Morgunblaðið - 20.12.1989, Qupperneq 52
52
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 1989
TIL SÖLU
Range Rover Vouge ’88.
Til sölu þessi frábæri bíll. Bílnum fylgir útvarp
og geislaspilari, góð dekk o.s.frv. Gott stað-
greiðsluverð eða skuldabréf til lengri tíma.
Upplýsingar í síma 652221.
LITLU JÓLIN MEÐ
BÍTLA VINAFÉLA GINU
á morguti, fimmtudag, á Hótel borg
láta gamminn geisa ásamt:
Ragnari Bjarnasyni, Sigríði Beinteinsdóttur,
Gísla Birgi Ólsen, Geirmundi Valtýssyni,
konungum kokkteiltónlistarinnar
og tískusýningarflokknum THULE.
Litlu jólin hefjast kl. 21.30.
Deman tar
Þitt er valið
Gull og demantar
Kjartan Ásmundsson, gullsmiður,
Aðalstræti 7. Sími 11290.
fclK í
fréttum
Barnakór Selfosskirkju.
AÐVENTAN
Barnakórí
Selfosskirkju
Aaðventukvöldi í Selfosskirkju
vakti söngur barnakórs kirkj-
unnar undir stjórn starfandi söng-
málastjóra þjóðkirkjunnar, Glúms
Gylfasonar, sérstaka athygli. Glúm-
ur hefur staðið fyrir átaki til þess
að efla starfsemi barnakóra við
kirkjur landsins og má víða sjá
árangur þess starfs. Börnin kynntu
sjálf lögin sem kórinn söng.
Óli Þ. Guðbjartsson, dóms- og
kirkjumálaráðherra, hélt ræðu á
aðventukvöldinu og séra Tómas
Guðmundsson í Hveragerði flutti
hugvekju. Að lokinni dagskrá bauð
kvenfélag kirkjunnar til kaffi-
drykkju.
— Sig. Jóns.
HJÓNABANDSBJÖRGUN
Tilraun Tysons gekk
ekki sem skyldi
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Börnin kynntu sjálf lögin sem
kórinn söng.
Sagt er að fyrrum hjónakornin
Robyn Givens og hnefaleika-
meistarinn Mike Tyson hafi'freist-
að þess að ná saman á ný fyrir
skömmu. Þá hafi Tyson hringt í
fyrrum konu sína og boðið henni
til rómantískrar helgar með
kampavíni, kertaljósum og ljúfri
tónlist. Givens þekkist boðið með
opnum huga, því þótt skilnaður
þeirra hafi á sínum tíma verið
harðvítugur hagsmunaslagur,
töldu ýmsir nákomnir þeim að
kærleik væri að finna hjá þeim í
garð hvors annars. En, tilraunin
rann hins vegar samstundis út í
sandinn.
Givens segir svo frá, að hún
hafi ekki verið fyrr komin inn fyr-
ir dyr í lúxusvillu Tysons en hann
var kominn með vísifingurinn á
loft, og skipaði henni að sinna
þessu eða hinu verkinu. „Farðu
með þetta dót niður í kjallara,"
„Það eru engar ólífur til út í mart-
íníið, það er búð úti á horni. Keyptu
sígarettur fyrir mig í leiðinni," og
fleira ámóta rigndi yfir konuna.
Er skammt var liðið kvölds byrsti
Tyson sig skyndilega og sakaði
Givens um að hunsa sig og víkja
sér undan að halda sér selskap!
Er konutetrið var að afsaka sig,
hún þurfti út í búð og niður í kjall-
Tyson er iðulega spjátrungslegur. Hér kemur hann í slíku gervi
á frumsýningu í Hollywood fyrir skemmstu.
ara og víðar, hringdi síminn allt í
einu. Givens svaraði og reyndist
vinkona hennar vera á línunni. Sú
átti að gæta híbýla Givens í fjar-
veru hennar og þurfti að spyija
um eitthvert furðuhljóð í kynding-
unni. Er Givens byijaði að útskýra
fyrir konunni að hún þyrfti engar
áhyggjur að hafa, var Tyson
skyndilega nóg boðið. Hann spratt
á fætur, fnæsti ógurlega og reif
símtækið af veggnum og þeytti
því út um gluggann. Þar með var
Givens einnig nóg boðið sem von
var. Hún tók föggur sínar og snar-
aði sér heim.