maggi stjórnaði mörgum flokkum til sigurs og hann hefur mótað og þjálfað marga framtíðarhandknatt- leiksmenn og nokkrir hafa spilað með unglinga- og drengjalandslið- um. Það var svo margt sem hann náði að framkvæma áður en hann yfirgaf okkur aðeins 24 ára að aldri. Alltaf var eitthvað að gerast hjá honum og eiginlega má segja að hann hafi skilað jafn miklu starfi og gengið í gegnum jafn margt í lífinu og háaldraður maður. Fáir gerðu sér grein fyrir hans fórnfúsu störfum en enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur. Hann barðist hetjulega gegn sjúk- dómi sinum og gafst ekki upp fyrr en dómarinn flautaði til leiksloka. Þeir sem þekktu hann voru heppnir, því hann var einstakur og fyrir mitt leyti var hann mér ekki bara sem frændi eða þjálfari. Hann var eitt- hvað miklu meira en það og ég mun aldrei gleyma honum því hann var fyrirmynd mín. En það þýðir ekki að gefast upp, því það hefði hann alls ekki viljað. Fjölskylda Magga og unnusta stóðu með honum í baráttunni gegn sjúkdómnum og hafa þau staðið sig með mikilli prýði. Það er mikið lán að hafa fengið að vera alltaf í ná- vist við svona góðan dreng eins og Maggi var. Hugsjón Magga mun ætíð ríkja í Valsheimilinu og í hugum okkar sem vorum svo lánsöm að kynnast hon- um. Ég vil að lokum þakka Magga fyrir samfylgdina og allt sem hann kenndi mér í sambandi við hand- knattleik og framkomu. Óskar Bjarni Óskarsson Fleiri greinar um Magnús Blöndal Sigurbjörnsson birtast næstu daga Eyjólfiir Kristjáns son — Minning Nú þegar tengdafaðir minn, Eyjólfur Kristjánsson, er allur, langar mig að minnast hans í örf- áum orðum og þakka meira en þijátíu ára kynni. Eyjólfur afi, eins og við kölluð- um hann öll, var maður af gamla skólanum, hlédrægur og tillits- samur og hafði til að bera í ríkum mæli þann fágæta eiginleika, sem á frönsku er kallaður „la politesse du coeur“. Hann og eftirlifandi kona hans, Guðrún Emilsdóttir, voru svo sam- rýnd að í mínum huga eru þau alltaf sem eitt. Saman stóðu þau alla tíð og sambúð þeifra, traust og einlæg, var eins og ósjálfrátt öðmm til eftirbreytni. Hver sem kom til þeirra átti víst ekki aðeins hlýtt viðmót og góðar veitingar, heldur einnig áhuga þeirra og velvild. Þau voru skilningsrík og ráðholl, en predik- uðu aldrei né töluðu um hve allt hefði verið betra í gamla daga. Jafnvel þegar aldur færðist yfir og heilsan fór að bila, voru þau aldrei of þreytt né önnum kafin til þess að taka á móti gestum og enginn fór frá þeim tómhentur né með tómarúm í hjarta. Erfitt er að ímynda sér betri afa og ömmu og fjöldi barnabarna og annarra afkomenda sakna nú Eyjólfs afa, gæsku hans og góð- vildar. Það gerum við fullorðna fólkið líka, sem þekktum hann lengur. Hann mun lifa áfram í hjörtum okkar allra. Catherine Steikt lambalæri með rjómasveppasósu - fyrir 6 manna veislu. Ef von er á flelri gestum er tilvalið að matreiða hrygg- inn líka. 1 lavibalærí l/2 tsk rósmarin 2 lárviðarlauf 1 tsk papríkuduft 200 g sveppir 100 g smjör l/2 l kjötsoö 2 dl tjómi 5 msk sósujafnarí Nýtt kjöt í nýjum umbúðum Jólakrásin þarf ekki að kosta mikið ef þú kaupir nýtt lambakjöt á lágmarksverði í hálfum skrokkum. Þú faerð það bæði í úrvalsflokki og fyrsta flokki A og í nýjum umbúðum, þar sem fram koma nákvæmar upplýsingar um innihaldið. Þegar von er á mörgum gestum í mat, eins og oft um jólin, er gott að eiga einn poka eða fleiri. Einstakir hlutar, sem nýtast þér illa, hafa i>erið fjarlœgðir. salt og pipar Kryddið latnbalœrið með róstnarín, salti, pipar og lárviðarlaufum og steikið í ofnskúffu við 200 °C í 120 mín. Hellið kjötsoðinu yfir Icerið og sjóðið með síðustu 10 míti Steikið sveppina í smjörínu og kryddið tneð paprikudufti, salti og pipar. Hellið soðinu yfir sveppina og sjóðið í 15 tnítt Pykkiðsósuna með sósujafnara og sctjið. tjómann út í (í staðinn fyrír kjötsoð má nota vatn og kjötkraft eða súputeninga ) Lambahryggurinn er mat- reiddur á sania hátt og tœrið. Tvöfaldaðu uppskriftina ef þú vilt matreiða hryggitin með latnbalœrínu en steikið bann í aðeins 60 mitt Aukin snyrting - betri nýting Á myndinni sérðu þá hluta sem nú eru fjarlægðir áður en kjötið er sett í poka. Þú nýtir allt kjötið í jólamatinn og hversdagsmatinn. 6 kg á aðeins 3-378 kr. í hverjum poka eru rúmlega 6 kg af „lambakjöti á lágmarksverði" og kílóið af lambakjöti í í'yrsta flokki A kostar því aðeins 563 kr. og í úrvalsflokki 586 kr. Nýttu þér uppskriftina hcr til hliðar og þær sem liggja frammi í verslunum og hafðu sérstaklega gott lambakjöt um jólin. Gledilega hátíð! i einum poka af lambakjöti á lágmarksverði fcerðu beilt lœri, grillrif súpukjöt og hálfan hiygg. Ini getur vatið um tvenns konar niðurhlutun á hryggnum; í úrvalsflokki er hann sagaður í kótilettur og í fyrsta flokki A er hann ósagaður. SAMSTARFSHOPUR UM SÖLU LAMBAKJÖTS Nýtt lambakjöt á lágmarksverði góð kaup fyrir fjölskylduboðið

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.