Morgunblaðið - 11.03.1990, Qupperneq 25
ATVINNURAD-
OG SMÁAUGLÝSINGAR
A TVINNUAUGi ÝSINGAR
Stýrikerfisforritari
óskast til IBM
IBM auglýsir í blaðinu í dag eftir stýrikerfisforritara til
starfa í tæknideild fyrirtækisins. Viðkomandi verður að
hafa einhveija þekkingu á MVS, VM eða CICS kerfum
IBM. Einnig er tekið fram að æskilegt sé að hafa grunn-
þekkingu í fjarvinnslu og UNIX. Það sem starfsmaður
kemur aðallega til með að gera er bilanagreining og lag-
færingar á þessum kerfum. Einnig mun viðkomandi hljóta
sérþekkingu á áðurnefndum kerfum hérlendis og erlend-
is eftir því sem þörf krefur.
Viðskiptafræðingar
óskast til starfa
Fjármálafyrirtæki óskar eftir viðskiptafræðingi eða hag-
fræðingi til ráðgjafarstarfa. Starfssvið viðkomandi yrði
ýmis sérfræðileg verkefni, s.s. mat á lánshæfni umsækj-
enda, skoðun ársreikinga, mat á rekstrar- og greiðsluáætl-
unum, heimsóknir í fyrirtæki og viðtöl við forráðamenn
fyrirtækja og skýrslugerð. Þá auglýsir eignarhaldsfélag,
sem hefur hætt beinum daglegum rekstri, eftir viðskipta-
fræðingi af endurskoðunarsviði, lögfræðingi eða aðila
með góða reynslu í veðskuldabréfa- og víxlavafstri, ásamt
skilningi á bókhaldi til að sjá um íjárreiður fyrirtækisins.
Ýmis störf hjúkr-
unarfólks laus
Um fjörutíu störf hjúkrunarfólks á ýmsum sviðum eru
auglýst laus í blaðinu í dag. Ýmist er um að ræða afleys-
ingastöður eða framtíðarstöður hjúkrunarfræðinga, störf
sjúkraliða, sjúkraþjálfa, ljósmæðra og lækna. Einnig er
laus prófessorsstaða í handlæknisfræðum við læknadeild
Háskóla íslands.
Laust starf í leið-
beiningastöð rekstr-
arsviðs SKÝRR
Starfsmaður með góða menntun á sviði tölvufræða og/eða
íjarskiptatækni ásamt reynslu af því að vinna við tölvu
óskast í krefjandi starf í leiðbeiningastöð rekstrarsviðs
SKÝRR, sem er miðstöð aðstoðar og upplýsinga fyrir
notendur sívinnslunets SKÝRR. Starfsmaðurinn þarf að
hafa þjónustuvilja og vera fylginn sér.
Atvinnuhúsnæði í
Danmörku
Til leigu er 625 fm. skemma með meiru, ásamt stóru
svæði utanhúss í um 60 km. fjarlægð frá Kaupmanna-
höfn. Milliganga um flutnings- og afgreiðslusambönd,
t.d. til EB-landa ef óskað er.
Vetrarfagnaður FÍ
Vetrarfagnaður Ferðafélags íslands verður haldinn í Ris-
inu, Klúbbnum, Borgartúni 32, laugardaginn 17. mars
nk. og hefst kl. 19.30.
Tunglskinsganga í
Engey
Útivist stendur fyrir tunglskinsgöngu í Engey mánudag-
inn 12. mars. Brottför er kl. 20 frá Grófarbryggju, þar
spm Akraborgin leggur að. Fjörubáj verður.kynt........
Frá Hvammstanga, þar sem um 40 einstaklingar og smáfyrirtæki hafa nú þegar
skráð sig fyrir rúmlega einni milljón króna hlutafé í Orðtaki. hf.
Hvammstangi:
Fjarvinnslustofan
Orðtak hf. stofnuð
Tilgangurinn að skapa ný atvinnutækifæri á
sviði upplýsingatækni og gefa ungu fólki kost
á að læra á tölvur í raunhæfu umhverfi
STOFNFUNDUR hlutafélagsins Orðtaks hf.,
íjarvinnslustofu var haldinn á Hvammstanga
laugardaginn 24. febrúar. Um 40 einstakling-
ar og smáfyrirtæki hafa nú þegar skráð sig
fyrir rúmlega einni milljón króna, en hlutaQár-
söfnun er ekki lokið. Þessi fjarvinnslustofa er
sú fyrsta sinnar tegundar á Islandi.
Nýkjörin stjórn Orðtaks hf. hef-
ur skipt með sér verkum og
er formaður sr. Kristján Björnsson,
Brún í Víðidal, en aðrir í stjórn eru
Egill Gunnlaugsson, Páll Sigurðs-
son og Bjarney Valdemarsdóttir,
öll á Hvammstanga, og Bjöm Ein-
arsson, Bessastöðum. Forstöðu-
maður Orðtaks hf. verður
Steingrímur Steinþórsson og verð-
ur starfsemin á Höfðabraut 6 á
Hvammstanga. Morgunblaðið náði
tali af Kristjáni Björnssyni form-
anni og innti hann frétta.
— Hver er forsaga þessa máls? -
„Starfshópur hafði unnið að
framkvæmd þessarar hugmyndar
frá því í október 1989 að frum-
kvæði Átaksverkefnis V-Hún.
Megintilgangurinn er að skapa ný
atvinnutækifæri á landsbyggðinni
á sviði upplýsingatækni og auka
þjónustu við fyrirtæki og félög sem
eru í sýslunni og síðast en ekki
síst að gefa ungu fólki kost á að
læra á og umgangast tölvur í raun-
hæfu umhverfi.
Fyrirmyndin er komin frá Norð-
urlöndum og byggist í einfaldleik
sínum á því, að fjarlægðir skipti
ekki orðið máli fyrir verkkaupa og
verktaka á sviði ritvinnslu, þýð-
inga, prófarkalesturs né annarra
slíkra verkþátta, þegar aðilar taka
í sína þjónustu nýjustu tækni á
sviði síma og tölvusendinga. Sá
sem verkið vinnur getur þess vegna
búið í öðru landi. Ekki hefur verið
unnið að öflun verkefna að marki,
en mjög víða í opinbera geiranum,
svo og hjá stofnunum og fyrirtækj-
um, er þessi háttur hafður á, að
kaupa utanaðkomandi þjónustu."
— Hvenær hefst starfsemin?
„Fyrst verður aðeins maður í
hlutastarfi, sem sinnir markaðs-
málum og samskiptum við starfs-
hópinn í héraði, en þeir aðilar, sem
koma til með að vinna fyrir stof-
una, verða eins konar verktakar,
þ.e. ekki á launaskrá. Þannig fara
umsvifin að mestu eftir verkefnum
hveiju sinni. Einnig verður efnt til
námskeiða bæði fyrir fólk i starfs-
hópnum og aðra, sem áhuga hafa.
Þessi stofa gefur einnig bændum
og búaliði verulegan möguleika til
heimavinnu, en nú munu vera til
tölvur á 15 sveitaheimilum í sýsl-
unni. Starfshópurinn leitaði tilboða
í tölvubúnað stofunnar og hefur
stjórnin nú ákveðið að að ganga
til samninga við Einar J. Skúlason
hf. um tækjakaup og þjónustu. í
þessum samningi er einnig sá
möguleiki að verktakar stofunnar
eiga auðveldara með að kaupa sér
tölvubúnað,“ sagði Kristján
Björnsson að lokum.
Karl
Stóriðja:
Akumesingar
bendaá
Grundartanga
AkranesL
Á Akranesi hafa menn áhyggj-
ur af því hversu Grundartangi
fellur í skuggann í umræðunni
um hentugan stað fyrir nýtt álver
eða aðra stóriðju. Málið kom til
umræðu í bæjarstjórn fyrir
skömmu og voru menn sammála.
um að ekki væri hentugri stað
að fínna á landinu undir slíkt
mannvirki þótt lítið færi fyrir því
sjónarmiði í (jölmiðlum. Grund-
artangi væri kjörinn staður fyrir
stóriðjufyrirtæki, þar væri þegar
fyrir góð höfh auk þess sem að-
veitulína fyrir rafmagn væri til
staðar.
Bæjarstjórn Akraness hefur
samþykkt áskorun til iðnaðar-
ráðherra í framhaldi af umræðum
um staðsetningu nýs álvers. I áskor-
uninni kemur fram að ráðhen-ann
láti meta hagkvæmni staðarins fyr-
ir orkufrekan iðnað með hliðsjón
af þeim mannvirkjum sem fyrir
hendi eru, og þeim áhrifum sem
uppbygging iðnaðar á þessu svæði
mun hafa á byggðaþróun. Minnl
er á samþykktir bæjarstjórnar og
aðalfundar Samtaka sveitarfélagr
á Vesturlandi um hvað aðstaðar.
við Grundartanga er ákjósanleg
fyrir hvers kyns iðnað.
- J.G.
Þórshöfii:
Þokkalegt at-
vinnuástand
Þórshöfn.
ATVINNUÁSTAND á Þórshöfh
er þokkalegt miðað við árstíma.
I febrúar voru 122 atvinnuleysis-
dagar og eru konur í meirihluta
á atvinnuleysisskrá.
Togarinn Stakfell landaði fýrir
skömmu 80 tonnum af ísfiski
og vinna nú milli 70 og 80 manns
í hraðfrystistöð Þórshafnar. Afli
heimabáta hefur verið lítill enda
bræludagar margir. Er það Stak-
fellið sem sér Hraðfrystistöðinni
fyrir hráefni og fólkinu fyrir vinnu.
‘ - L.S.