Morgunblaðið - 20.03.1990, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. MARZ 1990
Áætlaðar lokanir deilda hjá Ríkisspítölum:
Líkt og tvær deildir Land-
spítala væru lokaðar í ár
Morgunblaðið/Sigurgeir
Vorboðinn spígsporar í Hlíðarbrekkunni, en þar hélt tjaldurinn
sig drjúgan hluta sunnudagsins.
Vorboðinn komin til Eyja
V estmannaeyjar
TJALDURINN er kominn til Vestmannaeyja, en þangað kemur
hann fyrstur farfugla. Ingi Sigurjónsson, áhugamaður um fugla
sá tjaldinn í Hlíðarbrekkunni við Hástein á sunnudag.
ÁÆTLAÐAR lokanir deilda Ríkisspítala í sumar eru svipaðar og í
fyrra og samsvara því að tvær deildir á Landspítalanum væru lokaðar
nær allt árið, að sögn Davíðs Á. Gunnarssonar, forsljóra Ríkisspítala.
Davíð sagði, að ef Ríkisspítalar fengju ekki aukið Qármagn á þessu
ári kæmi til enn frekari lokana, en hann vildi ekki nefna neinar upp-
hæðir í því sambandi. Lokanir nú má rekja til aðhalds í rekstri
Ríkisspítala, líkt og var á síðasta ári, en árin þar á undan réð mann-
ekla mestu um lokanir. Á Borgarspítalanum verður heldur minna um
lokanir en í fyrra og segir aðstoðarframkvæmdasljóri spítalans ástæð-
una þá, að menn treystust ekki til svo harðra aðgerða aftur. Á Landa-
kotsspítala kemur ekki til sérstakra lokana, heldur verða 40 rúm að
meðaltali ónýtt allt árið.
Ingi sagði í samtali við Mor-
ugnblaðið, að tjaldurinn kæmi
oftast í marz, fyrst einn og einn
en síðan bætti í unz fjöldinn
væri orðinn anzi mikill. Hann
sagði tjaldinn koma fyrstan
fugla, en oft væri eitthvað um
flækinga af ýmsu tagi í Eyjum
á vetrum.
Grímur
Davíð Á. Gunnarsson sagði að
miðað væri við lokanir á Ríkisspít-
ölum í 91 deildarviku á þessu ári.
Ein deildarvika er lokun einnar deild-
ar í eina viku. „Við reynum að dreifa
lokunum á deildirnar og loka öðrum
deildum nú en í fyrra,“ sagði hann.
„Þessar áætlanir standa og falla
með því hvort fjárhagur Ríkisspítala
verður bættur innan tíðar, því ella
þarf að koma til frekari lokana. Þá
VEÐUR
r *.
í DAG kl. 12.00:^ %
£ f % (Byggt á veðurspá kl. 16.15 i gær)
VEÐURHORFUR I DAG, 20. MARZ
YFIRLIT í GÆR: Um 300 km austur af Dalatanga er 978 mb lægð
á leið austnorðaustur, en hæðarhryggur á Grænlandshafi hreyfist
austur. Vaxandi 970 mb lægð um 400 km suðvestur af Hvarfi hreyf-
ist austnorðaustur.
SPÁ: Allhvöss eða hvöss austanátt um mest allt land. Víða snjó-
koma eða slydda sunnanlands, en úrkomulítið norðanlands. Heldur
hlýnandi í bili.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á MIÐVIKUDAG: Austan og norðaustanátt með slyddu
við suður- og suðausturströndina, éljum norðanlands, en léttir til
suðvestanlands. Hiti nálægt frostmarki á Suður- og Suðaustur-
landi, en 1 til 5 stiga frost annars staðar.
HORFUR Á FIMMTUDAG: Hæg suðvestlæg átt og dólítil él vestan
til á landinu, en hægviðri og léttir til austanlands. Frost á bilinu 1 til
6 stig.
x Norðan, 4 vindstig:
" Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* / *
/ * / * Slydda
/ * /
* * *
* * * * Snjókoma
* * *
10°
10 gráður á Celsíus
y Skúrir
*
V El
— Þoka
= Þokumóða
’, ’ Súld
OO Mistur
—J- Skafrenningur
Þrumuveður
xn VEÐUR 1fÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tíma hiti veöur Akureyri +5 skýjað Reykjavík 0 snjóél
Bergen 6 skúr
Helsinkí 11 mistur
Kaupmannah. 12 þokumóða
Narssarssuaq 1 skafrenningur
Nuuk •5-4 snjókoma
Osló 9 þokumóöa
Stokkhólmur 15 mistur
Þórshöfn 4 súld
Algarve 18 skýjað
Amsterdam 15 mistur
Barcelona 17 mistur
Berlín 20 heiðskírt
Chicago +4 alskýjað
Feneyjar 19 heiðskirt
Frankfurt 16 mistur
Glasgow 8 skýjað
Hamborg 17 skýjaö
Las Palmas 24 rykmistur
London 12 rigning
Los Angeles 12 þoka
Lúxemborg 16 léttskýjað
Madríd 16 heiðskfrt
Malaga 18 mistur
Mallorca 20 léttskýjað
Montreal +1 léttskýjað
New York 7 alskýjað
Orlando 13 skýjað
París 16 skýjað
Róm 16 þokumóða
Vín 18 heiðskírt
Washington 9 alskýjað
Winnipeg +10 heiðskírt
munu lokanir samsvara því að þrjár
deildir á Landspítalanum verði lok-
aðar allt árið.“
Davíð sagði að undanfarin ár hefði
þurft að grípa til lokana þar sem
ekki hefði tekist að manna deildirn-
ar. „Núna er ástæðan hins vegar
sparnaður og aðhald, líkt og í fyrra,“
sagði hann. „Það er auðveldara en
oft áður að fá fólk til starfa, bæði
faglært og ófaglært. Að minnsta
kosti eru ekki svipaðar blikur á lofti
í þeim málum og stundum áður,
heldur virðist andrúmsloftið á vinnu-
markaðinum tiltölulega rólegt."
Magnús Skúlason, aðstoðarfram-
kvæmdastjóri Borgarspítalans, tók
undir að auðveldara væri að fá fólk
í vinnu nú en oft áður. Á þriðjudag
var ákveðið að loka deildum á spíta-
lanum í samtals 47 vikur á þessu
ári. í fyrra var hins vegar lokað í
52 vikur, sem samsvarar því að ein
deild hafí verið lokuð allt árið. „Þess-
ar lokanir í fyrra reyndust okkur
mjög erfiðar. Þær deildir sem voru
opnar voru yfirfullar og við treystum
okkur ekki til svo harðra aðgerða
nú,“ sagði Magnús. „Lokanir eru
alltaf neyðarúrræði og við sjáum
enga aðra leið ef við ætlum að halda
starfsemi spítalans gangandi út
árið.“
Logi Guðbrandsson, fram-
kvæmdastjóri Landakotsspítala,
sagði að þar væri ekki gert ráð fyr-
ir að til sérstakra sumarlokana
kæmi. „Nú eru um 40 sjúkrarúm
ónotuð að meðaltali og við höfum
ákveðið að svo verði allt árið. í fyrra
lokuðum við deildum yfír sumarið,
en með því að taka 40 rúm úr um-
ferð allt árið vonumst við til að ekki
þurfí að koma til sumarlokana,"
sagði Logi.
Morgunblaðið/Arnór Ragnarsson
Báturinn stendur í botni við bryggjuna og bíður þess að verða yfir-
farinn.
Trillu bjargað efitir
þijá daga á hafsbotni
ÞÓREY GK 123, 9 tonna trillu, sem sökk í Garðssjó í síðustu viku,
var náð af hafsbotni lítið skemmdri á sunnudag. Um borð í bátum
voru þijú til fjögur tonn af fiski og fóru þau í vinnslu.
Tómas Knútsson, kafari og sjó-
maður á Keflvíkingi KE, fann bát-
inn, en honum til aðstoðar við að
ná honum upp var meðal annars
fyrri eigandi hans, Hafsteinn Reynir
Magnússon og Jón Bjöm Vilhjálms-
son skipstjóri á Haferni KE 14.
Tómas sagði í samtali við Morgun-
blaðið, að hann hefði einfaldlega
verið heppnari en aðrir. Hann hefði
verið að loðnuveiðum úti á Flóa,
þegar Þórey sökk og fylgzt þar með
Nefhjól und-
an Fokkervél
NEFHJÓL brotnaði undan Fok-
kervél Flugleiða við lendingu í
Færeyjum síðastliðinn laugar-
dag. Engan sakaði, en áætlun
tafðist um sólarhring.
Óhappið varð með þeim hætti,
að í lendingunni sprakk á hjólinu
og við það gaf sig lítið stykki á
gafflinum, sem hjólið er fest á.
Flugvirki var til taks að áliðnum
laugardegi, en komst ekki til Fær-
eyja vegna veðurs fyrr en á sunnu-
dag.
gangi mála. Síðan hefði Goðinn leit-
að í tvo daga án árangurs og ein-
hveijir fleiri hefðu síðan farið af
stað eftir leyfi frá tryggingunum.
„Við keyrðum yfír staðinn á Keflvík-
ingi og fengum .góða lóðningu á
ákveðnum stað,“ segir Tómas. „Ég
setti staðsetninguna á blað og hafði
með í land í helgarfrí. Þegar við
komum á staðinn, settum við dreka
niður fyrst og svo skellti ég mér
niður. Það kom í ljós að ég var rétt
við bátinn, það tók fjórar mínútur
frá því ég fór niður, fann bátinn og
merkti okkur hann, setti í hann taug
og var kominn upp aftur. Báturinn
lá þarna á um 25 metra dýpi milli
tveggja kletta, eins og bíll á bíla-
stæði og sá ekki á honum.
Eftirleikurinn var síðan auðveld-
ur. Jón Björn á Haferni kom og tók
bátinn í tog, dró hann í kafi upp að
bryggjunni í Garðinum. Þar tók
kranabíll við og mjakaði honum upp
í flæðarmálið. Báturinn virtist nær
heill, aðeins smá gat á byrðingnum,
en það á eftir að koma í ljós hvort
" hann verður, haffær að nýju. Von-
andi verður hægt að gera sér mat
úr þessu,“ sagði Tómas Knútsson í
gær, en hann var þá að loðnuveiðum
um borð í Keflvíkingi.