Morgunblaðið - 20.03.1990, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 20.03.1990, Qupperneq 14
14 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. MARZ 1990 Konsó - nýr kaf li í íslenskri kirkjusögu eftir sr. Kjartan Jónsson Brautryðjendur „Hópur kristniboðsvina stóð á hafnarbakkanum og söng, þegar skipið lét úr höfn. Þeir yngstu hlupu síðan út að vitanum við hafnarmynnið, og þar héldu þeir áfram að syngja: Þótt skilji löpr lönd, ei lýð Guðs skilja höf. í álfum heims sú eining sterk er andans sigurgjöf. Söngur þeirra hefur fylgt okkur síðan.“ (Lifandi steinar, bls. 177-178.) Þannig kemst sr. Felix Ólafsson að orði, er hann og kona hans, frú Kristín Guðleifsdóttir, héldu af stað frá Reykjavík áleiðis til Eþíópíu til kristniboðsstarfa í janúarbyijun 1952. Þau voru að fara til starfa á nýjum íslenskum kristniboðsakri í Eþíópíu. Þetta var í fyrsta sinn í íslenskri kirkju- sögu, að íslendingar tóku að sér að manna og reka kirkjustarf í svo fjarlægu landi. Hér var tekið stórt og mikið trúarskref. Heimur- inn var miklu stærri þá en nú og samgöngur mun erfiðari. Þau sigldu til Eþíópíu nýgift, aðeins rúmlega tvítug. Ekki skyldi mann undra þó að einhvern landann hefði þótt þetta uppátæki nýgiftra hjónanna undarlegt í meira'lagi, að taka sig upp frá ástkærri fóst- uijörðinni til að setjast að á meðal frumstæðs þjóðflokks ein- hvers staðar inni í myrkviðum Afríku, meira og minna vega- og símasambandslaus við umheim- inn. Hversu margir nú á dögum gætu hugsað sér að eyða bestu ánim ævi sinnar við slíkar aðstæð- ur? En þau höfðu köllun frá Guði til þessa starfs. Þegar Guð kallar, er erfitt að þverskallast. Það þarf mikið hugrekki borið uppi af sterkri trú til að vera fyrstur til að fara út í óvissuna, kanna að- stæður og nema nýtt land. Það er alltaf erfitt að vera brautryðj- andi og beijast við erfið ytri skil- yrði og fordóma þeirra, sem skilja ekki rök og ástæður kristniboðs- starfsins. En Guð lét það falla í hlut Felixar og Kristínar í Eþíópíu. Þau voru reyndar ekki ein. Það var hópur fólks hér á landi, sem hafði sömu köllun og stóð að baki þeim, bæði í fyrirbæn og með því að standa straum af öllum kostnaði. Þessi hópur fól þau Guði á vald, er lagt var upp í þessa löngu för og umvöfðu þau bænum sínum hvern dag upp frá því. Til Konsó Felix hafði stundað nám í 6 ár á skóla fyrir verðaridi kristniboða í Osló í Noregi. Kristín var kenn- ari að mennt, en sótti auk þess námskeið í hjúkrunarfræðum. Á leiðinni út dvöldu þau um alllangt skeið í Englandi við enskunám. Addis Abeba náðu þau 25. sept- ember 1953. Þar beið þeirra tæplega árs nám í amharísku. Rúmu ári síðar, eða 26. október 1954 komust þau á leiðarenda alkomin til Konsó, einu ári og níu mánuðum eftir að þau lögðu af stað í þessa miklu för. Reyndar hafði Felix farið á undan um vorið til að kynna sér aðstæður. Þá leigði hann m.a. eitt skásta húsið í einu þorpinu þar. Þetta var lítiifjörlegur moldarkofi í þorpi þar sem húsin standa mjög þétt. Felix getur þess á einum stað, að þau hjónin hafi kallað þetta hús Bæjarbíó, því að koma þeirra í þorpið vakti að vonum óskipta Þakklæti Sr. Felix og frú Kristínu var boðið til Islands sl. sumar af Sambandi íslenskra kristniboðsfé- laga í tilefni _af 60 ára afmæli samtakanna. Á þeim tímamótum var nýr samkomusalur vígður. Það gladdi kristniboðsvini mikið, að þau hjónin skyldu geta séð sér fært að þiggja boðið. Þá prédikaði sr. Felix við hátíðarguðsþjónustu í troðfullu safnaðarheimili Grens- ássóknar. „Það þarf mikið hug- rekki borið uppi af sterkri trú til að vera fyrstur til að fara út í óvissuna, kanna að- stæður og nema nýtt land. Það er alltaf erfitt að vera braut- ryðjandi og berjast við erfið ytri skilyrði og fordóma þeirra, sem skilja ekki rök og ástæður kristniboðs- starfsins. En Guð lét það falla í hlut Felixar og Kristínar í Eþíópíu.“ athygli innfæddra. Þau voru öðru vísi en þeir og höfðu með sér ýmsan varning, sem aldrei hafði sést á þessum slóðum. Það voru því mörg augun, bæði á gluggum og í sprungum hússins, sem fylgd- ust: sífellt með þeim. Fáir geta gert sér í hugarlund álagið, sem það hlýtur að hafa haft í för með sér að geta aldrei um fijálst höfuð strokið án þess að fylgst væri með þeim. Byijunin var erfið og hefði getað rænt einhvern kjarkinn. Strax á 6. degi eftir komuna til Konsó, veiktist Felix svo heiftar- lega af malaríu, að hann var oft meðvitundarlaus. Þau hjón höfðu orðið að skilja mikið af varningi sínum eftir í Addis Abeba, þar á meðal flest húsgögnin sín. Fyrsta heimilið þeirra var því frumstætt. Felix lýsir því í einni bóka sinna. Sr. Felix Ólafsson 60 ára Sr. Felix varð 60 ára 20. nóv- ember sl. Hann er fæddur og uppalinn í Reykjavík, þar sem hann sótti KFUM sem drengur. Varð hann handgenginn sr. Magnúsi Runólfssyni fram- kvæmdastjóra KFUM og Ólafi Ólafssyni kristniboða. Jóhannes, sonur hins síðarnefnda, varð ná- inn vinur hans, en hann starfaði sem læknir um 20 ára skeið í Eþíópíu á vegum Sambands íslenskra kristniboðsfélaga. Þau hjón eiga 3 börn. Sr. Felix skrifaði licentiatrit- gerð um líf og starf Skotans Ebenezers Henderssonar, er stofnaði Hið íslenska biblíufélag fyrir 175 árum. Undirritaður vill fyrir hönd Sambands íslenskra kristniboðs- félaga og kristniboðsvina á íslandi þakka þeim hjónum fyrir ómetan- legt brautryðjendastarf í þágu kristniboðsmálefnisins. Þau eru og munu verða fyrirmynd og hvatning fyrir ókomnar kynslóðir til starfa að útbreiðslu kirkju Krists, bæði hér á landi og í heið- ingjalöndum, jafnvel þótt það kosti miklar fórnir. Höfundur er kristniboði. Kristniboðsstöðin í Konsó skömmu fyrir 1970. Þarna hófu sr. Felix Ólafsson og írú Kristín Guðleifs- dóttir kristniboðsstarf við mjög frumstæðar og erfiðar aðstæður. Þau voru búin að eignast sitt fyrsta barn. „Ekkert er þama innanstokksmuna utan rúm, litla vaggan, sem við án árangurs reynum að veija fyrir veggjalú- sinni, lítið borð, nokkrir stólar og kassar. Eldavélin er utan dyra, og hefur verið reist skýli yfir hana.“ (Bókin um Eþíópíu, bls 68.) Erfiðar aðstæður Þau þurftu ekki að kvarta undan verkefnaskorti. Við þessi erfiðu skiíyrði hófu þau að kanna Ljósmynd/Sr. Kjartan Jónsson Sr. Felix Ólafsson og frú Kristín Guðleifsdóttir í hinum nýju húsa- kynnum Sambands íslenskra kristniboðsfélaga. Þau voru heiðurs- gestir á 60 ára afmæli samtakanna í byrjun september á síðast- liðnu ári. Lj6smynd/Sr. Kjartan Jónsson Sóknarprestar Grensássafnaðar frá upphafi. Frá vinstri: Sr. Hall- dór Gröndal, núverandi sóknarprestur, sr. Jónas Gislason pró- fessor og vígslubiskup og sr. Felix Ólafsson, fyrsti sóknarprestur safhaðarins. kristna trú í Konsó, var einn af leiðtogum þeirra í andlegum efn- um, seiðmaðurinn Berrisja Germó. Hann var búinn að fá nóg af andadýrkun sinni og kukli og var- friðvana maður. Með honum hófst trúarvakning, sem staðið hefur allt fram á þennan dag. Nýr starfsvettvangur Árið 1958 sneru þau hjónin heim til íslands. Það varð hlut- skipti annarra að halda_ verki þeirra áfram. Heima á íslandi lagði Felix stund á guðfræði við Háskóla íslands og var vígður sem fyrsti sóknarprestur Grensás- sóknar. Þar féll það í hans hlut að byija aftur á nýju uppbygging- arstarfi. Síðan barst leiðin til Noregs, þar sem hann var í mikl- um tengslum við Lovisenberg, eina af miðstöðvum líknarþjón- ustu norsku kirkjunnar, en hann hafði mikinn áhuga á slíku starfi, diakoni. Það eru Danir, sem hafa síðan fengið að njóta starfskrafta þeirra hjóna síðustu áratugina. Felix var um árabil sjúkrahús- prestur á St. Lukasstiftelsen, þar til hann tók við embætti sóknar- prests í Stenlöse. betur aðstæður í hérað- inu í kring og þreifa sig áfram með kristni- boðsstarfíð. Ekki leið á löngu, þar til Felix var búinn að setja á stofn barnaskóla. Þau hjón höfðu með sér nokkrat- birgðir af lyfjum. Fólk leitaði mikið til þeirra allt frá fyrstu stund með alls kyns sjúk- dóma. 19. júní 1955 skrifar Kristín í bréfi til íslands: „Við höfum haft svo mikið að gera í lækningastarfi hér, að það er alveg að fara með okkur. Daglega er fullt af fólki, sem vill fá hjálp. Hvern morg- un, er við vöknum, situr fjöldi fólks og bíður. Eg get ekki talið allar þær sprautur, sem ég hef orðið að gefa síðan við komum hingað til Konsó. Það er svo margt, sem maður er neyddur til að gera hér, en maður myndi aidrei láta sér detta í hug að gera heima.“ (Bókin um Eþíópíu, bls. 226.) Síðar þetta sama ár var Ingunn Gísladóttir hjúkrunarfræðingur komin til starfa í Konsó og létti því mikið á Kristínu og Felix. Hún fékk líka nóg að gera, enda var engin önnur heilbrigðisþjónusta af neinu tagi í öllu Konsóhéraði. Felix tókst að fá leigða Ióð til 30ára fyrir kristniboðsstarfið. Þar voru byggð íbúðarhús fyrir kristniboðana, sjúkraskýli og skóli. Það var mikið verk að byggja stöðina upp. Þarna var miklu betra fyrir kristniboðana að búa, því þeir gátu verið meira út af fyrir sig. Kirkjustarfið hófst strax og þau fluttu til Konsó. Það fór hægt af stað, en jókst jafnt og þétt. Margir af frammámönnum í kirkju og samfélagi Konsómanna nú á dögum voru drengir Felixar á þessum fyrstu árum. Nú eru liðin rúm 35 ár síðan þetta starf hófst. 35 söfnuðir hafa verið stofnaðir með um 13.000 meðlim- um. Margs konar þróunar- og hjálparstarf fer þar einnig fram. Það vóg þungt á metunum, að fyrsti maðurinn, sem játaði Berrisja Germó og fjölskylda. Hann var seiðmaður um árabil. Hann játaði fyrstur Konsómanna kristna trú. Það var upphaf trúarvakningar, sem staðið heíúr allt fram á þennan dag.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.