Morgunblaðið - 11.03.1990, Page 26
I
26 MORGUNBLAÐIÐ ATVINNA/RAÐ/SMA SUNNUDAGUR 11. MARZ 1990
A1VINNUAUGÍ YSINGAR
Ljósmæður
Sumarafleysingar vantar á fæðingar- og
kvensjúkdómadeild Sjúkrahúss Akraness.
Vinnuaðstaða er mjög góð.
Nánari upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri,
sími 93-12311.
LANDSPITALINN
Hjúkrunarfræðingar
Á taugalækningadeild Landspítalans eru
lausar stöður hjúkrunarfræðinga. Deildin er
22ja rúma deild fyrir sjúklinga með vefræna
taugasjúkdóma, sem eru ýmist í dagdeild
eða 24ra tíma meðferð.
Allar nánari upplýsingar gefur Oddný Gunn-
arsdóttir, deildarstjóri, í síma 601653, og
Laufey Aðalsteinsdóttir, hjúkrunarfram-
kvæmdastjóri, í síma 601290 eða 601300.
Vífilsstaðaspítali.
Staða hjúkrunarfræðings á hjúkrunardeild
er laus til umsóknar. Um er að ræða nætur-
vaktir, 60% starf.
Upplýsingar veitir Bjarney Tryggvadóttir,
hjúkrunarframkvæmdastjóri, ísíma 602800.
Aðstoðarmaður
Áhugasamur, þolinmóður og sjálfstæður
aðstoðarmaður óskast nú þegar við iðju-
þjálfun öldrunarlækningadeildar Landspít-
ala, Hátúni 10b.
Nánari upplýsingar gefur Birgit Schov, iðju-
þjálfi, í síma 602257.
Reykjavík, 11. mars 1990.
Landspítalinn
Geðdeild Landspítala. Eftirtaldar stöður eru
lausar til umsóknar: Tvær stöður hjúkrunar-
fræðinga og tvær stöður sjúkraliða á deild
33-A, móttökudeild.
Staða hjúkrunarfræðings á deild 32-E,
göngudeild áfengis.
Staða hjúkrunarfræðings á deild 16, eftir-
meðferðardeild, á Vífilsstöðum. Um
80-100% stöður er að ræða. Við vekjum
athygli á góðri vinnuaðstofu, fræðslu fyrir
starfsfólk og ágætum starfsanda við þrosk-
andi störf.
Upplýsingar um ofangreindar stöður gefur
Jóhanna Stefánsdóttir, hjúkrunarfram-
kvæmdastjóri, í símum 656570 og 601750.
Barna- og unglinga-
deild Landspítalans
Hjúkrunarfræðingar óskast á unglingadeild
nú þegar og í sumarafleysingar. Um er að
ræða fullt starf í vaktavinnu.
Hjúkrunarfræðingar, fóstrur og þroska-
þjálfar óskast á legudeild nú þegar og í
sumarafleysingar. Um er að ræða fullt starf
í vaktavinnu.
Upplýsingar um ofangreindar stöður gefur
Anna Ásmundsdóttir, hjúkrunarfram-
kvæmdastjóri, í síma 602550. Umsóknir
sendist hjúkrunarframkvæmdastjóra.
Reykjavík, 11. mars 1990.
Svæfingalæknir
Staða yfirlæknis í svæfingalækningum við
Sjúkrahús Vestmannaeyja er hér með aug-
lýst laus til umsóknar.
Um er að ræða 100% stöðu með bakvöktum.
Umsóknarfrestur er til 1. maí nk. og skulu
umsóknir berast stjórn Sjúkrahúss og Heilsu-
gæslustöðvar Vestmannaeyja, ásamt öllum
venjulegum upplýsingum um menntun og
fyrri störf.
Allar nánari upplýsingar veita Björn í. Karls-
son, yfirlæknir, og Eyjólfur Pálsson, fram-
kvæmdastjóri, í síma 98-11955.
Stjórn Sjúkrahúss
og Heilsugæslustöðvar Vestmannaeyja.
ÁLAFOSS
Saumakonur
Óskum eftir saumakonum á saumastofu okk-
ar í Mosfellsbæ. Vinnutími frá kl. 8.00-16.00.
Nánari upplýsingar gefur starfsmannahald í
síma 666300.
Álafoss hf.
Kjötborð
Viljum ráða nú þegar starfsmann við kjöt-
borð í verslun Haugkaups, Skeifunni 15.
Við leitum að matreiðslumanni, kjötiðnaðar-
manni eða manni vönum kjötafgreiðslu.
í starfinu felst umsjón með pöntunum á vör-
um fyrir kjötborðið og afgreiðsla.
Nánari upplýsingar veitir verslunarstjóri á
staðnum (ekki í síma).
HAGKAUP
Starfsmannahald, Skeifunni 15.
Julian Jill
snyrtivörur
Umboðsaðili Julian Jill á íslandi óskar eftir
umboðsmönnum um allt land til þess að
selja á kynningum. Aðeins þeir, sem hafa
þekkingu á snyrtivörum og/eða reynslu af
sölumennsku, skilja ensku, þýsku eða
frönsku og eru eldri en 25 ára, koma til
greina.
Áhugasamir sendi umsóknir með upplýsing-
um um aldur, menntun og fyrri störf, inn á
auglýsingadeild Mbl. fyrir 16. mars, merktar:
„Julian Jill - 7656“.
Danshúsið í
Glæsibæ
óskar eftir starfsfólki í eftirtalin störf:
1) Markaðs- og veitingastjóri.
Viðkomandi þarf að vera framreiðslumaður
og hafa reynslu í stjórnun.
2) Framreiðslumenn á bar.
3) Ræstingar.
Unnið er á daginn við þrif á eldhúsi og veislu-
sölum. Góð laun.
Umsóknir sendist auglýsingadeild Mbl.,
merktar: „Danshúsið - 7653“, fyrir 20. mars.
Farið verður með allar umsóknir sem trúnað-
armál.
Stýrisforritari
TÆKNISVIÐ
IBM óskar að ráða stýrikerfisforritara til
starfa í tæknideild fyrirtækisins. Áskilin er
þekking á einhverjum eftirtalinna IBM kerfa:
MVS, VM og CICS.
Grunnþekking í fjarvinnslu og UNIX væri
ennfremur æskileg.
Aðalverkefnið verður bilanagreining og lag-
færingar á ofangreindum kerfum.
í boði er góð vinnuaðstaða í mjög fullkomnu
umhverfi innan um sérfræðinga fyrirtækisins
á þessu sviði.
Viðkomandi mun hljóta frekari sérþekkingu
á áðurnefndum kerfum hérlendis og erlend-
is, eftir því sem þörf krefur.
Nánari upplýsingar veitir Ráðningarþjónusta
Guðna Jónssonar, Tjarnargötu 14, Reykjavík.
Skriflegar umsóknir er tilgreina aldur, menntun
og fyrri störf, skulu sendar Ráðningarþjónustu
Guðna Jónssonar fyrir 18. mars 1990.
CiiðntTónsson
RÁÐGJÖF &RÁÐNI NCARÞJÓNUSTA
TIARNARGÖTU 14, 101 REYKJAVÍkFSÍMI 62 13 22
Lausar stöður
Visa ísland - Greiðslumiðlun hf.,
vill ráða í eftirtaldar forstöðumannsstöður.
Forstöðumaður
þjónustusviðs
Starfssvið: Yfirumsjón með starfi allra stoð-
deilda, er sjá um þjónustu fyrirtækisins við
viðskiptavini, kaupmenn, banka og spari-
sjóði.
Viðskipta-/markaðsmenntun áskilin. Æski-
legt er að viðkomandi hafi góða reynslu af
þjónustustörfum, hafi trausta og örugga
framkomu og gott vald á ensku og einu
Norðurlandamáli.
Forstöðumaður
hagsýslusviðs
Starfssvið: Yfirumsjón með öllu reiknishaldi
fyrirtækisins, þ.m.t. aðalbókhald, áætlana-
gerð, úrvinnsla hagtalna og skýrslugerðir,
ásamt ýmsum sérverkefnum.
Hagfræði-/viðskiptamenntun áskilin. Nauð-
synlegt að viðkomandi hafi góða starfs-
reynslu á þessu sviði.
Reynsla eða þekking á bankastörfum kemur
sér vel í bæði störfin. Launakjör samkvæmt
kjarasamningum SÍB og bankanna. Fullur
trúnaður á öllum umsóknum.
Umsóknir, er tilgreini aldur, menntun og
fyrri störf, sendist Ráðningarþjónustu
Guðna Jónssonar, Tjarnargötu 14,
Reykjavík.
Umsóknarfrestur er til 22. mars 1990.
Guðni TÓNSSON
RÁÐGJÖF ö RÁÐN l NCARNÓN LISTA '
T|ARNARGÖTU 14, 101 REYKJAVÍK, SÍMI62 13 22