Morgunblaðið - 20.12.1989, Blaðsíða 58
58
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 1989
SKOmmTVELIN IAR
TA Gábriele 100
4
Vel útbúinn vinnuhestur fyrir
námsmanninn sem velur gæði og gott verð.
VERÐ AÐEINS KR. 17.900,- staðgr
Komdu við hjá okkur eða hringdu og
fáðu frekari upplýsingar, það borgarsig öruggiega.
Einar J. Skúlason hf
Grensásvegi 10, sími 686933
UMBOÐSMENN UM LAND ALLT
Reykjavík: Penninn sf., Skólavörubúð Námsgagnastofnunar, Tölvuvörur hf., Bóka- og ritfangaverslunin Griffill sf., Aco hf., Hans Árnason,
Sameind hf., Tölvuland. Garðabær: Bokabúðin Gríma. Hafnarfjörður: Bókabúð Olivers Steins. Keflavik: Bókabúð Keflavikur. Þorlákshöfn: Rás sf.
Selfoss: Ösp. Vestmannaeyjar: Bókabúðin Heiðarvegi. Höfn Hornafirði: Kaupfélag A-Skaftfellinga. Egilsstaðir: Traust. Akureyri: Bókaverslunin
Edda, Jón Bjarnason úrsmíðavinnustofa. Sauðárkrókur: Stuðull. Hvammstangi: Gifs-mynd sf. ísafjörður: Bókabúð Jónasar Tómassonar.
Akranes: PC-tölvan.
HANDKNATTLEIKUR
Hrafn Margeirsson úr leik til vors með brotinn hálslið:
„Erntt að sætta
sigviðþetta“
HRAFN Margeirsson varð fyrir óhappi á landsliðsæfingu í
fyrradag er hann fékk högg á hnakkann, með þeim afleiðing-
um að hálsliður brotnaði iila. Þetta kemur í veg fyrir að Hrafn
geti æft eða keppt næstu mánuðina. Hrafn hefur leikið mjög
vei með Víkingum að undanförnu og var að flestra mati Ifkleg-
urtil aðfara með landsliðinu á heimsmeistarakeppnina í
Tékkóslóvakíu en sú ferð er nú úr sögunni hvað Hrafn varðar.
Morgunblaðið/Svernr
Hrafn Margeirsson á heimili sínu í gær, rned kragann sem hann þarf
að bera næstu tvo eða þijá mánuðina.
Eg á mjög erfitt með að sætta
mig við þetta og hef eiginlega
forðast að hugsa um þetta í dag.
Ég á að vera með kraga í tvo til
þijá mánuði og ég er að gefast
upp á fyrsta degi. Ég veit ekki
hvernig næstu vikur verða en ég
veit að þær verða erfiðar," sagði
Hrafn.
„Ég man lítið eftir þessu. Við
vorum að hita upp og ég lenti illa.
Ég heyrði smell og höfuðið og
axlirnar dofnuðu. Annars er þetta
allt í móðu.“
Hrafn kom í Víking í sumar frá
ÍR og hefur leikið vel með Víking-
um, þrátt fyrir að gengi liðsins
hafi verið verra en flestir bjug-
gust við. „Ég vona það bara að
Víkingar nái að bjarga sér. Eins
og staðan er í dag höfum við
bara eitt markmið og það er að
halda sætinu. Fyrir mótið vorum
við bjartsýnir en það hefur allt
gengið á afturfótunum og ég veit
ekki hvað við höfum tapað mörg-
um ieikjum með einu marki,“
sagði Hrafn.
„Er líklega heppinn"
Hrafn tekur þessu furðu rólega
en á greinilega erfitt með að sætta
sig við að öll vinna vetrarins er
unnin fyrir gýg. „Ég reyni að
sætta mig við þetta og ég veit
að ég er líklega heppinn að hafa
sloppið svo vel. Hefðu neðri háls-
liðir brotnað þá hefði ég lamast.
Með það í huga get ég reynt að
líta á þetta sem „bara“ þrjá mán-
uði,“ sagði Hrafn.
„Ótrúleg vonbrigði“
„Þetta eru ótrúleg vonbrigði.
Ég hafði sett mér há markmið
fyrir veturinn og mér hafði geng-
ið þokkalega. En ég verð víst að
reyna að bíta á jaxlinn og reyna
að þrauka til vorsins," sagði Hrafn
Margeirsson.
Verkefni fyrir kvennalandslið:
Þátttaka tilkynnt á
næsta IMorðurlandamót
Knattspyrnusamband íslands
ákvað fyrir skömmu að 16 ára
landslið kvenna tæki þátt í næsta
Norðurlandamóti, sem fram fer í
Svíþjóð í sumar, og tilkynnti þátt-
töku liðsins í gær.
ísland hefur ekki tekið þátt í stór-
móti í þessum aldursflokki, en árið
1988 tók U-16 liðið þátt í keppni
í Danmörku.
Verkefni allra kvennalandsliða
lágu niðri á þessu ári vegna slæmr-
ar fjárhagsstöðu sambandsins, sem
reyndar bitnaði á öllum landsliðum
KSÍ, en að sögn Eggerts Magnús-
sonar, formanns KSÍ, er þetta
fyrsta skrefið í að endurvekja A-
landslið kvenna í knattspyrnu.
Ekki hefur verið gengið frá ráðn-
ingu þjálfara fyrir 16 ára liðið, en
Eggert sagði við Morgunblaðið að
verið væri að vinna í þjálfaramálum
sambandsins fyrir öll landsliðin, en
gengið yrði frá þeim málum eftir
áramót.
LJTAVER
Grensásvegi • Sími 82444
KNATTSPYRNA / U-16 KVENNA
faém
FOLK
■ ARNAR Arnarsson, sem lék
með Hetti, Egilsstöðum, í knatt-
spyrnu á síðasta keppnistímabili,
en að öðru leyti með Víkingi,
Reylgavík, í yngri flokkunum, hef-
ur gengið til liðs við KR.
■ MIKIL spenna ríkir fyrir
síðustu umferðina í deildakeppninni
í ameríska fótboltanum. Tíu lið
komast í úrslit og fyrir síðustu
umferðina eru aðeins þijú lið ör-
ugg. San Francisco, New York
Giants og Denver Broncos hafa
tryggt séi\ sæti í úrslitum. Los
Angeles Rams, Cleveland og
Minnesota eru nokkuð örugg um
að ná sæti í úrslitum. Spennan hef-
ur líklega aldrei verið meiri í 70
ára sögu deildarinnar en tölfróðir
menn hafa fundið út 615 möguleika
á niðurröðun í úrslitakeppnina.
SUND
Fjögur unglinga-
met sett á innan-
félagsmóti KR
Fjögur unglingamet voru sett á
innanfélagsmóti KR í sundi
sem fram fór um síðustu helgi.
Gunnar Ársælsson frá Akranesi
setti piltamet í 50 metra flugsundi,
synti á 27,35 sekúndum.
Arna Þorgeirsdóttir úr Ægi setti
hnátumet í 200 metra skriðsundi
er hún synti á 2.44,93 mínútum.
Þá setti tvö met í boðsundum. Sveit
KR setti telpnamet í 4 x 100 metra
fjórsundi, synti á 5.18,95 mín. og
Sveit Ægis setti meyjamet í sömu
grein, synti á 5.48,09 mínútur.